Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1996, Síða 13
J3"V LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 1996
13
m
- íslensku stelpurnar sætar og fiskurinn góður, sagði Denis Kovacevic
Ekkert var gefiö eftir viö róöurinn og ekki aö sjá aö þarna væri fatlaöur drengur á ferö. DV- mynd ggá
Hann fór ekki fram hjá neinum,
bosníski pilturinn Denis Kovacevic,
sem kom hingað til lands í fylgd
meö starfsmönnum stoðtækjafyrir-
tækisins Össurar. Þar höfðu þeir
verið í leiðangri á vegum fyrirtæk-
isins og rekist á þennan fimmtán
ára dreng sem hafði verið á leið til
vinar síns í mesta sakleysi, stigið á
jarðsprengju og í kjölfarið misst fót-
inn.
Framhaldið þekkja allir, Denis
kom hingað til lands og fékk nýjan
gervifót frá Össuri auk þess sem
honum var gefið nýtt hjól, enda
hafði hjólið hans eyðilagst í spreng-
ingunni auk þess sem hann hafði
haft miklar áhyggjur af því að sú
leikni væri honum glötuð. Það fór
ekki á milli mála að Denis stal
hjartanu úr starfsmönnum Össurar,
ef ekki þjóðinni allri, enda þama á
ferð einstaklega Ijúfur piltur sem
hefur þurft að ganga í gegnum mikl-
ar hörmungar.
Fyrsta utanlandsferðin
Blaðamanni DV gafst það ein-
stæða tækifæri að vera í fylgd með
þeim Eyþóri Bender og Rögnu Þor-
valdsdóttur frá Össuri þegar þau
lögðu land undir fót með Denis og
túlki hans, Ninu Mazar, sem er kró-
atískur félagsfræðingur og fylgdi
Denis hingað til lands.
Stefnan var tekin út úr bænum, í
hellirigningu að þjóðlegum sið,
fyrst að skoða hverasvæðið í kring-
um Geysi og síðan kom að aðal-
spenningnum, en það var gúmmí-
bátaferð niður Hvítá með Bátafólk-
inu.
Fyrst hittust allir á skrifstofu Ös-
surar og blaðamaður var kynntur
fyrir Denis. Hann var feiminn en
gekk síöan yfir að landakorti á vegg
og sýndi með látbragði hve langt
væri á milli íslands og Bosníu. Nina
sagði að þetta væri gífurlegt ævin-
týri fyrir hinn 15 ára gamla Denis,
hann hefði lítið ferðast um ævina og
aldrei farið til annarra landa. Að-
spurð hvernig foreldram hans hefði
þótt að senda son sinn alla leið til ís-
lands sagði hún það hafa verið auð-
sótt mál. Þau þekktu bæði til Össur-
ar og Ninu og báru til þeirra fullt
traust auk þess sem Nina vinnur
sem ráðgjafi fyrir Varnarmálaráðu-
neytið.
Denis vildi lítið tala um stríðið,
sagði þó að nú væri fremur rólegt í
Bosníu eftir erfiðleikatímabil. Nina
bætti við að þó nú ríkti friður væri
ástandið þar það ótryggt að það
væri aldrei að vita.
Góður fiskur
og sætar stelpur
Denis vildi miklu frekar tala um
sínar uppáhaldsíþróttagreinar, fót-
bolta og körfubolta, en stríðsrekst-
ur, enda stundaði hann hvort
tveggja af miklu kappi áður en hann
slasaðist. Það vildi svo skemmtilega
til að með í fór var 13 ára íslenskur
strákur, Friðrik Kristjánsson, sem
einnig er mikill íþróttaaðdáandi og
þrátt fyrir tungumálaerfiðleika
voru þeir fljótlega komnir saman í
hörkusamræður um boltann, með
hjálp Ninu túlks að sjáfsögðu.
Denis sagðist hafa mjög gaman af
að vera á íslandi, hér væri fallegt og
mikið af grasi og allir svo góðir við
sig. Auk þess var hann hrifinn af ís-
lenska fiskinum þrátt fyrir að vilja
yfirleitt ekkert með fisk hafa. En
allra bestar þóttu honum íslensku
stelpumar og kvaðst aldrei hafa séð
jafn sætar stelpur um ævina. Kvöld-
ið áður hafði hann snætt á veitinga-
húsi í Reykjavík og verið svo heiil-
aður af stúlkunni sem þjónaði til
borðs að hann gleymdi næstum að
borða. Hann sagðist vera viss um að
hann myndi koma hingað aftur -
þegar hann væri orðinn dálitið
eldri! Annars gafst Denis ekki timi
til alls þess sem hann gjaman hefði
viljað prófa, enda var dvöl hans hér
ekki löng. Hann sagðist gjaman
vilja vera lengur en viðurkenndi að
hann saknaði þó fjölskyldu sinnar
en auk foreldranna biðu hans tveir
bræður heima i Bosníu, annar eldri
og hinn yngri.
Er þetta í
alvöru svona heitt?
Nú var komið að hverasvæðinu
og stefnan tekin á Strokk. Denis var
stóreygur, enda aldrei séð neitt sem
kemst í líkingu við háhitasvæði
okkar íslendinga. Hann vildi vita
hvort þetta væri nú örugglega heitt,
stakk puttanum ofan í, en var fljót-
ur að kippa honum upp aftur!
Þegar Strokkur gaus var hann
heillaöur og grátbað um að ekki
yrði farið fyrr en hann hefði séð
annað gos. Að sjálfsögðu var það
auðsótt mál.
Næst var haldið að aðsetri Báta-
fólksins og kvaðst Denis ekkert vera
taugaóstyrkur, enda hlýtur drengur
frá stríðshrjáðu svæði að vera ýmsu
vanur. Samt var hann farinn að
skoppa um af hrifningu eftir að í
blautbúningana var komið. Aftur á
móti var Nina ekki alveg eins róleg
og fannst áin allrosaleg.
Enga fötlun að sjá
Það þarf að ganga töluverðan spöl
að ánni og er þar viða bratt. Því
spurði starfsmaður Bátafólksins
hvort ekki væri betra að Denis yrði
keyrður alla leið vegna gervifótar-
ins. En Denis hélt nú ekki og skopp-
aði þetta fremstur allra og var ekki
að sjá að þar væri fatlaður drengur
á ferð.
Þegar í flúðirnar var komið fór
ekki milli mála að núna fannst Den-
is gaman að lifa og fannst því meira
gaman eftir þvi sem hasarinn jókst.
Enn fremur lét hann sig ekki muna
um að taka þátt í róðrinum af miklu
kappi án þess svo mikið sem hika.
Þegar komið var nokkurn spöl nið-
ur ána tóku áhafnir bátanna
tveggja, sem í ferðinni voru, upp á
því að fara í vatnsslag og beittu til
þess öllum vopnum. Og enn sem
fyrr stóð Denis sig eins og sú hetja
sem hann er.
Aftur heim til Bosníu
Þegar landi var náð á ný voru all-
ir þreyttir en býsna kátir, líka Nina
sem skemmti sér konunglega. Nú
var farið heim í hús þar sem Denis
var formlega færður bolur merktur
Bátafólkinu auk þess sem allir úð-
uðu í sig íslenskum pönnukökum og
öðm góðgæti áður en haldið var
heim á leið.
Blaðamaður var nú orðinn býsna
lúinn eftir ferðina og dottaði í bíln-
um á heimleið en Denis var jafn
sprækur sem fyrr. Nú ætlaði hann
að fá sér hamborgara, fara síðan í
lokamátun á nýja fætinum og svo
heim að pakka. Heimsóknin var á
enda í þetta sinn, enda áttu þau
Nina flug heim eldsnemma næsta
morgun. Denis var kvaddur að sinni
en við vitum að hann heimsækir
okkur aftur.
Þangað til hugsum við til hans og
allra annarra barna og unglinga
sem eiga um sárt að binda sökum
stríðsrekstrar, hvar sem er i heim-
inum. -ggá
Denis fannst Strokkur allrosalegur og vildi sjá meira. Á myndinni er einnig aö finna túlkinn og félagsfræöinginn Ninu.
DV-mynd ggá