Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1996, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1996, Qupperneq 20
LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ1996 20 . íslenskur Kiwanisforseti á heimsferðalagi: - segir Eyjólfur Sigurðsson heimsforseti „Heimurinn er okkar þjónustu- vettvangur og ég hef verið á stöðugu ferðalagi undanfarið ár. Það verður til þess að maður sér heiminn í allt öðru ljósi,“ segir Eyjólfur Sigurðs- son, heimsforseti Kiwanishreyfing- arinnar, þegar DV hitti hann að máli á milli ferða. Frá því Eyjólfur Sigurðsson var kjörinn heimsforseti Kiwanishreyf- ingarinnar hefur hann hitt fjölda frægra manna og kvenna ásamt eig- inkonu sinni, Sjöfn Ólafsdóttur. Kiwanishreyfingin hefur starfað í Evrópu frá 1963. Eyjólfur hefur starfað með hreyfmgunni í 32 ár. lann var sjö ár i Evrópustjórn og /ar EvrópuJForseti 1982-1983. Hann var fyrsti Evrópumaðurinn sem var kosinn heimsforseti. „Ég heimsæki 34 lönd á þessu ári. Forseti Kiwanis er leiðtogi hreyfing- arinnar, fer um heiminn og hvetur félaga til frekari dáða,“ segir Eyjólf- ur. Frægt fólk á heimsþingi Fyrir stuttu var haldið heimsþing í Salt Lake City í Bandaríkjunum. Á þinginu voru 12.000 manns frá 83 löndum. í Kiwanishreyfingunni eru 330.000 félagar auk ungliðasamtaka sem hafa 270.000 félaga. í Kiwains- fjölskyldunni eru tæpir 600.000 fé- lagar sem Eyjólfur stýrir sem for- seti. Á þingið komu leikarinn Roger Moore, Bill Cosby, Robert Kennedy yngri, Mary Lou Rhetton svo ein- hveijir séu nefndir. Moore er full- trúi Barnahjálpar Sameinuðu þjóð- anna og hann var heiðraður á þing- inu. „Róbert Kennedy yngri var aðal- ræðumaðurinn á þinginu en hann er lögfræðingur og hefur tileinkað sér náttúruvernd. Hann berst með oddi og egg til þess að vemda náttúruna og hefur variö gífurleg- um tíma í að vernda Hudsonfljótið. Kennedy flutti erindi á þinginu en ég hef aldrei séð mann vekja jafn mikla athygli og hann gerði. Kenn- edy er fljúgandi mælskur og mjög skemmtilegur," segir Eyjólfur. Bill Cosby er snillingur „Bill Cosby var einn af skemmti- Eyjólfur Sigurösson og stórleikarinn Roger Moore hittast á heimsþingi Kiwanis en Moore er fulltrúi Barnahjálpar Sameinuöu þjóöanna í sameiginlegu verkefni Barnahjálpar og Kiwanis. ópu og Asíu. Nú er vinnan markvissari og það er hungur i svona starf í Austur- Evrópu. Barist við joðskort kröftunum hjá okkur. Honum tókst að halda athygli hjá öllum þessum fjölda með því að sitja í stól og ræða mál fjölskyldunnar. Það gerði hann af mikilli snilld. Við spjölluðum að- allega saman um Kiwanishreyfmg- una þegar við hittumst því hann hefur áhuga á þjónustustörfum. Hann hefur sjálfur stutt slíka starf- semi. Á þinginu skrifaði hann nafn- iö sitt á tvo boli og tvær derhúfur sem boðin voru upp á 4.000 dollara stykkið og runnu peningamir til líknarmála," segir Eyjólfur. Lee forseti heimsóttur Eyjólfur á myndir frá því hann var á Filippseyjum og átti viðtal við Ramos, forseta Filippseyja. Einnig á hann myndir frá viðtali við Lee, forseta Taívan, HUlary Clinton og fleiri. „Ég var í heimsókn hjá Lee for- seta viku fyrir fyrri kosningamar þegar kosið var til þings. Það var af- skaplega athyglisvert að tala við hann, sérstaklega um stöðu Kiwan- ishreyfingarinnar. Mér finnst hann mjög frjálslyndur maður en þó ör- uggur. Hann er afskaplega óánægð- ur með stöðu Taívans í samfélagi þjóðanna," segir Eyjólfur. Þetta hefur verið mjög gott ár að sögn Eyjólfs og fjölgað hefúr í Kiw- anishreyfingunni. Starfið hefur ver- ið endurskipulagt í nýjum aðildar- löndum, sérstaklega í Austur-Evr- Kiwanishreyfingin vinnur um þessar mundir að því í samvinnu við Barnahjálp Sameinuðu þjóð- anna um að eyða joðskorti i heimin- um. Stefnt er aö því að safna 75 milljónum dollara sem er komið vel á veg. Eyjólfur dvaldi sjálfur í viku uppi í Himalayafjöllum hjá starfs- mönnum Bamahjálpar og kynntist þar fjölskyldum sem þjást af joðskorti. Einn og hálfur milljarður manna þjáist af joðskorti sem leiðir til marvislegra vandamála, meöal annars þess að mæður fæða andvana eða heilaskert böm, auk þess sem miljónir bama fæð- ast van- gefin vegna joðskorts. Eyjólfur hitti Ramos, forseta Filipps- eyja, og segir hann mjög skemmtilegan mann. Það er ljóst að undir hans stjóm em að gerast mjög jákvæðir hlutir á Filippseyj- um. Ferðimar halda áfram á meðan Eyjólfur er forseti en því timabili lýkur í október því hver forseti sit- ur aðeins eitt ár. -em Robert Kennedy yngri fangaöi áhorfendur á Kiwanis- Bill Cosby grínast viö dætur Eyjólfs, Guörúnu og Erlu. þinginu í Salt Lake City. Diddú skemmti gestum á Kiwanisþinginu en hér fagnar hún ásamt íslensk- um gestum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.