Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1997, Side 2
LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997
2 *
éttir
Eiríkur Jónsson segir kennara vilja 50 prósenta hækkun:
Mikil hætta á að
skólastarf rústist
- aldrei eins mikil reiði meðal kennara
„Við forum fram á yfir 50 pró-
senta launahækkanir, það er rétt.
Það er afstætt að tala um þetta í
prósentum, við viljum 110 þúsund
króna mánaðarlaun, að tímakaup
kennara verði 675 krónur með or-
lofi. Það er þeim mjög þóknanlegt
að tala um þetta í prósentum,"
sagði Eiríkur Jónsson, formaður
Kennarasambands íslands, um
þær fullyrðingar viðsemjenda
þeirra að launakröfur kennara séu
um 60 prósenta hækkun launa.
Á fundi hjá ríkissáttasemjara á
fimmtudag svaraði samninga-
nefnd sveitarfélaganna ekki til-
boði kennara. Næsti fundur er síð-
degis í dag, laugardag. „Við feng-
um blað frá þeim þar sem þeir
óska eindregið að aftur verði farið
að ræða vinnutíma. Þeir segja
hvorki já né nei við tilboðinu okk-
ar. Viðbrögð þeirra eru i þá veru
að ég met sem þeir séu búnir að
hafna þvf. Við mætum á fundinn í
dag að ákvörðun sáttasemjara."
Samninganefnd sveitarfélaga
hefur sagt að í samningi, sem gerð-
ur var í vor, hafi verið sátt um að
ræða breyttan vinnutíma. „Þeir
gleyma því að þar eru líka liðir
um launaröðun og hafa ekkert
gert I að ræða það atriði. Þeir lesa
aldrei nema fyrri hlutann af sam-
komulaginu. Það stefnir í ófremd-
arástand."
Eiríkur og Guðrún Ebba Ólafs-
dóttir, varaformaður Kennarasam-
bandsins, hafa notað hléin á milli
funda til að hitta kennara víða á
landinu. „Ég hef aldrei upplifað
aðra eins reiði þau tæp tuttugu ár
sem ég hef starfað að þessum mál-
um. Fólki er misboðið. Ég fullyrði
að ef þetta gengur ekki upp þá
rústast skólastarf á íslandi. Ég
held að sveitarstjórnarmenn átti
sig ekki á að það stefnir í að fjöl-
margir bekkir verði einfaldlega
heima þar sem fæst ekki fólk til að
kenna þeim og margar greinar
munu falla niður. Ég heyri lítið í
sveitarstjórnarmönnum. Þeir
verja sig á bak við launanefndina
og vísa ábyrgðinni frá sér. Þetta
virkar á mig eins og hún verði í
framboði f vor og standi þá ábyrg
gerða sinna gagnvart íbúum sveit-
arfélaganna. En auðvitað eru það
meirihlutar á hverjum stað sem
bera ábyrgðina," sagði Eiríkur
Jónsson.
-sme
14 kennarar í Alftanesskóla sögðu upp störfum í gær. Jóhann Jóhannsson, skrifstofustjóri Bessastaðahrepps,
kemur hér til að taka við uppsagnarbréfum kennaranna í forföllum sveitarstjóra. DV-mynd Hilmar Þ.
Draumur Eyja-
manna rættist
- drógust gegn þýska liðinu Stuttgart
Einar Birgisson hjá Heimilistækjum:
Erum að drukkna
í hringingum
- eftir frétt um klónaða GSM-síma
„Við erum að drukkna í
hringingum. Síminn
þagnar bara ekki. Eftir
fréttina um klónuðu sím-
ana hefur ótrúlegur
fjöldi fólks hringt og ótt-
ast að það sé með svikna
síma. En þeir sem keyptu
síma hjá okkur þurfa
ekkert að óttast, þeir eru
frá framleiðanda en ekki
frá MoviStar á Spáni,“
sagði Einar Birgisson hjá
Heimilistækjum, en eftir
að DV birti frétt um ólög-
lega og klónaða GSM-síma
frá Philips hefur mikið
verið að gera hjá Heimilis-
tækjum.
„Philips-verskmiðjumar
vöruðu okkur við þessu, en þessir
símar eru einungis seldir á Spáni.
Við vitum ekki hversu margir eru í
umferð hér á landi, en þeir
eru margir. Það hlýtur allt
að verða gert til að stöðva
þetta. Það gerist reyndar
sjálfkrafa þegar IMEI-
númerinu verður lokað,
en eflaust eru tugir síma
á sama IMEI-númeri og
því á mörgum eftir að
bregða þegar lokað verð-
ur,“ sagði Einar Birgis-
son.
IMEI-númer er grunn-
númer fyrir símakortið
og þar sem klónuðu sím-
amir eru allir meö
sama IMEI-númerið lok-
ast fyrir alla ef einum
þeirra verður lokað, en
þaö gerist til dæmis
þegar simum er stolið.
-sme
Mosfellsbær inn
í leiðakerfi SVR
Mosfellsbær og Reykjavíkurborg
gengu í gær frá samningi um að Mos-
fellsbær bætist inn í leiðakerfi Stræt-
isvagna Reykjavíkur. Samkvæmt
þeim samningi mun SVR frá og með 1.
september taka við umsjón með
rekstri og þjónustu strætisvagna í
Mosfellsbæ. Við þetta batnar ÖE þjón-
usta við ibúa MosfeUsbæjar hvað al-
menningssamgöngur varðar og far-
gjöld munu lækka frá því sem nú er.
SVR hefur samið við Meiriháttar
ehf. um að annast áfram akstur inn-
anbæjar í MosfeUsbæ. Vagnar Meiri-
háttar ehf. verða málaðir í litum
vagna SVR og þeir verða í talstöðva-
sambandi við stjómstöð SVR sem ger-
ir auðveldara að samræma akstur
þeirra við aðra vagna á þjónustu-
svæði SVR. -S.dór
Draumur Eyjamanna rættist í gær
þegar dregið var í 1. umferö i Evrópu-
keppni bikarhafa í knattspymu.
Þeirra æðsti draumur var að mæta
þýska liðinu Stuttgart og sú varð
raunin á þegar dregið var upp úr hatt-
inum í höfúðstöðvum evrópska knatt-
spymusambandsins í Genf í Sviss.
Eyjamenn duttu því heldur betur í
lukkupottinn. Það er ekki nóg með að
lið Stuttgart sé eitt af bestu liðunum í
Þýskalandi heldur má reikna með því
að Eyjamenn geti hagnast töluvert
fjárhagslega með því að selja sjón-
varpsréttinn tU þýskra sjónvarps-
stöðva.
íslendingar ættu að þekkja vel tU
liðs Stuttgarts en þrír íslendingar
hafa leikið með liðinu, Eyjamaðurinn
Ásgeir Sigurvinsson, Eyjólfúr Sverris-
son, bróðir Sverris í Eyjaliðinu, og
Helgi Sigurðsson. Þá var Sigurvin
Ólafsson, einn besti leikmaður ÍBV á
þessari leiktíð, hjá félaginu í þrjú ár
og æfði og spUaði með vara- og ung-
lingaliði félagsins.
Stuttgart varð bikarmeistari á síð-
ustu leiktíð og hafhaði í þriðja sætinu
í deUdarkeppninni. Eftir fjórar um-
ferðir á yfirstandandi leUctíð er Stutt-
gart í 3. sæti með 7 stig. í herbúðum
Stuttgart eru margir snjaUir leik-
menn. Frægasta má telja lands-
liðsmiðherjann Fredi Bobic, búlg-
arska landsliðsmanninn Krassimir
Balakov og Thomas Berthold, þýskan
landsliðsmann tU margra ára.
Samkvæmt drættinum eiga Eyja-
menn að spUa fyrri leikinn í Þýska-
landi 18. september og heima 2. okt-
óber en forráðamenn ÍBV ætla að
ræða við koUega sína hjá Stuttgart og
Tryggvi Guðmundsson, framherji í
liði Eyjamanna, í hörkusókn.
freista þess að snúa dæminu við og
spUa fyrri leikinn á heimaveUi.
Meistaradeildin
Þá var einnig dregið í riðlana 6 í
meistarakeppninni. ! A-riðli leika:
Dortmund, Sparta Prag, Parma og
Galatasaray. í B-riðli: Feyenoord,
Kosice, Manchester United og Ju-
ventus. í C-riðli: Barcelona, PSV,
Dynamo Kiev, Newcastle. í D-riðli:
Porto, Real Madrid, Rosenborg,
Olympiakos. í E-riðli: Gautaborg,
Bayem Múnchen, Beskitas, París og
i F-riðli: Lierse, Sporting, Monaco
og Bayer Leverkusen. -GH
stuttar fréttir
Leikskólaverkfall
Viðsemjendur leUcskólakennara
hafa hafhað samningstUboði
þeirra og það stefnir i verkfaU á
leikskólum 22. september. Ósamið
er auk þess við grunnskólakenn-
ara, sjúkraliða og lögreglumenn.
Deilt um raflínu
Bændur í Grímsnesi og Grafii-
ingi segja að hin nýja BúrfeUslína
3a sé annað og meira maimvirki
en ætlað var. Þeir segja Lands-
virkjun ósamvinnuþýða um lin-
una og krefjast umhverfismats.
Kofi kemur 4. sept.
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
SÞ, og frú koma í opinbera heim-
sókn tU íslands nk. fimmtudag.
Framkvæmdastjórinn hittir hér
ráðherra og utanrikismálanefiid
Alþingis og heldur fyrirlestur um
starfsemi SÞ.
Póstur skilinn frá síma
Hluthafafúndur Pósts og síma
hf. ákvað í gær að skipta upp fyr-
irtækinu. P&S mun starfa áfram
undir nýju nafni, Landssími !s-
lands, en stofiiað verður fyrirtæk-
ið íslandspóstur hf. um póstdreif-
inguna. Halldór Blöndal sam-
gönguráðherra er fuUtrúi eina
hluthafans, ríkisins.
Hermanns minnst
í dag kl. 14 verður afhjúpaður
að Brekku í Blönduhlíð í Skaga-
firði minnisvarði um Hermann
Jónasson, fyrrv. forsætisráðherra.
Hermann var leiðtogi Framsókn-
arfloklcsins á fyrri helmingi aldar-
innar tU ársins 1962.
Þormóður rammi
Þormóður rammi - Sæberg hf.
hagnaðist um 186 miEjónir króna
eftir skatta á fyrri helmingi ársins.
Fyrirtækið hefur keypt 45% hlut í
sænsku rækjupökkunar- og sölu-
fyrirtæki og hyggst efla markaðs-
deUd þess, en flytja pökkunarstarf-
semina tU íslands. -SÁ