Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1997, Qupperneq 21
LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997
Sópran og tenór af ungu kynslóðinni saman á tónleikum:
Stefnum á toppinn
- segja Hulda Björk Garðarsdóttir og Jóhann Friðgeir Valdimarsson
Ástardúettar
„Við erum í þessu af lífi og sál og
því er óeðlilegt að taka stefnuna á
annað en toppinn. Við hellum okk-
ur út í þetta af alvöru og síðan verð-
ur bara að koma í Ijós hvert vinnan
skilar okkur þegar upp er staðið,“
segja söngvararnir Hulda Björk
Garðarsóttir sópran og Jóhann Frið-
I geir Valdimarsson tenór. Þau eru
' bæði söngvarar af yngri kynslóð-
I inni og í námi en ætla engu að síð-
i ur að halda saman tónleika í Lang-
holtskirkju næstkomandi fimmtu-
dag klukkan 20.30.
Hulda hefur þegar sannað hvers
hún er megnug og vegna frammi-
stöðu sinnar á burtfararprófí frá
Söngskólanum í Reykjavík fyrir
rúmu ári hefur henni boðist að
nema við Royal Academy of Music í
London næstu tvö árin. Hulda lærði
I í Berlín liðinn vetur en hér á landi
i hefur hún lært hjá Þuríði Baldurs-
dóttur, Dóru Reyndal og Þuríði
Pálsdóttur.
Nýr Kristján
Af Jóhanni er það að segja að
hann hefur aðeins verið í söngnámi
í um þrjú ár. Hann hóf nám hjá
Garðari Cortes, fór þá til Magnúsar
Jónssonar, Bergþórs Pálssonar og
I að síðustu Þuríðar Pálsdóttur. Hann
lauk 7. stigi í vor sem leið og hefur
honum verið ráðlagt að drífa sig
utan þrátt fyrir að hafa ekki lokið
skólanum hér heima. Jóhann hefur
vakið mikla athygli og hafa sumir
haft á orði að Kristján Jóhannsson
megi nú fara að vara sig!
„Ég hef tekið þá ákvörðun að fara
út til Ítalíu í haust, syngja fyrir og
kynna mér nokkra kennara. Ég ætla
að gefa þessu einhvem tíma og sjá
hvað kemur út úr því. Samanburð-
ur við Kristján eða einhvern annan
skiptir mig engu máli en það sam-
ræmist alveg tenórgorgeirnum að
ég stefni að því verða á meðal þeirra
bestu," segir Jóhann.
Tónleikar á eigin vegum
Tónleikarnir á fimmtudaginn
verða fyrstu tónleikar Jóhanns en
Hulda hélt burtfarartónleika fyrir
rúmu ári.
„Það er samt allt önnur tilfmning
sem fylgir því að gera þetta svona á
eigin vegum. Á tónleikum á vegum
skólans er fólk alveg undir verndar-
væng kennara og skólans. Hér
stöndum við ein en fáum vitaskuld
stuðning hvort af öðru,“ segir Hulda
og bætir við að hún sé ekki sam-
mála því sem sumir segi, að fólk
eigi ekki að standa í tónleikahaldi
fyrr en það hafi lokið öllu sem heit-
ir nám. Þau líti bæði á þessa tón-
leika sem hluta af þeirri vinnu að
verða góðir söngvarar.
Aðspurð um ástæðuna fyrir því
að þau skuli halda tónleika saman
segjast þau bæði hafa verið nemar
Þuríðar Pálsdóttur.
Á tónleikunum ætla þau að
syngja marga fallega ástardúetta, ís-
lensk og erlend ljóð, aríur úr óper-
um og margt fleira skemmtilegt.
Þau leggja áherslu á létta og
skemmtilega dagskrá sem flestir
ættu að þekkja. Ólafur Vignir Al-
bertsson er meðleikari þeirra á pí-
anó og síðan mun Freyja Gunn-
laugsdóttir, ungur klarínettleikari,
leika með Huldu og Ólafi í einu
verki.
Hulda og Jóhann eru bæði fjöl-
skyldufólk og viðurkenna fúslega að
söngnám sé dýrt ævintýri. Þau
segja þó að þegar bakterían blundi í
þeim verði þau bara að gera svo vel
að hlýða kalli hennar. Óhætt er að
segja að tónlistin sé a.m.k. Jóhanni
í blóð borin því móðir hans er Gígja
Jóhannsdóttir, tónlistarkennari og
fiðluleikari í Sinfóníunni til margra
ára.
„Ef heppnin verður með okkur
gætum við endað með góðan samn-
ing upp á vasann á erlendri grund.
Annars komum við bara heim og þá
ríður á að skapa sér sín eigin tæki-
færi,“ segja söngvararnir.
-sv
Jóhann Friðgeir og Hulda Björk æfðu í Langholtskirkju í vikunni. Þar verða
tónleikarnir haldnir nk. fimmtudag klukkan 20.30. DV-mynd Pjetur
I
á einu
gevsiðflug tölva. samnetssími
og margfaldur hraði á netinu
Póstur og sími, Tölvukjör og Nýherji kynna einstakt tilboö sem erfitt
er að hafna. Nú býöst þér öflug margmiðlunartölva frá Trust, meö
samnetskorti, samnetssíma og samnetstengingu, á stórlækkuöu
veröi. Auk Internetþjónustu Pósts og síma ókeypis í heilan mánuð.
Trust tölvan er geysiöflug margmiölunartölva sem
uppfyllir kröfur hörðustu tölvunotenda. Stór harður
diskur og mikið vinnsluminni ásamt mjög
vönduðum margmiölunarbúnaöi gerir þessa vél
fremsta meöal jafningja.
Meö samnetskorti er mögulegt að auka hraðann margfalt í
Internetsamskiptum sem gerir vefskoðun og gagnaflutning á netinu
mun þægilegri og skemmtilegri. Auk þess er hægt aö hafa
fleirl en eitt símanúmer á sömu samnetstengingu og
þannig haft bæöi Internet- og símasamband
opiö í einu.
NÝHERJI
éTöl^
versLun
'ZZl heimilanna
OPIÐ TIL 22 A KVÖLDIN
. Trusf turnvél
16G MHz Intel Pentium örgjörvi
32 Mb EDO vinnsiuminni
24 hraöa Panasonic geisladrif
4,3 Gb Quantum harður diskur
2 Mb S3 Trio V2 skjákort
Soundblaster AWE 64 hljóökort
15” Precision Viewer skjár
3ja hnappa mús
Windows 95 lyklaborö
300 W hátalarar
Windows 95 stýrikerfi
Fyrir 9.900 krónur í viöbót er hægt
aö uppfæra tölvuna f :
Pakkarnir eru seldir hjá Tölvukjörum, Faxafeni
Nýherja og Pósti og síma, Ármúla 27.
yflÉMlHÉJÉHÉÍÉÍHÍÉÍnttflhíriíÉIÍfl
Trust tölva
Samnetskort
Samnetssími
Uppsetning á samnetskorti
Samnetsgrunntenging
Internetþjónusta Pósts og síma
149.995
Samnetskort
Samnetssími
Uppsetning á samnetskorti
Samnetsgrunntenging
Internetþjónusta Pósts og síma
29.995
Ji
Meö báöum pökkunum býöst
enn fullkomnari samnetssími
fyrir aöeins 3.500 kr. í viöbót.
5,