Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1996, Qupperneq 19
LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 1996
19
Elín Huld Árnadóttir söngkona ætlar aö freista gæfunnar í London í haust en hún ætlar að hefja söngnám í Trinity
College.
KENWOOD
kraftur, gœði, ending
Varnarliðið
Laus störf slökkviliðsmanna
Vegna fjölgunar óskar Varnarliðið að ráða í ellefu
stöður slökkviliðsmanna á Keflavíkurflugvelli.
Kröfur:
Umsækjendur skulu vera á aldrinum 20-28 ára, reglusamir,
háttvísir og hafa gott andlegt og líkamlegt heilbrigði auk
góðra líkamsburða.
Krafist er meiraprófsökuréttinda og einnig iðnmenntunar
sem nýst gæti í starfi slökkviliðsmanna eða sambærilegrar
menntunar og reynslu.
Mjög góð kunnátta í ensku, bæði munnlegri og skriflegri,
er nauðsynleg og undirgangast umsækjendur próf í henni
áður en kemur til vals.
Að öðru leyti vísast í reglugerð nr. 195 frá 14. apríl 1994
um menntun, réttindi og skyldur slökkviliðsmanna.
Skriflegar umsóknir berist til Varnarmálaskrifstofu
utanríkisráðuneytisins, ráðningardeild, Brekkustíg 39,
260 Reykjanesbær eigi síðar en 30. júlí 1996.
Lauk kennaraprófi úr Söngskólanum og Kennaraháskólanum á sama tíma:
Mig dreymir um að
starfa sem söngvari
r
- segir Elín Huld Arnadóttir söngkona
„Draumurinn er fyrst og fremst
að fá að starfa sem söngvari í hvaða
formi sem það er. Ég vil verða at-
vinnusöngvari og geta nýtt mér það
nám sem ég hef stundað hingaðtil,“
segir Elín Huld Árnadóttir, 31 árs,
sem lauk í vor söngkennaraprófi frá
Söngskólanum í Reykjavík. Á sama
tíma lauk hún kennaraprófi frá
Kennaraháskóla íslands með tón-
mennt sem sérgrein. Hún hefur ver-
ið í tvöfóldu námi undanfarin þrjú
ár.
„Mér skilst að ég hafl tilkynnt að
ég ætlaði að verða söngkona þegar
ég var fjögurra eða fimm ára. Söng-
urinn hefur alla tíð verið mitt
stærsta áhugamál. Ég keypti mér
gítar, pikkaði út gripin og söng.
Einnig söng ég með kórum þegar ég
var yngri,“ segir Elín Huld sem hef-
ur stundað nám í Söngskólanum í
Reykjavík undanfarin tíu ár.
I framhaldsnám til
London
Elín Huld fór í kennaradeild
Söngskólans síðustu þrjú árin. Á
þessum tíma hefur hún haldið tón-
leika, sungið i óperu og annað þvi
um líkt.
„Það er vægast sagt búið að vera
mjög mikið að gera síðustu þrjú
árin. Mér gekk mjög vel á öllum
prófunum og er mjög ánægð með út-
komuna,“ segir Elín Huld.
Um þessar mundir er hún að und-
irbúa flutning af landi brott. Hún
hefur innritað sig í söngnám i haust
í Trinity College í London þar sem
hún mun stunda söngnám næstu
tvö árin. Elín Huld starfar um þess-
ar mundir hjá BM Vallá, syngur í
brúðkaupum og undirbýr flutning-
inn til London ásamt söngæfingum.
Þrjár prímadonnur búa
saman
„Við ætlum að leigja saman þrjár
prímadonnur, allar söngkonur. Hin-
ar eru Guðrún Jóhanna Jónsdóttir
og Erla Þórólfsdóttir. Guðrún hefur
verið í söngnámi undanfarin tvö
ár,“ segir Elín Huld.
Eftir þessi tvö ár ætlar Elín að sjá
til hvað tíminn leiðir í ljós. Hún er
komin með starfsréttindi en það var
megintilgangurinn með því að taka
' Kennaraháskólann með söngnám-
inu. Hún hefur einnig áhuga á
kennarastarfmu.
„Mér þótti réttara að tryggja mér
starfsgrundvöll áður en ég færi utan
til þess að freista gæfunnar. Nú ætla
ég að prófa og sjá hvað ég kemst
langt með sönginn. Ég get alltaf
komið heim og kennt I grunnskól-
anum sem almennur kennari eða
sem tónmenntakennari. Það er mik-
ill skortur á tónmenntakennurum í
grunnskólunum. Ég get líka farið út
í söngkennsluna eða haft hana með.
Söngheimurinn er mjög harður og
samkeppnin er mikiL Ég er ung,
ólofuð og barnlaus og á meðan ég er
ein með sjálfri mér er um að gera að
freista gæfunnar," segir Elín Huld.
Mikill erill
Elín Huld stundaði nám í Versló í
tvö ár og fór þaðan til Bandaríkj-
anna sem skiptinemi. Eftir það fór
hún í MH en náði ekki að klára
stúdentspróf áður en hún var tekin
inn í Kennaraháskólann. Þess á
milli hefur hún unnið með söng-
náminu á ýmsum stöðum.
„Söngurinn tekur mest af mínum
tíma og er ansi stórt áhugamál en
ég hafði mjög gaman af myndlist og
leiklist hérna áður fyrr. Bókmennt-
ir eru einnig ofarlega á lista hjá
mér, aðallega klassískar bókmennt-
ir. Ég hef samt ekki haft mjög mik-
inn tíma undanfarið fyrir neitt ann-
að en skólabækumar. Fyrsta árið
var mjög mikið að gera í Kennara-
háskólanum. Um vorið tók ég burt-
fararpróf í söng. Ári seinna þurfti
ég að halda tónleika og þeir þörfh-
uðust talsverðs undirbúnings. Á
sama tíma söng ég í Valdi örlag-
anna. Það var mjög viðburðaríkt ár.
Lokaspretturinn í vor var einnig
ansi erfiður. Það er samt mjög
skemmtilegt að hafa svona mikið að
gera,“ segir þessi bjartsýna söng-
kona sem kannski á eftir að leggja
heiminn að fótum sér. -em
Bókaðu strax
Tryggðu þér ótrúlegt kynningartilboð til Parísar
7. og 14. ágúst. Við kynnum nú sértilboð á hreint
ótrúlegu verði á Appolinaire hótelinu í hjarta
Parísar þar sem þú getur dvalið við góðan aðbún-
að í vikutíma. Gott 3ja stjömu hótel, öll herbergi
með baðherbergi, sjónvarpi og síma. Morgunverður
innifalinn. Það jafnast engin borg á við París að
sumri til, rómantískustu borg heimsins....
Verð kr.
29.900 Veríkr 23.900
°g
Flugsæti 7. og 14. ágúst.
33.900
Verð kr.
M.v. 2 í herbergi, flug og
gisting, 7. og 14. ágúst.
enn
21.072
Verð kr.
Flugsæti m.v. hjón með 2 böm
31. júlí, 7. og 14. ágúst.
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17,2. hæð, sími 562 4600