Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1997, Qupperneq 49
T>1T LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 1997
Sigurður Flosason er einn þeirra
sem leikur jass á Jómfrúnni.
Jómfrúin:
Sumardjass
Djass verður leikinn á veit-
ingastaðnum Jómfrúnni við
Lækjargötu í dag kl. 16 til 18.
Fram kemur tríó, skipað þeim
Sigurði Flosasyni saxófónleikara,
Bimi Thoroddsen gítarleikara og
Þórði Högnasyni kontrabassa-
leikara. Tónleikamir fara fram
utandyra, á jómfrúrtorginu á
milli Lækjargötu, Pósthússtrætis
og Austurstrætis ef veður leyfir,
Tónlist
en annars inni á Jómfrúnni. Að-
gangur er ókeypis.
Þetta verða síðustu sumarjass-
tónleikamir á Jómfrúnni í sum-
ar en leikið hefur verið á öllum
laugardögum í júli og ágúst.
Wout segir ímynd myndefnisins
gera myndina.
Ljósmyndun:
Menningarlegt
sjónarhorn
Hollenski ljósmyndarinn Wout
Berger heldur í dag fyrirlestur í
húsakynnum Samtaka iðnaðar-
ins, Hallveigarstíg 1. Þar mun
hann sýna ljósmyndir eftir ýmsa
ljósmyndara. Myndimar spanna
150 ára sögu ljósmyndunar og
mun hann segja frá hvaða áhrif
þær hafa haft á hann. Einnig ætl-
ar hann að útskýra hvað það er
að hans áliti sem gerir það að
verkum að mynd er góð. Hann
orðar þetta þannig: „Það er ekki
myndefnið sem gerir myndina
heldur ímynd myndefnisins. Þetta
er ekki óraunhæf fullyrðing
vegna þess að ímynd myndefnis-
ins segir ýmislegt um ljósmyndar-
ann.“
Samkomur
Fyrirlesturinn hefst klukkan
15.00.
Þá hefst sýning á myndum
hans í dag klukkan 17 i ljós-
myndamiðstöðinni Myndási,
Skólavörðustíg 41. Sýningin er
opin frá kl. 10 til 18 virka daga og
10 til 16 laugardaga. Hún stendur
til 26. september.
dagsönn 5-
Norðlæg átt
Norðlæg átt, víða stinningskaldi
og rigning verður á landinu í kvöld
og nótt en að mestu verður þurrt á
Suður- og Suðvesturlandi.
Búist er við hægri, breytilegri átt
suðaustan til á morgun en annars
minnkandi norðan- og norðvestan-
átt með rigningu norðanlands en
skúrum syðra.
Hiti verður 5 til 14 stig, hlýjast
sunnan- og austanlands en svalast
við norðurströndina.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
Listakonumar Helena Junttila
og Ullamaija Hánninen opna sýn-
ingu á verkum sínum í Gallerí
Horninu, Hafnarstræti 15, klukk-
an 15 til 17 í dag.
Helena var í listanámi í
Helsinki en býr og starfar í Lapp-
landi. Hún sýnir málverk. Helena
hefur haldið nokkrar einkasýning-
norðankaldi eða stinningskaldi en
gola og kaldi síðdegis á morgun.
Skýjað með köflum en að mestu
þurrt. Hiti 6 til 11 stig.
Veðrið í dag
Um helgina og fram eftir næstu
viku lítur út fyrir vætusamt veður
um mest allt land. Austan- og norð-
austanáttir verða rikjandi. Fremur
hlýtt verður í veðri.
ar í Finnlandi og tekið þátt í sam-
sýningum víða um Evrópu.
Sýningar
UUamaija sýnir ljósmyndir.
Hún stundaði nám í ljósmyndun í
Helsinki og starfar þar sem ljós-
Skammt norður af Færeyjum er
990 mb lægð sem hreyfist norðvest-
ur. Önnur álíka djúp lægð er vestur
af Skotlandi sem mjakast norður og
síðar vestur á bóginn.
VeSrið kl. 6 í morgun:
Akureyri rigning 8
Akurnes skýjaó 12
Bergsstaðir rigning 8
Bolungarvík rigning og súld 5
Egilsstaðir þoka i grennd 9
Keflavíkurflugv. alskýjað 9
Kirkjubkl. alskýjaö 9
Raufarhöfn rigning 8
Reykjavík rigning 9
Stórhöfði súld 11
Helsinki heiðskírt 19
Kaupmannah. skýjað 18
Ósló skýjað 20
Stokkhólmur heióskírt 22
Þórshöfn alskýjað 12
Amsterdam skúr 15
Barcelona hálfskýjaó 16
Chicago skýjaö 17
Frankfurt skýjað 14
Glasgow lágþokublettir 11
Hamborg skýjað 15
London skýjaö 15
Lúxemborg skúr á síð. kls. 12
Malaga hálfskýjað 17
Mallorca skýjað 16
París skýjað 13
New York
Orlando léttskýjað 23
Nuuk léttskýjað 2
Róm léttskýjað 23
Vín skúr 13
Winnipeg
myndari. Hún hefur tekið þátt í
um tug sýninga og í fyrra kom út
ljósmyndabók hennar, „Stone
Age“.
Sýningin stendur til 10. septem-
ber og verður opin aUa daga kl. 11
til 23.30, en sérinngangur gaUerís-
ins er þó aðeins opinn kl. 14 tU 18.
Fétögunum semur ekki sem
skyldi.
Engu að tapa
Bíóborgin og Kringlubíó sýna
enn gamanmyndina Engu að tapa
eða Nothing to Lose.
Lífið gæti ekki versnað hjá
auglýsingastjóranum Nick Beam
(Tim Robbins). AUt samband
Íhans við raunveruleikann hefur r
verið rofið eftir að hann kom að
eiginkonu sinni í rúminu með yf-
irmanni sínum. í algjöru losti
gengur hann út og ekur burt.
Vandamálin eru hins vegar rétt
að byrja því á næstu umferðar-
ljósum verður hann fyrir bUa-
Kvikmyndir
þjófi (Martin Lawrence) sem
hetði ekki getað valið verri mann
tU að ræna. Nick, sem er alveg
sama um aUt, snýr leiknum við
og rænir bílþjófinn. Eftir æðisleg-
an eltingaleik, klúðurslegt rán og
mikla hefnd tekst vinátta með
Nick og þjófnum.
Aðrir leikarar í Engu að tapa
eru John C. McGinley, Gincarlo
Esposito, KeUy Preston og Mic-
hael McKean.
Nýjar myndir:
Háskólabió: Speed 2
Laugarásbió: Trial and Error
LKringlubíó: Engu að tapa
Saga-bíó: Blossi
Bíóhöllin: Speed 2
Bíóborgin: Engu að tapa
Regnboginn: Pallberer
Stjörnubíó: Blossi
ÍBV mætir Keflavík í bikarnum.
Landsleikur kvenna
Kvennalandsliðið í knattspyrnu
mætir sænska landsliðinu á Laug-
ardalsvelli kl. 14.00 i dag.
Þá verður einn leikur í 1. deUd
karla þegar Dalvík tekur á móti
Þrótti R. á DalvíkurveUi kl. 14.
íþróttir
Fjórir leikir fara fram í 2. deUd
karla. Á GarðsveUi mætast Viðir
og Þróttur N., á Reyðarfiarðar-
velli mætast KVA og HK, á
Sindravelli mætast Sindri og
Leiknir R. og Ægir leikur við
Völsung í Þorlákshöfn. AUir leik-
irnir hefiast kl. 14.
Bikarúrslit
Bikarúrslitin í Coca-Cola bik-
arnum fara fram á morgun. Kefla-
vík og ÍBV mætast að þessu sinni
og hefst leikurinn kl. 14.
Gengið
Almennt gengi LÍ
29. 08. 1997 kl. 9.15
Eininq Kaup Sala Tollqenqi
Dollar 71,520 71,880 71,810
Pund 115,950 116,540 116,580
Kan. dollar 51,410 51,730 51,360
Dönsk kr. 10,4660 10,5210 10,8940
Norsk kr 9,6400 9,6930 10,1310
Sænsk kr. 9,1500 9,2010 9,2080
Fi. mark 13,2760 13,3540 13,8070
Fra. franki 11,8420 11,9100 12,3030
Belg. franki 1,9293 1,9409 2,0108
Sviss. franki 48,2000 48,4600 48,7600
Holl. gyllini 35,3700 35,5800 36,8800
Þýskt mark 39,8600 40,0600 41,4700
ít. líra 0,040670 0,04093 0,04181
Aust. sch. 5,6610 5,6960 5,8940
Port. escudo 0,3926 0,3950 0,4138
Spá. peseti 0,4715 0,4745 0,4921
Jap. yen 0,599000 0,60260 0,56680
írskt pund 106,540 107,200 110,700
SDR 96,870000 97,45000 97,97000
ECU 78,2100 78,6800 80,9400
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270
Finnsku listakonurnar sýna Ijósmyndir og málverk.
Myndgátan
Hurð fellur að stöfum
Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði.