Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1996, Blaðsíða 27
ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1996
31
I>V
Fréttir
Ölfusbændunum Engllbert Hannessynl á Bakka og Gunnari Konráðssynl á
Grímslæk fannst taðan sem stóðhestunum er boðin í fínasta lagi. DV-mynd E.J.
Kópavogur:
Skóla- og
menningarmál
sameinuð
á einn stað
Bæjaryfirvöld í Kópavogi hafa
ákveðið að stækka verulega skóla-
skrifstofu bæjarins og fjölga starfs-
fólkinu til að sjá um rekstur sjö
grunnskóla í bænum eftir yfirtöku
sveitarfélaga á grunnskólanum í
sumar. Skólaskrifstofan mun heyra
undir fræðslu- og menningarsvið
ásamt íþrótta- og tómstundafulltrúa
og verður hún undir stjórn fræðslu-
stjóra. Skrifstofan verður til húsa á
í félagsheimili Kópavogs og er stefnt
að flutningi í byrjun sumars.
Starfsmenn Kópavogsbæjar í
grunnskólum verða um 50 talsins
eftir yfirtökuna og nemendur um
2.800. Búist er við að kostnaður bæj-
arins vegna grunnskólans nemi
tæpum 500 milljónum króna á árs-
grundvelli. Ekki er gert ráð fyrir
kostnaði vegna yfirtökunnar í fjár-
hagsáætlun bæjarins fyrir þetta ár
enda verður áætlunin endurskoðuð
strax og kostnaður liggur fyrir, að
sögn Braga.
„Sveitarfélögin eru almennt að
bíða eftir ákvörðun ríkisvaldsins
■ um peningamál. Þar er svolítill
ágreiningur um það hversu há pró-
senta þarf að flytjast frá ríkinu til
sveitarfélaga. Skólabyggingakostn-
aður á höfuðborgarsvæðinu á eftir
að margfaldast á næstu árum ef á að
ná einsetningaráformum," segir
Bragi Michaelsson, formaður skóla-
nefndar í Kópavogi.
Á næstunni verður auglýst eftir
fræðslustjóra, rekstrarstjóra, tveim-
ur kennsluráðgjöfum og fleira
starfsfólki en öll sálfræðiþjónusta
verður aðkeypt. Bragi segir að ekki
sé ætlunin að segja upp núverandi
starfsfólki skólaskrifstofu.
-GHS
Stóðhestar
sendir heim
ef þeir standa sig ekki
Á annað hundrað manns kom í
stóðhestastöðina í Gunnarsholti að
skoða. stóðhesta í gær er þar var
haldinn opinn dagur.
Mikill áhugi hefur verið á stóð-
hestastöðinni. „Hér eru nú 37 stóð-
hestar og átta til tíu á biðlista," seg-
ir Páll Bjarki Pálsson yfirtamninga-
maður en hann hefur ásamt Sigurði
Vigni Matthiassyni hugsað um hest-
ana í vetur.
„Hrossaræktaráðunautarnir Þor-
kell Bjarnason og Jón Vilmundar-
son koma hér mánaðarlega og gera
úttekt á hestunum. Við metum svo
hverjir séu líklegir til afreka í kyn-
bótaræktuninni en fjórtán hestar
hafa verið sendir heim.
Við leggjum áherslu á að hafa að-
stöðuna sem vandaðasta. Halldór
Árni Pálsson hefur hjálpað til við
hirðinguna og Páll Stefánsson dýra-
læknir kemur mánaðarlega og skoð-
ar alla hestana," segir Páll enn
fremur.
Hrafnkell Karlsson, formaður
stjórnar Stóðhestastöðvarinnar, og
Þorkell Bjarnason hrossaræktar-
ráðunautur kynntu stöðina.
í máli Hrafnkels kom fram að
óljóst væri með framtíð stöðvarinn-
ar en á búnaðarþingi í mars yrðu
málin rædd.
Þorkell sagði að flestir stóðhes-
tanna væru undan Hirti frá Tjörn
og Stormi frá Stórhóli, fjórir undan
hvorum, þrír undan Hrafni frá
Holtsmúla og Stíganda frá Sauðár-
króki.
Flestir stóðhestanna eru fimm
vetra, eða tuttugu og einn. Fimmtán
verða fjögurra vetra í vor.
Næsta sýning verður 24. mars og
má þá búast við kepppni í tölti og
skeiði stóðhesta.
Oft er suðurhiminninn fallegur í birtingu á Norðurlandi en menn muna þó vart aðra eins dýrðarsýn og blasti við einn
morgun fyrir skömmu. Þá sigldu glitský sem himins fley um geiminn. Glitský sjást ekki oft á himni hér nyrðra. Það
tók þau um hálftíma að renna sér yfir flötinn áður en þau dóu út í blámóðu fjarskans. DV-mynd ÞÁ, Sauðárkróki
Höfðabakkabrú:
Vitni óskast að
ákeyrslu á skiltabrú
Rannsóknardeild lögreglunnar í
Reykjavík lýsir eftir vitnum að
ákeyrslu á stórt vegaskilti (skilta-
brú) við Höfðabakkabrúna á Vest-
urlandsvegi. Ákeyrslan átti sér
stað á tímabilinu frá 14.00-16.30 á
fimmtudag.
Þeir sem geta gefíð upplýsingar
um málið snúi sér til lögreglunn-
ar S Reykjavík.
Brotajárnsmót-
taka í Eyjafirði
Nú þurfa Eyfirðingar ekki að
vera í vandræðum með það brota-
járn sem til fellur á svæðinu. Sor-
peyðing Eyjafjarðar opnaði brota-
járnsmóttöku í Krossanesborgum sl.
miðvikudag. Fólk getur komið með
brotajárn þangað á miðvikudögum
og laugardögum hér eftir.
Notaðar verða pressur til að
pressa járnið saman. Síðan flytur
Eimskip það með gámum til
Hringrásar í Reykjavík. -ÞK
Víöa úðað
á veggi
Vegna fréttar í DV þriðjudag-
inn 6. febrúar um skemmdir á
húsum við Sólvallagötu í Reykja-
vík hafa blaðinu borist ábending-
ar um slíkar skemmdir viðar um
borgina.
Við Bergstaðastræti, Baldurs-
götu og Hafnarstræti er svipað
upp á teningnum. Virðist sem
sami eða sömu aðilar hafi verið
að verki á öllum stöðunum.
aukabla5 um
CWCV
morgun