Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1996, Page 21
4-
LAUGARDAGUR 20. JULI 1996
/reff/r
Hið sterka fíkniefni amfetamín búið að ná gríðarlegri fótfestu hár á landi:
Fíkniefnastefnu
skortir á Islandi
- Ijóst að löggæsla og tollur í núverandi mynd ná alls ekki að sporna við fíkniefnaukningu
Sjö prósent líkur eru á að Islend-
ingur þurfi að fara í meðferð hjá
SÁÁ áður en hann verður 25 ára.
„Það er aðallega amfetaminið sem
hrekur menn í meðferð svo snemma
sem raun ber vitni,“ segir Þórarinn
Tyrfingsson yfirlæknir sem fullyrð-
ir að „bærinn virðist hafa flotið í
amfetamíni" í vetur vegna mikils
framboðs og bendir jafnframt á þró-
un síðustu ára.
Lögreglumenn, sem DV hefur
rætt við, taka að miklu leyti undir
fullyrðingu Þórarins - framboð af
amfetamíni á íslandi hafi verið í
stöðugri aukningu frá árinu 1990:
„Þó að hassskortur geri vart við
sig virðist gatan samt alltaf geta náð
sér í amfetamín. Þetta er verulegt
áhyggjuefni," sagði einn þeirra.
Þessar staðreyndir leiða hugann
óneitanlega að því hvort fíkniefna-
innflytjendum og sölum sé ekki gert
nægilega erfitt fyrir. Er löggæslu-
og forvarnarstarfi í fíkniefnamálum
nægilega vel sinnt?
Lögregla og tollur
standa sig ekki of vel
Lögreglumaður sem ekki vill láta
nafns síns getið segir að „það sé vel
hægt að fullyrða að lögregla og tolla-
yfirvöld standi sig ekkert allt of vel
í flkniefnamálum". Það geti stafað
af skorti á aðhaldi eða almennu
getuleysi. Fíkniefnalögregla hér á
landi sé t.a.m. um einum áratug á
eftir starfsfélögum sínum í ná-
grannalöndunum hvað varði t.d.
tækjabúnað og fleira mætti nefna.
Hvað sem því líður er a.m.k. alveg
ljóst að á síðustu árum hefur fikni-
efni hvergi skort til að gera fólk að
stofhanamat.
Umfang SÁÁ eykst ár frá ári með
stöðugri fjölgun fíkniefnasjúklinga.
Þórarinn Tyrfingsson segir ástandið
aldrei hafa verið verra en nú í ár:
„Þetta kallar vissulega á meiri
peninga og mannskap. Við erum nú
með fleiri erfiðari sjúklingar að því
leyti að þeir eru órólegri, þunglynd-
ari og liður verr - þeir eru líka
meira að hlaupa út. Þessir sjúkling-
ar eru veikari, með sterkari fikn en
aðrir,“ sagði Þórarinn.
Lifrarbólga C, sem erfitt er að
losna við, og Þórarinn telur „stór-
kostlegt heilbrigðisvandamál“, er
fylgifiskur hins vaxandi hóps
sprautufíkla.
Neyðarópið kemur frá endastöð-
inni
Framangreindar staðreyndir
þýða að neyðaróp sé komið frá heil-
brigðiskerfinu - endastöðinni á leið
eiturlyfsins. Fikniefnið hefur þvi
fengið að fara alla sína leið og náð
að eyðileggja fólk og fjölskyldur -
þjóðfélagsmynstrið. Það verður
gjarnan þannig, eins og margir
þekkja, sem fyrst er farið að bregð-
ast við vandanum.
Eins og fram kom í DV í vikunni
hefur nákvæm rannsókn leitt í ljós
að sprautufíklum hefur fjölgað mjög
í meðferð hjá SÁÁ. Nú er svo kom-
ið að nær einn af hverjum fimm
skjólstæðingum stofnunarinnar hef-
ur sprautað sig í æð. Samkvæmt
ársskýrslu samtakanna veldur fjölg-
un amfetamín- og sprautufíkla mest-
um áhyggjum en einnig hefur verið
leitt í ljós að stómeytendum kanna-
bisefna hefur einnig fölgað í nær
Fréttaljós
á laugardegi
Óttar Sveinsson
öllum aldurshópum - þó sýnu mest
hjá þeim sem eru 19 ára og yngri.
Hvert stefnir íslenskt þjóðfélag?
Karl Steinar Valssonar, afbrota-
fræðingur hjá lögreglunni í Reykja-
vík, benti á í vikunni að atvinnu- og
menntamál skipti gríðarlega miklu
máli þegar mið er tekið af fjölgun
innbrota og ofbeldisglæpa að undan-
fómu.
„Við merkjum mikla aukningu í
amfetamínneyslu og fangar segja
mér að þeir keyri sig áfram á amfet-
amíni á meðan þeir séu úti. Það er
orðið miklu meira af harðari efnum
og við sjáum sífellt meira af LSD á
markaðnum," sagði Karl Steinar.
Þetta leiðir hugann að því hvort
fikniefna- og afbrotapólitík, og raun-
ar einnig atvinnu- og menntapólitík,
sé nægilega samhæfð hjá íslensum
stjórnvöldum. Hafa íslensk stjórn-
völd markað stefnu í þessum mál-
um? Hefur t.d. einhver markað
heildarstefnu í fikniefnapólitík á ís-
landi sem farið er eftir. Hefur ein-
hverjum ákveðnum aðila verið falin
ábyrgð sem felst í að skipuleggja og
hafa erfirlit með þessum málum?
Um þetta sagði háttsettur lög-
reglumaður í samtali við DV: „Það
er engin fikniefnapólitík til á ís-
landi - hana skortir algjörlega.“
Hvernig virkar amfetamín?
En hvað er amfetamín? Hvert er
mynstur þess sem neytir þess og fer
síðan á Vog?
Efnið, sem fyrst og fremst er ör-
vandi fyrir miðtaugakerfið, var
fundið upp fyrir síðustu aldamót og
upp úr 1920 var það t.d. notað við
kvefi. Um áratug síðar var það not-
að gagnvart við ýmsum fleiri kvill-
um og var efnið komið á fullan
skrið í seinni heimsstyrjöldinni.
Amfetamín slær á svengd og
svefnþörf manna. Það var því grá-
upplagt til að gefa þeim sem mikið
þurfti að nást út úr - verkamönnum
í hergagnaiðnaði og hermönnum
var gefið efnið. Menn gerðu sér líka
ljóst að skotgrafahermanni var
hægt að halda í eins konar brjál-
æðiskasti vikum saman með því að
halda amfetamíni að honum.
Á næstu áratugum fór efnið út á
ólöglegan markað og hefur verið
það síðan. Það hefur m.a. verið not-
að sem grenningarmeðal, langferða-
bílstjórar hafa tekið það, íþrótta-
menn, skólafólk, námsmenn að ekki
sé talaö um hina almennu fikla.
Fyrst fór að bera á misnotkun am-
fetamíns hér á landi upp úr 1980 en
síðan hefur henni vaxið fiskur um
hrygg.
Þeir sem keyra sig áfram á „spít-
ti“ fá gjarnan dökka bauga undir
augu vegna svefnleysis og fyllast
mikilli ofsóknarkennd. Þeim finnst
allir vera á eftir sér, fara að verja
sig og af því leiðir gjarnan ofbeldi.
Amfetamínneytendur eru fljótir til
ofbeldist gagnvart hver öðrum, gegn
lögreglu og heimilisfólki sínu. Þung-
lyndi og geðveiki skapast af lang-
tíma amfetamínnotkun. Persónu-
leiki breytist.
Þórarinn yfirlæknir nefnir dæmi-
gerða sögu af 18 ára pilti sem kom á
Vog:
„Hann drakk um helgar eins og
gengur og gerist og það var farið að
aukast hjá honum. Um sumarið
kynntist hann afmetamini og byi-j-
aði á því og prófaði líka E-pilluna.
Hann ætlaði í skóla um haustið en
entist bara í viku. Hann vann ekk-
ert og var farinn aö sprauta sig með
amfetamíni. Hann var orðinn mjög
illa staddur. Seint í nóvember var
ekkert annað að gera fyrir hann en
aö fara á Vog.“ Kjarni málsins er
þvi þessi: Viðurkenna æðstu stjóm-
völd vandann og hafa þau ákveðið
að bregðast við með ákveðnum að-
gerðum? - Ekki hver í sinu horni
heldur saman. Fulltrúar dómsmála-
og löggæslu-, heilbrigðis- og fjár-
mála hljóta að þurfa að marka skýr-
ari stefnu í fikniefnamálum. Setja
sér markmið og ákveða á hverju á
að taka á, hvernig, á hvaða tíma og
hverjir munu annast hlutverkin.
16 '
14
12
10
8
6
4
2
0
j ^yy\ \ í j i
L 1 /7
v 1.:: 1
}_ _}_ 1 * » » «r
’84 ‘85 '86 '87 '88 '89 '90 '91 '92 '93 '94 '95
pv