Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1995, Qupperneq 2
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1995 JLlV
*
2 *
fréttir
Skoöanakönnun DV á fylgi flokkanna:
Sjálfstæðisflokkur i sokn
en Framsóknarflokkur tapar
- Alþýðuflokkur sækir í sig veðrið og Kvennalisti hjarnar við
Meðan Sjálfstæðisflokkurinn bæt-
ir stöðugt við fylgi sitt kvamast
jafnt og þétt af stuðningsmannahópi
Framsóknarflokksins. Alþýðuflokk-
urinn og Kvennalistinn sækja í sig
veðrið en Alþýðubandalagiö og Þjóð-
vaki tapa fylgi. Þetta er niðurstaða
skoðanakönnunar DV sem fram-
kvæmd var á miðvikudags- og
fímmtudagskvöldið.
Af þeim sem afstöðu tóku i skoð-
anakönnun DV sögðust 12,9 prósent
styðja Alþýðuflokkinn, 20,5 prósent
Framsóknarflokkinn, 46,5 prósent
Sjálfstæðisflokkinn, 13,7 prósent Al-
þýðubandalagið, 1,9 prósent Þjóð-
vaka og 4,3 prósent Kvennalista.
Náttúrulagaflokkurinn mældist með
0,2 prósenta fylgi en önnur ffamboð
komust ekki á blað.
í könnuninni reyndust samtals
67,0 prósent þeirra sem afstöðu tóku
styðja stjórnarflokkana. Þriðjungur
kjósenda sagöist styðja einhvern
stjómarandstöðuflokkanna.
Miðað við síðustu skoðanakönn-
im DV, sem ffamkvæmd var í sept-
ember, hefur fylgi Alþýðuflokksins
aukist um 3,1 prósentustig, fylgi
Framsóknarflokksins minnkað um
6,1 prósentustig, fylgi Sjálfstæðis-
flokksins aukist um 4,0 prósentu-
stig, fylgi Alþýðubandalagsins
minnkað um 1,6 prósentustig, fylgi
Þjóðvaka minnkað um 1,0 prósentu-
stig og fylgi Kvennalistans aukist
um 1,4 prósentustig.
Úrtakið í skoðanakönnun DV var
1.200 manns, eða helmingi stærra en
DV styðst venjulega við í könnun-
um sínum. Jafiit var skipt á milli
kynja og eins á milli landsbyggðar
og höfuðborgarsvæðisins. Spurt var:
„Hvaða lista mundir þú kjósa ef
þingkosningar fæm fram núna?“
Af öllu úrtakinu reyndust 6,7 pró-
sent styðja Alþýðuflokk, 10,6 pró-
sent Framsóknarflokk, 24,1 prósent
Sjálfstæðisflokk, 7,1 prósent Alþýðu-
bandalag, 1,0 prósent Þjóðvaka, 2,3
prósent Kvennalista og 0,1 prósent
Náttúrulagaflokkinn.
í skoðanakönnuninni reyndust
42,3 prósent óákveðin og 6,0 prósent
neituðu að gefa upp afstöðu sína.
Alls tóku því 51,7 prósent aðspurðra
afstöðu í könnuninni. Miðað við síð-
ustu könnun DV hefur óákveðnum
Stuttar fréttir
Allianz á islandi
Þýska tryggingafélagið Alli-
anz hefur ákveðið að stofha úti-
bú hér á landi, fyrst erlendra
tryggingafélaga. Allianz er
stærsti tryggingaraðili Evrópu
og einn af leiðandi tryggingaað-
ilum heimsins.
Bjami fær stuðning
Bjarni P. Magnússon, fyrrv.
sveitarstjóri Reykhólahrepps,
hefur fengið stuðningsyfirlýs-
ingu frá meira en helmingi at-
kvæðisbærra íbúa hreppsins.
Hreppsnefhdin fór fyrir skömmu
fram á opinbera rannsókn á
störfum Bjama. Bylgjan greindi
frá.
Viöræðum fram haldiö
Flugumferðarstjórar og fúll-
trúar ríkisins hittust hjá Ríkis-
sáttasemjara í gær. Skv. RÚV er
fyrirhugað að halda kjaravið-
ræðunum áfram.
Val heppnaö þjóöarátak
Þjóðarátak stúdenta vegna
Þjóðarbókhlöðunnar skilaði
jafhvirði um 30 milljóna króna.
-kaa
DV
30%
25
20
15
10
5
0
□ Kosn. 8/4 '95
1=1 DV 21/9 '95
° DV 30/U '95
Skipan þingsæta
— samkvæmt skoöanakönnun —
30
50%
45
40
35
30
25
20
Fylgi flokka
— samkvæmt skoöanakönnun —
46,5
42,5 j
37,1
26,6
23,3
20
15,3
□ Kosn. 8/4 '95
□ DV 21/9 '95
G DV 30/11 '95
Niðurstöður skoðanakönnunar DV
- til samanburöar eru niðurstööur fyrri kannana DV og úrslit þingkosninga -
45%
40
35
30
25
20
15
10 S
5
°l l_
6/4 Kosn.
'95 '95
30/116/4 Kosn.
'95 '95 '95
I I-
30/11 6/4 Kosn.
'95 '95 '95
30/11 6/4 Kosn.
'95 '95 '95
► I I I -
30/11 6/4 Kosn.
'95 '95 '95
-►< I ‘1-1
30/116/4 Kosn.
'95 '95 '95
og þeim sem svara ekki fjölgað um
5,9 prósentustig.
Sé þingsætum skipt á milli flokka
samkvæmt skoðanakönnun DV
fengi Alþýðuflokkur 8 menn kjöma
á þing og ynni mann miðað við úr-
slit síðustu kosninga. Framsóknar-
Ðokkur fengi 13 þingsæti, tapar
tveimur þingsætum. Sjálfstæðis-
flokkur fengi 30 menn kjöma og
bætir við sig fimm þingsætum frá
síðustu kosningum.
Alþýðubandalagið fengi 9 menn
kjöma á þing ef kosið væri núna,
sama fjölda og í þingkosningunum.
Þjóðvaki myndi hins vegar tapa 3
þingsætum - fékk fjóra kjöma í vor
en fengi einungis einn núna sam-
kvæmt könnuninni. Kvennalistinn
myndi fá 2 konur kjömar á þing
núna og tapa einu þingsæti.
Bóksölustríð hafið
Bóksölustríð er hafið eftir að Bón-
us-verslanir fóra að bjóða 20% af-
slátt á bókum. Nokkrar bókaversl-
anir, s.s. Eymundsson og Penninn,
hafa auglýst 15% afslátt og telja bók-
salar og útgefendur að Bónus hafi
rift samkomulagi um 15% hámarks-
afslátt. Jóhannes í Bónusi sagði
hins vegar við DV að fyrirtæki sitt
væri ekki bundið þessu samkomu-
lagi.
Litlu munaði að útgefendur lok-
uðu á viðskipti við Bónus á fimmtu-
dag en eftir samráðsfúnd var ákveð-
ið að láta fyrirtækinu bækur í té.
Óskar Magnússon, forstjóri Hag-
kaups, sagði það ókveðið hvenær
fyrirtækið tilkynnti afslátt og hve
mikill hann yrði. „Þetta gerist þegar
það gerist," sagði Óskar en sem
kunnugt er var Hagkaup með 25%
afslátt af bókum í.fyrra.
Jóhannes í Bónusi sagði það ekki
spumingu að ef einhver byði meiri
afslátt en Bónus yrði boðið betur.
Þess má geta að Kaupfélag Ámes-
inga á Selfossi byijaði í gær að
bjóða 25% bókaafslátt.
-bjb
Forseti íslands:
Ellefu manns fengu
riddarakrossinn
Forseti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, afhenti i gær ellefu ís-
lendingum riddarakrossinn, heið-
ursmerki hinnar íslensku fálka-
oröu, samkvæmt tillögu orðunefnd-
ar.
Eftirtaldir fengu riddarakrossinn:
Bjami Helgason, garðyrkjubóndi á
Laugalandi, fyrir störf að garðyrkju-
og félagsmálum, Eyþór Þórðarson,
starfsmaður í Þjóðskjalasafni, fyrir
fræða- og félagsstörf, Guðmundur
Eiríksson, þjóðréttarffæðingur, fyr-
ir störf að hafréttarmálum í þágu ís-
lands, dr. Gunnar Guðmundsson,
prófessor og yfirlæknir, fyrir vís-
indastörf, Hafsteinn Hafsteinsson,
forstjóri Landhelgisgæslunnar, fyrir
störf í opinbera þágu, Helgi Þorláks-
son, fyrrv. skólastjóri í Reykjavík,
fyrir störf að skóla- og félagsmálum,
Jensína Halldórsdóttir, fyrrv. skóla-
stjóri Húsmæðraskóla Suðurlands,
fjTÍr fræðslustörf, Kristján Ragnars-
son, prófessor og endurhæfmgar-
læknir í New York, fyrir félags- og
vísindastörf, Petra Sveinsdóttir,
húsmóðir á Stöðvarfirði, fyrir söfn-
un og varðveislu náttúruminja, Sig-
rún Hjálmtýsdóttir (Diddú), ópem-
söngkona, fyrir sönglist, og Snorri
Hermannsson, húsasmíðameistari á
ísafirði, fyrir framlag til björgunar-
mála.
-bjb
Skekkjumörk í könnun sem þess-
ari em tvö til þrjú prósentustig.
Þess má hins vegar geta að í síðustu
skoðanakönnun fyrir kosningamar
í apríl síðastliðnum var meðalfrávik
frá kjörfylgi flokkanna einungis 0,29
prósentustig. -kaa
KK í bílslysi:
Vildi spila
en fær ekki
„Hann vildi ólmur spila nú á
sunnudaginn í gifsinu en fær
það ekki. Það verður að fresta
öllu tónleikahaldi fram yfir ára-
mót," segir Ellen Kristjánsdótt-
ir, söngkona og systir tónlistar-
mannsins Kristjáns Kristjáns-
sonar eða KK.
Hann slasaðist í bflslysi í
Hvalfirði í fyrrinótt og verður
því að fella niður fyrirhugaða
útgáfutónleika á morgun. KK
hlaut áverka á hné og brjósti en
er á batavegi. -GK
Kringlan opin um helgina:
Kveikt á jólatré
Nú hefur tekið gildi lengri af-
greiðslutími í Kringiunni sem
gildir til jóla og eru allar versl-
anir í Kringlunni nú opnar alla
daga til jóla og lengur um helg-
ar. í dag, laugardag, verður opið
frá kl. 10 tii 18 Kringlunni og á
morgun, sunnudag, frá kl. 12 til
18. Kveikt veröur á jólatré
Kringlunnar á morgun kl. 15.
Fjölmargt verður til skemmt-
unar um helgina, í dag verður
kynning á keppninni „sterkasti
maður heims".