Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1996, Blaðsíða 46
54
afmæli
LAUGARDAGUR 20. JULI 1996
Biörn Dúason
Bjöm Dúason, fyrrv.
meðhjálpari við Ólafs-
fjarðarkirkju, Ólafsvegi
9, Ólafsfirði, er áttræður
í dag.
Starfsferill
Björn fæddist á Ólafs-
firði en ólst upp á Siglu-
firði. Hann var í námi í
kvöldskóla á Siglufirði á
unglingsárunum, stund- Björn Dúason.
aði nám við Verslunar-
skóla íslands í Reykjavík
frá 1933 og lauk þaðan
prófum 1936.
Björn vann skrifstofu-
störf hjá Síldarútvegs-
nefnd og störf hjá Síldarverksmiðj-
um ríkisins á Siglufirði 1936-37, var
kaupfélagsstjóri Samvinnufélags
Fljótamanna, Haganesvík, 1937-41,
deildarstjóri hjá Kaupfélagi Siglfirð-
inga á Siglufirði, 1942-44, og skrif-
stofustjóri og framkvæmdastjóri hjá
Friðriki Guðjónssyni útgerðar-
manni og Hraðfrystihúsinu Hrímni
hf. á Siglufirði, starfrækti eigin
rekstur, umboðs- og heildverslun
Ólafs J. Ólafssonar hf.,
1945-54, var skrifstofu-
stjóri hjá Hraðfrystihúsi
Keflavíkur hf., Keflavík,
1955-58, var sveitarstjóri
Miöneshrepps í Sand-
gerði, 1958-62, vann
skrifstofu- og hótelstörf á
Keflavíkurflugvelli og
skrifstofustörf í Reykja-
vík 1963-67 og var bók-
haldari hjá Hraðfrysti-
húsi Ólafsfjarðar hf.
1968-1989.
Bjöm var meðhjálpari
í Ólafsfjarðarprestakalli
1972-96. Hann er félagi í
Karlakórnum Vísi á
Siglufirði, var formaður
Leikfélags Siglufjarðar
1950-54, forseti Lionsklúbbs Njarð-
víkur 1960-61 og einn af stofnendum
hans, var í fulltrúaráði Sambands
íslenskra sveitarfélaga 1959-63 og er
i stjóm Félags eldri borgara á Ólafs-
firði frá stofnun þess 1987.
Bjöm tók saman og gaf út bókina
Síldarævintýrið á Siglufirði árið
1988 og Ættmennatal Magneu
Grímsdóttur og Stefáns Sigurðsson-
ar 1985.
Fjölskylda
Björn er þríkvæntur. Fyrsta kona
hans var Ólafla Margrét Bjarnadótt-
ir, f. 17.9. 1918, d. 12.8. 1977. Móðir
hennar var Salóme Jónsdóttir frá
Súðavík og kjörfaðir hennar var
Bjami Pálmason skipstjóri.
Önnur kona hans var Olga Þórar-
insdóttir, f. 1.11. 1924, d. 30.7. 1967,
hjúkrunarkona frá Húsavík. For-
eldrar hennar vora Þórarinn Kristj-
ánsson símritari, frá Seyðisfirði,
lengst af búsettur í Reykjavík, og
Kristín Sigtryggsdóttir.
Björn kvæntist 20.12. 1968, þriðju
konu sinni, Kristínu Sigurðardótt-
ur, f. 9.5. 1922, fyrrv. talsímakonu á
Ólafsfirði. Foreldrar hennar voru
Sigríður Vilhjálmsdóttir, f. 9.11.
1891, d. 11.11.1965, og Sigurður Jóns-
son, f. 16.11. 1891, d. 23.7. 1963, versl-
unarmaður á Ólafsfirði.
Börn Björns og Margrétar eru
Steinunn Dúa, f. 14.4. 1938, lengst af
leiðsögumaður á Spáni, nú búsett í
Hveragerði og á hún fjögur börn;
Salóme Herdís, f. 15.6. 1939, lækna-
ritari i Reykjavík, gift Guðmundi
Guðmundssyni skrifstofumanni og á
hún þrjá syni; Gunnhildur Bima, f.
12.7. 1940, bankafulltrúi, búsett á
Seljarnamesi, gift Reyni Jónssyni
vélstjóra og á hún fjögur börn.
Böm Bjöms og Kristínar era
Helga, f. 4.11.1948, húsmóðir í Kópa-
vogi, gift Halldóri Jónssyni vél-
virkja og eiga þau þrjú böm; Sigurð-
ur Bjöm, f. 20.1.1950, húsasmiður og
rekstrarfræðingur hjá Kópavogsbæ,
kvæntur Margréti Sigurgeirsdóttur
og eiga þau þrjú böm.
Dóttir Kristínar er Sigríður Vil-
hjálms, f. 9.9. 1943, verslunarmaður
á Ólafsfirði, gift Kristni Gíslasyni
bæjarverkstjóra og eiga þau þrjú
börn.
Björn var einkabarn foreldra
sinna.
Foreldrar Björns voru Dúi Kr.
Stefánsson, f. 19.8. 1890, d. 9.7.1931,
organisti og verkstjóri á Siglufirði,
og Steinunn Björnsdóttir Schram, f.
25.8.1888, d. 11.10.1974, húsmóðir og
fátækrafulltrúi Siglufjarðarkaup-
staðar um skeið.
Björn og Kristín taka á móti gest-
um í Húsi eldri borgara á Ólafsfirði,
Bylgjubyggð 2b, í dag, laugardaginn
20.7. milli kl. 15.00 og 18.00.
Magnús A. Magnússon
Magnús A. Magnússon bifvéla-
virkjameistari, lengst af búsettur að
Kársnesbraut 24, en nú búsettur að
Ásbraut 15, Kópavogi, er áttræður í
dag.
Starfsferill
Magnús fæddist og ólst upp i
Vestmannaeyjum og gekk þar í
barna- og unglingaskóla. Hann lauk
sveinsprófi í bifvélavirkjun frá Iðn-
skólanum í Reykjavík árið 1952 og
meistararéttindi öðlaðist hann
skömmu síðar.
Magnús flutti til Reykjavíkur vor-
ið 1940. Hann vann um tíma hjá
breska setuliðinu en hóf störf hjá
Vegagerð ríkisins, þar sem hann
starfaði m.a. sem verkstjóri til árs-
ins 1964. Hjá bílaleigunni Falur
starfaði Magnús í rúman áratug, eða
þar til fyrirtækið hætti starfsemi.
Síðustu starfsárin vann Magnús hjá
Bifreiðum & landbúnaðarvélum, eða
þar til hann lét af störfum á sjötug-
asta og þriðja aldursári.
Fjölskylda
Magnús kvæntist 12.1.1944, Ólöfu
Ingunni Björnsdóttur, f. 28.10. 1921,
d. 22.9.1993, húsfreyju og verkakonu
í Kópavogi. Hún var dóttir hjónanna
Bjöms Gunnarssonar frá Syðra-
Vallholti og Sigþrúðar Jónsdóttur
frá Krithóli, Skagafirði. Foreldra
sína missti Ólöf komung, en ólst
upp í Syðra-Vallholti hjá ömmu
sinni, Ingibjörgu Ólafsdóttur og fóð-
urbróður sínum, Gunnari Gunnars-
syni og k.h., Ragnhildi Erlendsdótt-
ur frá Beinakeldu í Húnaþingi.
Böm Magnúsar og Ólafar eru Kol-
brún Dísa f. 5.9. 1944, skrifstofu-
stúlka í Kópavogi, gift Birni Ólafs-
syni sölumanni og eru börn þeirra
fimm, Hrafnhildur, f. 17.6. 1970,
Magnús Ólafur, f. 9.2.1973, Oddný, f.
22.12. 1975, Berglind, f. 7.8. 1977, auk
þess sem dóttir Kolbrúnar
er Erla María Kristins-
dóttir, hjúkrunarfræðing-
ur, f. 31.10.1963; Björn
Magnús, f. 21.10. 1948,
sölumaður og bílstjóri í
Kópavogi, kvæntur Stein-
unni Torfadóttur sérkenn-
ara og verkefnisstjóra og
er dóttir þeirra Ólöf Ing-
unn, f. 16.2. 1979, auk þess
sem sonur Steinunnar er
Torfi Birkir Jóhannsson,
f. 16.1.1973, rafeindavirki. Ma9nús A- Magnús
Systkini Magnúsar eru son-
Hulda, f. 29.6. 1913, hús-
freyja i Reykjavík; Marta,
f. 19.11.1914, húsfreyja og verkakona
í Reykjavík; Þórdís, f. 28.9. 1918, d.
23.4. 1939; Jórunn Lilja, f. 5.12. 1919,
húsfreyja og verkakona í Vest-
mannaeyjum; Erlendina, f. 18.6.
1921, d. 27.9. 1922; Erlendur, f. 13.3.
1923, fyrrv. útgerðarmaður í Reykja-
vík; Guðbjört, f. 31.5.
1924, húsfreyja og
verkakona í Reykjavík;
Elísabet f. 24.11. 1925,
húsfreyja og verkakona
í Reykjavik; Fanney, f.
3.3. 1927, húsfreyja og
verslunarmaður í
Reykjavík.
Foreldrar Magnúsar
voru Magnús Magnús-
son, f. 6.10. 1882, d.
22.10. 1961, frá Geitagili
í Örlygshöfn, skipa-
smiður, búsettur að
Bjarmalandi í Vest-
mannaeyjum, síðar í
Reykjavík og k.h., Oddný Erlends-
dóttir f. 11.10. 1883, frá Skíðbakka í
Austur-Landeyjum, húsfreyja í Vest-
mannaeyjum og síðar í Reykjavík.
Olöf Valgerður Jónasdóttir
Ólöf Valgerður Jónas-
dóttir húsmóðir, Eyrar-
vegi 25, Akureyri, verður
áttræð á morgun.
Starfsferill
Ólöf fæddist í Vogum í
Skútustaðahreppi og ólst
þar upp. Hún var í
barnaskólanámi fram að
fermingu, stundaði nám
við húsmæðraskóla, við
félagsmálaskóla
Ólöf hefur mikið yndi
af söng, hefur sungið frá
unga aldri með fjölda
kóra og stundað félags-
störf á þeirra vegum.
Hún söng með Kór
Reykjahlíðarkirkju, var
einn af stofnendum Kórs
Akureyrarkirkju, ferðað-
ist um Norðurlönd og
söng með Kantötukór
Akureyrar og söng með
félagsmálasköla og i . " “ Gígjunum. Sl. vetur söng
námsflokkum. Auk þess 0!°' Va|9eroljr Jonas- ólöf með þremur kórum,
lærði hún sauma hjá dottir' Kór eldri bogara á Akur-
Bernharð Laxdal klæð- eyri, Passíukórnum og
skera og starfaði við það kvennakórnum Ömm-
um skeið. Þá stundaði hún nám við urnar á Akureyri.
kvæntur Ólínu Fjólu Hermannsdótt-
ur og eiga þau tvö böm; Haukur
Torfason, f. 8.7. 1953, útsölustjóri
ÁTVR á Akureyri, kvæntur Krist-
ínu Gunnarsdóttur skrifstofumanni
og eiga þau þrjú börn.
Systkini Ólafar: Jón Jónasson, f.
24.10. 1917, d. 30.8. 1990, vélvirkja-
meistari í Reykjavík; Stefán Jónas-
son, f. 11.6. 1919, bifreiðarstjóri í
Reykjavík; Sigurgeir Jónasson, f.
28.10. 1920, búfræðingur og bóndi í
Vogum; Þorlákur Jónasson, f. 1.1.
1922, bóndi í Vogum; Guðfinna Frið-
rika Jónasdóttir, f. 1.4. 1924, hús-
freyja á Húsavík; Kristín Jónasdótt-
ir, f. 9.5. 1926, húsfreyja í Vogum;
Hallgrímur Jónasson, f. 7.3. 1928,
bóndi á Hólum; Pétur Jónasson, f.
19.12. 1929, d. 1.6. 1994, starfsmaður
við Léttsteypuna hf. í Mývatnssveit.
Foreldrar Ólafar vora Jónas Pét-
ur Hallgrímsson, f. 3.12.1877, d. 5.12.
1945, bóndi í Vogum í Mývatnssveit,
og k.h., Guðfinna Stefánsdóttir, f.
5.11. 1896, d. 8.1. 1977, húsfreyja.
Ólöf og fjölskylda hennar taka á
móti gestum í Húsi aldraðra, Lund-
argötu 7, Akureyri, á morgun,
sunnudaginn 21.7., kl. 15.00-18.00.
Tónlistarskóla Akureyrar og var í
söngnámi hjá Sigurði Demetz.
Ólöf flutti til Akureyrar 1941 og
stundaði þá nám og starfaði um
skeið við fatasaum. Hún starfaði síð-
an hjá Akureyrarbæ við ræstingar
og leiðbeinendastörf um áratuga-
skeið.
Ólöf sat í nefndum á vegum Akur-
eyrarbæjar fyrir Alþýðuflokkinn,
sat í stjórn Verkalýðsfélagsins Ein-
ingar og gegndi þar trúnaðarstörf-
um og sat í stjóm kvenfélags alþýðu-
flokksfélagsins á Akureyri.
Fjölskylda
Ólöf giftist 21.7. 1941 Torfa Vil-
hjálmssyni, f. 20.3. 1918, d. 16.7.1966,
húsverði og verkamanni. Hann var
sonur Vilhjálms Friðrikssonar og
Lísbetar Indriðadóttur sem bjuggu í
Torfunesi í Suður-Þingeyjarsýslu.
Böm Ólafar og Torfa era Jónas
Valgeir Torfason, f. 27.5. 1942, bif-
vélavirki á Akureyri, kvæntur Sig-
ríði Aðalbjörgu Whitt og eiga þau
þrjú börn; Pétur Torfason, f. 28.4.
1946, verkfræðingur á Akureyri,
Til hamingju
með afmælið
21. júlí
85 ára
Erlendur Þórarinsson,
Hvanneyrarbraut 56, Siglufirði.
Guðjón Magnússon,
Bólstaðarhlíö 66, Reykjavík.
Steinunn Ásgeirsdóttir,
Hringbraut 50, Reykjavík.
80 ára
Friðgeir Guðmundsson,
Hamraborg 38, Kópavogi.
Halldóra Stefánsdóttir,
Hringbraut 50, Reykjavík.
75 ára
Magnús Marteinsson,
Amarhóli, Sandgerði.
70 ára
Jónas Kr. Jónsson,
Bröttutungu 7, Kópavogi.
60 ára
Ágústa Þorbergsdóttir,
Ægisgötu 28, Akureyri.
Unnsteinn Pálsson,
Sundlaugavegi 12, Reykjavík.
Sæmundur Sigurbjörnsson,
Syðstu-Grund, Akrahreppi.
Guðmundur Rúnar
Hallgrímsson,
Óðinsvöllum 5, Keflavik.
50 ára
Gígja Guðjónsdóttir,
Markholti 16, Mosfellsbæ.
Ingibjörg Björgvinsdóttir,
Bogabraut 9, Skagaströnd.
Jóhanna Sigvaldadóttir,
Dvergsteini, Keflavik.
40 ára
Ólafúr Böðvar Þórðarson,
Markarlandi 3,
Djúpavogshreppi.
Þorkell Björnsson,
Egilsstöðum, Vopnafirði.
Þórður J. Halldórsson,
Litla-Fljóti,
Biskupstungnahreppi.
Elfa Ármannsdóttir,
Engihlíð 4, Snæfellsbæ.
Þorleifur Guðbjartsson,
Illugagötu 65,
Vestmannaeyjum.
Grétar Ólason,
Vatnsholti ÍD, Keflavík.
Sigríður Kristin Káradóttir,
Skólastíg 7, Bolungarvík.
Stefán Magnússon,
Álfholti 38, Hafnarfirði.
Anna F. Blöndal,
Helgamagrastræti 23, Akureyri.
Birgir Þórðarson,
Mjólkárvirkjun, ísafiröi.
Grétar Sigurðsson,
Urðarvegi 49, ísafirði.
Sveinn Ásgeir Baldursson,
Funafold 14, Reykjavík.
Haukur Haraldsson,
Stóra-Mástungu 1B,
Gnúpverjahreppi.
Stefán Þorvaldur Tómasson,
Sævangi 23, Hafnarfirði.
Ingi Ragnar Pálmarsson,
Þverholti 9, Mosfellsbæ.
Rósa Guðsteinsdóttir,
Fomhaga 11, Reykjavík.
Áskrifendur fá
aukaafslátt af
smáauglýsingum DV
‘J, V-'-A