Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1996, Side 56
Alla laugardaga
Vertu viðbúm(n)
vinningi!
"33
(24)(28)(29)
KIH
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
I hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ1996
Símamynd Reuter
Ólympíuleikarnir
settir
Ólympíuleikarnir í Atlanta voru
settir í nótt með mikilli skrautsýn-
ingu. Síðdegis í dag hefja íþrótta-
menn keppni í ýmsum greinum en
leikarnir standa til 4. ágúst. íþrótta-
menn frá 197 þjóðum hafa streymt
síðustu daga til Atlanta en svo
margar þjóðir hafa aldrei verið með
í sögu ólympíuleikanna. Fimleika-
fólk verður í sviðsljósinu um helg-
ina en á myndinni er bandaríska
stúlkan Shannon Miller við æfingar
en heimamenn binda vonir við að
hún vinni til verðlauna í gólfæfmg-
um. Okkar maður í fimleikum, Rún-
ar Alexandersson, keppir í dag og
Vernharð Þorleifsson keppir í júdó
á sunnudag.
Knattspyrna:
Fangarnir
sigruðu
lögmenn
Knatts^mulið fanga á Litla-
Hrauni bar sigurorð af knattspymu-
liði lögmanna, 9-7, í árlegum leik
þessara aðila sem fram fór á íþrótta-
vellinum við Litla-Hraun á dögun-
um. EVá því keppnin hófst árið 1989
höfðu lögmenn ætið borið sigur úr
býtum en lið fanga var óvenjuharð-
snúið að þessu sinni, skoraði síð-
ustu fjögur mörkin í leiknum og
vann sætan sigur. Eftir leikinn
snæddu liðin Prins Póló og drukku
kók í boði lögmannafélagsins. -VS
SEMOIÐlL-ASTTÖÍ
\
533-1000
r
Ertu búinn að panta?
dagar
til Pjóðhátíðar
FLUGLEIDIR
Innanlandssími 50 - 50 - 200
L O K I
Fíkniefnadeildin enn inn í umdeilt hús við Mjölnisholt:
Verðum að fá
þessu bæli lokað
- segir aðstoðaryfirlögregluþjónn
„Þarna hafa farið fram kaup og
sala á fíkniefnum og eitthvað á
annan tug fikniefnaneytenda býr í
þessu húsnæði. Við höfum
margoft farið inn i húsið með úr-
skurði vegna fíkniefnaleitar og
fannst vera kominn tími til þess
að gera eitthvað róttækt í mál-
inu,“ segir Hilmar Þorbjömsson
aðstoðaryfirlögregluþjónn í sam-
tali við DV í gær en fíkniefnadeild
lögreglunnar fór inn í eiturlyfja-
bælið í Mjölnisholtinu í gærmorg-
un.
Hilmar segir að i framhaldi af
aðgerðum lögreglunnar hafi verið
kallaðir til fulltrúar Heilbrigðiseft-
irlits, Félagsmálastofnunar
Reykjavíkurborgar, Rafveitunnar,
Hitaveitunnar, Eldvarnaeftirlits
og fleiri og húsið verði í gæslu dag
og nótt þar til tekin verði ákvörð-
un um hvað gert verði við það til
frambúðar.
Ófögnuður
Við verðum að fá þessu bæli
lokað og bíðum nú eftir viðbrögð-
um hinna ýmsu stofhana við þess-
um ófógnuði og þykir mörgum
tími vera kominn til. Nágrannar
eru vitanlega slegnir yfir því
ástandi sem þama hefur verið.“
Hilmar segir að enginn hafl ver-
ið handtekinn í þessari aðgerð lög-
reglunnar. Það hafi ekkert upp á
sig því þama hafist fyrst og fremst
við sjúklingar og illa farið fólk.
Miklu nær sé að borgarlæknir,
Heilbrigðiseftirlitið og aðrir slíkir
komi þarna að málum þessu fólki
til hjálpar.
Aðspurður um aðgerðir á sama
stað fyrr í vikunni segir Þorbjörn
að þar hafi verið um „kurteisis-
heimsókn" að ræða. Lögreglan
hafi verið þama meira og minna í
langan tíma. Hann segir fleiri slík
greni vera í borginni og það sé
markmið lögreglustjóra að upp-
ræta þau hvar sem þau kunni að
finnast.
„Ég fagna því mjög ef hægt verð-
ur að loka þessu húsnæði en geri
mér grein fyrir því að við leysum
ekki vandann með því, hann mun
færast annað. Við munum þá bara
taka á þvi þegar þar að kemur,“
segir HUmar Þorbjörnsson aðstoð-
aryfirlögregluþjónn. -sv
Undirbúningur stendur nú sem hæst fyrir Landsmót skáta sem hefst við Úifljótsvatn á sunnudaginn. Búist er viö að
landsmótið í ár verði fjölmennara en þau sem áður hafa verið haldin og því eins gott að vanda undirbúninginn vei.
DV-mynd ÞÖK
Anna Kristjánsdóttir:
Samstarfið
gengur vel
„Þetta gengur bara nokkuð vel þó
að við mættum veiða meira. Það
hefur gengið frekar illa að veiða
grálúðuna en við vonumst til að
fljótlega verði breyting til batnaðar.
Mér líkar vel við áhöfnina og þetta
er afbragðsmannskapur. Samstarfið
gengur vel og mér er vel tekið hér
um borð,“ sagði Anna Kristjánsdótt-
ir, vélstjóri á togaranum
Hólmatindi. Anna, sem hét áður
Kristján Kristjánsson, var ráðin
þangað á dögunum, eins og fram
hefur komið í DV.
„Mér fannst mjög gaman hve vel
mér var tekið á Eskifirði áður en
við lögðum af stað. Ég bjóst ekki við
svona góðum móttökum. Það virðist
sem fólk á landsbyggðinni sé ekki
eins viðkvæmt fyrir svona löguðu
og Reykvíkingar," sagði Anna.
Emil Thorarensen, útgerðarstjóri
skipsins, er hæstánægður með
samstarfið við Önnu: „Við erum
mjög ánægðir með hana enda er
hún góður persónuleiki. Hún hefur
unnið hug og hjarta flestra hér á
Eskifirði," sagði Emil -RR
sums staðar rigning, þurrt og bjart annars staðar á landinu. Hiti verður ur léttskýjað en búast má við smáskúrum á Norðausturlandi. Hiti verð-
10-16 stig. ur 8-18 stig og hlýjast á Suðurlandi. Veðrið í dag er á bls. 57