Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1996, Side 12
i2 erlend bóksjá
LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 1996 JjV
[
Metsölukiljur
Bretland
Skáldsögur:
1. Patricla D. Cornwell:
From Potter’s Fleld.
2. Nlcholas Evans:
The Horse Whlsperer.
3. Mlchael Crlchton:
The Lost World.
4. Stephen Klng:
The Bad Death of Edward Delacrolx.
5. Pat Barker:
The Thost Road.
6. Tom Sharpe:
Grantchester Grlnd.
7. Josteln Gaarder:
Sophle's World.
8. Danlelle Steel:
Llghtnlng.
9. Nlck Hornby:
Hlgh Fldelity.
10. Joanna Trollope:
The Best of Frlends.
Rlt almenns eölis:
1. Erlc Lomax:
The Rallway Man.
2. Paul Theroux:
The Plllars of Hercules.
3. Lorenzo Carcaterra:
Sleepers.
4. Wlll Hutton:
The State We’re In.
5. John Gray:
Men Are from Mars, Women Are from
Venus.
6. Chrls Ryan:
The One that Got Away.
7. Margaret Forster:
Hldden Uves: A Famlly Memolr.
8. Graham Hancock:
Rngerprlnts of the Gods.
9. Garry Nelson:
Left Foot Forward.
10. PJ. O’Rourke:
Age and Gulle Beat Youth, Innocence
and a Bad Halrcut.
Innbundnar skáldsögur
, 1. Robert Jordan:
A Crown of Swords.
2. Terry Pratchett:
Feet of Clay.
3. John Grisham:
The Runaway Jury.
4. lain M. Banks:
Excesslons.
5. Jeffrey Archer:
The Fourth Estate.
Innbundln rit
almenns eðlis:
1. Jack Ramsay:
SAS: The Soldler's Story.
2. Brlan Scovell:
Dlckle.
3. Davld Hopps:
Free as a Blrd.
4. R. Bauval & G. Hancock:
Keeper of Genesls.
5. Wendy Beckett:
The Story of Palnting.
(Byggt á The Sunday Times)
„Nánast fyrir tilviljun
orðinn leikritaskáld"
Enska leikritaskáldið Jim
Cartwright virðist njóta óvenju-
legra vinsælda hér á landi. Helstu
verk hans hafa þegar verið sýnd í
leikhúsum hér og fengið góða að-
sókn; Strætið, Barpar og Taktu lag-
ið, Lóa. Og í síöustu viku var Stone
Free, nýjasta leikrit hans, frumsýnt
hér, að vísu við daprar undirtektir
gagnrýnenda.
Sjálfur er hann lítið fyrir að vera
í sviðsljósinu, að sögn enskra dag-
blaða, sem hafa þó birt við hann
nokkur viðtöl á undanfórnum
árum. Það sem hér fer á eftir er
byggt á nokkrum slíkum.
Hætti í skóla 16 ára
Cartwright er af alþýðufólki kom-
inn; fæddur árið 1958 í Farnworth,
sem er lítill iðnaðarbær skammt frá
Bolton, en þar vann faðir hans í
verksmiðju. Hann ólst upp á þeim
sama stað og gekk í skóla til sextán
ára aldurs. í viðtölum segist hann
hafa saknað þess síöar að hafa ekki
komist í háskóla; vegna lítillar
skólagöngu sé hann t.d. lítt lesinn í
bókmenntum.
í skólanum kynntist hann samt
leiklistinni með eftirminnilegum
hætti. Einn kennarinn las fyrir
nemendur leikrit Shakespeares um
Ríkarð þriðja. „Þaö hafði gífurleg
áhrif á mig,“ sagði hann síðar í
blaðaviötali. Hann fór að yrkja Ijóð
á þessum árum, en ákvað síðan að
gerast leikari og fékk inngöngu í
leiklistarskóla.
Ekki líkaði honum vistin þar sem
best, hætti því námi og reyndi fyrir
sér um hríð sem leikari, en hélt síð-
an til baka til Farnworth, gekk í
Úr íslenskri uppfærslu á Strætinu.
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
hjónaband, eignaðist barn með
konu sinni, leitaði stöðugt að vinnu
en skrifaði þess á milli stök atriði í
leikrit.
Þessi brot voru lesin í leikhúsi
sem fól honum að fullgera verkið.
Árangurinn var sjónleikurinn Road
(Strætið), sem leit dagsins ljós árið
1986 og vakti athygli. „Það var gam-
an,“ sagði hann síðar í viðtali. „Ég
var 26 eða 27 ára og nánast fyrir til-
viljun orðinn leikritaskáld."
Strætið þótti merkileg lýsing á
hráum veruleika í hnignandi iðnað-
arbæjum Englands þar sem at-
vinnuleysi, eiturlyf og glæpir eru
daglegt brauð. I kjölfar frumsýning-
arinnar var hann beðinn um fleiri
verk og þau komu hvert af ööru
næstu árin: Bed, Baths (útvarpsleik-
rit sem hann sagðist hafa samið á
aðeins tveimur timum), June, Two
(Barpar) og handritið að kvikmynd-
inni Wroom.
Sló ígegn 1992
Það var svo með leikritinu The
Rise and Fall of Little Voice (Taktu
lagið, Lóa) árið 1992 sem Cartwright
sló rækflega í gegn á Englandi. Það
varð fyrst verka hans til að komast
á svið í leikhúshverfínu fræga í
West End í London, hlaut tvenn
leiklistarverðlaun, og har hróður
hans tU annarra landa - að vísu
með misjöfnum árangri. Þannig
voru gagnrýnendur í New York afar
neikvæðir.
Næsta verk Cartwrights var svo
Stone Free, sem nú hefur verið sett
upp hér á landi. Leikrit þetta var
samið að beiðni leikhúss í Bolton og
fyrst frumsýnt þar árið 1991 undir
nafninu Eight Miles High. Hann
endurskoðaði verkið, sem gerist á
rokkhátíð í Norður-Englandi fyrir
aldarfjórðungi eða svo, og breytti
nafninu um leið í Stone Free.
Þannig var leikritið sett á svið í
Bristol árið 1994, og reyndar fært
upp að nýju þar í borg síðastliðið
sumar.
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. Stephen Klng:
The Green Mlle: Coffey's Hands.
2. Pat Conroy:
Beach Muslc.
3. Sandra Brown:
The Wltness.
4. T. Clancy & S. Pleczenlk:
Games of State.
5. Davld Guterson:
Snow Falllng on Cedars.
6. Stephen Klng:
The Green Mlle: The Mouse on the
Mlle.
7. Dean Koontz:
The Eyes of Darkness.
8. Stephen Klng:
Rose Madder.
9. Stephen Klng:
The Green Mlle: The Two Dead Glrls.
10. John Grlsham:
The Ralnmaker.
11. Mary Hlgglns Clark:
Let Me Call You Sweetheart.
12. Rlchard Ford:
Independence Day.
13. Jouh Saul:
Black Llghtlng.
14. Linda Howard:
Shades of Twlllght.
15. Carol Hlgglns Clark:
I lced-
I
Rit almenns eðlis:
: 1. John Felnsteln:
A Good Walk Spolled.
2. Mary Plpher:
Revlvlng Ophella.
3. Thomas Cahlll:
How the Irlsh Saved Clvllization.
4. Mary Karr:
The Llar's Club.
5. Jack Miles:
fl God: A Blography.
6. James Carville:
We’re Right, They're Wrong.
7. Isabel Allende:
Paula.
8. B.J. Eadie & C. Taylor:
Embraced by the Llght.
9. Andrew Well:
Spontaneous Heallng.
10. J.M. Masson & S. McCarthy:
When Elephants Weep.
11. Helen Prejean:
Dead Man Walking.
12. M. Scott Peck:
The Road Less Travelled.
13. Ann Ruie:
Dead by Sunset.
14. Thomas Moore:
Care of the Soul.
15. Balley Whlte:
Sleeplng at the Starllte Motel.
(Byggt á New York Times
Book Revlew)
,2. i,~, /■!', » ' ' .y-xV- „,
ét fíg ■ > ■
vismdi____________________
Te er bæði
gott og hollt
Sífellt fleiri rannsóknir benda
nú til þess að kaffi og te séu ekki
einasta góðir drykkir heldur líka
meinhollir og heilsubætandi.
Þannig bendir ný rannsókn,
sem gerð var í Hollandi, til þess
að hættan á að fá heilablóðfall
minnki um allt að sjötíu prósent
hjá þeim sem drekka fimm te-
bolla á dag.
Vísindamennimir segja að það
sem geri teið svona hollt og gott
séu efni sem kallast flavonóídar
en þau verka m.a. eins og andox-
i unarefni.
Reykleysi
gegn krabba
Rannsókn, sem gerð var á kon-
um sem reyktu og höfðu allar
fengið frumubreytingar í leg-
hálsi, leiddi í ljós að hjá þeim
sem annaðhvort steinhættu að
reykja eða drógu mjög úr reyk-
ingunum gengu frumubreyting-
arnar ýmist til baka eða þær
minnkuðu. Frumubreytingamar
höfðu hins vegar tilhneigingu til
. að versna hjá þeim sem héldu
uppteknum hætti, segir í lækna-
ritinu Lancet.
Frumubreytingar í leghálsi
geta í versta falli þróast yfir í
krabbamein. Skýringin á því að
frumubreytingamar geti horfið
við þaö aö hætta að reykja mun
vera sú að tóbaksreykur veikir
ónæmissvömn i leghálsinum og
| hann er því viðkvæmari.
Umsjón
Guðlaugur Bergmundsson
Eiturefnaúrgangur getur borist
börnum með móðurmjólkinni
Brjóstagjöf hefur löngum
þótt besta aðferðin við að
næra ungbörn. Nú em vís-
indamenn hins vegar
komnir í hár saman vegna
fuflyröinga um að eitur-
efnaúrgangur safnist fyrir í
konum og skili sér út í
mjólk þeirra og til barn-
anna. Hér er fyrst og fremst
átt við efnið díoxín sem
myndast aðallega þegar
plastefni eru brennd. Dí-
oxin er eiturefni sem fer út
í fæðukeðjuna og safnast
saman með tímanum í efsta
hlekk hennar, manninum.
Og eina leiðin til að losa sig
við efnið er með móður-
mjólkinni.
Fyrsta barn konu getur á
aðeins einu ári fengið með
móðurmjólkinni aUt að 14
prósent þess magns díoxín-
efna sem er innan hættu-
marka fyrir heila mannsævi.
Vísindamenn á Norðurlöndum
halda því fram að ein af hverjum tíu
konum hafi svo mikið magn díoxíns
í sér að þær ættu ekki að gefa böm-
um sínum brjóst nema í örfáar vik-
ur. Þeir ætla að reyna að þrýsta á
Alþjóðaheilbrigðsmálastofnunina
(WHO) um að fundin verði ódýr að-
ferð til að mæla díoxínmagn í kon-
um.
Breska landbúnaðarráðuneytið
birti hins vegar fyrir skömmu nið-
urstöður rannsókna sem gerðar
voru á bamasjúkrahúsi í Glasgow
þar sem í ljós kom að svo virtist
sem díoxínmagn í brjóstamjólk
hefði minnkað um þriðjung á síðast-
liðnum fimm árum. Niðrstöður
þessar fengust eftir flóknar og dýrar
prófanir á tuttugu konum í Glasgow
og jafn mörgum í Birmingham.
En þótt magn díoxíns hafi mælst
minna en í fyrri prófunum reyndust
ungbörn þó fá tíu sinnum meira en
talið er óhætt að fullorðinn einstakl-
ingur í Bretlandi fái á einum degi. í
Bandarikjunum, Hollandi og Þýska-
landi hafa hættumörkin nú verið
lækkuð og em þau einn tíundi af
því sem viðgengst í Bretlandi.
Einn helsti sérfræðingur heims-
ins í þessum málum er hollenska
vísindakonan Jana Koppe. Hún seg-
ir rannsóknir sínar hafa
sýnt fram á að díoxín hafi
áhrif á starfsemi skjald-
kirtils og lifrar ungbarna.
Efnið geti einnig valdið þvi
að bömin sýni áreiti minni
svörun. Talið sé að efnið
skaði börnin mest á meðan
þau eru enn í móðurkviði.
Koppe segir að ekki sé
hægt að segja til um hver
sé með mikið magn díoxins
og hver ekki. „Það eru
nokkrar tölfræðilegar vís-
bendingar. Ef kona er kom-
in á fertugsaldurinn eða
eldri er magnið meira
vegna þess að efnið safnast
saman með tímanum. Ef
hún borðar mikið af
dýrafltu, einkum fisk og
mjólkurafurðir, verður
magnið meira af því að
þetta eru helstu uppsprett-
urnar og ef hún hefur
aldrei haft barn á brjósti fyrr verð-
ur magnið hátt,“ segir Koppe.
Hún vill líka að WHO taki mál
þetta alvarlegar en gert er en það
gengur í raun þvert á áróður stofn-
unarinnar, einkum í löndum þriðja
heimsins, um að konur hafi börn
sín á brjósti.
Koppe segir að fyrir mikinn
meirihluta kvenna vegi kostir
brjóstagjafar fyrir bæði heilsu
þeirra og bamanna þyngra en hugs-
anleg hætta. Hún segir þó að konur,
sem hafi af þessu áhyggjur, ættu að
forðast dýrafitu og drekka fitu-
snauða mjólk.
Kynding
tengist asma
Bömum sem búa í miðstöðvar-
kyntum húsum er tvisvar sinn-
um hættara við að fá asma eða
heymæði en bömum sem búa í
húsum þar sem kol eða viður eru
brennd, segir í niðurstöðum
rannsóknar þýskra vísinda-
manna á 1700 börnum.
Um 40 prósent barnanna
bjuggu í húsum með miöstöðvar-
kyndingu, um 40 prósent bjuggu
við kola- eða viðarbrennslu og
þeir sem eftir voru bjuggu við
olíu- eða gaskyndingu.
Breskir vísindamenn greindu
fyrir stuttu frá því að konur sem
elduðu á gaseldavélum væm lík-
legri til að fá asma en aðrar kon-
ur. Læknar segja að svo virðist
sem tengsl séu milli þess sem
fólk notar til að kynda heimili
sín og tíðni asma.
Alheimurinn bætir á sig
Alheimurinn hefur verið að
I þyngjast upp á síðkastið og eru
það svo sannarlega góðar fréttir
fyrir þá sem þar búa, segir í
I grein í tímaritinu Science.
í greininni segir aö því meiri
sem þyngdaraukning alheimsins
sé, þeim mun meiri líkur séu á
að hann haldi áfram að þenjast
út í hið óendanlega.
En samkvæmt einni kenningu,
er rétt nægilega mikið eftir af
| þekktri þyngd til þess að alheim-
Íurinn vegi salt milli endalausrar
þenslu og hruns. Stjarnvísinda-
menn hafa lengi leitað svokallaðs
„dökks efnis" til að bæta við
!þyngd alheimsins en það er
ósýnilegt, þótt það sé raunveru-
: legt engu að síður.