Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1994, Side 49
53
LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 1994
Merming
Frá Jóni Leifs
Sinfóníuhljómsveit íslands hélt
tónleika í Háskólabíói s.l. fimmtu-
dagskvöld. Stjórnandi var Petri
Sakari, núverandi aöalgestastjórn-
andi sveitarinnar. Á efnisskránni
voru tónverk eftir Jón Leifs og
Mahler.
Tónleikarnir hófust á Hinstu
kveðju op. 53 fyrir strengjasveit
eftir Jón Leifs. Verkiö var samið á
árinu 1961 til minningar um móður
tónskáldsins sem þá var nýlátin.
Það er hægferðugt og tregafullt, en
engu að síður þrungið sérstæðri og
afar persónulegri fegurð og kæmi
það undirrituðum ekki á óvart að
þetta verk ætti eftir að festa sig í
sessi á verkefnaskrám hljómsveita
á alþjóðavettvangi. Sinfóniuhljóm-
sveit íslands lék verkið mjög vel,
af bæði sterkri tilfinningu og ná-
kvæmni.
Adagio-þáttur tíimdu sinfóníu
Gustavs Mahlers var næstur á efn-
isskrá og eins og áðurheyrt verk
Jóns Leifs hófst verk Mahlers á
víólum og meira að segja lauk með
m.a. mjög háum nótum í piccolo-
flautu, eins og við áttum eftir að
heyra mikið af í þeim verkum Jóns
sem á eftir fylgdu. Þetta verk Mahl-
ers bendir til þess að stíll hans
Tónlist
Áskell Másson
hafi verið að breytast þótt enginn
viti raunar um hverjar breytingar
tónskáldið kynni að hafa gert á
verkinu áður en yfir lyki, hefði því
enst aldur til. Þessi þáttur, eins og
hann stendur nú, er afar viðkvæm-
ur í flutningi og þrátt fyrir að um
gerólíkan stíl sé að ræða þá á þessi
tóniist þaö sameiginlegt með tónlist
Jóns Leifs að vera þrungin tilfinn-
ingum en nakin og miskunnarlaus
fyrir flytjendurna og þannig einkar
erfið í flutningi. Hljómsveitin lék
verkið af innsæi og öryggi undir
styrkri stjórn Petri Sakari. Forleik-
urinn Minni íslands op. 9 var næst-
ur á efnisskrá og er það verk sem
byggist mjög á þjóðlegum stefjum,
rímnalögum og tvísöngslögum.
Oftsinnis fléttar tónskáldið saman
á meistaralegan hátt ólíkustu stefj-
um í þessu verki.
Kór íslensku óperunnar og
Graduaiekór Langholtskirkju tóku
þátt í flutningi þessa verks svo og
í því síðasta á efnisskránni, Þjóö-
hvöt, einnig eftir Jón Leifs. Flutn-
ingur beggja þessara verka var
með ágætum á heildina litið og eiga
þar margir þakkir skildar. Skiln-
ingur hljómsveitarstjórans Petris
Sakaris á tónlist Jóns hlýtur þó að
rísa hæst og markar það að viti
undirritaðs nokkur tímamót þegar
segja má að við séum farin að heyra
verk Jóns Leifs túlkuð en ekki bara
leikin, en þaö var einmitt það sem
gerðist á þessum tónleikum.
Flutningur verksins Þjóðhvatar
var sérlega áhrifamikill en í því
verki sýnir Jón á sér margar hliðar
sem höfundur. Verkið er í sjö köfl-
um og ber hver þeirra sitt sérstæða
yfirbragð. Hér er mörgum ólíkum
öflum teflt saman, barnasöng, róm-
antik, þjóölegri sönghefð og áhrif
einnig frá framandi þjóðum. Upp-
haflega mun Jón hafa ætlað sér að
senda verkið í samkeppni sem efnt
var til vegna Alþingishátíðarinnar
1930. Þegar hann sá hins vegar að
hann átti sér í dómnefndinni and-
stæðing sem var Sigfús Einarsson
tónskáld, ákvað hann að láta vera
að senda verk sitt í þá keppni. Hafði
hann þar rétt fyrir sér að betur
færi um verk sitt ef þaö fengi að
njóta sín alfarið á eigin forsendum
án allra ytri tilefna.
Einlæg bravóhróp tónleikagesta
í lok þessara tónleika sýndu, svo
ekki verður um viiist, hvert erindi
tónhst Jóns á til okkar allra.
naust
Borgartúni 26, Reykjavík. S.91-622262
Bæjarhrauni 6, Hafnarfirði. S.91-655510
Háberg, Skeifunni 5. Rv. S.91-814788
Vilborgarsjóður
Starfsmannafélagsins Sóknar
Hin árlega úthlutun úr Vilborgarsjóði hefst mánudag-
inn 5. des. og stendur til 16. des. nk. Uppl. um regl-
ur sjóðsins og afgreiðsla á skrifstofu Sóknar, Skip-
holti 50a, sími 681150.
Stjórn Sóknar
LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐA
VALDA ÞÉR SKAÐA!
NÝTT NÝTT
100% bómull, 100% gæði
Fibri bómullarfatnaður
íl
Stærðir: M-XXL
Buxur kr. 3.990
Peysur kr. 4.990
Stærðir: M-XXL
Blá peysa kr. 3.990
Bláar buxur kr. 3.890
Rauð peysa kr. 4.990
Sendum í póstkröfu
Axel
O, Vestmannaeyjum
s. 98-13268
Dreifing Ju-GÓ, s. 679910
Fæst í öllum helstu
sportvöruverslunum
BÉhBHiíí
Sunnudaglnn 4. desember kl. 15..—_________________
stóra jólatrénu í Kringlunni.
Skólakór Kársness syngur jólalög og börn
úr Kársnesskóla kveikja á jólatrénu.
Furðufjölskyldan, Söngsveitin Fílharmónía,
Söngtríó Frú Emelíu, Kvennakór Suðurnesja.
Nýjar jólaskreytingar eru komnar upp í Kringlunni
A«tl
í desember
daga til jóla í Kringlunni.
Á laugardag er opíð
frá kl.10-16 og
sunnudag frá kl.13-17
’JSffiHBHBBBBPÍHBBBSBSBÍBBBBHBBBB
yfír 2000 bflastæði - öll ókeypis -
...alltaf hlý