Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1997, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997
Magic John-
son ásamt fjöl-
skyldu fyrir
utan bíóiö. Frá
vinstri eru þaö
frændurnir TJ
og Larry John-
son, Cookie,
kona Magic,
kappinn sjálfur
og loks André,
sonur þeirra.
Símamyndir
Reuter
Ný hasarmynd í Hollywood
Hasar- og grínmyndin Excess
Baggage, sem í beinni þýðingu gæti
heitið Yfirþyngdin, var frumsýnd í
kvikmyndahúsum í Bandaríkjunum
í gærkvöldi. Myndin var forsýnd í
Hollywood í vikunni að viðstöddum
leikurum og öðrum aðstandendum
hennar. Aðalleikarar í myndinni
eru Alicia Silverstone, Benicio Del
Toro, Jack Thompson, Christopher
Walken og Sally Kirkland.
Myndin fjallar um villuráfandi
ungling, Emily T. Hope (Alicia Sil-
verstone), sem án árangurs reynir
að ná athygli föður síns (Jack
Thompson). Eina ráðið er að
„ræna“ sjálfri sér og krefjast lausn-
argjalds af pabba gamla! Hún bind-
ur sig aftur í skotti á bílnum sínum.
Ráðagerðin fer hins vegar út um
þúfur þegar bíræfinn þjófur (Ben-
icio Del Toro) sér augastað á-bíl Em-
ily og stelur honum. Upphefst þá
æsilegur eltingaleikur. Leikstjóri
myndarinnar er Marco Brumbrilla.
Þrjár af aöalstjörnunum í myndinni mættu aö sjálfsögöu á forsýningu. Frá vinstri eru þaö Sally Kirkland, Alicia Sil-
verstone og Christopher Walken. Símamynd Reuter
__________ sviðsljós 25
í bíó með sjálfum
Magic
Kvikmyndin Hoodlum var frum-
sýnd í Los Angeles í vikunni að við-
stöddum fjölda góðra gesta. Myndin
byggist á sönnum atburðum er gerð-
ust hjá bröskurum i Harlem-hverfí í
New York í kringum 1930. Aðalleik-
ari er Laurence Fishburn.
Frumsýningin fór fram í einu
kvikmyndahúsanna sem körfubolta-
snillingurinn úr Lakers, Earvin
Magic Johnson, á og rekur. Hafði
hann á orði að sér væri það mikill
heiður að fá að frumsýna myndina í
sínu húsi.
Arnold
Schwarzenegger var
gestur á frumsýn-
ingu á Hoodlum.
Nýjar vörur
Heils árs úlpur
Kápur
Ullarjakkar (7 litir)
Opið laugardag 10-16
Mörkinni 6 - sími 588-5518
Eg er
á réttum
stað...
centrum@centrum.is • www.centrum.is
Birgir Örn Steinarsson er söngvari og gítarleikari
hljómsveitarinnar Maus. Tölvupósturinn er líf hans
og yndi, enda heitir eitt af nýju lögum hljómsveitar-
innar „Égimeilaðig". Maus er með eigin vefsíður:
http:// www.centrum.is/maus.
MIÐHEIMAR
Miðheimar ~ Meiri hraði og aldrei á tali!