Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1996, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1996, Page 28
32 ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1996 Sviðsljós Michael Jackson eins og heima hjá sér í fátækrahverfi Rio: íbúar tóku að sér öryggisgæslu, og var hverfinu nánast lokað. Einn aðdáandinn komst þó í tæri við Michael. „Ég gaf honum skyrtubol með nafni kirkjunnar minnar á. Hann brosti þegar hann tók við honum,“ sagði Marcelo Francisco, með stjömur í augunum. Heimsókn Michaels Jacksons, leikstjórans Spikes Lees og sam- verkamanna til Rio olli töluverðum deilum þar í síðustu viku og um tíma leit út fyrir að ekkert yrði af kvikmyndatökunni, m.a. vegna þess að dómari bannaði hana. Hann skipti þó um skoðun og leyfði hana að nýju. Mörgum þótti sem poppar- inn væri að gera út á eymdina í Rio. Hann mun þó ætla að láta fé af hendi rakna til ýmissa þjóðþrifa- mála í hverfinu. En ekki voru allir jafn ánægðir með umstangið. „Er hann farinn? Guði sé lof að lífið fer nú aftur í sinn vanagang," sagði einn íbúanna þar sem hann var að þvo á sér hár- ið við tröppurnar sem liggja upp í hverfið. Arnold reynir hattardans Arnoldi Schwarzenegger er margt til lista lagt. Um helgina reyndi hann t.d. fyrir sér við mexíkóskan hattardans, við mikla hrifningu viðstaddra. Hann var nefnilega að opna þrí- tugasta Planet Hollywood veit- ingastaðinn, að þessu sinni við þann yndisfagra stað Riverwalk í San Antonio í Texas. Félagi Arnolds, Bruce Willis, var einnig mættur tO leiks og öskr- aði eins og kúreki. Tugþúsundir aðdáenda fylgdust með látunum í þeim félögum. skítinn og skolpið. „Koma Michaels var mjög hríf- andi. Hann lenti í þyrlu, rykið þyrl- aðist um allt, hann var ekki með grímu eða hanska og allir viðstadd- ir öskruðu nafnið hans,“ sagði José Luiz de Oliveira, formaður íbúa- samtaka Dona Marta fátækrahverf- isins þar sem myndatakan fór fram. Hverfisbúar hyggjast setja á lag- girnar sérstakt safn helgað Jackson í húsinu þar sem myndbandið var tekið upp. „Við ætlum að nota aUt sem hann notaði á meðan hann var hérna. Við viljum líka að hann skUji eftir sig ummerki, til dæmis handarfar," sagði de Oliveira. Þeir eru ekki margir utanaðkom- andi mennirnir sem hætta sér inn í fátækrahverfin í Rio en þau þykja með þeim svakalegustu í heimi. Of- beldi þar er mikið og sömuleiðis neysla og verslun með ólögleg fikni- efni. Það er því ekkert undarlegt þótt miklar öryggisráðstafanir hafi verið viðhafðar við komu Michaels Jacksons og fylgdarliðs hans. Fimmtán hundruð lögregluþjónar voru á vakt, auk þess sem fimmtíu Kjöthleifur krefst milljóna dollara Man einhver eftir Kjöthleifi? Æ, þarna, feita popparanum sem söng um leðurblökuna úr helvíti. Já, einmitt, jú, jú. Nú er Kjöthleifur aft- ur kominn i fréttirnar, að þessu sinni vegna skaðabótamáls sem hann hefur höfðað á hendur Sony útgáfufyrirtækinu. Popparinn krefst fjórtán milljóna dollara af þeim 100 milljónum dollara sem hann segir að Sony, og fyrirrennari þess, CBS, hafi grætt á tónlist sinni. Kjöthleifur segir í stefnu sinni að fyrirtækin tvö hafi ekki látið hann fá þær höfundarréttargreiðslur sem honum bar vegna sölu þriggja hljómplatna. Þar á meðal er hin fræga Bat out of Hell, fyrsta plata Kjöthleifur í gamla daga. söngvarans, sem er einhver mest selda plata frá upphafi. Þessir grímuklæddu herramenn, eða i mascherati eins og þeir heita á ítölsku, létu sig ekki vanta við upphaf kjötkveðjuhátíðarinnar í Feneyjum um helgina. Hátíðin stendur yfir f 12 daga og verður margt sér til gamans gert. Símamynd Reuter Michael Jackson lét eins og hann væri heima hjá sér, svo afslappaður var hann, þegar hann tók upp tón- listarmyndbandið umdeilda í einu af fátækrahverfum Rio de Janeiro í Brasilíu um helgina. Poppgoðið brosti og veifaði í allar áttir til æstra aðdáenda sinna og var hvorki með grímu fyrir andlitinu né hanska á höndum, þrátt fyrir allan Travolta í nýrri Woo-mynd John Travolta kunni svo vel við að leika undir stjórn hasar- myndaleikstjórans Johns Woos í Brotnu örinni að hann hefur fallist á að slást í lið með honum einu sinni enn. Það verður i hasarmyndinni, hvað annað?, Face Off sem segir frá leynilöggu sem skiptir á andliti við hryðjuverkamann til að geta sinnt starfinu sómasamlega. Blökkusöngvarinn Michael Jackson greip til kloftaksins fræga þegar hann dansaði, með fráflakandi skyrtuna svo skein í náföla bringuna, við tökur á umdeildu tónlistarmyndbandi í Rio de Janeiro um helgina. Símamynd Reuter Miðvikudaginn 13. mars mun hin sívinsæla FERMINGARGJAFA- HANDBÓK fylgja DV Híin er hugsuð sem handbók fyrir lesendur sem eru í leit að fermingargjöfum. Þetta finnst mörgum þægilegt nú, á dögum tíma- leysis, og af reynslunni þekkjiun við að hand- bækur DV hafa verið vinsælar. Skilafrestur auglýsinga er til 5. mars en með tilliti til reynslu undanfarinna ára er auglýsendum bent á að hafa samband við Selmu Rut Magnúsdóttur, auglýsingadeild DV, hið fyrsta í síma 550-5728 svo að unnt reynist að veita öllum sem hesta þjónustu. Auglýsingar Sími 550 5000, bréfasími 550-5727. Lét sko skít og skolp ekki nein áhrif hafa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.