Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1997, Qupperneq 18
I8 dagur í lífi
LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997
Tíundi Reykjavíkurmaraþonsdagur í lífi Gísla Ragnarssonar læknis:
Kallaður á
sviðið
kéLllaði hann til min að vanda:
„Þetta gengur vel hjá þér!“ Og
ekki veitti af hvatningunni því að
ég var orðinn þreyttur. Dagsform-
ið skiptir miklu máli í maraþoni
og ég fann að ég mundi ekki slá
met í dag. Síðasti kaflinn var erf-
iður en markinu náði ég eftir 3
klst. og 36 mín. Besta tíma náði ég
í Reykjavíkurmaraþoninu 1994, 3
klst. og 23 mín.
Spjallað í pottunum
Að venju fórum við hlaupafélag-
amir í Vesturbæjarlaugina eftir
maraþonið. Þar var spjaflað um
hlaupið og sérstaklega hlaupatím-
ana. Sigurður Ingvarsson, hlaupa-
félagi minn og aðalleiðheinandi í
meistaranámi sem ég stunda í vet-
ur, náði sínum langbesta maraþon-
tíma og gladdi það okkur mjög.
Eftir góða stund í heita pottinum
fór ég heim og lagði mig upp í sófa
með sætindi og slappaði af. Ég
gerði kvöldmatnum góð skil og eft-
ir fréttir í sjónvarpinu fórum við
hjónin upp á Hótel ísland til að
vera viðstödd verðlaunaafhend-
ingu. Óttar Guðmundsson, læknir
og maraþonhlaupari, var kynnir
og stóð sig með miklum ágætum.
Til að kóróna góðan dag var ég
kallaður upp á svið í lok verð-
launaafhendingar og Knútur Ósk-
arson, formaður Reykjavikur-
maraþons, afhenti mér skjöld sem
á er grafið: „GÍSU RAGNARSSON
10. RVK. MARAÞON HLAUPIÐ
1997“.
Ég fór í rúmið hæstánægður
með daginn. Hlaupið var samt
óvenjuerfitt og út frá þeirri hugs-
un leið ég inn í draumalandið þar
sem hlaup minnir á flug og
áreynslan er engin.“
fyrsta maraþoni. Ári áður varð ég
móður og másandi þegar ég gekk
upp stiga en þama hafði ég lokið
við heilt maraþon. Ekki varð aft-
ur snúið og síðan hef ég hlaupið
heilt maraþon i Reykjavík á
hverju ári og það tíunda var að
hefjast.
Klappað tvisvar
Við hjónin fórum niður í miðbæ
um hálfellefúleytið. Konan mín
hleypur yfirleitt í Reykjavíkur-
maraþoni og ætlaði í þetta sinn að
hlaupa 3 km. Stemningin var mik-
il við marklínuna. Tvívegis var
klappað fyrir mér þegar tilkynnt
var að Gísli Ragnarsson væri að
leggja af stað í sitt tíunda Reykja-
víkurmaraþon. Skotið reið af og
hlaupið var hafið. Það er stóri
kosturinn við maraþonhlaup hve
hlaupið er létt framan af. Meðan
hlauparar í styttri vegalengdum
eru másandi og blásandi af erfiði
getum við maraþonhlauparamir
slappað af og horft i kringum okk-
ur.
Hvatning á Kleppsvegi
Það var stórkostleg upplifun að
hlaupa Lækjargötuna eftir hálft
maraþon þegar þulurinn bað fólk-
ið að klappa fyrir hlaupara núm-
er 28, sem var undirritaður. Á
. þessum 200 metra kafla fékk ég þá
hyllingu sem sigurvegarar í
íþróttakeppni fá að launum eftir
vel unnið afrek. Á Kleppsvegin-
um stóð gamall kxmningi úr fyrri
maraþonhlaupum. Þetta er mað-
ur á efri árum sem hefúr staðið
við hlaupabrautina öll mín tíu
Reykjavíkurmaraþon og hvatt
hlauparana. Þegar ég hljóp fram
hjá honum aftur á seinni hring
„Vekjaraklukkan kallaði mig úr
draumalandinu þar sem hægt er
að hlaupa endalaust án áreynslu.
Raunveruleikinn tók við og ég var
strax glaðvakandi. Tíunda Reykja-
víkurmaraþonið var í dag. Ég
hlustaði eftir veðrinu og merkti
engan vind. Klæddi mig í snatri og
fór út í garð.
Veðrið var eins og best getur
verið, norðaustan andvari og hit-
inn um 10 gráður. Það var glamp-
andi sól, sem kaflaði fram hros. Að
vísu getur mikil sól verið til
trafala fyrir þá sem hlaupa heilt
maraþon en það er miklu
skemmtilegra að hlaupa í sólskini.
Ég fékk mér banana, ristað
brauð og kaffi sem er hefðbundinn
maraþonmorgunmatur. Á meðan
ég bjó mig undir hlaupið renndi ég
huganum yfir maraþon liðinna
Bjartsýni í fyrstu
Ég fór í mitt fyrsta maraþon í
Reykjavík árið 1988. Ég byrjaði
að skokka 1987 fyrir áeggjan
góðs skólafelaga, Ólafs Þor-
steinssonar, formanns Hlaupa-
felags vesturbæjar. Fyrsta
Reykjavíkimnaraþonið var
mikil bjartsýni af minni
hálfu því ég hafði ekki
hlaupið meira en 10 km í
keppni áður. Enda var ég
mjög aðframkominn
þegar ég
skjögraði yfir
marklínuna eft-
ir 4 klst. og 17
min. En þessi
reynsla var stór-
kostleg. Það er
fátt sem jafnast
Gísli Ragnarsson læknir hljóp sitt 10. Reykjavíkurmaraþon sl. sunnudag og lýsir fyrir okkur á við það að
þeim degi í lífi sínu. DV-mynd Pjetur ljúka sínu
Finnur þú fimm breytingar? 426
Finnst þér ekki vera kominn tími til aö viö fáum okkur stærri btl!
Nafn:_____________________________________________________________
Heimili:__________________________
Vinningshafar fyrir getraun nr. 424 eru:
Daníel G. Guðmundsson,
Sjávargötu 25.
260 Njarðvík.
Lyngholti 15.
603 Akureyri.
Myndimar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð kem-
ur í Ijós að á myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt. Finnir þú
þessi fimm atriði skaltu merkja við
þau með krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt nafni þínu
og heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
Kalimar-Spirit AF, 35 mm myndavél
frá Radíóbæ, Ármúla 38, að verðmæti
3.995 kr.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr.
1570, Sekur eftir Scott Turow og Kóli-
brísúpan eftir David Parry og Patrick
Withrow.
Vinningamir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 426
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík