Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1996, Side 50
5» kvikmyndir
LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 1996
I K M Y
[J
V J
) I !<!
Laugarásbíó/Regnboginn
- Persónur í nærmynd:
r idck
I leit að frægð og frama
Persónur i nærmynd (Up Close and Personal) er
saga stúlku sem þráir að verða frægur sjónvarps-
fréttamaður og verður að ósk sinni en það kostar
hana blóð, svita og tár að ná á toppinn og verða
heimagangur hjá milljónum sjónvapsáhorfenda.
Sagan í myndinni um stúlkuna sem byrjaöi sem
veðurfréttastúlka á lítilli sjónvarpsstöð en endaði sem fréttaþulur á einni af stóru sjón-
varpsstöðvunum er skáldskapur en hugmyndin að aðalpersónunni er fengin úr raun-
veruleikunum, úr bókinni Golden Girl, sem fjallar um dramatíska ævi Jessicu Savich
sem var fyrsta fréttakonan í bandarisku sjónvarpi sem komst til æðstu metorða á stórri
fréttadeild.
Michelle Pfeiffer leikur hina metnaðargjömu Telly Atwater sem hikar ekki við að
ljúga til að komast að á fréttadeild. Þar skapar fréttastjórinn Warren Justice (Robert
Redford), sjálfur fyrrverandi fréttahaukur, hina tilvonandi sjónvarpsstjörnu. Þau lað-
ast hvort að öðru og með tímanum verður gagnkvæm virðing að heitri ást. En á með-
an Tally er á uppleið er Warren á niðurleið og það hefur áhrif á þau bæði.
Pfeiffer og Redford em eins og sköpuð fyrir þessi hlutverk og fara ákaflega vel með
þau, það vel að störf þeirra, sem eru í raun áhugaverðust í myndinni, verða nánast að-
eins bakgrunnur. Það er ekki fyrr en komið er að góðu atriði í síðari hluta myndarinn-
ar, uppreisninni í fangelsinu, þar sem Tally er óvart lokuð inni, að stemning fréttafólks
í návígi við fréttir verður miðpunkturinn.
Persónur í nærmynd er því frekar rómantísk mynd um samband tveggja áhuga-
verðra persóna heldur en hörð og raunsæ lýsing á starfi fréttamanna eins og sást til að
mynda í hinni frábæru kvikmynd Sidneys Lumets, Network. Myndin er þó alltaf
áhugaverð á að horfa, vel gerð að öllu leyti og ágæt skemmtun.
Leikstjóri: Jon Avnet. Handrit: Joan Didion og John Gregory Dunne. Kvikmyndataka: Karl Walter Linden-
laub. Tónlist: Thomas Newman.
Aðalhlutverk: Robert Redford, Michelle Pfeiffer, Stockard Channing, Joe Mantegna og Kate Nelligan.
Hilmar Karlsson
Laugarásbíó - Öskur:
.. **
Oskrandi válmenni
Öskur (Screamers) er framtíðartryllir sem ger-
ist á plánetunni Síríus 6B. Þar hafa tveir þjóð-
flokkar mannanna háð stríð um yfirráðin yfir
verðmætum námum með þeim afleiðingum að
plánetan hefur breyst úr paradís í deyjandi eyði-
mörk, þar sem geislunin er orðin svo mikil að
mannskepnan getur ekki þrifist. Annar aðilinn á plánetunni hefur búið til varðsveit
lítilla vélmenna sem tæta allt lifandi í sundur nema viðkomandi hafi sérstakt tæki sem
villir fyrir þessari hættulegu uppfmningu mannanna. En nú hefur það gerst að þróun-
in á vélmennum þessum hefur farið úr böndum og eru þau farin að þróa sig sjálf og
eru nánast að breytast í mjög hættulegar verur sem taka á sig mannanna mynd og eru
vélmenni þessi orðin öUu lífi á plánetunni hættuleg.
Öskur hefur nokkuð góða stígandi og það næst að byggja upp ágæta spennu þrátt
fyrir ýmsa vankanta í sögunni. Varla er hægt að tala um frumlegan söguþráð, það má
nánast aUtaf sjá hver framvindan verður, en tæknivinna við myndina er vel af hendi
leyst og sviðsmyndin, sem er dökk og fornleg, sviðsmynd sem virðist vera mikið í tísku
um þessar mundir í framtíðarkvikmyndum, er ágætlega heppnuð þótt mikið sé gert í
að skapa alls konar effekta tU að búa til spennu. Leikarar hafa ekki mikið tU að moða
úr en standa samt vel fyrir sínu.
í heildina er Öskur hin sæmUegasta afþreying fyrir unnendur visindaskáldskapar,
en einhver vandræði hafa verið með endinn því allt frá því minnst er á Uóttaflaugina
sem er til staðar fer sagan úr böndunum.
Leikstjórl: Christlan Duguay. Handrit: Dan O’Bannion og Miguel Tejada-Flores. Kvikmyndataka: Rodney
Gibbons. Tónlist: Normand Corbeil.
Aöallleikarar: Peter Weller, Jennlfer Rubin, Andy Lauer og Ron White.
Hilmar Karlsson
Háskólabíó - Bilko liðþjálfi:
Allt í hers höndum
Steve Martin á sína góðu og slæmu daga og þótt
varla sé hægt að segja að hann eigi slæman dag í
Bilkó liðþjálfa (Sgt. Bilko) þá á hann heldur ekki
einn af sínum betri dögum. Það sýnir kannski best
hversu döpur gamanmynd Bilko liðþjálfi er að
þrátt fyrir að Martin nái sér ekki almennilega á
strik þá er hann sá eini sem nær stundum að lyfta myndinni upp í einstökum atriðum.
Helsti galli myndarinnar er steingelt handrit sem byggir á löngu úr sér genginni hug-
mynd, sjónvarpsþáttum sem voru vinsælir á sjöunda áratugnum. Aðalpersónan er Bil-
ko sem stjórnar sinni herdeild á eigin hátt. Hann er yfirmaður bílaverkstæðis í herstöð
en frekar lítið fer fyrir því að gert sé við bíla á verkstæðinu, þar fer aftur á móti fram
starfsemi sem sést eingöngu í spilavítum. Það þarf því engan að undra að þegar Bilko
fer með hersveit sína til Las Vegas þá er það fyrir hann það sama og að fara til himna-
ríkis. Það hriktir þó í stoðum Bilkos þegar eftirlitsforingi kemur í herstöðina því þar
er kominn foringi sem Bilko varð þess valdandi að var sendur til Grænlands. Herfor-
inginn sér því stund hefndarinnar renna upp . . .
Bilko liðþjálfi fer einkar hægt af stað og kraftlaus húmorinn, sem mest er byggður á
gömlum klisjum, ætlar mann alveg að drepa en það rætist þó úr þegar líða tekur á
myndina en aldrei nær hún sér þó almennilega á strik, til þess er húmorinn of venju-
legur og margtugginn. Leikstjórinn Jonathan Lynn, sem á sínum tíma var með frum-
legustu gamanleikstjórum á Bretlandseyjum, hefur ekki erindi sem erfiði og er leik-
stjórn hans furðu máttlaus.
Leikstjóri: Jonathan Lynn. Handrit: Andy Breckman. Kvikmyndataka: Peter Sova. Tónlist: Alan Sllvestri.
Aöalleikarar: Steve Martln, Dan Aykroyd, Phil Hartman, Glenne Headley og Austin Pendleton.
Hilmar Karlsson
Háskólabíó:
- Cohen-bræður í fínu formi
Háskólabíó hefur hafið sýningar á
Fargo, nýjustu kvikmynd Cohen-
bræðra, Joels og Ethens. Fargo hefur
fengið aldeilis frábæra dóma vestan-
hafs og er þegar orðin vinsælasta kvik-
mynd bræðranna. Fargo er sakamála-
mynd sem byggð er á sönnum atburð-
um og gerist í Minnesota árið 1987.
Jerry Lundgren er bílasali sem hefur
komið sér í mikla fjárhagserfiðleika.
Til að bjarga sér úr óreiðunni ræður
hann tvo krimma til þess að ræna eig-
inkonu sinni og er ætlunin að láta rík-
an tengdaföður borga lausnarféð,
krimmarnir eiga fá eitthvert smáræði
i sinn hlut en Lundgren halda meiri-
hluta lausnarfjársins.
Áætlun fer úrskeiðis þegar krimm-
amir bana iögreglumanni og tveim
vegfarendum í smábæ einum. Lög-
regluforinginn Marge Gunderson tek-
ur að sér rannsókn málsins, en þetta
er fyrsta morðmálið sem hún fæst við.
í fyrstu er henni alls ókunnugt um að
morðin tengjast mannráni, en þegar
hún kemst að því fer hana að gruna að
ekki sé allt með felldu með þann anga
málsins.
Eins og þeir sem hafa séð myndir
þeirra bræðra vita hafa þeir ekki farið
troðnar slóðir í listsköpun sinni. Er
Fargo ekkert öðruvísi en fyrri myndir
að því leytinu til og er sérstök í frá-
sagnarmáta og kemur hvað eftir annað
á óvart í myndrænni og snjallri út-
færslu. Með aðalhlutverkin fara
Frances McDormand, sem leikur lög-
reglukonuna Gunderson, Steve
Buscemi og Peter Stormare leika
morðingjana og Harve Presnell leikur
tengdafoðurinn.
Steve Buscemi leikur annan af tveimur mannræningjum og
morðingjum.
Bræðurnir á heimaslóðum
Fargo þykir mikill sigur fyrir þá
bræður og kemur hún í kjölfarið á The
Hudsucker Proxy, sem var ekki aðeins sú kvik-
mynd þeirra bræðra sem lakasta dóma hefur
fengið, heldur var hún langdýrasta mynd þeirra
og minnst sótt. Fargo, sem tekin er á söguslóðum
myndarinnar, er nokkurs konar „aftur til upp-
hafsins" hjá þeim bræðrum þar sem þeir ólust
upp í Minnesota og einnig má segja að þeir
nálgist aftur stna fyrstu kvikmynd, Blood
Simple, sem nú telst meðal klassískra
sakamálamynda. Fargo er einnig að einu
leyti öðruvisi en fyrri myndir bræðr-
anna: „Allt sem við höfum gert
áður hefur verið hreinn skáld-
skapur, sögur sem við höfum
búið til og persónur sem eiga
sér enga hliðstæðu í raun-
veruleikanum. Fargo er
aftur á móti okkar fyrsta
tilraun til að gera kvik-
mynd eftir raunveruleg-
um atburðum og byggja
upp persónur sem eru
til að hluta því veruleik-
inn verður alltaf ýktur í
kvikmyndum,” segir Joel
Cohen.
Þeir bræður vinna mjög
náið saman og þótt Joel sé
alltaf titlaður leikstjóri og
Ethen framleiðandi er sam-
vinna hjá þeim á öllum svið-
um og saman skrifa þeir
handritin. Kvikmyndáhug-
inn vaknaði fyrst
hjá Joel, sem innritaðist í kvikmyndaskóla í New
York og byrjaði síðan fljótt að vinna öll störf sem
til féllu í kvikmyndabransanum. Þegar hann á-
kvað að gera eigin mynd fékk hann bróður sinn
til að skrifa með sér handritið en Ethen hafði þá
útskrifast frá Princetonháskólanum. Útkoman
var Blood Simple sem var nánast gerð fyrir eng-
an pening og meðal leikara i henni var Frances
McDormand sem nú er aftur gengin til liðs við
þá bræður.
Blood Simple vakti mikla athygli og má segja
að ferill þeirra bræðra hafi verið stanslaus sig-
urganga síðan eða þar til The Hudsucker
Proxy leit dagsins ljós. Barton Fink fékk
gullpálmann i Cannes árið 1991 auk
margra annarra verðlauna. Aðrar
myndir þeirra eru Raising
Arizona og Miller’s Crossing.
-HK
Frances McDormant leikur lögreglukonu
sem fær til rannsóknar fyrsta morðmál sitt.