Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1996, Qupperneq 47
LAUGARDAGUR 20. JULI 1996
afmæli
55
Ragnheiður Egilsdóttir
Ragnheiður Egilsdótt-
ir læknaritari, Ásvegi
17, Breiðdalsvík, er
fimmtug í dag.
Starfsferill
Ragnheiður fæddist i
Reykjavík og ólst þar
upp. Hún lauk gagn-
fræðaprófi frá Gagn-
fræðaskólanum við
Lindargötu.
Ragnheiður starfaði
við mötuneyti Hagvirk-
is við Hrauneyjafoss-
virkjun, við Sultartanga
og Kvíslaveitu 1979-86,
var læknaritari við Krabbameins-
deild Landspítalans 1986-94 en flutti
þá til Breiðdalsvíkur. Þar var hún
forstöðumaður dagvistar aldraðra í
tæpt ár en tók við starfi læknaritara
við Heilsugæslustöð Breiðdalsvíkur
í síðasta mánuði.
Ragnheiður var trúnað-
armaður starfsmanna er
hún starfaði í mötuneyti
Hagvirkis.
Fjölskylda
Ragnheiður
dóttir.
Ragnheiður giftist 30.11.
1963 Lárusi Svanssyni, f.
18.11. 1942, skósmið og
baadermanni hjá Bú-
landstindi á Breiðdalsvík.
Hann er sonur Svans Lárus-
E9' s‘ sonar, f. 1913, d. 1996, verka-
manns í Reykjavík, og
Gunnþórunnar Stefánsdótt-
ur, f. 1915, d. 1961, húsmóður
i Reykjavík.
Börn Ragnheiðar og Lárusar eru
Egill Lárusson, f. 9.6. 1964, rafvirki
ájá Marel, búsettur í Reykjavík en
kona hans er Rúna Pétursdóttir og
eru börn þeirra Jökull Alexander, f.
17.3. 1989, Ragnheiður Þóra, f. 7.11.
1990, og Hekla, f. 20.2. 1993; Höskuld-
ur Öm Lárusson, f. 30.11. 1969, tón-
listarmaður og starfsmaður hjá Mar-
el, búsettur í Reykjavík en kona
hans er Steinþóra Sævarsdóttir;
Svanur Sævar Lárusson, f. 24.7.
1972, verslunarmaður hjá Fálkan-
um, búsettur í Reykjavík en kona
hans er Ragnhildur Erla Hjartar-
dóttir.
Systkini Ragnheiðar eru Öm Eg-
ilsson, f. 15.11. 1937, fulltrúi hjá Al-
mannavörnum ríkisins, búsettur í
Reykjavík en kona hans er Lonní
Egilsson og eiga þau tvö börn; Hö-
skuldur Egilsson, f. 18.1. 1943, versl-
unarmaður hjá Kaupfélagi Stöðfirð-
inga á Breiðdalsvík en kona hans er
Soffia Rögnvaldsdóttir og eiga þau
fimm böm; Margrét Þórdís Egils-
dóttir, f. 1.10. 1955, starfsmaður við
Læknasetrið í Mjódd, búsett í
Reykjavík en maður hennar er Osk-
ar Smári Haraldsson rafvirki og
starfrækja þau hjónin Raf-Ós hf. en
þau eiga tvo syni.
Foreldrar Ragnheiðar vora Egill
Gestsson, f. 6.4. 1916, d. 1.11. 1987,
tryggingamiðlari í Reykjavík, og
Arnleif Steinunn Höskuldsdóttir, f.
5.3. 1915, d. 7.12. 1986, húsmóðir.
Ætt
Egill var sonur Gests Árnasonar,
prentara í Reykjavík, og Ragnheiðar
Egilsdóttur.
Arnleif var dóttir Höskulds Sig-
urðssonar og Þórdísar Stefánsdóttur
sem bjuggu á Djúpavogi.
Ragnheiður tekur á móti vinum
og ættingjum að Staðarborg í Breið-
dal, í kvöld kl. 20.30. Samkvæmis-
klæðnaður ekki æskilegur.
Soffía Júnía Sigurðardóttir
Soffia Júnía Sigurðardóttir, hús-
móðir og listakona, Sólvöllum, Ár-
skógssandi, verður níræð á mánu-
daginn.
Starfsferill
Soffia fæddist á Brattavöllum á
Árskógsströnd og ólst þar upp. Hún
gekk í barnaskóla á Árskógssandi,
reri þrettán ára með föður sínum til
fiskjar á árabát frá Árskógssandi
eitt sumar og var við beitningu og
fiskþurrkun fram undir tvítugt.
Soffia var formaður Kvenfélagsins
Hvatar á Árskógsströnd í tvö ár og
ritari þess í önnur tvö. Hún byrjaði
fjórtán ára að syngja í kór Stærri-
Árskógskirkju og söng þar í rúm
fimmtíu ár.
Soffia hefur safnað steinum í
mörg ár, sagað þá til og slípað og
gert úr þeim listmuni. Þá hefur hún
málað á postulín og flauel, á rekavið
og flísar.
Fjölskylda
Soffia giftist 1.12. 1926 Konráð Sig-
urðssyni, f. 28.9. 1902, útgerðar-
manni. Hann er sonur Sigurðar Sig-
urðssonar, bónda á Kjama í Amar-
neshreppi og síðar útvegsmanns á
Hjalteyri, og Margrétar S. Sigurðar-
dóttur húsfreyju.
Börn Soffiu og Konráðs eru Alfreð
Sigurlaugur Konráðsson, f. 14.7.
1930, rafvirki í Hrísey, kvæntur Val-
dísi Þorsteinsdóttur, símstöðvar-
stjóra í Hrísey, og eiga þau
sex börn; Sigurður
Tryggvi Konráðsson, f.
15.9. 1938, útgerðarmaður
á Árskógssandi, kvæntur
Ingibjörgu Þorsteinsdótt-
ur, skrifstofustjóra á Ár-
skógssandi, og eiga þau
sex börn; Gunnlaugur
Konráðsson, f. 16.7. 1946,
útgerðarmaður á Árskógs-
sandi, kvæntur Valborgu
M. Stefánsdóttur útgerðar-
f. 17.8. 1911, d. 1983, hús-
freyja á Selá á Árskógs-
strönd og síðan á Akur-
eyri; Sigurlaug Sigurð-
ardóttir, f. 23.10. 1908, d.
3.4. 1929.
Foreldrar Soffiu voru
Sigurður Flóvent Sig-
urðsson, f. 4.7. 1876, d.
7.7. 1937, útvegsbóndi á
Brattavöllum á Árskógs-
strönd, og k.h., Anna Sig-
_ , ríður Sigurgeirsdóttir, f.
konu og eiga þau fjögur Soffía Júnía Sigurð- jo.l. 1880, d. 19.5. 1953,
böm. ardóttir.
Systkini Soffiu: Gunn-
laugur Sigurðsson, f. 21.8.
1902, d. 1986, útvegsbóndi á Árskógs-
strönd; Anna Soffia Sigurðardóttir,
húsfreyja.
Soffia býður upp á
kaffi á heimili sínu
sunnudaginn 21.7. frá kl. 15.00.
Jóhann Olafsson
Jóhann Ólafsson, fyrrv. verslun-
armaður, Brekkustíg 16, Njarðvík,
er sextugur í dag.
Starfsferill
Jóhann fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann flutti til Njarð-
víkur 1953 og hóf þá störf hjá Olíufé-
laginu Esso á Keflavíkurflugvelli.
Seinna vann hann svo við verslun-
ina Stapafell til 1964. Þau hjónin
stofnuðu verslunina Lindina í Kefla-
vík sem þau starfræktu frá 1964 og
þar til þau hættu rekstri sl. vor.
Hann starfar nú hjá Teppahreinsun
Suðurnesja.
Jóhann var einn af stofhendum
Hjálparsveitar skáta í Njarðvík en
hann starfaði mikið með
sveitinn fyrstu árin;
Fjölskylda
Jóhann kvæntist 25.12.
1964 Jónu Björg Georgs-
dóttur, f. 10.5. 1930, bréf-
bera. Hún er dóttir Georgs
Emils Péturs Péturssonar
og Guðrúnar Magnúsdótt-
ur, frá Brekku í Njarðvík,
en þau era bæði látin.
Sonur Jóhanns og Jónu
Bjargar er Kristján, f. 15.1.
1968, starfsmaður við
Sorpeyðingarstöð Suður-
nesja, búsettur í Njarðvík,
en unnusta hans er Svanhildur Ei-
Jóhann Ólafsson.
Björn
ríksdóttir.
Fósturdætur Jóhanns
eru Guðbjörg Lilja Jóns-
dóttir, f. 18.4. 1965, starfs-
maður hjá íslenskum
markaði á Keflavíkur-
flugvelli, búsett í Kefla-
vík en unnusti hennar er
Sigurður Ásgrimsson og
eiga þau tvö böm, Maríu
og Kristófer; Rut Jóns-
dóttir, f. 3.8.1968, gift Þór-
ami Sveini Jónassyni og
eiga þau þrjár dætur, Þór-
unni Jónu, Telmu Ýr og
Tinnu Rut.
Bræður Jóhanns eru
Grétar, f. 23.1. 1934, lést af
slysförum 1981, starfsmaður á Kefla-
víkurflugvelli, var kvæntur Þóru
Sigríði Jónsdóttur; Ásgeir, f. 2.7.
1938, starfsmaður á Keflavíkurflug-
velli, búsettur i Njarðvík, kvæntur
Helgu Óskarsdóttur; Rúdolf Jens, f.
2.7. 1938, starfsmaður hjá Sláturfé-
lagi Suðurlands á Selfossi, búsettur
á Selfossi, kvæntur Guðrúnu
Bjarnadóttur.
Foreldrar Jóhanns: Ólafur Þórður
Þórberg Benediktsson Ásgeirsson, f.
29.6. 1908, d. 17.9. 1965, og Ingiríður
Magnúsína Björnsdóttir, f. 29.7.1908.
Þau bjuggu lengst af í Njarðvík.
lil hamingju
með afmælið
20. júlí
95 ára
Eyþór Þórðarson,
Stekkjargötu 3, Neskaupstað.
80 ára
Jóhannes Jónsson,
Austurbergi 32, Reykjavík.
75 ára
Gunnar Ólafsson,
Unnarbraut 2, Seltjamamesi.
Hagalín Guðmundsson,
Vogatungu 33A, Kópavogi.
70 ára
Margrét Antonsdóttir,
Langholti 15, Akureyri.
Ásgerður Júlíusdóttir,
Vallholtsvegi 17, Húsavík.
Finnur H. Guðmundsson,
Hátúni 10A, Reykjavík.
Finnur er að heiman.
60 ára
Birgir Gíslason,
Þórólfsgötu 19A, Borgarnesi.
yölundur Bjömsson,
Álakvísl 6, Reykjavík.
50 ára
Guðbrandur Sverrisson,
Bassastöðum,
Kaldrananeshreppi.
Lára Kjartansdóttir,
Safamýri 13, Reykjavík.
Halldór Ingi Dagsson,
Lyngbraut 3, Garði.
Stein Hvasshovd,
Bollagötu 2, Reykjavík.
40 ára
Guðrún Jósafatsdóttir,
Þverárseli 18, Reykjavík.
Gerða Björk Kristinsdóttir,
Álakvísl 71, Reykjavík.
Sigríðiu- Jónsdóttir,
Urðarstíg 3, Hafnarfirði.
Björn Steinar Sveinsson,
Kirkjustíg 7, Siglufirði.
Helgi Jónas Sigurðsson,
Lindarbraut 6, Seltjarnarnesi.
Kristinn Pétursson,
Sauðanesi, Höffi í Hornafirði.
Helga Hrafnhildur
Ásgeirsdóttir,
Austurströnd 14,
Seltjarnarnesi.
Þórólfur Jóhannsson,
Melasíðu 3H, Akureyri.
Ámi Jóhannsson,
Hæðarbyggð 19, Garðabæ.
Björg Sveinsdóttir,
Hörgshlíð 8, Reykjavík.
Jónína Kristín Steinþórsdóttir
Jónína Kristín Steinþórsdóttir
húsmóðir, Austurgötu 21, nú Dval-
arheimilinu Hlíð, Akureyri, er ní-
ræð í dag.
Starfsferill
Jónína fæddist í Vík í Héðinsfirði
en ólst upp á Siglufirði. Hún stund-
aði bamaskólanám við Bamaskóla
Siglufjarðar og var síðar einn vetur
í kvöldskóla.
Jónína vann í tíu ár við síma-
vörslu á Siglufirði og stundaði síðan
verslunarstörf i tvö og hálft ár. Þá
var hún þrjá vetur stundakennari í
handavinnu við Oddeyrarskóla á
Akureyri.
Jónína sat í stjórn Kvenfélagsins
Hlífar á Akureyri í þrjátíu ár, var
þar af formaður félagsins í þrettán
ár, en hún er nú heiðursfélagi þess.
Hún vann að bindindismálum í
mörg ár og er heiðursfélagi Stór-
stúkunnar. Þá var hún varafulltrúi
í bæjarstjórn Akureyrar í eitt kjör-
tímabil og sat í framfærslunefnd í
nokkur ár.
Jónína hefur þýtt tuttugu og tvær
barnabækur úr dönsku, norsku og
sænsku.
Fjölskylda
Jónína giftist 22.2. 1930 fyrri
manni sínum, Sveini Jóhannssyni,
f. 16.2. 1903, d. 13.6. 1932, kaup-
manni.
Hún giftist 4.10. 1939 seinni
manni sínum, Eiríki Sigurðssyni, f.
16.10. 1903, d. 17.11. 1980, skólastjóra
Oddeyrarskóla á Akureyri. Hann
var sonur Sigurðar Þórðarsonar,
bónda í Breiðdal, og Valgerðar Ei-
ríksdóttur húsfreyju.
Kjörsonur Jóninu er Hákon Ei-
ríksson, f. 13.10. 1942, d. 1982, var
kvæntur Mörtu Jóhansdóttur, f.
10.12. 1937, en dóttir Hákonar og
Ólafíu Blöndal er Anna María, f.
23.12. 1965.
Fósturdóttir Jónínu er Þóra G.
Ásgeirsdóttir, f. 17.12. 1950, gift Her-
manni Huijbens, f. 18.8. 1948, og eru
synir þeirra Edward Hákon, f. 28.3.
1976, og Eiríkur George, f. 12.3. 1977.
Hálfsystkini Jónínu, sammæðra:
Halldóra Bjarnadóttir, f. 1910, d.
1928; Guðmunda Bjarnadóttir, f.
1912, d. 1990; Guðrún Bjamadóttir, f.
1914; Guðmundur Bjarnason, f. 1916,
nú látinn; Jón Þorgrímur Bjarna-
son, f. 1918; Ólöf Bjamadóttir, f.
1919; Eysteinn Einarsson, f. 1923.
Hálfsystkini Jónínu, samfeðra:
Kristjana Steinþóra, f. 11.12. 1900;
Guðrún, f. 7.4. 1902, d. 1958; Sigur-
páll, f. 20.9. 1903, nú látinn; Ólöf, f.
22.5. 1905, nú látin; Anna Lilja, f.
9.12. 1906, nú látin.
Foreldrar Jónínu voru Steinþór
Þorsteinsson, b. í Héðinsfirði og Ól-
afsfirði, og Ólöf Þorláksdóttir, f.
20.6. 1889, d. 1985, húsmóðir.
Fósturforeldrar Jónínu vora Ein-
ar Eyjólfsson, f. 18.10. 1877, d. 1965,
síldarmatsmaður á Siglufirði, og
Eggertína Guðmundsdóttir, f. 19.1.
1885, d. 1965, húsmóðir.
Jónína er að heiman á afmælis-
daginn.
Askrifendur fá
aukaafslátt af
Smáauglýsingar
smáauglýsingum DV
DV
550 5000