Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1995, Side 49
53
-------1
ÍJV LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995
Jólaplata hljómsveitarinnar Sixti-
es, Jólaæði, er að sumu leyti skop-
stæling á nokkrum jólaplötum sem
gefnar voru út á sjöunda áratugn-
um, svo sem Christmas Album með
Beach Boys frá 1964 og jólaplötu
Phiis Spectors frá árinu áður. Tekið
er hóflega létt á jólatónlistinni, jóla-
haldinu og undirbúningi þess. Sjó-
arinn ungi ætlar til dæmis ekki að
missa af matnum hjá mömmu á
jóladag þótt lífið snúist annars nær
eingöngu um skemmtanir. Og Þor-
láksmessuskötulyktin liggur eins og
þoka yfir Reykjavík með þeim af-
leiðingum að Frissi á fimmtu er fall-
inn í yfirlið af ammoníakseitrun.
Þótt Sixties séu aðallega á léttu
nótunum bregður þó fyrir alvarlegri
tóni, svo sem í lagi sem nefnist Eng-
ill og er eftir Rafn Jónsson, útgef-
anda og upptökustjóra hljómsveitar-
innar. Það er eitt tveggja til þriggja
íslenskra laga á plötunni og er
strangt til tekið ekki jólalag heldur
við texta með trúarlegum undirtóni.
Annað islenskt lag á plötunni nefn-
ist Óskalistinn og er eftir Magnús
Þór Sigmundsson. Texta þess samdi
Hafliði Vilhelmsson og er hann það
besta við plötuna Jólaæði. Þriðja
„frumsamda lagið er Skötuveislan.
Það er skrifað á liðsmenn Sixties en
er ekki langt frá því að vera eftir
Chuck Berry og heita til dæmis Run
Rudolph Run.
Jólaæði er hvorki betri né verri
plata en margt sem verið er að gefa
út um þessar mundir. Hún ber þess
vitni að vera unnin í einum græn-
um enda hefur fartin á Sixties verið
mikil á árinu sem senn er á enda.
Vonandi verður meira lagt í næstu
plötu hljómsveitarinnar.
Ásgeir Tómasson
Krakkar! í kvöld kemur
Askasleikirtil byggöa
Leikjatölva
framtíöarinnar
Mest selda íslenska
bókin samkvæmt
metsölulista DV12.
þessa mánaöar
Jodie Foster hefur afrekað það að
leikstýra tveimur kvikmyndum þó
að hún sé aðeins 33 ára gömul.
Ognþrungin
spenna
ískaldur
veruleiki
Algjört
svitabað
Jodie Foster fékk ágætisdóma fyr-
ir frumraun sína sem leikstjóri þeg-
ar hún sendi frá sér myndina „Little
Man Tate“. Það var árið 1991 og síð-
an hefur lítið heyrst frá leikstjóra-
ferli hennar. í millitíðinni hefur
hún látið eftir sér að leika og meðal
eftirminnilegri afreka hennar frá
þeim tíma er hlutverk hennar sem
afdalastúlkan Nell í samnefndri
kvikmynd.
Aðdáendur Jodie Foster sem leik-
stjóra geta nú glaðst yfir því að
komin er á markað ný afurð hennar
sem leikstjóra, myndin „Home For
Holidays". Ekki hafa allir gagnrýn-
endur verið sammála um ágæti
þeirrar myndar þó margir hrósi
henni í hástert.
Jodie Foster hefur látið hafa eftir
sér að hún taki neikvæða gagnrýni
mjög nærri sér. „Ég er einmitt þessi
týpa sem myndi setja á sig hatt og
dökk sólgleraugu og mæta á sýn-
ingu eigin myndar til þess að spyrja
fólk hvernig því hefði líkað myndin.
Ég verð að fara að læra að taka nei-
kvæðri gagnrýni með æðruleysi,"
sagði Jodie Foster í blaðaviðtali ný-
verið.
Eitt er víst að Jodie Foster á
framtíðina fyrir sér sem leikstjóri
því það eru ekki margir leikstjórar
sem hafa jafnmikla reynslu af leik
og hún, aðeins á 33. aldursári. Það
verður eflaust forvitnilegt að berja
augum nýjasta sköpunarverk henn-
ar þegar það kemur til sýninga hér
á landi.
Öttar Sveinsson er
jafnframt höfundur
metsölubókar síðasta
árs, Útkall Alfa TF-SIF
ISLENS^A
BOKAUTGAFAN
Síðumúla 11 • Sími 581 3999