Þjóðviljinn - 24.12.1975, Qupperneq 47
Jólablaty 1975 — ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA4 7
Orkulindir
íslendinga
Framhald af bls. 4 4
uppleystra efna. Kröfluvirkjun er
reist á svæði sem er sérstaklega
verndað með lögum, Mývatns-
svæðinu, og það er undir umsjá
náttúruverndarráðs. Þar verða
gerðar sérstakar ráðstafanir til
að hamla gegn þvi að affallsvatn-
ið meingi út frá sér.
Aðrar jarðvarmavirkjanir, td.
hitaveitur, geta einnig haft
meingandi áhrif. Til að mynda
kemur uþp saltvatn á Svartsengi,
það er leitt i varmaskiptistöð til
að hita venjulegt vatn sem siðan
er dælt til notenda. Saltvatnið
er þá búið að skila hlutverki sinu
og eitthvað verður að gera við það
og girða fyrir að það meingi um-
hverfið. Hinsvegar koma ekki
upp nein svona vandamál hjá
Hitaveitu Reykjavikur þar eð
sama vatnið og kemur upp úr
borholunum er notað beinlinis i
húsum fólks.
Til eru fleiri neikvæð um-
hverfisáhrif i þessum málaflokki
en allt er það þess eðlis að vand-
inn þarf ekki að verða stór nema
vanrækt sé að taka tillit til hans i
upphafi. Ég get td. nefnt að
háspennulinur hafa sjónræn áhrif
til truflunar þótt þær spilli ekki
landi að öðru leyti nema rétt
þegar verið er að leggja þær.
Núorðið er farið að taka eftir
þessum annmarka og á að vera
hægt að haga lagningu háspennu-
lina þannig að þær valdi engum
stórspjöllum að þessu leyti.
Þegar rætt er um umhverfis-
áhrif virkjana er vert að muna
-eftir þvi.að slik áhrif eru engan
veginn alltaf neikvæð. Virkjunar-
framkvæmdir getá lika haft bæt-
andi áhrif á umhverfið. td. með
þvi að draga úr eða útiloka flóð er
valda landskemmdum og á fleiri
máta. Sem dæmi má nefna að
virkjun Blöndu mun að mestu
koma i veg fyrir að áin skemmi
land i Langadal, svo sem hún
hefur gert um aldir.
Eignarréttarhug-
takið þróaðist við
aðrar aðstæður
en nú ríkja
— Hvernig kemur eignarréttur
á náttúruauðlindum við orkumál-
in?
— Tvimælalaust getur sú
óvissa sem nú rikir um éignarrétt
verið til trafala. Oft er hér um
óbyggðir að ræða þar sem eignar-
réttarhugtakið verður harla
þokukennt, einkum varðandi
afréttarlönd. Ég tel nauðsynlegt
að marka skýrari linur i þessum
efnum en nú er. Málið liggur að
þvi leyti tiltölulega einfalt fyrir
með vantsafl að þar fylgja rétt-
indin landinu.
En vandinn er oft sá að vita
hver á landið. Hver á td. Langa-
sjó og umhverfi hans? Eða
Hvitárvatn? Eða Hraun, há-
lendisranann austur úr Vatna-
jökli? Svipaður vandi verður á
vegi varðandi jarðhitann, enda
eru sum jarðhitasvæði i óbyggð-
um. En i sambandi við jarðhitann
koma að auki upp ýmis óvanaleg
sjónarmið.
Til þess að hitinn i iðrum jarðar
nýtist okkur sem búum ofan á
jarðskorpunni þarf tvennt: heitt
berg og vatn. Og fylgja þá
jarðhitaréttindin vatninu eða
berginu eða hvoru tveggja?
Vatnið sem leiðir hitann úr berg-
inu og gerir hann nýtanlegan, gat
hæglega fallið sem rigning á aðra
landareign en þá þar sem hitinn
barst upp á yfirborðið eða var
sóttur upp á yfirborðið. Og þá öf-
ugt: vatnið sem hitnaði undir
landareign eins gat runnið til
heitt niðri i jörðunni og komið sið-
an upp i landareign annars. Hvor
á þá hvað?
Hér er einfaldlega um það að
ræða, að þegar eignarréttarhug-
takið þróaðist höfðu menn fyrir-
bæri einsog jarðhita ekki i huga.
Menn eru þvi að reyna að koma
honum inn undir eldri hugtök með
ýmsum tilbúnum skýringum.
Mikil nauðsyn er á þvi að þetta
færist i skýrara horf. Ef mikil
óvissa og ringulreið rikir i þessu,
getur það hæglega tafið nýtingu
jarðhitans og raunar vatnsaflsins
einnig.
Snjómælingar á hálendinu. Snjódýptin gefur hugmynd um það, hve mikilsleysingarvatns sé aö vænta að vori. Þvi vatni væri hægt að safna
ilón til miðlunar vegna vatnsaflsvirkjana. Ljm. S. Rist.
Fæst nokkurntíma
orka úr veöri og
vindum ?
— Nú iangar mig að spyrja um
likindi þess að við tökum að hag-
nýta einhverja aðra orkugjafa en
heitt og kalt vatn. Ertu trúaður á
að olia finnist i grennd við tsiand?
— Ég tel ákaflega veika von
um að hún finnist svo að nýtanleg
verði, fyrr en þá i fjarlægri fram-
tið. í Sovéskum rannsóknarleið-
angri fyrir nokkrum árum komu
vissar bendingar um jarðlög sem
gætu innihaldið einhverja oliu á
svo sem 1.500 metra dýpi langt
austur af landinu. Litlar fréttir
hafa borist af niðurstöðum
rannsóknanna og er þvi best að
tala varlega um þetta. Þetta er
þvi allt miklum vafa undirorpið,
og i öðru lagi fundust þessi jarð-
lög á miklu meira vatnsdýpi en
svo að enn sé mögulegt að vinna
þar nokkra oliu með núverandi
vinnslutækni.
— Sjávarföll?
— Það getur ekki talist vænlegt
að virkja sjávarföllin hjá okkur
þvi mismunur flóðs og fjöru er
ekki svo mikill. Þetta hefur verið
gert i Frakklandi og mikið hefur
verið rætt um slikar virkjanir á
austurströnd Norður-Ameriku, en
þar er munur flóðs og fjöru 10-20
metrar á móti aðeins 4-5 metrum
hjá okkur. Þetta væri etv. tækni-
lega mögulegt og menn hafa látið
sér detta i hug Hvammsfjörð i
þessu sambandi, en á meðan við
höfum árnar óbeislaðar förum
við varla að lúta að þessu
— Sól og vindur?
— Við erum of norðarlega á
hnettinum til þess að sólin geti
nokkuð hjálpað okkur til orku-
framleiðslu i venjulegum skiln-
ingi. Af vindinum höfum við aftur
nóg þvi hann er mikill og býsna
stöðugur sumstaðar. Hæpið er þó
að vindgangurinn muni skipta
okkurmáli um langa framtið. Við
höfum aðra möguleika sem
stendur okkur nær að nýta.
Geta einhverjir
farið aö „keppa”
viö okkur?
— Stundum er talað um það að
orkulindir okkar niuni brátt
standa höilum fæti i ,,sam-
keppni” við ódýra orku frá kjarn-
orkuverum. Er það raunhæft?
— Þaðerekki fyrirsjáanlegt að
kjarnorka geti keppt við vatnsafl
þar sem virkjunaraðstæður eru
góðar. Að minnsta kosti alls ekki
á næstunni. En hvað siðar gerist
er erfitt um að segja, þvi þetta er
tiltölulega ný tækni og sam-
keppnisaðstaðan kynni þvi að
breytast i fjarlægri framtið.
En i sambandi við hugsanlega
samkeppni af hálfu ódýrra orku-
gjafa get ég nefnt miklu raunhæf-
ari möguleika. Það mætti nefni-
lega láta sér detta i hug jarðgasið
sem kemur upp i Arabalöndunum
um leið og olian, en þvi er nú yfir-
leitt brennt án nokkurra nytja. Ef
svo færi að pólitiskt ástand i þess-
um löndum yrði kyrrara en nú
hefur verið um skeið þannig að
um verulega fjárfestingu i orku-
frekum iðnaði yrði að ræða á
svæðinu sjálfu, . þá hlýtur það að
koma upp hvernig þetta jarðgas
verður hagnýtt. Ef ekki finnast
nein verðmætari not fyrir það en
raforkuvinnsla, gæti hún orðið
mjög ódýr. Þarna færi saman
lágur stofnkostnaður orkuver-
anna(gashverflar)og hráefni sem
kostar svotil pkki neitt. En jarð-
gas er i sjálfu sér verðmætt sem
hráefni fyrir ýmiss konar efna-
iðnað, og að sjálfsögðu einnig sem
eldsneyti. Td. er það ekki útilokað
að leggja jarðgasleiðslur frá Mið-
austurlöndum um Balkanlöndin
og til Miö- og Vestur-Evrópu.
Bæði efnaiðnaður i Arabalöndun-
um og sala til Evrópu eru
verðmætari not á jarðgasinu en
Framhald á 48. siðu
Httfíð pappirunum vlð
óþarfa hnjaskl
og yður vlð
stöðugrilelt iðrelðunnl
Notið til þess plastáhöldin vinsælu frá Múla-
lundi. Þau hjálpa yður til að halda pappírun-
um á sínum stað. Við fylgjumst með þörfinni
og framleiðum nú flestar gerðir af möppum
og bréfabindum í mörgum stærðum og lit-
um, til hvers konar nota, ennfremur hUlstur
og poka úr glæru plasti t.d. fyrir skírteini,
reglugerðir, 1. dags umslög o.fl.
Fyrir fundarhöld getið þér fengið skjala-
möppur
ásamt barmmerki með nafni hvers
þátttakanda.
Fyrir bridgekeppnir framleiðum við Bridge-
bakkann góða.
Vörur okkar eru stilhreinar og vandaðar og
við allra hæfi.
MÚLALUNDUR— ÁRMÚLA 34 — REYKJAVÍK - SÍMAR 38400 OG 38401