Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1996, Blaðsíða 19
18
ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS
Iþróttir
Handbolti:
Úrslitakeppni
í 2. deildinni
Úrslitakeppni 2. deildar karla
í handknattleik hefst annað
kvöld. Þá leika HK og ÍH í Digra-
nesi, Fram og Breiðablik í Fram-
húsinu og Þór fær Fylki í heim-
sókn á Akureyri. Leikimir heij-
ast allir klukkan 20. Framarar
byrja úrslitakeppnina með 4 stig,
HK 2 og Þór 1 og þessi sex félög
leika tvöfalda umferð um 1.
deildar sætin tvö sem eru í boði.
-GH
Knattspyrna:
Bjarki skoraði
gegn Lúxemborg
Bjarki Gunnlaugsson skoraði
eitt mark og lagði upp annað
þegar lið hans, Mannheim, sigr-
aði landslið Lúxemborgar, 2-1, í
vináttuleik í síðustu viku. Þýska
2. deildin hefst um næstu helgi
en þá leikur Mannheim gegn
Wattenscheid og Eyjólfur Sverr-
isson og félagar hans i Herthu
Berlin mæta Carl Zeiss Jena.
-GH
Æfingaleikir:
Tveir sigrar
hjá Blikum
Úrslit í æfingaleikjum í knatt-
spyrnu:
Breiöablik-Þór...............&-0
Breiðablik-Leiftur...........3-0
FH-Selfoss...................4-0
Grindavík-ÍA.................3-2
KR-Þór ......................1-1
-GH
Skíði:
Björgvin og
Hrefna unnu
Björgvin Björgvinsson, Dal-
vík, og Hrefna Óladóttir, Akur-
eyri, sigrðu í stórsvigi karla og
kvenna á bikarmóti SKÍ á ísa-
firði um helgina. Pálmar Péturs-
son, Ármanni, varð annar og
Rúnar Friðriksson, Akureyri
hafnaði í þriðja sæti. Önnur í
kvennaflokki varð Eva B. Braga-
dóttir, Dalvik, og Dagný L. Krist-
jánsdóttir, Akureyri, varð þriðja.
-GH
Heimsmet
Penny Heyns frá Suður-Afr-
íku sló í gær 18 mánaða gamalt
heimsmet í 100 metra bringu-
sundi sem ástralska sundkonan
Samtantha Riley átti. Heyns kom
í mark á 1:07,46 mínútum á s-
afríska meistaramótinu en
gamla metið var 1:07,69 mínútur.
-GH
Borðtennis:
Guðmundur
sigursæll
Guðmundur E. Stephensen,
Víkingi, var mjög sigursæll á
Reykjavíkurmótinu í borðtennis
sem fram fór um helgina. Guð-
mundur sigraði í fimm flokkum
á mótinu. Hann sigraði í tvennd-
arleik með Evu Jósteinsdóttur, í
tvíliðaleik með Markúsi Áma-
syndi, í flokki 17 ára og yngri og
i tvíliðaleik sama aldursflokks.
í kvennaflokki sigraði Eva Jó-
steinsdóttir, Víkingi, en hún
vann þrefaldan sigur á mótinu.
Hún sigraði með Guðmundi í
tvennarleiknum og með Lilju
Rós Jóhannesdóttur í tvíliða-
leiknum. í flokki 17 ára og yngri
sigraöi Kolbrún Hrafnsdóttir,
Víkingi, i eldri flokki Emil Páls-
son, Víkingi, og í tvíliðaleiknum
Ragnar Ragnarsson og Jóhann
Sigurjónsson, Víkingi.
Víkingar voru að vanda mjög
sigursælir en þeir unnu í öllum
12 flokkunum sem keppt var í.
-GH
Stjarna í Evrópu en bara
stór í Bandaríkjunum
- saga af Joe Arlauckas, körfuboltastjörnu í liði Real Madrid
Bandaríski körfuknattleiksmað-
urinn Joe Arlauckas, sem leikur
með Real Madrid á Spáni, er einn
sterkasti leikmaðurinn í dag í Evr-
ópu. Hann er mjög vinsæU á Spáni
og hefur ekki við að gefa áhangend-
um sínum eiginhandaráritanir.
Joe, sem er þrítugur, býr ásamt
konu sinni og tveimur dætrum í
stóru húsi, með sundlaug í garðin-
um og öðrum þægindum. Real Ma-
drid greiðir honum há laun, borgar
húsaleiguna fyrir hann, bUinn og
svona mætti lengi telja.
í New York þekkir hann
enginn
í Madrid getur Arlauckas varla
farið með konu sinni út að borða.
AUir þekkja hann á götu og vilja
ólmir komast í návigi við stjörn-
una. Hann dvelur tíu mánuði á ári
á Spáni en í tvo mánuði er hann i
Bandaríkjunum
og býr þá í ná-
grenni New
York. Þar þekk-
ir hann enginn
og Arlauckas get-
ur gengið um í ró-
legheitum án þess að
verða fyrir ónæði.
Örfáir vegfarendur
líta á hann og
segja sem svo:
„Vá, en hvað
þú ert stór.“
Arlauckas
er snjall leik-
maður. Hann byrj-
aði að leika í Evrópu
fyrir átta árum og
hóf ferilinn með
ítalska liðinu
Caserta. Hann
reyndi fyrir
sér hjá Sacramento Kings og
MUwaukee Bucks í NBA-deildinni
en leist ekki á það sem liðin buðu
honum. Þvert á móti tók hann tU-
boði frá spænska liðinu
Malaga og varð fljót-
lega ein mesta
stjarnan i
körfuknattleiknum á
Spáni. Síðar gekk
hann til liðs við Real
Madrid og á dögunum
setti hann nýtt met í
Evrópukeppninni er
hann skoraði 63 stig í
einum leik fyrir Ma-
drid. Á síðasta ári var
hann öðrum fremur mað-
urinn á bak við Evrópu-
meistaratitil Real Madrid.
Það-er ekki undarlegt að
þessum snjalla leikmanni
—1 þyki mikill munur á því að dvelja
á Spáni eða í Bandaríkjunum. Ekki
leiðist honum það og segir: „Það er
mjög gott að geta verið í rólegheit-
um heima í Bandaríkjunum, nán-
ast sem óþekktur maður og þurfa
ekki í tíma og ótíma að vera að
skrifa nafn sitt á hina og þessa
hluti.“
Samdi á ný við Real Madrid
Á dögunum samdi Arlauckas við
Real Madrid til tveggja ára. Hann
samþykkti lægri upphæð í samn-
ingnum en hann hefði getað fengið
hjá öðrum liðum í Evrópu. Ar-
lauckas ætlar sér að reyna við
fleiri titla með hinu þekkta stórliði
Real Madrid. Hann á hins vegar
ekki von á því að hann verði fræg-
ari í Bandaríkjunum þó afrekum
hans fjölgi með Real Madrid og
verði áfram aðeins álitinn hávax-
inn i heimalandi sínu. -SK
Oldungarnir slógu
þrettán íslandsmet
- á meistaramótinu í frjálsíþróttum
Þrettán Islandsmet féllu á meist-
aramóti öldunga innanhúss í frjáls-
iþróttum sem haldið var í Reykja-
vík um helgina.
Árný Heiðarsdóttir, Óðni, var
drýgst því hún setti fjögur met í
flokki 40 ára kvenna. Trausti Svein-
björnsson, FH, setti þrjú met í
flokki 50 ára karla, Aðalsteinn Bern-
harðsson, UMSE, tvö met í flokki 40
ára karla, Unnur Stefánsdóttir,
HSK, tvö met í flokki 45 ára kvenna,
Marteinn Guðjónsson, ÍR, eitt í
flokki 70 ára karla og Páll Ólafsson,
FH, eitt í flokki 50 ára karla.
Sigursælustu einstaklingar voru
Aðalsteinn Bernharðsson,' Trausti
Sveinbjörnsson, Árný Heiðarsdóttir
og Kristófer Jónasson, HSH, sem
unnu fimm greinar hvert í sínum
flokkum. Þorsteinn Þórsson, UMSS,
vann þrjár greinar, Unnur Stefáns-
dóttir, Páll Ólafsson, Marteinn Guð-
jónsson, Jón Ö. Þormóðsson, ÍR, og
Karl Torfason, UMSB, unnu tvær
greinar hvert og eina grein unnu
Sigurður T. Sigurðsson, FH, Torfi
Rúnar Kristjánsson, ÍR, Flosi Jóns-
son, UFA, Elías Sveinsson, ÍR, Jó-
hannes Guðjónsson, ÍA, Björn Jó-
hannsson, Keflavík, Tómas Jónsson,
HSK, Ólafur J. Þórðarson, ÍA, og
Anna Magnúsdóttir, HSS.
-VS
NBA-körfuboltinn í nótt:
Auðvelt hjá
Orlando Magic
Orlando vann auðveldan sigur á
Philadelphia í nótt. Það var í öðrum
leikhluta sem Orlando gerði út um
leikinn, liðið gerði þá 20 stig gegn 5
og eftir það var eftirleikurinn
auðveldur. Shaguille O’Neal hafði
frekar hægt um sig og lét sér nægja
að skora 22 stig.
Fjórir leikir voru í nótt og urðu
úrslitin þessi:
Boston-Milwaukee...........105-98
Barros 23, Fox 22 - Baker 22, Robinson
22.
Detroit-Atlanta ............99-93
Houston 26, Hill 17 - Smith 25.
Philadelphia-Orlando.......97-110
Ruffin 17 - Scott 26, Shaq 22.
Denver-SA Spurs............90-101
Ellis 18 - Robinson 28, Elliot 18.
Vancouver-Washington........81-96
Scott 20 - Howard 25, Muresan 20.
Grant Hill, leikmaðurinn öflugi
hjá Detroit, náði sinni 6. þrennu á
tímabilinu. Hill skoraði 17 stig, átti
12 stoðsendingar og tók 11 fráköst.
San Aritonio Spurs vann sinn
sjöunda sigur í röð gegn Denver.
Davið Robinson fór fyrir liði Spurs
einu sinni sem oftar en hann
skoraði 28 stig og tók á annan tug
frákasta.
Úrslitin í fyrrinótt:
Dallas-Phoenix............114-121
Cleveland-Toronto .........89-100
Mills 24 - Murray 29, Stoudamire 24.
Charlotte-Indiana.........100-103
Johnson 24 - Miller 31.
LA Lakers-Houston.........107-111
Van Exel 21 - Olajuwon 29, Cassell 24.
Minnesota-Miami.............98-87
Rider 30 - Chapman 23.
Golden State-New York .... 94-109
B.J. Armstrong 20 - Starks 21, Davis 18.
Sacramento-Washington .... 99-108
Ritchmond 35 - Cheaney 25.
Sigur Indiana á Charlotte var
merkilegur fyrir þær sakir að þetta
var 800. sigur Larry Brown þjálfara
Indiana í NBA frá upphafí.
Houston lék vel
Meistararar Houston unnu sinn
fimmta leik í röð þegar þeir lögðu
LA Lakers og eins og staðan er í
deildinni dag mætast þessi lið í úr-
slitakeppninni. „Þeir sýndu einu
sinni enn hvers vegna þeir eru
meistararar tveggja síðustu ára,“
sagði Del Harris, þjálfari Lakers,
um frammistöðu Houston.
Eftir sjö tapleiki í röð náði
Toronto að leggja Cleveland. Það
var frábær hittni leikmanna
Toronto utan af velli sem öðru frem-
ur tryggði liðinu sigur.
Allt gengur á afturfótunum hjá
Sacramento og tapleikurinn gegn
Washington var sá 13. í síðustu 14
leikjum.
-GH
Guðni Bergsson samdi í gær við Bolton til vorsins 1998. Ekki er ólíklegt að
hann sé nú orðinn launahæsti leikmaður féiagsins. DV-mynd Brynjar Gauti
Guðni með nýjan
samning við Bolton
- skrifaði undir í gær til vorsins 1998
Guðni Bergsson, landsliðsfyrir-
liði í knattspymu, skrifaði í gær
undir nýjan tveggja og hálfs árs
samning við enska úrvalsdeildarlið-
ið Bolton. Guðni gekk til liðs við
Bolton undir vor á síðasta tímabili
og í vetur hefur hann leikið mjög
vel með liðinu. Hann hefur fengið
góðan dóma fyrir leik sinn og for-
ráðamenn liðsins vildu ólmir fram-
lengja samninginn við hann. Fyrir
helgina var komist að samkomulagi
um nýjan samning og var skrifað
undir hann i gær.
Guðni var ekki viðlátinn þegar
DV hafði samband við Bolton i gær-
kvöldi en að sögn eiginkonu hans,
Elínar Konráðsdóttur, var Guðni
mjög ánægður með nýja samning-
inn.
„Það er búið að vera í deiglunni
um tima að Guðni skrifaði undir
nýjan samning við Bolton og í gær
var skrifað undir. Við emm mjög
ánægð með vemna i Bolton og hér
er gott að vera. Það er fyrir öllu að
við séum ánægð enda erum við búin
að koma okkur vel fyrir hérna,“
sagði Elín Konráðsdóttir í samtali
við DV í gærkvöldi. -JKS
Sundlandsliðið til Atlanta
Ekki verður úr því að landsliðið í sundi fari í æfingabúðir til Alabama
heldur verður farið til Atlanta 27. mars og verið þar í tvær vikur. Þrír
sundmenn reyndu um helgina við lágmörk fyrir ólympíuleikana í sumar
á móti í Lúxemborg. Þau voru öll töluvert frá sínu besta. -JKS
ÞRIÐJUDAGUR 5. MARS 1996
23
Eric Cantona skorar sigurmark Manchester United gegn Newcastle í gærkvöldi og
John Beresford kemur engum vörnum við þrátt fyrir mikla tiiburði.
Símamynd Reuter
United vann
toppslaginn
- Cantona skoraði sigurmarkið í Newcastle
Manchester United hleypti spennu á
nýjan leik í toppbaráttu ensku knatt-
spymunnar í gærkvöldi með því að
leggja Newcastle á útivelli, 0-1. Það var
Frakkinn Eric Cantona sem tryggði
United sigurinn með eina marki leiksins
á 51. mínútu eftir glæsilegan undirbún-
ing þeirra Andy Cole og Philip Neville.
Newcastle var betri aðilinn í fyrri
hálfleik og var þá stundum nálægt því að
skora. Philippe Albert átti til að mynda
hörkuskot í þverslá úr aukaspyrnu og
Les Ferdinand skaut yfir frá markteig.
Manchester hóf síöari hálfleik af
krafti en eftir því sein á leið bakkaði lið-
ið og héld fengnum hlut. Vörn United
var sterk og Peter Schmeichel var örugg-
ið uppmálað í markinu.
Eftir þessi úrslit getur allt gerst en
Newcastle á leik til góða og er enn þá
með eitt stig í forskot. Newcastle hefur
61, United 60 og Liverpool 55 stig.
-JKS
Lokaumferð 1. deildarinnar annað kvöld:
Margir möguleikar
enn fýrir hendi
Þrátt fyrir að einungis einni umferð sé ólokið í 1. deild karla í handknattleik
eru enn fyrir hendi margir möguleikar á því hvaða lið mætast í 8 liða úrslitun-
um, sem hefjast á laugardaginn kemur.
Það eina sem liggur ljóst fyrir er að KA hefur unniö deildina og Valur endar í
öðra sæti. Stjarnan, Haukar og FH bítast um sæti þrjú til fimm og Stjaman og FH
mætast einmitt annað kvöld. í 6. sæti verður Afturelding eða Grótta og í sæti sjö
til átta koma til greina Afturelding, Grótta, Selfoss og ÍR. Það em Selfoss og ÍR
sem berjast um að komast í 8 liða úrslitin, Selfyssingum dugar jafhtefli gegn Aft-
ureldingu til þess en tapi þeir kemst ÍR áfram með þvi að vinna Hauka í Hafnar-
fírði.
Þessir möguleikar em fyrir hendi varðandi 8 liða úrslitin:
KA - Selfoss/Grótta/ÍR
Valur - Grótta/Aftureldlng/Selfoss
Stjaman/Haukar/FH - Afturelding/Grótta
Haukar/Stjaman/FH - FH/Haukar/Stjarnan
Verði lokastaðan sú sama og fyrir síðustu umferðina leikur KA gegn Selfossi,
Valur gegn Gróttu, Stjaman gegn Aftureldingu og Haukar gegn FH. Segja má að
verði úrslitin öll eftir „bókinni“ annað kvöld verði þetta niðurstaðan. Það þarf
hinsvegar ekki nema ein óvænt úrslit til að allt riðlist. -VS
^ Golf:
Agætur árangur
hjá Sigurjóni
Sigurjón Amarsson, kylfingur úr GR,
náði ágætum árangri á golfmóti í Flórída
um helgina. Mótið var í Tommy Armour
mótaröðinni þar sem keppa einungis at-
vinnumenn. Sigurjón varð í 43. sæti af
150 keppendum. Hann lék samtals á 217
höggum eða einu höggi yfir pari vallar-
ins.
Sigurjón lék mjög gott golf fyrsta dag-
inn. Hann fékk fimm fugla og lauk
hringnum á 68 höggum eða fjórum högg-
um undir pari. Síðari tvo dagana gekk
honum ekki eins vel. Hann lék þá á 76
höggum og 73 höggum en þess ber að
geta að veður var ekki upp á það besta,
rok og rigning sem er óvanalegt á þess-
um stað.
-GH
Helga og
Sunna
danskir
meistarar
- hlupu vel á danska meistaramótinu
Hlaupakonurnar Sunna Gestsdóttir úr USAH og FH-ingurinn Helga
Halldórsdóttir urðu um helgina danskir meistarar á danska innanhúss-
mótinu í frjálsum íþróttum sem fram fór í Malmö. Danir hafa siðustu
árin farið með sitt mót til Malmö þar sem aðstæður em ekki nógu góð-
ar í Danmörku.
Sunna undir EM-lágmarkinu
Sunna Gestsdóttir sigraði í 200 metra hlaupi, hljóp á 24,70 sekúndum
sem er rétt við íslandsmetið í greininni. Hún hljóp 60 metra hlaup á 7,60
sekúndum sem er undir lágmarkinu fyrir Evrópumótið sem hefst í
Stokkhólmi næstkomandi föstudag. Líklegt þykir þó að þessi tími komi
of seint.
Helga Halldórsdóttir sigraði glæsilega í 400 metra hlaupi á 57,30 sek-
úndum sem er mjög góður tími. Hún tók einnig þátt í 200 metra hlaupi
og lenti þar í þriðja sæti.
Tveir aðrir þátttakendur frá íslandi kepptu á mótinu. Rakel Tryggva-
dóttir, FH, stökk 12,25 metra í þrístökki og Jón Oddsson stökk yfir sjö
metra í langstökki. -JKS
UEFA viðurkennir
Bosman-úrskurðinn
- íslensk lið geta fjölgað útlendingum
Knattspyrnusamband Evrópu,
UEFA, staðfesti í gær að það myndi
fella niður reglur um erlenda leik-
menn flöndum innan Evrópubanda-
lagsins, í samræmi við úrskurðinn í
Bosman-málinu fyrr í vetur.
Til þessa hafa félög mátt nota þrjá
erlenda leikmenn og auk þess tvo
slíka sem gengið hafa til liðs við
viðkomandi félag sem unglingar og
leikið i fimm ár eða lengur í land-
inu.
„Þetta er skrifleg staðfesting á því
sem alltaf hefur legið fyrir síðan 15.
desember. UEFA hefur aldrei hugs-
að sér að hundsa lög,“ sagði tads-
maður UEFA í gær.
Þetta þýðir að félög frá Evrópu-
bandalagsríkjunum 15 og frá lönd-
um af Evrópska efnahagssvæðinu
(ísland, Noregur og Liechtenstein)
mega nú nota eins marga leikmenn
frá öðrum aðildarlöndum og þau
vilja. Þar með er nú ekkert því til
fyrirstöðu að íslensk félög nái sér í
eins marga leikmenn frá Evrópu-
bandalagsríkjunum, til dæmis Bret-
landi og Þýskalandi, og þau kæra
sig um.
Samkomulag um
Evrópumótin
Það hefur þó náðst samkomulag
um að Evrópumótum félagsliða sem
nú standa yfir verið lokið með sömu
reglum og voru áður í gildi. Um er
að ræða „heiðursmannasamkomu-
lag“ milli þeirra 24 liða sem enn eru
eftir í mótunum þremur.
-VS
Áfall hjá Víkingum:
Reynir ekki
í markinu
gegn Val
„Eins og þetta lítur út í dag er
nánast öruggt að ég geti ekki spilað
gegn Val á miðvikudaginn," sagði
Reynir Þ. Reynisson, markvörður
Víkings, við DV í gær en hann
meiddist á hné og var borinn af leik-
velli í síðari hálfleik þegar Víkingar
töpuðu fyrir KA mönnum á Akur-
eyri í fyrrakvöld. Reynir hafði þá
varið mark Víkinga mjög vel og
frammistaða hans hélt Víkingum
inni í leiknum.
Við læknisskoðun í gær kom
fram að Reynir hafði tognað illa og
var læknir mjög svartsýnn á að
Reynir gæti spilað í vikunni.
Þetta er mikið áfall fyrir Víkinga
sem eru að berjast fyrir lífi sinu í
deildinni. Þeir verða að vinna Val í
lokaumferðinni annað kvöld og
stóla á að KA leggi ÍBV að velli í
Eyjum og gerist það þurfa Víkingur
og ÍBV að spila tvo aukaleiki um
faflið.
„Þetta verður auðvitað mjög erfitt
en meðan smáglæta er fyrir hendi
munum við koma brjálaðir til leiks
gegn Val og vonandi fyllum við Vik-
ina. Ég hef enga trú á öðm en að
Hlynur standi sig vel í markinu en
vissulega verður erfitt að vera utan
vallar,“ sagði Reynir að lokum.
-GH
íþróttir
Skvass:
Einn íslendingur
komst í 2. umferð
Daniel Forslund sigraði í
karlaflokki og Elisabet Jensen í
kvennaflokki á Norðurljósamót-
inu í skvassi sem fram fór í
Veggsporti um helgina. Mótið
gaf stig til Norðurlandameistara-
titils.
Forslund sigraði Anders
Thorén, 3-0, í úrslitaleik í karla-
flokki. Tíu íslendingar voru á
meðal 29 keppenda og féllu allir
út í fyrstu umferð nema Magnús
Helgason. Hann vann Sten Olsen
en tapaði síðan fyrir Thorén.
Elisabet Jensen vann Ellen
Petersen í úrslitum í kvenna-
flokki. Þrjár íslenskar stúlkur
voru á meðal átta keppenda og
höfnuðu í neðstu sætunum.
Knattspyrna:
Ginola ekki með
Aimes Jaquet, landsliðsþjálf-
ari Frakka í knattspyrnu, hefur
ákveðið að David Ginola hjá
Newcastle verði ekki í landsliðs-
hópi Frakka sem tekur þátt í úr-
slitakeppni Evrópumótsiris á
Englandi í sumar.
11 spor í Vialli
Óvíst er hvort Gianluca Vialli
geti leikið með Juventus gegn
Real Madrid í Evrópukeppni bik-
arhafa en leikurinn fer fram á
Spáni annað kvöld. Vialli meidd-
ist í leiknum gegn Padova á laug-
ardagskvöldið og þurfti að
sauma 11 spor í ökkla hans.
Jensen á heimleið
Danski knattspyrnumaðurinn
John Jensen er farinn frá Arsen-
al til danska liðsins Brondby.
Jensen bað um að vera lánaður
til Brondby út tímabilið en
Bruce Rioch, stjóri Arsenal, taldi
hagstæðara að leysa hann undan
samningi sinum við félagið og
gefa honum frjálsa sölu.
Tuttugu handteknir
Um tuttugu stuðningsmenn
enska knattspyrnuliðsins Nott-
ingham Forest hafa verið hand-
teknir í Múnchen í Þýskalandi
síðustu tvo daga. Forest mætir
Bayern í UEFA-bikarnum í
kvöld og ýmsir þeirra sem fóru
snemma til Þýskalands hafa ekki
hagað sér sem best á almanna-
færi, með þessum afleiðingum.
Byrjað 14. mars
Endanleg niðurröðun á fyrstu
deildabikarkeppninni í knatt-
spyrnu liggur nú fyrir. Hún
hefst 14. mars eins og áætlað
hafði verið með tveimur leikjum
en þá mætast Stjaman og Ægir í
Kópavogi og Keflavík og Leiknir
R. á Leiknisvelli í Breiðholti.
__ Körfubolti:
ÍS fer vestur
Viðureign KFÍ og ÍS i undan-
úrslitum 1. deildar karla í
körfuknattleik fer alfarið fram á
ísafirði um næstu helgi. Liðin
leika þar tvo til þrjá leiki, eftir
því sem með þarf, en það lið sem
vinnur tvo leiki kemst í úrslit.
ísfirðingar buðu ÍS að leika fyrir
vestan og það reyndist hagstæð-
ara fyrir báða aðila, ijárhagslega
séð, en að leika heima og heim-
an. Snæfell og Þór frá Þorláks-
höfn leika heima og heiman, í
Stykkishólmi á fóstudagskvöld
og i Þorlákshöfn á sunnudag, en
ef þriðja leik þarf verður hann í
Stykkishólmi næsta þriðjudag.
Þór vann Leikni
Úrslitin í leik Leiknis R. og
Þórs Þ. í 1. deild karla í körfu-
bolta snerust við í blaðinu í gær.
Það var Þór sem sigraði, 100-76.
7