Þjóðviljinn - 24.12.1975, Side 21
— Jólablað 1975. þJÓÐVILJINN — SÍÐA 21
Nýja ísland
svæðið lengt um sex milur til
norðurs. Þarna fengu islendingar
einkarétt til landnáms.
Þegar leiðangursmennirnir
þrir komu aftur til Kinmont luku
þeirmiklu lofsorði á þetta land og
hvöttu islendingana eindregið til
að flytjast þangað — en fátæktin
og eymdin var svo mikil að þeir
höfðu ekki bolmagn til fararinn-
ar. Þá skarst i leikinn landstjóri
Kanada, Frederick Temple
Dufferin lávarður, sem hafði á
yngri árum heimsótt tsland og
var mikill tslandsvinur upp frá
þvi; hann fékk lán til að styrkja
islendingana til brottflutnings frá
Kinmont til Manitoba.
Siðla i sept. 1875 lögðu þeir
svo af stað og munu hafa verið
250-300 að tölu. I hópnum voru
flestir þeir sem verið höfðu i Kin-
mont um veturinn og þar að auki
nokkrir sem gert höfðu tilraun til
landnáms I Muskoka og viðar i
Ontario. John Taylor var fyrirlið-
inn og Friðjón Friðriksson túlkur
hans, þvi að Sigtryggur Jónasson
var nú farinn til tslands til að
reka frekari áróður fyrir
Kanadaferðum. Hópurinn fór
með lest til Sarnia og þaðan með
gufuskipi yfir vötnin miklu til
Duluth, þar sem þrettán manna
hópur frá Milwaukee slóst með i
ferðina. Þaðan var haldið með
lest yfir sléttuna til bakka Rauð-
ár, en á leiðinni var stansað i
Glyndon i Minnesota, þar sem
haldin var guðsþjónusta. John
Taylor prédikaði og lagði út af
orðum 2.Mósebókar:
,,Sjá, ég sendi engil á undan
þér til að varðveita þig á ferðinni
og leiða þig til þess staðar, sem ég
hefi fyrirbúið”.
1 Fisher’s Landing var aftur
stigið um borð i gufuskip og siglt
niður eftir Rauðá. A leiðinni kom
upp sú hugmynd að skýra fyrsta
bæinn i nýlendunni „Gimli”, og
skyldi hann standa við ts-
lendingafljót.
12. okt. lenti hópurinn i mynni
Assiniboine-ár i Winnipeg. Þar
voru þá aðeins fá dreifð hús og
óskipulagðar götur með gang-
stéttum úr plönkum. Eina stór-
hýsið i borginni var virkið Fort
Garrý með fjórum varðturnum.
Nokkrir urðu eftir þarna — og er
það upphaf islendingabyggðar i
Winnipeg — en aðrir keyptu sér
flatbytnur og sigldu áfram niður
eftir Rauðá. Ætlunin var að halda
áfram eftir vatninu alla leið norð-
ur að mynni Islendingafljóts, en
siglingin gekk mjög illa, þótt
gufuskip tæki flatbyrnurnar i tog
seinni hluta leiðarinnar, — ein
flatbytnan var skirð „Vitfirring-
ur” vegna þess hve sérkennilega
hún lét að stjórn. Þegar flotinn
var kominn að Willow-point, eða
Viðinesi, var ljóst að fráleitt var
að halda lengra, og var þá gengið
þar á land. Þetta var 22. október
1875. Þann sama dag var farið að
svipast um eftir hentugu bæjar-
stæði og valinn sá staður þar sem
Gimli stendur nú: voru það
straumar og vindar sem réðu þvi
að bærinn byggðist þarna en ekki
við tslendingafljót.
Fyrsti vetur nýlendunnar var
mjög erfiður. 1 margar vikur
urðu menn að hafast við i tjöldum
úr visundahúðum, eins og indián-
ar notuðu, en siðan tókst þeim að
koma upp einum þrjátiu bjálka-
kofum. John Taylor hafði hugsað
sér að landnemarnir byggðu þá i
sameiningu og stunduðu þar e.k.
samyrkjubúskap — kannske hef-
ur hann dreymt um „Sovét-ts-
land, óskalandið”, eða þá eins
konar evagelisk „kibbúts” — en
það mistókst óhönduglega, og
klambraði hver uppsinum kofa. t
desemberlok voru flestir búnir að
velja sér jarðir, og á gamlaárs-
dag var haldin mesta hátið vetar-
ins með áramótabrennu. 4. janú-
ar 1876varsvokosinfimm manna
nefnd til að stjórna þessari ný-
lendu, sem varð þannig að eins
konar islensku smáriki, og um
sama leyti var settur á stofn
barnaskóli, þar sem Caroline,
bróðurdóttir John Taylors,
kenndi, og hafin útgáfa hand-
skrifaðs blaðs, „Nýja Þjóð-
ólfs”. Þrátt fyrir hungur og kulda
settust margir að á jörðum sinum
þegar i janúar.
En islendingum gekk mjög illa
að hagnýta sér veiðina. Þeir voru
bjargarlitlir eftir að Winni-
peg-vatn lagði, og elgsdýraveiðin
reyndist m jög erfið. Um vorið var
hungrið orðið almennt. Margir
fengu skyrbjúg og nokkrir dóu.
Ýmsir aðrir flúðu til Winnipeg.
Sjálfsagt hefði mátt búast við
miklum mannfelli ef stjórnin
hefði ekki hlaupið undir bagga, og
indiánar komið til aðstoðar.
Þennan fyrsta vetur voraði
mjög seint, og var vatnið ekki
orðið islaust fyrr en 24. mai. En
meðan þetta gerðist á Nýja ts-
landi höfðu umboðsmenn
Kanadastjórnar, einkum Sig-
tryggur Jónasson, látið mjög til
sin taka á gamla iandinu. Var það
ekki síst vegna áróðurs þeirra að
1400 manna hópur flutti burt frá
tslandi sumarið 1876, og héldu
langflestir þeirra (1200) til Nýja
Islands. Þangað komu þeir i lok
ágústmánaðar, allþjakaðir eftir
ferðina. Sumariðhafði verið mjög
óhagstætt nýlendumönnum, hey-
skapur gengið illa og flugur þjak-
að skepnur, og gátu þeir sem fyrir
voru sáralitið hjálpað hinum ný-
komnu. Kjörin voru erfið, og er
talið að um sextiu innflytjendur
hafi dáið á leiðinni og skömmu
eftir komuna til Nýja Islands.
Samt sem áður var nú lokið að
nema alla strandlengju Winni-
peg-vatns til Sandvikur. Nokkrir
urðu að velja sér jarðir innar i
landinu, og hópur manna settist
að í Mikley. Til að auðvelda land-
námið veitti Kanada-stjórn lán,
sem námu 80.000 dollurum, og
skyldi endurgreiðslu þeirra lokið
árið 1889. Um haustið lét stjórnin
mæla og kortleggja nýlenduna og
hóf að ryðja veg eftir nýlendunni
endilangri frá suðri til norðurs:
margir fengu atvinnu við það.
Þannig virtist ástandið fara
batnandi. En i september 1876 tók
óþekktur sjúkdómur að breiðast
um meðal islendinga. Fyrstu sex
vikurnar fór hann sér hægt, en
siðan fór hann eins og eldur i sinu
um alla nýlenduna. Þá fyrst kom i
ljós að þetta var bólusótt, og tóku
menn að einangra sig i kofum sin-
um — en þáð var of seint. Enginn
læknir var i nýlendunni. 27.
nóvember var allt Nýja Island
sett i sóttkvi og hervörður settur
við Nettley-læk, 15 milur fyrir
sunnan Boundary Creek, en það
var ekki fyrr en i desember sem
fyrsti læknirinn var sendur til
nýlendunnar. Nokkru siðar komu
tveir aðrir læknar og komu á fót
visi að sjúkrahúsi á Gimli. Einn
af hverjum þremur landnemum
fékk sjúkdóminn og 102 dóu. Sótt-
kvinni var ekki aflétt fyrr en
20.-21. júli 1877, og var Nýja Is-
land einangrað allan veturinn og
vorið. Hörmungarnar voru
óskaplegar, ekki aðeins vegna
sjúkdóma, heldur lika vegna
fátæktar, lélegra húsakynna og
óyndis i mönnum. Haft var eftir
Magnúsi Stefánssyni, einum af
túlkum læknanna, að þeir sem
ekki hefðu séð þetta eymdar-
ástand, gætu aldrei imyndað sér
hvernig það var. Ýmsir þeirra
Sem létust munu hafa verið
grafnir á Sandy bar, og á kvæði
Guttorms J. Guttomrssonar m.a.
við þessa atburði. Þegar sótt-
kvinni var aflétt, voru margir
helst á þvi að yfirgefa þennan
hörmungastað hið bráðasta.
En þrátt fyrir þetta sátu land-
nemarnir alls ekki auðum hönd-
um. 1 janúar 1877, þegar
bólusóttinni var nokkuð farið að
slota, voru haldnir tveir fundir,
annar á Gimli en hinn norður við
Islendingafljót, til að ræða
stjórnarskrá nýlendunnar. A
hvorum fundinum var kosin
fimm manna nefnd til að semja
Legsteinarnir i kirkjugarðinum i
að byggöin var alislensk.
Heela Island bera þvi ótvirætt vitni
V' H:'v
r|P i Míf :: jt -rl i
í Bl
K ■ ■•t l \ \ il—
1 Xj \ 1: >-■ ,
frumvörp til bráðabirgðalaga.
Mánuði siðar var svo haldinn
allsherjarfundur á Gimli og
frumvörp þessi samræmd og
siðan samþykkt. Samkvæmt
þessum lögum var nýlendunni
skipt i fjórar byggðir, Viðines-
byggð, Arnesbyggð, Fljótsbyggð
og Miklaeyjarbyggð, og skyldi
kjósa fimm manna „byggðar-
nefnd” i hverri þeirra og einn
„byggðarstjóra” úr hópi fimm-
menninganna. Þegar þessar
kosningar voru afstaðnar nokkr-
um dögum siðar, komu hinar
nýkjörnu byggðarnefndir saman
til fundar i Sandvik og kusu for-
mann og varaformann
„nýlenduráðsins”, sem byggðar-
stjórarnir fjórir skipuðu.
Við þettá sat að þessu sinni,
en skömmu eftir að sóttkvinni var
aflétt, kom Dufferin lávarður,
landstjóri Kanada, i opinbera
heimsókn i Nýja Island — eða
„Vatnsþing’ eins ognýlendan var
nefnd i stjórnarskránni. Honum
var frábærlega vel tekið og
itrekaði hann þá þau loforð, sem
Kanadastjórn hafði gefið fyrsta
stóra 1andnemahópnum
siðsumars 1874, að landnemarnir
skyldu hafa fullt frelsi innan vé-
banda Kanada og fá að halda óá-
reittir uppi islenskri tungu og
þjóðerni. Veturinn eftir var
sporið svo stigið til fulls: 11.
janúar 1878 voru stjórnarlög Nýja
Islands að fullu samþykkt á alls-
herjarþingi i Sandvik. Þau voru i
18 liðum og að öllu leyti sniðin
eftirlögum og venjum að heiman.
Þannig hófst saga þessa undar-
lega islenska lýðveldis inni i
miðju meginlandi Norður -
Ameriku, og með þvi höfðu isl.
útflytjendur náð þvi markmiði.
sem þeir höfðu lengi stefnt að: að
stofna sérsíaka nýlendu fyrir sig.
Nýja Island var sérstakt ríki,
Framhald á bls 5 4