Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1997, Page 47
LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997
55
________________________________________________________ bridge
k k
Stórmót Bridgefálags Sauðárkróks 1997:
Formaðurinn erfiður heim að sækja
Mikil hátíðahöld hafa staðið yfir
á Sauðárkróki á þessu ári og haldið
upp á hin ýmsu afmæli. Eitt þeirra
er 50 ára afrnæli Sauðárkrókskaup-
staðar. Bridgefélag Sauðárkróks
hélt Stórmót um síðustu helgi af
þessu tilefni og tókst það mjög vel
að sögn formannsins, Kristjáns
Blöndals. Kristján hirti bróðurpart
verðlaunanna ásamt félögum sín-
um, svo hann getur trútt um talað.
Helstu úrslit urðu annars þau að
sveitakeppnina vann sveit Rúnars
Magnússonar en með honum spil-
uðu Kristján Blöndal, Jónas P. Er-
lingsson og Eiríkur Hjaltason. í
öðru sæti var sveit Guðjóns Braga-
skák
sonar, Helga Bogasonar, Bjöms Þor-
lákssonar og Vignis Haukssonar.
í þriðja sæti var svo sveit Ás-
mundar Pálssonar, Aðalsteins Jörg-
ensens, Sveins R. Eiríkssonar og
Júlíusar Sigurjónssonar.
Tvímenningskeppnina unnu hins
vegar Akureyrarbræðumir og ís-
landsmeistararnir Anton og Sigur-
björn Haraldssynir. Sigurður B.
Þorsteinsson og Svemir Ármanns-
son urðu í öðru sæti en þriðja sæt-
inu skiptu með sér Kristján Blöndal
og Rúnar Magnússon, og Pétur Guð-
jónsson og Magnús Magnússon.
Sárabótatvímenninginn (B-úrslit)
unnu síðan Jónas P. Erlingsson og
Eiríkur Hjaltason.
Það er ekki oft sem menn komast
í slemmu eftir neikvæða sögn félaga
með ekki meira en 18 hápunkta. Ei-
ríkur Hjaltason varð hins vegar
reynslunni ríkari í þessu skemmti-
lega spili frá Sárabótatvímenningn-
um.
A/N-S
* 2
4* ÁDG853
♦ DG8
4 D97
4 DG98653
• 2
♦ -
4 K10863
4 K
» 10976
♦ 1097653
4 G2
Með Eirík og Jónas í a-v gengu
sagnirnar á þessa leið:
Þreföld skákveisla
fyrir austan
- Hannes Hlífar og Þröstur sigruðu á helgarmótum tímaritsins Skákar
Austfirskri skákveislu tímarits-
ins Skákar lauk með 49. helgarskák-
mótinu á Borgarfirði eystra um síð-
ustu helgi sem haldið var í sam-
vinnu við heimamenn. Flestir þátt-
takenda komu beint frá Skjöldólfs-
staðaskóla í Jökuldal þar sem teflt
var „millihelgamót“. Helgina áður
var svo teflt á Mjóafírði.
Hannes Hlífar Stefánsson stór-
meistari varð hlutskarpastur á mót-
inu á Mjóafírði, fékk 8,5 vinninga af
9 mögulegum. Hann gerði aðeins
eitt jafntefli, við Jóhann Hjartarson
stórmeistara, sem varð i 2. sæti með
8 vinninga. Jóhann leyfði tvö jafn-
tefli - móti Hannesi og Þresti Þór-
hallssyni stórmeistara sem varð sið-
an í 3. sæti með 6,5 v. Stórmeistar-
arnir röðuðu sér því í þrjú efstu
sætin en Ólafur Kristjánsson, Akur-
eyri, kom þar þétt á eftir - varð einn
í 4. sæti með 6 vinninga og hreppti
með því verðlaun fyrir besta
frammistöðu dreifbýlismanns. Best-
ur heimamanna varð Jóhann Þor-
steinsson, Reyðarfirði, unglinga-
Umsjón
Jón L. Árnason
verðlaun hlutu Hjörtur Ingvi Jó-
hannsson og Benedikt Bjarnason.
Sturla Pétursson hlaut öldungaverð-
laun.
Keppendur á Mjóafirði voru 24
talsins og var gerður góður rómur
að mótshaldinu.
Tveir urðu efstir og jafnir í Skjöl-
dólfsstaðaskóla; Þröstur Þórhalls-
son og Sævar Bjarnason sem fengu
6,5 vinninga úr 7 skákum - gerðu
innbyrðis jafntefli. Þriðja sæti
deildu Erlingur Þorsteinsson,
Gunnar Bjömsson og Guðmundur
G. Þórarinsson sem fengu 4,5 v.
Ólafur Kristjánsson hlaut aftur
verðlaun dreifbýlinga en bestur
heimamanna var Erlingur Þor-
steinsson sem búsettur er á Seyðis-
firði. Unglingaverðlaun hlutu Jakob
Hafþór Björnsson, Vallahreppi, og
Kristján Guðmundur Birgisson,
Reykjavík. Stinla Pétursson hlaut
enn og aftur öldungaverðlaun. Að-
stæður þóttu frábærar I Skjöldólfs-
staðaskóla og höfðu keppendur orð
á því að þar mætti hæglega koma
fyrir alþjóðlegum stórviðburði á
skáksviðinu.
Frá Jökuldal héldu skákmenn á
Borgarfjörð eystra. Þröstur Þór-
hallsson stórmeistari varð þar einn
í efsta sæti, hlaut 6,5 vinninga úr 7
skákum. Þröstur gerði jafntefli í síð-
ustu umferð við Gunnar Björnsson
og tryggði sér þar með sigurinn. Ró-
bert Harðarson varð einn í 2. sæti
með 5,5 vinninga en hann lagði
Sævar Bjarnason að velli í lokaum-
ferðinni. Sævar, Gunnar og Erling-
ur Þorsteinsson deildu 3. sæti með 5
v. Erlingur hreppti jafnframt verð-
laun fyrir besta frammistöðu dreif-
býlismanna; bestur heimamanna
var Gunnar Finnsson, Sturla var
bestur öldunga og Finnur Gunnars-
son og Jakob Hafþór Björnsson
hlutu unglingaverðlaun. Harpa Rún
Björnsdóttir hlaut kvennaverðlaun.
Þátttakendur á Borgarfirði eystra
voru 23 talsins. Stefnt er að því að
50. mótið verði haldið síðar á árinu,
m.a. í tilefni af 50 ára afmæli tíma-
ritsins Skákar. Hefur Viðeyjarstofa
verið nefnd sem hugsanlegur keppn-
isstaður.
Sleipur
unglingur
Englendingar binda miklar vonir
við upprennnandi skákstjömu, sem
heitir Luke McShane. Hann er að-
eins 13 ára gamall en hefur þegar
gert mörgum stórmeistaranum
skráveifu.
Fyrir skemmstu var haldið at-
skákmót í London sem bar yfir-
skriftina „Skandía ólympíumótið í
hugaríþróttum“. Þar voru þekktir
stórmeistarar meðal þátttakenda og
varð Michael Adams hlutskarpastur
- vann tíu skákir og gerði fimm
jafntefli í fimmtán umferðum. Ad-
ams er stigahæstur enskra skák-
manna og annálaður keppnismaður
í styttri skákum ekki síður en
lengri kappskákum. Matthew
Sadler, sem er í 2. sæti á enska
stigalistanum, varð í sama sæti á
hraðmótinu, vinningi á eftir Ad-
ams. Þess má geta að sigurvegarinn
hlaut 2.000 pund að launum og að
auki farmiða með Concorde- þotu til
New York.
Luke McShane tefldi á mótinu og
varð efstur unglinga með 9 vinninga
úr 15 skákum. Eftirfarandi skák við
stórmeistarann kunna og sókn-
djarfa, James Plaskett, tefldi McS-
hane skemmtilega. Þetta er allt að
því fyrirhafnarlaus sigur unglings-
ins eftir að stórmeistarinn leggur of
mikið á stöðuna með glannalegri
taflmennsku í byrjun skákar.
Hvítt: James Plaskett
Svart: Luke McShane
Sikileyjarvörn, Najdorf af-
brigðið.
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Bg5 e6 7.
Dd2 h6 8. Bxf6 Dxf6 9. f4 g5! 10.
g3 gxf4 11. gxf4 Dh4+ 12. Ke2?!
Rc6 13. Rf3 Dh5 14. Kf2 d5! 15.
Be2 Bc5+ 16. Kel d4 17. Rdl Bd7
18. Rf2 0-0-0 19. h4 Í5 20. Re5 De8
21. Red3 Bb6 22. e5 Re7 23. Bf3
Bc6 24. De2 Rd5 25. Hgl Hg8 26.
Hxg8 Dxg8 27. Bxd5 Bxd5 28. Kd2
Dg3 29. Hfl De3+ 30. Kel Bg2 31.
Hgl Bf3 32. Dxe3 dxe3 33. Rhl e2
34. Rhf2
34. - Hxd3!
- og Plaskett var fljótur að leggja
niður vopn. Ef 35. Rxd3 fellur hrók-
urinn á gl og ekki tæki betra við
eftir 35. cxd3 sem yrði svarað með
35. - Ba5+ 36. b4 Bxb4 mát.
Austur Suður Vestur Norður
14 pass 14 W
dobl V 3» pass
3G pass 9» pass
44 pass 64 pass
pass pass
Eitt lauf var Precision (16+) og
einn tígull var afmelding. Eiríkur
bjóst varla við geimi eftir það, hvað
þá slemmu!
Útspil suðurs var hjarta og norð-
ur drap á ásinn. Eftir smáumhugs-
un spilaði hann spaða til baka. Ei-
riki þótti ólíklegt að suður hefði ein-
ungis sagt tvö hjörtu með eyðu í
Umsjón
Stefán Guðjohnsen
spaða. Hann rak upp ásinn og
slemman var í húsi.
Bílar á
brandara-
verái !
Frúin hlær í betri bíl frá Bílasölu
Guðfinns.
V/ Miklatorg Sími 562-1055
Fax 562-1738
Athugið
Spartan School of Aeronautics
Spartan flugskólinn býbur nemendum
sínum til samfagnaðar í Hótel Keflavík
5. september 1997 kl. 18.00.
Komið og rifjið upp gömul kynni eða kynnist nýju fólki.
Fulltrúi frá Spartan flugskólanum Mr. Stan Gardner
verður á staðnum.
Vinsamlegasttilkynnið þátttöku með því að senda okkurfax
001-1-918-831-5287, E-mail: spartanaero@mail.webtek.com
eða í síma 001-1-918-836-6886
8820 East Pine Street Tulsa, Oklahoma 74115 USA
Heimsækið okkur á veraldarvefnum: www.spartanaero.com