Þjóðviljinn - 24.12.1975, Side 34
34 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN — Jólablaö 1975.
Gleðileg jól
Farsœlt komandi ár
Þökkum viðskiptin á liðna árinu
Gleðileg jól
Farsælt komandi ár.
Þökkum fyrir viðskiptin á liðnum árum.
Rafn hf.
SANDGERÐI
óskum öllu starfsfólki okkar
gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs. — Þökkum sam-
starfið á árinu sem er að liða.
HARALDUR
BÖÐVARSSON & Co.
Akranesi.
Gleðileg jól!
Farsælt komandi ár
Þökkum gott samstarf
og viðskipti á liðn-
um árum.
Kaupfélag Önfirðinga
Flateyri.
Kaupfélag
T alknafj arðar
óskar % félagsmönnum sinum og
mönnum öllum
gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs, með þökk fyrir
viðskiptin á árinu sem er að liða.
lands-
Indíánar
Framhald af bls. 25
skinnbelgi. Þetta kjöt, seir. kallað
var pemmican, var herramanns-
matur, og voru indiánarnir mjög
hraust þjóö, meðan þeir lifðu við
þessi kjör.
Útrýming visundahjarðanna
seint á 19. öld var algert rothögg
fyrir efnahag sléttu-indiána, og
var þetta hliðstætt þvi sem verða
myndi ef einhver framandi þjóð
gerði innrás i tsland og útrýmdi á
skömmum tima öllum fiski i
Norður-Atlantshafi. Þvi hefur
reyndar verið haldið fram að
hvitir menn hafi slátrað visunda-
hjörðunum visvitandi i þeim til-
gangi að eyðileggja lifsviðurværi
sléttu-indíána og útrýmá þeim
þannig. Þegar svo fór að þrengja
að cree-þjóðinni settust indián-
arnir að i bjálkakofum og fóru að
gefa sig meira að fiskveiðum og
músdýraveiðum, en lifsorkan var
ekki lengur hin sama og hreinlæti
og heilbrigðisháttum ábótavant.
Margir hvitir menn hafa dæmt
indiánana eftir þessu ástandi —
og fordæmt þá fyrir þá eymd
sem hvitir menn eru sjálfir valdir
að!
Cree-indiánar höfðu sérkenni-'
legan listiönað úr skinnum, sem
þeir saumuðu glerperlur i, og
sýndi Margrét Sæmundsson
blaðamanni Þjóðviljans mjög
glæsilegan bút af jakka, sem
þannig var gerður. Um leið likti
hún eftir hreyfingum indiána-
kvenna við sútun skinna og raul-
aði visu á cree, sem blaða-
manninum skildist að væri sútun-
arvisa. Siðar kom þó i ljós að
þetta var reyndar vögguvisa — en
það mátti alveg eins nota hana
sem sútunarljóð!
Margrét sagði að indiánarnir
hefðu oft sagt sögur og verið mjög
hjátrúarfullir. Ef maður dó inni i
bjálkakofa, lokuðu þeir dyrunum
og gerðu op I vegginn og báru lik-
ið svo út um það, svo að tryggt
væri að hinn látni rataði ekki inn,
ef hann skyldi ganga aftur!
Blaðamanninum varð þá reyndar
hugsað til frásagnar Egils sögu af
andláti Skallagríms; kannske
hefur þetta verið eðlileg varúðar-
ráðstöfun á þeim timum, þegar
menn voru almennt göldróttari en
nú gerist.
En nú eru indiánar að mestu
horfnir úr Nýja tslandi, og eru fá-
ireftirnema helst kynblendingar,
Þennan harmleik indiánaþjóðar-
innar, að vera flæmd burt úr eigin
löndum og hneppt I fátækt og
eymd hafa margir vestur-Islend-
ingar skilið furðuvel, en þó senni-
lega enginn betur en Guttormur
J. Guttormsson, sem segir i kvæði
sinu „Indiánahátiðin”:
Undir hulning fati flettum,
flæmdir dt á lifsins sand,
varnað þess að risa réttum
reikað verður þeim um land,
land, sem þeir ei lengur eiga,
land, sem rændir voru þeir,
land, sem þeir með leyfi mega
lita, en ekki hóti meir.
Eftir þessar umræður allar fór
blaðamaður Þjóðviljans að velta
fyrir sér þeirri spurningu hvað
væri nú eftir af cree-þjóðinni. En
það reyndist ekki auðvelt að fá
svar. Eitt af þvi sem vekur undr-
un ferðamanns, sem kemur
skyndilega niður i miðbæ Winni-
peg-borgar, er hinn mikli fjöldi
indiána, sem hann mætir þar á
götum; þeir eru að visu allir
klæddir að vestrænum sið, en þó
mátti þekkja þá frá öllum öðrum i
sjónhendingu. Fróðir menn sögðu
að Winnipeg myndi vera sú borg
Norður-Ameriku sem hefði hæsta
Ibúatölu indiána. En hvað er
cree-þjóðin fjölmenn nú á dög-
um? Um það má sjá ýmsar tölur,
og eru sumar hlægilega lágar, en
blaðamaður Þjóðviljans fletti upp
opinberri skýrslu um kanadiska
indiána og var þar talið að
cree-indiánar myndu nú vera um
70.000. Þeir eru þá tvimælalaust
stærsta indiánaþjóð Kanada, en
frændur þeirra odjibwa eru i
sömu skýrslu taldir um 50.000 og
fylgja þeim þvi allfast eftir.
Stærstu byggðir cree-indiána eru
nokkuð fyrir norðan Nýja Island,
noröur meö Winnipegvatni og svo
þar fyrir vestan, I Saskatchewan.
Mannfræðingurinn John
Matthiasson, sem er vestur-is-
Framhald á bls. 36
'jólaskrtyiingar
Rauðgreni jólatré
Bjágreni jólatré
GRÖÐRARSTÖÐIN
V/MIKLATORG
símar 22822 — 19775
GRÖÐRARSKÁLINN
V/HAFNARFJARÐARVEG
Sími 42260
GRÖÐRARSTÖÐIN
BREIÐHOLTI
sími 35225
Gleðileg jól
Farsælt komandi ár
Þökkum gott samstarf og viðskipti á
liðnum árum.
Kaupfélag Langnesinga
Þórshöfn — Bakkafirði
Gleðileg jól
Farsœlt komandi ár
Þökkum viðskiptin á liðna árinu
Byggingavöruverslun Kópavogs
BYKO
Útvegum skuttogara og önnur fiskiskip af
öllum stærðum og gerðum.
Nánari upplýsingar gefa
Austurstræti 17 (hús Silla og Valda).
Simar: 13057 — 21557.
H