Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1996, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1996, Page 29
DV LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 1996 37 almennilega undir að flytja á svona ólíkt menningarsvæði, ýmislegt læri maður bara á því að koma til landsins. Ein fyrsta reynsla Hrafn- hildar af Sádi-Arabíu var þegar hún var rekin út úr myndbandaverslun en þar er konum jafnan meinaður aðgangur „Við komum inn í verslunina og ætluðum að kaupa myndbönd. Af- greiðslumennimir urðu mjög vand- ræðalegir á svipinn, beindu orðum sínum að Heine, ekki mér, og sögðu að konur mættu ekki vera þama inni. Ég varð mjög reið en það þýddi ekkert að láta það í Ijós því af- greiðslumennimir vinna bara þama en setja ekki reglumar. Ég var ný- komin þegar þetta gerðist og það var kannski þá fyrst sem ég áttaði mig raunverulega á því hvar ég var. Það var mjög skrýtin tilfinning að vera rekin svona út. Þetta virkaði á mig eins og það hefur kannski ver- ið fyrir svertingja í Suður-Afríku þegar aðskilnaðarstefnan var við lýði. Einhverra hluta vegna var heimurinn alltaf að fylgjast með því sem var að gerast i Suður-Afríku en enginn virðist hafa áhuga á þessu. Líklega spilar olian þar eitthvað inn í,“ segir Hrafnhildvn. Lífið í Sádi-Arabíu er að vissu leyti mikið lúxuslíf. Hrafnhildur býr í hverfi sem er ætlað útlending- um og er alveg girt af. Hverfið er eins og lítið þorp. Þar eru 900 hús, bensínlaus. Við renndum inn á næstu bensínstöð en þá voru allir á hnjánum að biðja og allt stopp. Það var engin leið að fá þá til að dæla á bílinn, bænin gekk fyrir fæðing- unni. Sem betur fer var langt liðiö á bænatímann þegar við komum svo að við þurftum ekki að bíða nema í svona 15 mínútur," segir Hrafnhild- ur. Þegar minnst er á Sádi-Arabíu koma helst upp í hugann moldríkir oliufurstar og prinsar sem aka um á Bensum. Hrafnhildur segir að mjög margir hafi það mjög gott. „Ég hef til dæmis aldrei séð aðrar eins hallir og í þessu landi. Hér áður fyrr horfði maður á öll flottu húsin við Strandvejen í Kaup- mannahöfn en núna finnst manni þau bara vera lítil. Það er fullt af fólki sem á alveg nóg af peningum og spreðar þeim en almennt gengur verr en áður og það er samdráttur í landinu. Vestrænu fólki fer fækk- andi því að það er ekki jafn mikið upp úr því að hafa að vinna þarna og áður. Þá kom fólk til landsins og varð að millum en núna er ekki um sömu peninga að ræða og launin hafa lækkað." ' Töluverðs tvískinnungs virðist gæta í sádiarabísku samfélagi. Hrafnhildur segir til dæmis að yfir- völd vilji helst ekki að þeir sem flytjast til landsins séu trúlausir. Hins vegar megi þeir ekki hafa neitt en þrátt fyrir það eru þeir mjög al- gengir og þar sér fólk allt sem ann- ars er bannað í landinu. Þá eru mjög strangar reglur um hvað má koma með inn í landið. Tollskoðun í Sádi- Arabíu er að því leyti ólík tollskoðun í öðrum löndum að ekki er endilega verið að leita að tollskyldum vam- ingi heldur öllu því sem telst ósið- samlegt og ósamrýmanlegt trúnni. Áfengi er til dæmis harðbannað, svo og svinakjöt. Þeir hafa meira að segja gengið svo langt að banna Ikea að selja sparibauka sem voru eftir- líkingar af litlum grisum og strikað er yfir myndir af svínum í bamabók- um. Þá em myndir af konum þar sem sést í bert hold eitur í beinum það sé sérstaklega gott að vera með börn í Sádi-Arabíu og að börnin liðki jafnframt fyrir almennum samskiptum. Hjálpsamt fólk „Það sjá allir að ég er móðir og eiginkona einhvers og það hjálpar Hrafnhildur skipuleggur oft feröir fyrir konurnar í hverfinu í bæinn. Þá veröa þær allar að klæöast svörtum skikkjum. DV-myndir Hrafnhildur Skúladóttir tollaranna sem rífa þær umsvifa- laust út úr tímaritum og bókum. Krassað yfir bert hold „Ég er alltaf undir það búin að kíkt sé í öll tímarit og áður en ég flýg til landsins hef ég stundum túss- að yfir ákveðna líkamshluta kvenna sem mega ekki sjást; handleggi, hné og svo framvegis. Ef tollararnir sjá þetta verða þeir mjög ánægðir og finnst ég hafa unniö þarft verk. Ég var voða spæld í fyrra þegar þeir tóku ekki eftir því. Það er þó í raun verra þegar maður er með mynd- band því þá þurfa þeir að skoða það allt,“ segir Hrafnhildur. Aftökur eru mjög algengar í land- inu og þar til fyrir skömmu fóru mikið. Af því að ég er með börn leyf- ist karlmönnum að brosa og vera vingjarnlegir og jafnvel ræða við mann um bömin. Þeir Sádar sem við þekkjum eru mjög vinalegir og elskulegir og sérstaklega hjálpsam- ir. Það er okkar reynsla að ef mað- ur á sádiarabískan vin þá er hann alltaf tilbúinn að hjálpa og öll hans fjölskylda." Hrafnhildur segir að ef fólk er að hugsa um að flytja til Sádi-Arabíu þá myndi hún hiklaust mæla með því. „Það er alltaf lífsreynsla að kynn- ast öðru landi og annarri menningu og þótt maður sé ekki alltaf sam- mála hefðunum þá er það þess virði að kynnast nýjum siðum. Ég geri mér grein fyrir því að ég er gestur í Þaö er margt aö sja i Sadi-Arabiu. Hrafnhildur er áhugamaður um Ijósmynd un og hefur tekiö margar góöar Ijósmyndir í landinu. þær fram fyrir opnum tjöldum. Þjóf- ur sem stelur í þriðja sinn missir hægri höndina og menn hafa verið teknir af lífi fyrir það eitt aö selja vín. Þrátt fyrir það segir Hrafnhild- ur að hægt sé að nálgast áfengi nán- ast alls staðar. Þrátt fyrir að margt sé öðru vísi líkar Hrafnhildi vel að búa í Sádi- Arabíu og er mjög jákvæð í garð lands og þjóðar. Þau Heine hafa ákveðið að dvelja þar í að minnsta kosti ár í viðbót. Hrafnhildur hefur haft í nógu að snúast að undanfömu og segist ekki hafa haft tíma til að láta sér leiðast. Hún tekur ljós- myndir sem birst hafa í blöðum í Sádi-Arabíu og skipuleggur ferðir út fyrir „múrana“ fyrir íbúa hverf- isins þar sem þau búa; á söfn, í dýragarðinn, á ströndina og út í eyðimörkina. Hrafnhildur segir að landinu og veit að ég breyti ekki neinu. Ef maður er með það hugar- far verður allt auðveldara. Það er mjög skrýtið að hugsa til þess að konur beygi sig undir þessar ströngu reglur. Það eru margar kon- ur í Sádi-Arabíu sem vildu breyta hlutunum en það eru líka margar sem velja þetta og styðja. Það getur verið erfitt fyrir okkur að kyngja því en maður verður að virða þeirra val. Einn stærsti ókosturinn viö að búa í Sádi-Arabíu þegar frá líður er að fjölskyldan og vinirnir komast ekki svo auðveldlega í heimsókn því það er mjög erfitt að fá vegabréfsá- ritun fyrir þau. Maður getur lifað án þess að keyra eða hafa vín með matnum en maður saknar alltaf sinna nánustu," segir Hrafnhildur. Brynhildur Ólafsdóttir Flestir karlmenn í Sádi-Arabíu klæöast hvítum kuflum en konurnar svörtum skikkjum. Ulfaldar ganga kaupum og sölum á serstökum ulfaldamörkuöum. Þessi markaöur er í úthverfi Jeddah þar sem Hrafnhildur býr. verslun, leikskóli, tennis- og skvass- völlur og tvær sundlaugar. „Maður fær allt upp í hendurnar og inncin hverfisins get ég gengið í stuttbuxum, hjólað og keyrt bíl án þess að nokkur fetti fingur út í það. Við lifum þarna eins og í vestræn- um heimi.“ með sér sem minnir á trúna, hvorki biblíu né kross um hálsinn. Jafnvel fánar Norðurlandanna eru illa séðir þar sem það eru krossar á þeim. Þá má ekki halda jól og ekki gefa jóla- pakka. Ef vestrænar bíómyndir eru sýndar í sádiarabíska ríkissjónvarp- ið eru þær mikið klipptar. Bænin gengur fyrir Hrafnhildur fæddi sitt annað barn, Björk, í Sádi-Arabíu. Þau völdu mjög nútímalegt sjúkrahús, Heine fékk að vera viðstaddur fæð- inguna og allt gekk eins og í sögu. En það hefði getað farið verr. „Þegar við fórum af stað á sjúkra- húsið var bíllinn alveg að verða Kossaflensið klippt burt „Ef karlmaður nálgast konu og ætlar að kyssa hana er það klippt burt. Þeir gleyma hins vegar stund- um hljóðunum og þá er bara svart á skjánum og hljóðið undir svo að maður ímyndar sér meira en tilefni er til.“ Gervihnattadiskar eru bannaðir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.