Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1996, Page 18
18
LAMMRBBfiCHKffl. JBJAÍ 1996
Ég vaknaði ásamt eldri Abraka-
daba systurinni, Evu Maríu, á
Ásvallagötunni. Yngri systirin,
Ragna Sara, var komin á fætur og
lögst yfir Cheerios og Moggann.
Hana hafði dreymt alla nóttina að
Sigurjón Kjartansson væri að
syngja Kattadúettinn, en þá var
það Ormar köttur mjálmandi fyrir
utan gluggann hjá henni.
Við höfðum mælt okkur mót við
Systu sminku úti í Loftkastala
klukkan tíu. Hún var hvergi sjáan-
leg og nú byrjaði ruglið. Húsið
læst og ég ekki með lykil. Við
keyrðum heim til mín á Smiðju-
stíginn að ná í lykilinn. Þá mundi
ég að ég hafði gleymt jakkanum
mínum í Loftkastalanum daginn
áður, meö lyklinum. Oooh, við
neyðumst til að ræsa Palla sem var
að vinna fram eftir öllu við að
skipta út leikmyndum. Síðan kom
í ljós að Systa kom klukkutíma
fyrr, einhver misskilningur þar -
og beið í þrjú korter fyrir utcm.
Dularfullt leynidýr
Hljómsveitin mætti mishress,
Óskar Jónasson, Skari skrípó, eyddi megninu af deginum á æfingu en fór svo á krá og drakk bjór og datt svo
inn í grillveislu. DV-mynd ÞÖK
Lognaðist
aftur út af
Viö tókum eftir miðaldra manni
fyrir utan gluggann sem var að
reyna að reisa við trjáplöntu í
potti. „Ætli þetta sé garðyrkjumað-
ur hússins?" spurði Eva, „Held-
urðu að þeir séu með sérstakan
garðyrkjumann til að sjá um þenn-
an eina pott?“ svaraði ég.
„Kannski sér hann um pottinn og
fær bjór í staðinn,“ stakk hún upp
á. „Nei, þetta er sennilega eigandi
hússins," vildi ég meina. Maður-
inn kom inn og settist við borð ná-
lægt okkur. Trjáplantan seig aftur
niður. Eva sneri sér að manninum
og sagði honum frá þvi. „Já, hún
stendur illa uppi,“ svaraði hann.
„Ég er búinn að segja dyraverðin-
um frá því.“ - „Hva, vinnurðu ekki
héma?“ spurði Eva. „Nei, nei, mér
sárnaði bara að sjá tréð út á hlið.“
Ég gaf þeim tóm til að ræða þetta
og náði í meiri Guinness. Þegar ég
kom til baka voru þau bæði komin
út að binda tréð við prik og dyra-
vörðurinn vökvaði.
Dagur í lífi Óskars Jónassonar, Skara skrípó:
Drukkinn Guinness og
Ragnar hafði verið í frumsýning-
arpartíi hjá Stone Free. Samt hófst
æfingin á umsömdum tíma, við
reyndum að hreinsa upp tækni-
vandamálin og samstilla tónlist og
töfrabrögð. Boð bárust ofan úr
Mosfellsdal að hestakerran væri
ekki til taks, þannig að dularfulla
leynidýrið okkar gat ekki mætt á
æfinguna . . . Atriðin reyndust
vera mislangt komin. Við einbeitt-
um okkur að atriði sem við vomm
hálfpartinn að semja jafnóðum.
Um kvöldmatarleytið tók ég eftir
því að hljómsveitin var orðin úr-
vinda. Þeir sátu á tvist og bast um
salinn með lúðra og trompet, blás-
andi af veikum mætti eins og
sprungnar blöðrur. Þetta var vond
meðferð á ungum tónsnillingum,
þannig að við slúttuðum.
Löturhægt eftir
Vesturgötunni
Við Eva ókum löturhægt eftir
Vestugötunni og ræddum hvemig
við gætum nýtt kvöldið til að hvíla
okkur. „Fáum okkur bjór,“, sagði
Eva. „Bjór?“ svaraði ég. „Ég er
svangur, skítugur og dauðþreytt-
ur. Ég vil komast í bað.“ „Einn
bjór, til að slappa af. Svo tökum
við video og fórum heim í róleg-
heit.“ Ég beygði inn í Hafnarstræt-
ið. „Ókei,“ sagði ég, „en það verð-
ur þá að vera Guinness." Það var
samþykkt og bílinn stöðvaður fyr-
ir framan Dubliner. í þvi sem við
vorum að stíga út hringdi gamli
farið í grillpartí
góði farsíminn. Kjartan Kjartans-
son hljóðmaður að bjóða okkur í
grillveislu. Ég gaf honum í skyn að
við værum örþreytt, en við skyld-
um hafa þetta á milli eymanna.
Ah, Guinness og gott gluggasæti
við Hafnarstrætið. Þetta var góð
hugmynd eftir allt. Brúmm . . .!
Strætó óð fram hjá með Skara
skrípó auglýsingu. Jiii, þetta kom
óvænt, við vorum ekki búin að sjá
þetta áður. Eva skaust eftir kvöld-
mat til hátíðabrigða - poka af salt-
hnetum.
Við vorum orðin stálslegin eftir
tvo Guinness á kjaft. Við ákváðum
að skilja bílinn eftir og kýla á grill-
veislu hjá Kjartani. Ég tók eftir því
út undan mér þegar við yfirgáfum
Dubliner að trjáhríslan var aftur
að lognast út af. Kannski það hefði
átt að vökva hana með Guinness?
Nafn:
Heimili:
Vinningshafar fyrir þrjú hundruð fimmtugustu og
sjöundu getraun reyndust vera:
1. Pálmi Ingólfsson
Móabarð 32B
200 220 Hafharfirði
2. Nína Sveinsdóttir
Bólstaðarhlíð 42
105 Reykjavík
Myndimar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð kem-
ur í Ijós að á myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt. Finnir þú
þgssi fimm atriði skaltu merkja við
þau með krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt nafni þínu
og heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
SHARP vasadiskó með útvarpi, að
verðmæti kr. 7.100, frá Bræðrunum
Ormsson, Lágmúla 8, Reykjavík.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur, að verðmæti kr.
1.790. Annars vegar James Bond-bókin
GuUauga eða Goldeneye eftir John
Gardner og hins vegar bók Luzanne
North, Fín og rík og liðin lík.
Vinningamir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 368
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík