Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1997, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997
útivist*
Svo virðist sem töluverð vakning
hafi orðið í sambandi við útivist
hvers konar. Fólk er sem betur fer
orðið leitt á imbanum og vill heldur
fá að reyna á skrokkinn og njóta
alls þess sem landið hefur upp á að
bjóða. Gönguferðir eru góð leið til
þess að losna frá amstri dagsins og
hafa íslendingar flykkst í stórum
straumum inn í sportvöruverslanir
og keypt sér gönguskó og annan
búnað sem hentað gæti til göngu-
ferða. Gunnar V. Andrésson, ljós-
myndari á DV, er einn þeirra sem
segir ekkert jafnast á við gönguferð
í óbyggðum. Hann reimaði á sig
gönguskóna á dögunum ásamt átta
öðrum tvifætlingum og einum fer-
fættum. Leiðin lá norður í Norður-
fjörð á Ströndum hvaðan siglt var
með smábát norður í Reykjafjörð.
Áð var tvær nætur í Reykjafirði þar
sem t.d. var gengið frá tjaldi upp á
Geirólfsnúp, tignarlegt fjall sem við-
sýnt er frá, og niður í Skjaldabjarn-
arvík. Suðurleiðin úr Reykjafirði
var gengin á fimm dögum, um
Fossadalsheiði, jökulvötn voru vað-
in í Bjarnarfirði og loks var áð í
túni Drangabænda. Þar
biðu hópsins ljúf^—p'
læri r
með \
rauð- \
vínstári. \
Óskar \ U
Kristins- \
son, bóndi \
á Dröngum. \ tejjjkT
ferjaöi liðið \ ||
noröur og tók \^B
nicö sér góöan \
nestiskassa \
sem hópurinn \
vissi að biði við \ % BsS
Dranga. Gunnar var að sjálfsögðu
með myndavélina með sér. -sv
Reykjarfiörður
Ö 0\^
' Skjalda-
l bjarnarvík
Drangey
Drangar
v, Drarv?askörö
Gönguleið i DranS‘
Siglingaleið '
Eftir að hafa klöngrast
um Fossadalsheiöi,
vaöiö árnar í Bjarnarfiröi
og gengiö út á annes
var tjöldum slegiö upp í
túni Dranga. Þar hefur
fólk sumardvöl og hug-
ar aö æðarvarpi og sel-
veiöum. Hjónin Kristinn
og Anna buöu fólki í
kvöldkaffi og skraf. Á
Dröngum hafa þau búiö
síðan 1950 meö 14 börn
sín og telja engan staö
betri undir sólu.
Fossaflúöirnar í Rjúkanda eru stórkostlegar og væri eflaust viökomustaöur
fjölda ferðfólks ef hann stæði í alfaraleið.
\ Eyvindarfjöröur
£ru n,/£n9uhópsin.
jrSsv®
5 2? ekki bá u toö“st
nJasia biBi.'ann,. /
I Húsá í Ófeigsfiröi eru margir fallegir fossar. Stærð fossins sést best ef hún er borin saman viö manninn sem stend
ur hægra megin viö ána.
Leiklistarstúdíó
Eddu Björgvins og Gísla Rúnars
Haustnámskeið fyrir fullorðna
sími: 581 2535
Helgi Gíslason með sýnishorn af því fjölmarga sem fjaran geymir. Geir-
ólfsnúpur er í baksýn. Hópurinn gekk á hann áöur en lagt var af staö suður
Strandirnar.
j*