Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1996, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1996, Side 16
i6 tilveran Sveinn Guðmundsson, yfirlæknir hjá Blóðbankanum. ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1996 JL^"V bloð gera gagn - segir Sveinn Guðmundsson yfirlæknir Hve mikið? Hver blóðgjafi gefur 450 ml en það mun vera minna en 1/10 af blóðmagni líkamans. Hve oft? Karlar ættu ekki að koma oft- ar en með þriggja mánaða milli- bili en konum er ráðlegt að láta fjóra mánuði líða á milli blóð- gjafa. Jýir blóðgjafar koma síð- ím síðar og gefa blóð. Ef er á lyfjameðferð, með a önnur veikindi er gert lið eða lengra hlé á blóð- t blóð er síðan skimað sinni við heimsókn iafa, með öryggi blóð- a að leiðarljósi.“ Það dugi handa „Við söfnum 15 þúsund einingum blóðs á ári og án þessa blóðs væri ekki hægt að standa að nútíma læknismeðferðum. Um 4.000 sjúk- lingar þurfa árlega blóð og 8.500 virkir blóðgjafar eru undirstaða þessarar meðferðar. Karlar mega gefa fjórurn sinnum á ári og konur allt að þrisvar sinnum. Við mynd- um gjarna vilja fjölga blóðgjöfum svo álagið á hvern og einn yrði hæfllegra,“ segir Sveinn Guðmunds- son, yfirlæknir hjá Blóðbankanum. Tilveran brá sér í bankann til þess að kynna sér lauslega hvað þar færi fram. Sveinn segir að þröngt sé um Blóðbankann í núverandi húsnæði en áhersla sé lögð á að gera allt sem heimilislegast, að blóðgjafarnir slaki vel á hjá þeim og gefi sér tíma til þess að fá sér kaffi og meðlæti. 70 blóðgjafar á dag Sveinn Guðmundsson segir Blóð- bankann þurfa 70 einingar af blóði alla daga ársins til þess að halda starfseminni gangandi, eina einingu frá hverjum blóðgjafa. Hann segir fólk vera kallað inn með símtali eða bréfi og þegar kallið komi þurfi ástæðan ekki að vera sérstök slysat- ilvik. Miklar sveiflur geti verið í notkun blóðs. „Það er mjög mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir því að allir sem gefa blóð gera gagn. Enginn einn blóðflokkur er mikilvægari en ann- ar því sjaldgarfa blóðflokka þarf eðli málsins sarr^raemt sjaldnar að nota. Vegna árÖ|ursríkari en jafn- framt kröftugri krabbameinsmeö- „Þetta er nú bara í þriðja skiptið sem ég gef en mér fannst vera kominn tími á mig. Ég hef tekið þetta upp hjá sjálf- um mér og finnst alveg sjálfsagt að gefa blóð. Hver veit nema ég þurfi sjálfur á þessu að halda einhvern tíma,“ seg- ir Baldur Oli Sigurðsson. Hann var að gefa blóð þegar Tilveran ieit inn í Blóðbankann í liðinni vtku. DV-myndir BG ferða og flóknari aðgerða hefur blóðflokkanotkun aukist á íslandi á undanförnum árum.“ Öruggt að þiggja blóð Sveinn segir að lykilatrið sé að blóðhlutar séu aldrei gefnir nema að þeirra sé brýn þörf. Öryggi blóð- hluta hafi farið vaxandi á síðustu 10 árum, fyrst með tilkomu skimunar fyrir alnæmisveirunni og síðar með tilkomu skimunar fyrir lifrarbólgu C í blóðgjöfum. „Með þess má segja að öryggi sjúklinga sé betur tryggt en nokkru sinni áður. Að auki er tíðni þessara sýkinga lítil á íslandi og íslenskir blóðþegar því öruggari en víðast hvar í heiminum," segir Sveinn. Hann segir að í erlendum rannsókn- um hafi hættan á HlV-smiti sjúk- lings með blóðhlutum verið áætluð 1:300.000 til 1:1.000.000 og ættu því að geta orðið á Islandi á 20-60 ára fresti. Lág tíðni lifrarbólgu og HIV hér valdi þó því að áhættan sé lík- lega enn minni. -sv i. Allir blóðþeg- ir áður en þeim áðatilvikum þar tími til þess að viðkomandi sé efnt „O Rhesus- Þórður B. Þóröarson. DV-mynd ÆMK i no. 1: svo hvítum m Finnst ég gera gagn „Þetta hófst í Stýrimannaskólanum 1961. Þá var það reglan að nemendur kæmu úr skólanum og gæfu blóð. Ég hef bara haldið þessu við síðan og finnst afskaplega gott að gera þetta,“ segir Þórð- ur B. Þórðarson en hann er sá blóðgjafi sem oftast hefur gefið blóð, alls 115 sinnum. Þórður segir að sér líði alltaf mjög vel eftir að hafa gefið blóð, bæði andlega og líkamlega. „Móttökurnar í bankanum eru alltaf svo hlýlegar og mér finnst ég vera að gera gagn. Ég gef alltaf fjórum sinnum á ári og vonast til að geta gert það á meðan ég held heilsu.“ -sv Blóðflokkar íslendinga □ O (55.3%) □ A (31,6%) □ B (10,7%) □ AB (2,4%) Hve langan tíma? Blóðgjöfin sjálf tekur ekki langan tíma, eða 7-10 minútur. Blóðbankinn býður fólki hins vegar upp á djús fyrir blóðgjöf og kaffi á eftir svo að best er að reikna með 30-50 mínútum. Verð ég þreytt(ur)? Nei, eftir víku er aftur kom- inn eðlilegur fjöldi blóðkorna í blóðið. íþróttir á eftir? Þú mátt stunda allar íþróttir eftir blóðgjöf en rétt er að forð- ast þrekæfingar fyrstu klukku- stundina á eftir. Ef þú stundar keppni þarftu að hafa í huga að þolið getur verið minna fyrstu vikuna eftir blóðgjöf. Er blóðið rannsakað? Já, bæði þín vegna og þeirra sem taka við blóðinu. Blóðið er flokkað, mælt er magn blóð- rauða og leitað að lifrarbólgu og eyðni. Á ég að gefa blóð? Allir menn, konur og karlar, á aldrinum 18-80 ára, mega gefa blóð, svo fremi að þeir séu ekki í sérstökum áhættuhópi með tilliti til blóðsmits. Allt miðar þetta að því að tryggja öryggi blóðgjafans og blóðþegans. Eigið mat í spurningalista frá starfs- fólki Blóðbankans er höfðað til eigin mats einstaklingsins. T.d. má enginn sem hefur sprautaö sig með eiturlyfjum gefa blóð. Verð ég blóðlítill? Allir blógjafar eru athugaðir með tilliti til blóðrauðamagns viö hverja blóðgjöf. Að auki eru járnbirgðir líkamans rannsak- aðar með reglulegu millibili. í beinmerg eru varabirgðir lík- amans af járni og blóðgjafi myndar nýjan blóðrauða og blóðkorn af varabirgðunum. Hvers vegna Til ao viðhalda eðlilegum varabirgðum járns þarf járn með fæðunni. Við hverja blóð- gjöf tapast 200-250 mg af járni. Aðeins 10% járns í fæðunni nýtast líkamanum. Mælt er með járntöflum í 1-2 mánuði eftir blóðgjöf. -sv

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.