Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1996, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1996, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 1996 JLlV %éttir Hljóp uppi þjóf sem stal veskinu hennar: geri þetta hiklaust aftur Hagvirkismálið: Dómur á þriðjudag Dómur í svonefndu Hagvirkis- máli verður kveðinn upp nk. þriðju- dag, þann 23. júlí, kl. 15, samkvaemt upplýsingum Héraðsdóms Reykja- ness. Dómsins er beðið með nokkurri eftirvæntingu því talið er að hann geti haft áhrif á núverandi meiri- hlutasamstarf í bæjarstjóm Hafnar- fjarðai', þ.e.a.s. meirihluta Alþýðu- flokks og sjálfstæðismannanna Jó- hanns G. Bergþórssonar og Ellerts Borgars Þorvaldssonar. Einhugur um þetta samstarf mun ekki vera ótvíræður meðal alþýðuflokks- manna. -SÁ - segir.Hrönn Sigurgeirsdóttir, eigandi Heilsusports „Ég viður- kenni vel að þetta var bíræfni en ég myndi hiklaust gera 5; þetta aftur. Svona menn eiga ekkert að komast upp með svona nokkuð,“ segir Hrönn Sigurgeirs- dóttir, eigandi líkams- ræktarstöðvarinnar Heilsusports i Kópavogi, en hún elti þjóf sem stal veskinu hennar og kom hon- um í hendur lögreglu. Hrönn segir rólegt hafa ver- ið um hádegisbilið og þá hafi hún sest út í sólina um stund. Mað- ur hafi komið út úr húsinu og stuttu síðar hafi henni verið sagt að þessi sami maður hafi verið að snuðra fyrir innan af- greiðsluborðið hjá henni. Hrönn sá strax aö veskið hennar var horfið. „Ég taldi víst að maðurinn myndi fara með strætó því hann var bíllaus, ákvað því að keyra upp á skiptistöð. í þvi sem ég kem þangað sé ég hann stiga út úr einum vagninum, rýk á hann, þríf í öxlina á honum og spyr hvar veskið mitt sé.“ Hrönn segir manninum hafa brugðið rosalega en hann hafi stunið því upp að hann hafi hent því einhvers staðar. Hún hafi því ekki séð annað ráð en að draga manngreyið að bílnum og skipa honum að fmna veskið. „Hann gat ómögulega fundið veskið og ég drösl- aði honum því hingað inn í Heilsusport og hringdi á lögregluna. Viðskiptavinim- ir pössuðu fyrirtækið og ná- grannarnir leituðu með mér þar til ég fann veskið. Þetta fannst mér alveg ffábært," segir Hrönn og hætir við að vissulega hafi henni brugðið eftir á þegar hún hafl gert sér grein fyrir öllu saman. Maðurinn hafi verið uppdópaður og þess vegna kannski til alls vís. -sv Hrönn Sigurgeirsdóttir sýndi mikið hugrekki þegar hún elti mann sem stal veskinu hennar, þreif í öxlina á honum, dröslaöi honum inn í bíl og hringdi síðan í lögregiuna. Hér sýnir hún vöðvana. DV-mynd S Stórlega dregur úr atvinnuleysi á landinu: Mest í Reykjavík en minnst á Vestfjörðum - hugað að málum langtimaatvinnulausra, segir félagsmálaráðherra „Það er ánægjuefni að dregið hef- ur úr atvinnuleysinu en tölur um atvinnuástandið í júní sýna 3,6% at- vinnuleysi en var 5,1% á sama tíma í fyrra," sagði Páll Pétursson félags- málaráðherra þegar hann kynnti yf- irlit vinnumálaskrifstofu ráðuneyt- isins um atvinnuástandið í júní- mánuði. Atvinnulausum á öllu landinu fækkar að meðaltali um 20,7% frá því í maímánuði og sé miðað við sama mánuð í fyrra eru atvinnu- lausir nú 29,1% færri en þá. Undan- farinn áratug hefur meðalfækkun atvinnulausra frá maí til júní verið 2,6% þannig að sveiflan nú er veru- lega breytt til betri vegar. Atvinnu- leysi i júnímánuði er raunar það minnsta í mánuðinum frá því árið 1992. Félagsmálaráðherra sagði að eng- ar einhlítar skýringar væru á batn- andi atvinnuástandi nú aðrar en auknar framkvæmdir og almenn eftirspurn. Hann sagði að veruleg eftirspurn væri nú eftir fólki í ákveðnum greinum, eins og t.d. málmiðnaði en svo virtist sem lítil sem engin nýliðun hafi átt sér stað í greininni undanfarin samdráttarár. Atvinnuástandið hefur batnað verulega alls staðar á landinu frá því í maímánuði. Atvinnulausum fækkar hlutfallslega mest á Vest- fjörðum og Vesturlandi en flestir einstaklingar sem áður voru án vinnu en hafa nú fengið starf, eru í Reykjavík. Hins vegar er hlutfall at- vinnulausra af íbúatölu hæst í Reykjavík, 4,3% en lægst á Vest- fjörðum, 0,5%. Atvinnuleysi meðal karla minnk- aði á landsvísu um 28% milli mán- aða en atvinnuleysi kvenna hins vegar ekki um nema tæp 15%. At- vinnulausum körlum fækkaði um 767 en atvinnulausum konum um 522 á landinu öOu. Félagsmálaráðherra sagði að á vegum ráðuneytisins væri verið að athuga hverjir það væru sem hætt- ast væri við að missa fótanna á vinnumarkaði eða ættu erfiðast með að ná þar fótfestu á ný. Svo virtist sem að í þeim hópi væri helst að finna ungt fólk og fólk komið um og yflr miðjan aldur. Þá væri verið að athuga mál langtímaatvinnu- lausra og hvemig þeirra mál yrðu best leyst og þeir studdir til bjarg- álna. Þá væri einnig verið að at- huga með mál þeirra sem kunna að heyra undir önnur bótakerfi eða hreinlega misnota atvinnuleysis- bætur, t.d. með því að stunda svarta atvinnu og þiggja um leið fullar at- vinnuleysisbætur. -SÁ Féll tvo metra Mjög ölvaður maður var að klifra upp í vitann á norðurgarðinum við Granda um klukkan sex í gærkvöld er hann féll tvo metra niður á steypta stétt. Erfitt var fyrir lög- reglu að gera sér grein fyrir því hversu alvarleg meiðsl mannsins voru, svo ölvaður var hann. -sv Kötturinn læstist inni hjá nágranna - sá var farinn í frí Lögreglan í Reykjavík þurfti að sinna óvenjulega útkalli í gær. Fjöl- skylda ein hringdi í öngum sínum og sagöist hafa leitað að kisu sinni um hríð og séð hana loks inn um glugga hjá nágrannanum. Sá hafði hins vegar sést fara í frí daginn áður. Löggan brást að sjálfsögðu vel við bóninni og mat aðstæður þannig að betra væri að fá lásasmiö til þess að opna hjá fólkinu en eiga það á hættu að kisa ynni spjöll hjá fólk- inu. „Hann var búinn að gera stykkin sín hér og þar og lyktin var í sam- ræmi við þaö. Eigendur kisa vildu því endilega lofta út og hreinsa áður en nágrannarnir kæmu heim,“ sagði lögreglan við DV í gærkvöld. -sv Skattskrá í undirbúningi Skattayfirvöld vinna nú að álagn- ingu skatta fyrir árið 1995. Þann 30. júlí verður auglýst að þeirri vinnu sé lokið og verða álagningarseðlar lagðir í póst í framhaldi af því. Skattskrár munu og liggja frammi í tvær vikur, frá 30. júlí, og öllum frjálst að lesa þær yfir. -saa Stuttar fréttir I Svalbarðamið Norska ríkissljórnin hefur samþykkt reglugerð um að engin þjóð, sem ekki hefur veitt við Svalbarða áður, megi veiða rækju þar. Einu giidi þótt þær eigi aðild að Svalbarðasamning- unum. RÚV gremdi frá. 200 milljóna verðmæti Guðbjörg ÍS hefur fengið 1000 tonn af rækju á Flæmingja- grunni frá því um miðjan mars. Verðmæti aflans er 200 milljónir króna. Bæjarins besta segir frá. Þú getur svarað þessari spurningu með því að hringia í síma 904 1600. 39,90 kr. mínútan Já 1 Nel 2 j rödd FOLKSINS 904 1600 Á að stofna embætti umboðsmanns sjúklinga? Klakkur með bilað spil í Noregi: Heimamenn neita aö aðstoða „Fyrstu viðbrögð Norðmanna eru þau að neita okkur um aðstoð. Við vitum lítið hvernig máliö stendur en trúum ekki öðru en það leysist farsællega," segir Ingimar Jónsson, fjármálastjóri Fiskiðjunnar Skag- firðings hf., sem gerir út togarann Klakk frá Grundarfirði. Áhöfn tog- arans bíður nú með bilaö spil fyrir utan Tromsö í Noregi en fær ekki aðstoð. „Stjórnvöldum hér heima er kunnugt um málið og ætli megi ekki segja að þau leiti leiða til þess að leysa það,“ segir Ingimar. -sv Sólfellið í vanda Loðnusjcipið Sólfell fékk net í skrúfuna á miðunum í fyrradag. Verið er að draga þaö til lands. j Engin hætta er á ferðum. RÚV segir frá. Marelbréf falla Hlutabréf í Marel, sem verið hafa í mjög háu verði á hluta- bréfamarkaði, eru skyndilega að falla í verði og í gær var skráð gengi þeirra á Verðbréfaþingi um 23% lægra en það var í upp- hafi vikunnar. -SÁ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.