Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1995, Side 47
X>V LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995
51
en brennivín og tóbak drepur fólk
oftast á nokkrum árum.
Bráðdrepandi eitur
á markaðnum
Stjórnleysi markaðarins er eitt af
meginvandamálunum við alsælu.
Samviskulausir glæpamenn setja
oft „lélega" vöru inn á markaðinn.
Ekkert „gæðaeftirlit" er til staðar
og enginn veit hvaö raunverulega
er í töflunum og engu er hægt að
treysta. í raun gerir þetta neysluna
að rússneskri rúllettu.
Framleiðendur reyna að láta töfl-
urnar líta sakleysislega út og þær
eru oft skreyttar með fallegum
myndum. Af þekktum pillum, sem
bera gjarnan nöfn eftir myndunum
sem á þeim eru, má nefna: ankeri,
grís, höfrung, engil, hjarta, kráku-
fót, fil, fugl, kanínu, yin/yan og
hamar og sigð, sem er reyndar oft
kölluð hvít-rússi.
NIAD, hollensk stofnun sem sér
um málefni áfengis og eiturlyfja,
hefur gert miklar athuganir á inni-
haldi alsælutaflnanna. í einu úrtaki
var innihald 51 pillu rannsakað. Þar
kom í ljós að flestar pillanna inni-
héldu átta sams konar efni, þ. á m.
MDMA, sem er efnaheiti alsælu. í
einni pillunni reyndist MDMA-inni-
haldið það mikið að það hefði geng-
ið af unglingspilti dauðum hefði
hann tekið töfluna. Fjórar pillur
reyndust innihalda óþekkt efni og í
níu tilfellum var um að ræða
paracetamol, vitamíntöflur, hálstöfl-
ur og svefnlyf. Þá var algengt að
pillurnar innihéldu MDA og MDE,
sem eru efni lík MDMA en veita
ekki þá vímu sem alsæluneytendur
sækjast eftir.
Sem dæmi um ruslið sem selt er á
hollenska markaðnum veiktust ný-
lega 200 manns í einu og sama rave-
partíinu (eitthvað sem eldra fólk
myndi kalla ball en þarna ekki
drukkið áfengi heldur vatn og al-
sælupillur bruddar með) vegna
neyslu á XTC. Sjö voru fluttir með-
vitundarlausir í sjúkrahús og þrír
af þeim áfram á sérhæft sjúkrahús.
í ljós hefur komið að neytendur
alsælu eru í fæstum tilfellum for-
hertir glæpamenn heldur ungt
skólafólk sem kaupir efnið af fúsum
og frjálsum vilja. Þess vegna hafa
yfirvöld í Hollandi tekið upp á að
bjóða unglingunum upp á pillupróf
til að minnka hættuna á „skaðleg-
um“ pillum í umferð. Hafa ber þó í
huga að minnsta hættan felst í því
að láta óþverrann vera. -EE
DV, Holland:
Hann var dálítið þreyttur og ætl-
aði eiginlega ekki út þetta kvöld.
Þessi tvö „rave-partí“ sem hann
hafði áður farið í fundust honum
ekkert sérstök. Stemningin átti ekki
við hann. Ecstacy-pillurnar virtust
heldur ekki virka á hann og hann
hafði aldrei fundið fyrir þessari
„hitatilfinningu" sem vinir hans töl-
uðu um.
„Þetta XTC er ekki neitt,“ hugs-
aði hann. Hann vildi frekar vera
heima með vinum sínum og hlusta
á Jimi Hendrix, ræða málin, tefla og
reykja eina ,jónu“ (maríúana). En
vinir hans vissu hvemig þeir áttu
að fara að honum og þeir voru bún-
ir að kaupa fyrir hann miða. Það
var nóg til að Sander ákvað að
skella sér með í „húspartíið" Jarð-
skjálta II í Willem-Alexander
íþróttamiðstöðinni í Zoetermeer í
Hollandi.
Pillurnar voru keyptar fyrir
fram. Það voru „fílar", afbrigði sem
er þekkt sem mjög varasamt. En
margir gestanna voru búnir að
prófa pillurnar og þær virtust vera
„í lagi“.
Á miðnætti tók Sander inn fyrri
helminginn af pillunni og seinni
helminginn um kl. 1.30. Þótt hann
hefði búist við að það yrði leiðinlegt
virtist hann skemmta sér ágætlega.
Hann sat rólegur í stúkunni, reykti
Mikil umfjöllun varð í Bretlandi í kjölfar þess að ung stúlka lést eftir neyslu
alsælu. Foreldrar hennar komu fram í fjölmiðlum f þeirri von að dóttir þeirra
hefði ekki látist til einskis - að iát hennar yrði öðrum ungmennum víti til
varnaðar.
að dæla upp úr maga sjúklinganna
duga sjaldnast því að efnið er kom-
ið út í blóðið, en það er samt gert ef
talið er að um mjög stóra skammta
hafi veriö að ræða. Aðrar aðferðir
eru: öndunarvél, blóðhreinsun
(hemodialyse), lyf til að stöðva
hjartaóreglu, endurlífgun og nýrna-
og lifrarígræðsla. Við algeng ein-
kenni, þ.e. ofhitnun, er bara til ein
einföld aðferð: að vefja sjúklinginn
inn í blaut lök og hella yfir svölu
vatni. Einnig eru notaðir klútar
sem bleyttir eru í alkóhóli. Auka-
lega er stundum gefið Dantrolene en
það er vöðvaslakandi lyf sem þarf
skv. J. Meulenbelt að rannsaka
miklu betur í þessu sambandi. Lík-
urnar á því að slík rannsókn fari
fram eru þó litlar því fyrst þyrfti að
rannsaka áhrif XTC á líkamann og
það efni er á bannlista. Slíkar rann-
sóknir eru líka dýrar og erfitt að sjá
hvaða lyfjafyrirtæki tæki slikt að
sér.
Einkenni XTC-sjúklinga
Aukaverkanir XTC-lyfsins sem
læknar meðhöndla eru alltaf þær
sömu, mikiö vökvatap og mikil of-
hitnun. Einkennin eru sams konar
og sjást hjá maraþonhlaupurum
sem hníga niður úrvinda. Auka-
verkanir XTC líkjast einnig auka-
verkunum nokkurra lyíja sem not-
uð eru við geðlækningar svo sem
Dauðaganga 19 ára drengs
eftir neyslu alsælu
sígarettu og sagði vinum sínum frá
framtíðaráætlunum sínum. Hann
ætlaði að halda áfram í námi og
læra umhverfisfræði og fara að
leigja með kærustunni, Suzanno.
Um klukkan tvö gekk glas af kóki
milli nokkurra gestanna og að sögn
vina Sanders innihélt-það dálítið af
uppleystu afmetamíndufti. Sander
vissi það ekki og fékk sér sopa en
þegar vinur hans hrópaði að það
væri „spítt“ i glasinu hætti hann
strax að drekka og rétti glasið
næsta manni. Um
klukkan
hálfsjö byrjaði Sander að dansa
ákaft og fljótlega tóku menn eftir
því að hann hegðaði sér öðruvísi en
hann átti að sér. Hann fór að slaga
og kærustunni fannst hann hegða
sér mjög undarlega. Smám saman
varð ljóst að hann hafði enga stjórn
á líkamanum. Dyraverðirnir. náðu í
hann út á dansgólfið en Sander, sem
annars var friðsamur, var orðinn
árásargjarn og sló allt og alla í
kringum sig. Starfsfólkið batt hann
því niður í stól inni á veitingstaðn-
um og svo var hringt á sjúkrabíl.
Á sjúkrahúsinu mældist Sander
með 42 stiga hita og hjartslátturinn
nálgaðist 180. Sex hjúkrunarfræð-
inga þurfti til að gefa honum
vökva í æð til að koma í veg
fyrir frekari skaða vegna
vökvataps. Honum var gef-
ið valíum og reynt var
að kæla hann niður.
Ástandið var tví-
sýnt en honum
virtist batna að-
eins á sunnudeg-
inum.
Nokkrum
klukkustundum
síðar versnaði
ástandið, hann
missti hárið og
vöðvar líkamans
byrjuðu að gefa
sig. Sander
Simjons lést
klukkan hálf-
þrjú daginn
eftir - rúm-
lega 15 tím-
um eftir að
hann neytti
alsælupill-
unnar.
Læknar
upp-
götvuðu
vandamál-
in með XTC
Fyrir lækna í
Hollandi eru svokall-
aðir „XTC-sjúklingar“
tiltölulega nýtt fyrir-
bæri og því hafa þeir í miklum flýti
þurft að búa sig undir afleiðingar
XTC-neyslunnar. Ástæðan er sú að
á tiltölulega stuttu tímabili létust 7
unglingar af völdum efnisins og á
undanfórnum 2 til 3 árum hafa þús-
undir XTC-neytenda þurft að leita
læknisaðstoðar.
Áhrif XTC
á fólk nær óþekkt
Enginn veit í rauninni hvernig
efni XTC er og hversu alvarleg áhrif
það hefur á líkamann í styttri eða
lengri tíma. Sjúkratilfellum sem
tengjast neyslu efnisins hefur fjölg-
að stórlega undanfarna mánuði og
ár og þó að hlutfall sjúkratilfella sé
lágt í samanburði við fjölda neyt-
enda er þróunin í þá átt að tilfellin
verða stöðugt alvarlegri.
Sem dæmi um hve vandamálið
hefur vaxið fjölgaði skráðum sím-
hringingum lækna í sérfræðinga-
simann vegna XTC-sjúklinga úr 10
árið 1990 í 89 árið 1993. Fjöldi hol-
lenskra sjúkrahúsa er nú kominn
með fasta meðhöndlun fyrir þennan
sjúklingahóp því tilfellin eru mörg.
Það ríkir mikil óvissa meðal lækna
og í greinaskrifum þeirra í hollensk
dagblöö má sjá að þeir eru óöruggir
varðandi meðhöndlun XTC-sjúk-
linga. Lítið er búið að rannsaka efn-
ið og lítið er vitað um hvað megi
gera og hvað ekki. Sjúklingar sem
hafa virst á batavegi hafa látist og
engar skýringar eru til.
Engin meðferð til
fyrir XTC- sjúklinga
í viðtali við hollenska dagblaðið
Trouw, 20. september 1994, lýsir J.
Meulenbelt, lyf- og eiturefnalæknir,
því hvaða aðferðum hægt sé að
beita við meðhöndlun sjúklinga sem
koma á gjörgæslu vegna neyslu
XTC.
í viðtalinu kemur fram að engin
eiginleg meðferð sé til og eingöngu
sé hægt að eiga við einkennin. Að-
ferðirnar sem mögulegt er að beita
eru helst ekki notaðar nema í tilfell-
um þar sem ekkert annað er hægt
að gera. Algengar aðferðir eins og
óreglulegum líkamshita með hættu
á heilaskemmdum. Einnig er hætta
á geðsveiflum (psychose), sem geta
leitt til ofsahræðslu (panic).
Ónýt lifur
vegna XTC-neyslu
Tvö tilfelli hafa verið skráð í Holl-
andi þar sem XTC-neytendur hafa
komist í bráða lífshættu vegna
skemmdar í lifur. Báðum sjúkling-
um tókst þó að bjarga með lifrar-
ígræðslu. í báðum tilvikum var um
einstaklinga að ræða sem neyttu til-
tölulega lítils magns af efninu. Ann-
ar sjúklinganna, 24 ára gömul
stúlka, sagðist aðeins hafa tekið
eina pillu um hverja helgi í fjóra
mánuði. Hinn sjúklingurinn hafði
samtals tekið inn 10 pillur, alltaf
með viku millibili.
í viðtali við hollenska stórblaðið
de Volkskrant segir dr. De Man, lyf-
læknir á Dijkzigt-sjúkrahúsinu í
Rotterdam, þar sem báðar lifrar-
ígræðslurnar voru framkvæmdar,
að greinilegt samband sé á milli
notkunar á svokölluðum
„húspartís“-eiturlyfjum og alvar-
legrar sköddunar á frumum í lifur.
Það séu hins vegar bara 3 ár síðan
farið var að veita þessu athygli.
Greinar hafa birst eftir De Man
um þetta efni í fræðitímaritinu
Annals of Internal Medicine sem er
virt bandarískt tímarit á sviði
læknavísinda. Önnur fagtímarit þar
sem birst hafa greinar um skaðleg
áhrif XTC á lifrina eru m.a. The
Lancet og The British Medical Jo-
urnal.
Síðustu 3 ár hafa einnig verið
birtar greinar um osakatengsl XTC
og hjartsláttartruflana og nýrna- og
heilaskemmda. En fræðilega um-
ræðan er á byrjunarstigi og sem
dæmi um það má nefna að ekki hef-
ur verið hægt að fullyrða að skað-
inn sem hefur verið greindur hjá
svokölluðum XTC-sjúklingum hafl í
raun verið vegna XTC (MDMA) því
mikil óvissa ríkir alltaf um innihald
pillanna. Greinilegt orsakasam-
hengi hefur þó fundist milli neyslu
efna sem seld eru sem XTC og ofan-
greindra skemmda á líffærum.
-EE