Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1996, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1996, Qupperneq 27
LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 1996 Snafs og heilsuvörur úr íslenskum fjallagrösum w r „Mér finnst aö íslendingar ættu að gera meira að því að auka verð- mæti hérlendis heldur en að flytja út óunnar vörur. Við stefnum að því að flytja meira út af heilsuvörunum okkar í framtiðinni og erum byrjuð að flytja örlítið til Noregs, Kanada, Þýskalands og Englands," segir Helen Brown, framkvæmdastjóri hjá íslenskum fjallagrösum hf. Sam- starfsmenn hennar eru Anna Rósa Róbertsdóttir grasalæknir og Guð- mundur Örn Arnarson matvæla- fræðinemi. Fyrirtækið íslensk fjallagrös hf. var stofnað árið 1993 með það mark- mið að þróa og framleiða vörur unn- ar úr íslenskum jurtum. íslensk fjal- lagrös hf. framleiða nokkrar tegund- ir af heilsuvörum úr íslenskum fjal- lagrösum ásamt alíslenskum snafsi í afar fallegri flösku sem einungis er seldur í fríhöfhinni og íslenskum markaði á Keflavíkurflugvelli. Ekki er hagkvæmt að selja snafsinn í Ríkinu þar sem 100 ml flaska myndi kosta í kringum 700 krónur með tollum og sköttum. Helen var fyrsti starfsmaður fyr- irtækisins en hún hóf störf þar árið 1994. Hún er með BS-gráðu í lífefna- fræði og MBA í viðskiptafræði sem hún segir fara afar vel saman í þessu starfi sem hún er í núna. Helen er ættuð frá Liverpool en hún kom hingað til lands fyrir tíu árum ásamt íslenskum eiginmanni sínum, Jóni Magnússyni, viðskipta- fræðingi í fjármálaráðuneytinu. Þau eiga drengina Stefán Daníel, átta ára, og Davíð Þór, fjögurra ára. Helen hefur ekki viljað gerast ís- lenskur ríkisborgari þrátt fyrir að hún hafi búið hér á landi svona lengi. Henni flnnst það ekki skipta sig öilu máli en hún upplifir sig alltaf sem útlending á íslandi og flnnst taka langan tíma að kynnast íslendingum. Henni þykir menning- in ólík. Fleiri jurtir prófaðar „Ég hef mikla trú á fjallagrösum sem heilsuvöru. Mér finnst þetta Fjallagrasahylkin eru búin til úr muldum þurrkuöum fjallagrösum. mjög spennandi verkefni en ég gat reyndar ekki imyndað mér fyrir nokkrum árum að ég myndi vinna að þessu. Við höldum áfram að þróa önnur krem og fleiri tegundir af heilsusælgæti. Stefnan er að þróa vörur úr öðrum jurtum og byrjað verður á lúpínu. Við viljum helst nota jurtir sem við getum ræktað sjálf. Bændumir tína fyrir okkur grösin þannig að þeir geta gætt þess að ekki sé gengið nærri landi þeirra," segir Helen. - segir Helen Brown framkvæmdastjóri Helen Brown meö 100 ml flösku af alíslenskum snafsi sem unninn er úr íslenskum fjallagrösum. Holl og næringargóð Fjallagrös hafa verið notuð til matargerðar og lækninga um aldir á íslandi. Allt fram til siðustu alda- móta var farið í sérstakar grasaferð- ir. Þau voru notuð í fjallagrasa- mjólk, flallagrasagraut, í brauð og kandíssykur. Sem lækningajurt hafa grösin veriö nýtt gegn öndunarfærasjúk- dómum, s.s. astma, og berklum og meltingartruflunum. Auk þess voru þau notuð útvortis gegn exemi og þurri húð. Grösin eru auðug af steinefnum, sérstaklega járrii og kalsíum, og einnig trefjaefnum og álitin sérstaklega holl og næringar- rík. „Það er hefð fyrir þvi að fjalla- grös séu notuð til lækninga í Þýska- landi og þau hafa verið skráð þar sem heilsulyf og notuð í lyf. Flutt hafa verið út óunnin fjallagrös til Þýskalands frá árinu 1990,“ segir Helen. Hefð fyrir húðbökstrum úr fjallagrösum íslensk tjallagrös hf. framleiða fjallagrasahylki sem innihalda mul- in fjallagrös sem tínd eru í óbyggð- um íslands. í grösunum eru sérstak- ar fléttusýrur og mikið af trefjaefn- um og steinefnum, sérstaklega jámi. Hylkin eru þannig holl fæðu- Heilsuvörurnar sem unnar eru úr ís- lenskum fjallagrösum. DV-myndir GVA bót og viðtökur markaðarins mjög góðar. Hylkin hafa áhrif á melting- una, bjúg, astma, liðagigt, hár og neglur, auk þess að hafa góð áhrif á sumar tegundir exems. Einnig er framleiddur íjallagrasaáburður sem er græðandi og mýkir þurra húð. Aldagömul hefð er fyrir notkun fjal- lagrasa í húðbakstra. Fjallagrasasnafsinn er 38% að alkóhólstyrkleika og mjög sérstakur á bragðið. Hann er bragðmikill fyr- ir þá sem ekki eru vanir að drekka snafsa en eftirbragðið er ágætt. Soprano hálstöflurnar eru sykur- lausar og innihalda fjallagrasaseyði en í því eru náttúruleg efni sem mýkja hálsinn og eru sögð góð fyrir þá sem reyna mikið á radböndin. Auk þess er hægt að fá mulin fjalla- grös til þess að nota út í te, fjalla- grasamjólk og fleira. Geislavirk fjallagrös í Evrópu „Hugmyndin að stofnun fyrirtæk- isins á rætur sínar að rekja tU þess að kjarnorkuslysið í Tsjernobyl árið 1986 hafði þau áhrif að fjallagrös á meginlandi Evrópu og á Norður- Þú f ærð allar upplýsingar ilm stödu pína í leiknum og stöðu efstu liðanna í sínta 904 Í 0 I S Verfl 39,90 mínútan. löndunum urðu geislavirk og reynd- ust óhæf tU manneldis. Víöa í heim- inum voru fjallagrös tekin út af markaðnum vegna geislavirkni," segir Helen. „Mér finnst mjög spennandi að þróa þessar vörur og við höfum fengið mjög jákvæð viðbrögð við þeim flestum. Vinkona mömmu prófaði mulin fjaUagrös út í te en hún hafði lengi þjáðst af endalausu kvefi. Henni batnaði mjög fljótt eft- ir að hún fór að drekka fjaUagrasa- teið og hefur pantað sér það reglu- lega. Við fáum reglulega reynslusög- ur frá þeim sem hafa prófað vörurn- ar okkar,“ segir Helen. „FjaUagrasahylkin hafa mjög góð áhrif á meltinguna og astma. Fjalla- grasaáburðinn nota ég sem nætur- krem og hefur hann mjög mýkjandi áhrif á húðina," segir Þórdis Valdi- marsdóttir sem prófað hefur fjaUa- grasavörurnar. Konu á sextugsaldri þykja fjalla- grasahylkin stórkostleg og þóttu þau örva afla líkamsstarfsemi. Hún fékk krabbamein fyrir átta árum og hafa hylkin gjörbreytt líðan hennar. Hún segir hylkin hafa góð áhrif á astma, bjúg og brjóstsviða sem hún hefur þjáðst af. Hreint land, hreinar jurtir íslenskar jurtir eru vinsælar vegna hreinleika landsins og ætti það að auðvelda íslenskum fjal- lagrösum hf. að vinna aukna mark- aðshlutdeild fyrir afurðir sínar. Markaðssetning hófst í júní í fyrra en fyrirtækið er stofnað á grunni rannsóknar- og þróunarverkefnis. Vörumar eru seldar í apótekum, heUsuvöruverslunum og nokkrum stórmörkuðum. FjaUagrasaafurð- imar eru allar tU sýnis í Laugadals- höllinni þar sem sýningin íðir stendur yflr. -em plQsU-kote Lakk fyrir tau Fæst í öllum helstu kaupfélögum og byggingavöruverslunum um land allt. um iana Sími 562 2262

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.