Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1995, Page 54
LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995 T>V
8
nlist
G2Ð(ie.'Li
Topplag
Loks kom að því að Gangsta
Paradise féll af toppi íslenska
listans eftir 9 vikur í toppsæt-
inu. EmUiana Torrini fékk þann
heiöur að velta Gangsta úr sessi
með laginu Crazy Love sem var
í öðru sæti listans í síðustu viku.
Hástökkið
Hástökk vikunnar kemur í
hiut írsku söngkommnar Enyu
með lag sitt Anywhere Is. Það
lag var í 20. sæti í síðustu viku
en stekkur nú upp í það fjóröa.
Hver man ekki eftir frægasta
lagi Enyu, SaU Away, sem skaut
henni upp á stjörnuhimininn.
Hæsta nýja lagið
Emiliana Torrini lætur sér
ekki nægja að eiga topplag list-
ans í þessari viku heldur á hún
einnig hæsta nýja lag listans.
EmUiana er ekkert að nefna lög-
in sín löngum nöfnum, það heit-
ir einfaldlega „I“. Það lag kom
beint í áttunda sæti listans og
þar með er Emiliana orðinn
einn stærsti ógnvaldurinn á
sjálfa sig í baráttunni um topp-
sætið.
Rokkararnir
þagna
Þrír málsmetandi menn í
rokkheiminum hafa safnast tU
feðra sinna á síðustu vikum. Þar
skal fyrstan nefna Peter
nokkum Grant en hann var um-
boðsmaður Led Zeppelin á sín-
um tíma og maðurinn á bak við
stórkostlega velgengni hljóm-
sveitarinnar. Grant var sextug-
ur að aldri þegar hann lést en
banamein hans var hjartaáfaU.
Alan HuU söngvari og lagasmið-
ur þjóðalagarokksveitarinnar
Lindisfame er látinn, 50 ára að
aldri. Banamein hans var sömu-
leiöis hjartaáfaU. Og þá er Matt-
hew Ashman, fyrrum liðsmaö-
ur Adam And The Ants og Bow
Wow Wow, látinn en hann var
aðeins 35 ára gamaU. Banamein
hans var sykursýki.
Andlátsfregn-
irnar ýktar!
Að undanfömu hafa gengið
miklar sögur í popppressunni
um að soul tröllið Barry White
liggi fyrir dauðanum eftir að
hafa greinst með illkynja heUa-
æxli. White hefur nú gefíð út yf-
irlýsingu um að það séu stórleg-
ar ýkjur að hann sé á grafabakk-
anum. Hann hafi vissulega ver-
ið lagður inn á sjúkrahús í
skyndi en það hafi einfaldlega
stafað af ofþreytu og offitu en
White er sem kunnugt er í afar
góðum holdum. í yfirlýsingunni
er þess líka sérstaklega getið að
hann hafi náð af sér einum 26
kílóum á sjúkrahúsinu.
íboði
á Bylgjunni á laugardag kl. 16.00
JOÍ*
UJ >
s
|s
U. fN
-I
Qr <
Ss
TOi>l‘ 4
••• 1. VIKA NR. í-
o 2 2 5 CRAZY LOVE EMILIANA TORRINI
o. 3 18 3 MO BETTER BLUES SÆLGÆTISGERÐIN
o. 9 12 5 WHERE THE WILD ROSES GROW NICK CAVE 8. KYLIE MINOGUE
— HÁSTÖKK VIKUNNAR -
a 20 31 3 ANYWHERE IS ENYA
5 4 4 6 MY FRIEND RED HOT CHILI PEPPERS
íjL 7 - 8 IT'S OH SO QUIET BJÖRK
7 1 1 13 GANGSTA'S PARADISE COOLIO
••• NÝTTÁ LISTA —
CD NÝTT 1 I EMILIANA TORRINI
9 5 13 3 FREE AS A BIRD THE BEATLES
CTo) 19 20 5 (YOU MAKE ME FEEL) LIKE A NATURAL WOMAN CELINE DION
QD 22 - 2 ANYONE WHO HAD A HEART PÁLLÓSKAR
12 6 5 4 THE GIRL FROM MARS ASH
13 NÝTT 1 TOO HOT COOLIO
14 8 10 4 LIKE A ROLLING STONES ROLLING STONES
15 11 7 7 REMEMBERING THE FIRST TIME SIMPLY RED
m NÝTT 1 ROCK STEADY BONNIE RAITT & BRYAN ADAMS
17 13 22 3 GRAND HOTEL K.K.
18 18 16 4 HAND IN MY POCKET ALANIS MORISETTE
Ell NÝTT 1 JESUSTO ACHILD GEORGE MICHAEL
20 10 9 8 TIL I HEAR IT FROM YOU GIN BLOSSOMS
(21) 38 - 2 LIE TO ME BON JOVI
22 12 15 4 UNIVERSAL BLUR
23 16 3 8 WONDERWALL OASIS
24 21 27 4 I GOT 5 ON IT LUNIZ
BI9 NÝTT 1 ITCHYCOO PARK M PEOPLE
16 5 GOLDENEYE TINA TURNER
NÝTT 1 ÞÚ OG ÉG OG JÓLIN SVALA BJÖRGVINSDÓTTIR
00 ÍN 17 8 8 HEAVEN FOR EVERYONE QUEEN
(2§) NÝTT 1 Ó BORG MÍN BORG BUBBI
30 40 - 2 YOU'LL SEE MADONNA
31 32 - 2 EYES OF BLUE PAULCARRACK
32 23 24 4 HANNAHJANE HOOTIE & THE BLOWFISH
33 31 33 3 MEÐ BLIK í AUGA BUBBi
NÝTT 1 PROMISES BROKEN SOUL ASYLUM
35 26 30 4 BELIEVE GUSGUS
(36) N Ý TT 1 POWER OF LOVE/LOVE POWER LUTHER VANDROSS
(37) N Ý T T 1 KEEP ON RUNNING AGGI SLÆ 8i TAMLA SVEITIN
(38) N Ý T T 1 EF ÉG NENNI HELGI BJÖRNSSON
39 14 6 4 CLUBBED TO DEATH CLUBBED TO DEATH
40 36 - 2 MISS SARAJEVO PASSANGERS
Nývon
fyrir Snoop
Vitnaleiðslur í réttarhöldun-
um yfir rapparanum Snoop
Doggy Dogg em hafnar og útlitið
fer skánandi hjá rapparanum og
lífverði hans sem era ákærðir
fyrir morð á Philip nokkrum
Waldemariam í Los Angeles fyr-
ir rúmum tveimur árum. Megin-
ástæöan fyrir því að staða þeirra
hefur skánaö er játning tveggja
vina Waldemariams sem viður-
kenna að hafa fjarlægt byssu sem
hann bar á sér þar sem þeir komu
að honum liggjandi í blóði sínu
eftir skotárás Snoops og lífvarð-
arins. Þar með styrkjast vamar-
rökin i málinu sem ganga út á
sjálfsvöm, en fram til þessa hef-
ur því verið haldið fram að líf-
vöröur Snoops hafi skotið Walde-
mariam með köldu blóði.
Dularfulla
hvarfið
Að undanfomu hefur Morriss-
ey verið á rómaðri tónleikaferð
um Bretlandseyjar ásamt David
Bowie. Á tónleikum, sem haldn-
ir vora í Aberdeen fýrir nokkru,
var hins vegar tilkynnt að
Morrissey kæmi ekki fram vegna
veikinda og síðar var tilkynnt að
hann myndi ekki leika á fleiri
tónleikum með Bowie. Málið þyk-
ir hið dularfyllsta þar sem nán-
ustu aðstoðarmenn Morrisseys
segjast ekki hafa hugmynd um
hvar hann er niðurkominn eða
hvort eitthvað sé hæft í fregnum
um að hann liggi á sjúkrahúsi.
Talsmenn Bowies hafa hins veg-
ar borið til baka fréttir um að
ástæðuna fyrir skyndilegu brott-
hvarfi Morrisseys megi rekja til
heiftarlegs uppgjörs miUi hans og
Bowies.
Plötufréttir
Rapparinn Eazy-E sem lést fyrr
á árinu ætlar nú að feta í fótspor
margra faliinna poppara og gefa
út plötu eftir andlátið. Hann var
kominn vel á veg með nýja plötu
þegar hann lést og síðan hafa að-
stoðarkokkar séð um að ljúka við
gerð hennar. Platan ber hið vold-
uga nafh „Str8 Off Tha Streetz Of
Muthaphukkin Compton" og
kemur út í byrjun næsta árs. Um
svipað leyti kemur svo út önnur
plata með Eazy-E en það er safn-
piata með úrvali af lögum hans
og mun sú plata bera nafiiið „Et-
emal E“... Pet Shop Boys em fam-
ir að leggja drög að nýrri plötu
sem enn sem komið er hefur ekki
hlotið nafn né útgáfudag ... Og
Tina Tumer, sem hefur haft held-
ur hljótt um sig undanfarin miss-
eri, er þessa dagana á fullu að
hljóðrita ný lög á nýja plötu sem
lítur dagsins ljós á fyrri hluta
næsta árs...
-SþS-
Kynnir: Jón Axel Ólafsson
Islenski listinn er samvinnuverkefni Bylgjunnar, DVog Coca-Cola á Islandi. Listinn er niðurstaða skoðanakönnunar sem er framkvæmd af markaðsdeild DVi hverri viku.
Fjöldi svarenda er á bilinu 300 til 400, á aldrinum 14 til 35 ára af öllu landinu. Jafnframt er tekið mið afspilun þeirra á islenskum útvarpsstöðvum. Islenski listinn birtist
á hverjum laugardegi í DV og er frumfluttur á Bylgjunni kl. 14.00 'á sunnudögum i sumar. Listinn er birtur, að hluta, i textavarpi MTV sjónvarpsstöðvarinnar. Islenski
listinn tekur þátt i vali"World Chart" sem framleiddur er af Radio Express i Los Angeles. Einnig hefur hann áhrif á Evrópulistann sem birtur er i tónlistarblaðinu Music
& Media sem er rekið af bandaríska tónlistarblaðinu Billboard.
,989
rwaauwi
GOTT ÚTVARPI
Yfirumsjón meö skoðanakönnun: Hrafnhildur Kristjánsdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaðsdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó - Handrit: Sigurður Helgi
Hlöðversson, Ágúst Héðinsson og ívar Guðmundsson - Tæknistjórn og framleiðsla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson - Útsendingastjórn: Halldór Backman
og Jóhann Garðar Ólafsson - Yfirumsjón með framleiöslu: Ágúst Héðinsson - Kynnir: Jón Axel Ólafsson