Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1996, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1996, Page 6
6 átlönd LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 1996 UV stuttar fréttir 11 ára moröingi 11 ára stúlka er í haldi lög- reglu i San Bernardino í Kali- forníu, grunuð um að hafa myrt 1 14 ára dreng og sært annan. Hryöjuverk Líklegt þykir að rannsóknar- menn þeir sem kanna flugslysið við Long Island komist að þeirri niðurstöðu að sprengja hafi verið um borð. Neita ábyrgö Öfgahópur þjóðernissinna, sem kennt var um sprengjuna i | Enniskillen á Norður-írlandi fyr- ir viku hefur neitað að hafa kom- ið nálægt tilræðinu. Díana og Fergie kæra Díana prinsessa og Sara i Ferguson, sem eru í fríi við Mið- jarðarhafið, kærðu í gær tvo ji blaðamenn sem fóru í óleyfi inn á landareignina þar sem þær dveljast. Fimmtán börn deyja | Fimmtán börn að minnsta kosti létust í Biharhéraði á Ind- ý landi í gær þegar eldingu laust niður í skóla þeirra. I 13 ára stúlka myrt Lögregla í Frakklandi skýrði Í frá því í gær að 13 ára ensk stúlka I heföi fúndist myrt á farfúglaheim- | ilií norðurhluta landsins. Dúman krefst friöar Dúman, neðri deild rússneska þingsins, hvatti Borís Jeltsín Rússlandsforseta til þess í gær að hætta stríðsaögerðum í j: Tsjetsjeníu. Lík fyrir fanga ísraelar og Hizbollah- skæru- liðar munu á sunnudaginn skipt- ast á jarðneskum leifum tveggja ísraelska hermanna og arabisk- um fóngum og jarðneskum leif- um skæruliða. Ekki er enn orðið samkomulag um fjölda fanganna t en Hizbollah-skæruliðarnir heimtuðu að fá iausa yfir hund- rað manns. ISprengja sprakk ekki Öflug sprengja fannst í biö- stofu járnbrautarstöðvar í Moskvu í gær. Kveikibúnaður- inn virkaði ekki og því sprakk sprengjan ekki. Dauöaforingi handtekinn Maður sem var yfirmaður j lögreglu Suður-Afriku fyrir af nám aðskilnaðarstefnunnar gaf Ísig fram við yfirvöld í gær. Hann hefur viðurkennt að hafa tekiö þátt í mörgum pólitískum aftökum. Hann verður ákærður | fyrir morðið á Griffith Mxenge | sem var bandamaður Nelsons | Mandela og fannst skorinn á háls á heimili sínu í Durban : árið 1981. Málverk endurheimt Lögregla í Búlgaríu skýrði | frá þvi í gær að hún heföi hand- tekið mann sem stal fjórurn | verðmætum málverkum af Rík- islistsafninu fyrir tveimur I árum. Maöurinn sem er fyrrum 1 meðlimur skíðalandsliðs Búlgaríu á i vændum 15 til 30 : ára fangelsi. Bensín og hráolía: Hráolían hækkar Verð á hráolíu hefur verið að síga aftur upp á við síðan það hrapaði niður í 17,91 dollarar tunnan i júní- mánuði og var í gærmorgun 20,39 dollarar en í vikunni var það lægst 20,06 dollarar. Bensínverð hefur ver- ið fremur stöðugt og var vísitala 95 oktana bensíns í gærmorgun 208, en á 98 oktana bensíni var hún 213. Búist er við vaxtalækkunum í Þýskalandi, en verðbólga er þar afar lág og gengi marksins stöðugt að styrkjast. í mánaðarskýrslu þýska seðlabankans fyrir júnimánuð kem- ur fram að verðbólguþrýstingur á þýska markið er óvenjulítill. -SÁ Afsögn Radovans Karadzics: Greiðir leið að kosningum - þó að harðlínumaður taki við Alþjóðlegir eftirlitsmenn með kosningunum í Bosníu sögðu i gær að flokki Radovans Kardzics, SDP, yrði leyft að taka þátt í kosning- unum nú þegar hinn yfirlýsti stríðs- glæpamaður hefur sagt af sér öllum opinberum embættum, þar á meðal sem yfirmaður flokksins. Það var Richard Holbrooke, sendimaður Bandaríkjastjórnar, sem kom því til leiðar í gær eftir viðræður við Slobodan Milosevic, forseta Serbíu, að Karadzic segði af sér. Holbrooke, sem var heilinn á bak við Dayton- friðarsamkomulag- ið, tók sér frí fyrr í þessari viku frá nýju starfi sínu í Wall Street og flaug til Bosníu. Þar tókst honum á örskömmum tíma að ná áfanga sem Carl Bildt, alþjóðlegur sendifulltrúi í Bosniu, hafði stefnt að án árang- urs í hálft ár. Vegna þrýstings frá Mílosevic skrifaði Karadzic undir yfirlýsingu þess efnis að hann myndi ekki taka þátt i opinberum störfum aftur en þrátt fyrir það varaði Holbrooke við of mikilli bjartsýni og margir hafa bent á að undirskriftir hafi lítið vægi í Bosníu. Einnig er ljóst að Warren Christopher, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er ekki fullkomlega ánægður með samkomulagið. Hann telur að halda eigi áfram tilraunum til þess að koma Karadzic undir lög- sögu stríðsglæpadómsstólsins í Hag. Einnig vekur það áhyggjur margra að það er harðlínumaður sem tekur við af Karadzic sem for- maður flokks Serba. Aleksa Buha er náinn samstarfsmaður Karadzics og hann er jafn óvinveittur Dayton- samkomulaginu og fyrrum yfirmað- ur hans. Robert Frowick, yfirmaður nefnd- ar, sem hefur eftirlit með kosning- unum, varaði Karadzic við því að hann yrði að sýna fram á það á næstu dögum að hann væri í raun hættur þátttöku í stjórnmálum. Annars yrði flokki hans strax mein- uð þáttaka í kosningunum. Reuter Almenningur í Bosníu sér nú kannski loksins fram á betri tíma þegar stríösherrann Karadzic hefur sagt af sér. Hér má sjá tvær stúlkur horfa á mynd af Karadzic í búöarglugga í Paló, höfuöborg Bosníu- Serba Otrúleg eymd i Bangladesh Flóðin í Bangladesh halda áfram að aukast. Nú er talið að meira en sjötíu manns hafi farist í hamför- unum í vikunni. Allt að tvö hund- ruð og fimmtíu þúsund manns eru strandaglópar á flóðasvæðinu og meira en milljón manns hefur misst heimili sín. „Fólk horfist í augu við ótrúlega eymd. Flóðin breiðast út og leggja undir sig ný svæði og auka á þján- inguna," sagði embættismaður í Gaibandha-héraðinu en það hefur orðið illa fyrir barðinu á flóðunum. Herinn og lögreglan hafa flutt meira en sjötíu þúsund manns á brott frá flóðasvæðinu en margir eru enn eftir. Þegar Hasina forsætisráðherra heimsótti flóðasvæðin á fimmtudag- inn skipaði hann svo fyrir að vist- um yrði varpað úr flugvélum yfir flóðasvæðin en það dugar lítið. „Það er of margt fólk sem þarfnast aðstoðar og of margir sem bjargað er til að hægt sé að fæða þá,“ sagði op- inber starfsmaður í Dinjapur-héraði en flóðin eru hvergi verri en þar. Um hálf milljón manna býr nú i meira en ellefu hundruð flótta- mannabúðum sem settar hafa verið upp víðs vegar um landið. Um fimmtíu þúsund hús hafa skolast í burtu. „Við höfum miklar áhyggjur af eftirköstum flóðanna. Sjúkdómar geta breiðst út þegar flóðin sjatna og fólk fer að snúa heim,“ sagði starfs- maður í heilbrigðisþjónustunni. Flóðin náðu í gær til höfuöborgarinn- ar Dhaka og eyðilögðu vegi og lestar- teina í grennd við borgina. Reuter Li Xiumei og Liu Manhuan báru vitni um hrottaskap japanskra hermanna í seinni heimsstyrjöld- inni í gær. Kynlífsþrælar bera vitni Tvær kínverskar konur sem | japanski herinn gerði að kynlifs- þrælum í seinni heimsstyrjöld- inni báru vitni fyrir rétti í I Tokyo í gær. Þær hafa nú ásamt ; ijórum öðrum konum sem lentu i sömu hörmungunum krafist | skaðabóta frá japönsku stjórn- | inni vegna þjáninga sinna. | Li Xuimei var aðeins fimmtán I ára gömul þegar fjórir japanskir | hermenn réðust inn á heimili hennar. Þeir drógu hana að | næstu herstöð þar sem henni var nauðgað og misþyrmt stans- ; laust í fimm mánuði eða þar til | henni tókst loks að flýja. Í„Ég vil að japanska þjóðin viti að japönsku hermennirnir rændu öllu, brenndu allt og I drápu alia,“ sagði Liu Mianhu- an, sem einnig var rænt á stríðs- j árunum, við réttarhöldin. Konurnar hafa krafist um tólf | milljóna króna í skaðabætur og | vilja einnig fá afsökunarbréf frá I Hashimoto forsætisráðherra. Þrír handtekn- ir í Englandi Tveir karlmenn og ein kona 1 voru handtekin í Birmingham í !! Bretlandi á miðvikudaginn grunuð um að vera í írska lýð- veldishernum. Breska lögreglan skýrði frá þessu í gær. Konan hefúr þegar verið látin laus án ákæru. Handtakan kom í kjölfar upplýsinga sem lögreglan komst yfir við innrás í sprengjuhreið- ur IRA í London á mánudaginn var, en þá voru sjö menn hand- teknir. Ekkert sprengiefhi fannst í gær en aftur á móti komst lögreglan yfir skjöl sem gætu komið sér vel í baráttunni gegn hryðjuverkamönnunum. Talsmaður lögreglunnar sagði greindegt að liösmenn IRA hefðu verið búnir að skipuleggja mikla sprengjuherferð 'í Lund- únaborg á næstunni. írski lýðveldisherinn hefur komið fyrir sjö sprengjum í Bretlandi síðan hann rufu vopnahléið í febrúar síðastliðn- um með stórri sprengingu í mið- ; borg Lundúna. ísraelsmenn nefbrjóta konu ísraelskir landnemar nef- brutu palestínska konu og börðu | tvo erlenda sjónvarpsfrétta- menn í óeirðum á Vesturbakk- j anum í gær. Átökin byrjuðu þegar um tvö hundruð arabar gengu með mót- mælaspjöld inn á landsvæði sem þeir segjá landnema hafa rænt i frá þeim. Paiestínumennirnir 1 rifu niður giröingu og hófu að | kveikja 1 runnum. Fljótlega birt- | ust landnemar vopnaðir kylfum | og vélbyssum og réðust á mót- | mælendurna sem svöruðu með því að kasta grjóti. Að minnsta kosti einn land- nemanna skaut úr vélbyssu upp i loftið en særði engan. Fathem al-Bom, sjötíu og sex ára gömul palestínsk kona, nefbrotnaði og var flutt á sjúkrahús. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.