Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1998, Page 25
JL*'V LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1998
★
★
fréttir.
Fjölskyldan stóra. Ingunn, Birkir, Aron, Elísabet, Bjarni, Markús og Elías.
DV-mynd ÞOK
Sjö manna fjölskylda er nýkomin frá kristniboðsstörfum í Eþíópíu:
Með kristniboð
í blóðinu
Bjami Gíslason og Elisabet Jóns-
dóttir störfuðu um fimm ára skeið
sem kristniboðar í Addis Abeba,
höfuðborg Eþiópíu. í tilefni þess að
kristniboðsdagurinn er á morgun
hittum við Bjama og Elísabetu á
heimili þeirra.
Þau komu heim aftur í júní og
vora þá tveimur bömum ríkari en
þegar þau fóru út árið 1993. Eþíópía
var ekki alls ótengd þessari fjöl-
skyldu því að Bjarni ólst þar upp
fyrsta hluta ævi sinnar en foreldrar
hans vom kristniboðar þar í fjölda
mörg ár. Bjarni og Elísabet unnu
meira að segja í sama skóla og
Bjarni gekk í þegar hann var lítill.
Skólinn er norskur grunnskóli en i
hann ganga böm frá Noregi, Dan-
mörku og íslandi.
„Eþíópía hefur alltaf verið í huga
mér eftir að ég var þar sem barn.
Mig langaði alltaf að fara aftur út
þótt það væri ekki nema í heim-
sókn. Staðurinn sat mjög í mér en
það var öðmvísi að koma til baka
fullorðinn. En ég var samt að koma
til baka til einhvers," segir Bjami.
Fjölskyldan kunni mjög vel við sig
í Eþíópíu og eignaðist góða vini.
„Það er einkennandi fyrir Eþíópíu-
menn að þegar maður eignast vini þá
eru þeir góðir og traustir. Þeir era
gestrisnir og vinir vina sinna,“ segir
Elísabet.
Nokkur munur er á íslendingum
og Eþíópíumönnum, að mati þeirra.
„Stærsti munurinn er í tímaskyni.
Fyrir Eþíópum þá kemur tíminn,
hann flýgur ekki frá okkur. Það gef-
ur allt annað sjónarhorn á lífið,
miklu rólegra yfirbragð og minna
stress. Það er þveröfugt hér, tíma-
leysið og lífsgæðakapphlaupið áber-
andi. Samt er mikið af vandamálum
í Eþíópíu, mikið atvinnuleysi og fá-
tækt,“ segir Bjami.
„Þeir una glaðir við sitt. Margir
sem komu í heimsókn til okkar
fannst brosið svo áberandi. Viðmótið
hefur svo sterk áhrif. Fólk hefur svo
mikið að gefa þrátt fyrir eymdina,"
segir Elísabet.
Trúin er sterkur þáttur
Trúarbrögð í Eþíópíu eru fjöl-
breytt. Þar er auk lútherstrúarinn-
ar aldagömul rétttrúnaðarkirkja,
Múhameðstrú, baptistakirkja og
svo em margir sem trúa á stokka
og steina. Bjami og Elísabet segja
það mjög þakklátt að boða Eþíópíu-
mönnum trú.
„í lífi þeirra sem tóku trú er trú-
in mjög sterkur þáttur," segir
Bjarni. „Þeir starfa með kirkjunni
og leggja sig algjörlega í það starf
fyrir þann guð sem þeir trúa á. Þar
held ég að við getum lært mikið, að
láta trúna vera drifkraft i lífi okk-
ar. í Eþíópíu em enn þann dag í
dag margir sem aldrei hafa heyrt
um Krist og vita ekki hver hann er.
Þéss vegna eram við i þessu starfi.
Skólar era reistir, sjúkrahjálp veitt
og orðið er boðað til að fleiri fái
tækifæri til að kynnast boðskapn-
um sem okkur þykir svo mikilvæg-
ur. Um það snýst þetta allt saman."
Þau telja að ekki veitti af að
koma hinum kristna boðskap enn
meira á framfæri á íslandi.
„Við leitum öll að hamingju,"
segir Bjami. „Það hlýtur að vera
grundvallarþörf mannsins. Þá er
spumingin hvar hamingjan finnst.
Ef hún finnst ekki í einu þá heldur
leitin áfram. Hin kristna trú gefur
manni lífsfyllingu þannig að ann-
ars staðar þarf ekki að leita. Það er
ekki þar með sagt að maður taki
ekki þátt í lífsgæðakapphlaupinu.
Maður þarf að vara sig á þvi að
hlaupa ekki endalaust á eftir gæð-
um heimsins. Þeir sem hafa ekki
þessa trúarvissu og lífsfyllingu held
ég að leiti enn sterkar að einhveiju
öðra. Trúin gefur frið. En trúarþörf
mannsins er sú sama í Eþíópíu og á
íslandi. Við hér á íslandi höfum
kannski meira til að fylla líf okkar
með. Það má segja að þess vegna sé
á margan hátt auðveldara að boða
þeim trúna en íslendingum."
Ætlið þið aftur til Eþíópíu?
„Við vitum ekkert um það í dag
en við erum ekki búin að loka
neinni bók.“
-sm
Gott tilboð!
• Bolir úr undraefninu „microfiber".
* Einstaklega mjúkir og þægilegir.
• Margir litir.
• Stærðir S-M-L-XL
* Verð aðeins 1.000.
Laugavegi 40 - sfmi 551 3577
n
„Ef þu kaupir
ekki a okkur
almennilega
sokka þa köllum
við bara a
sveppina"
iX'k >"cc- oorur V" ■: c... r: \
SOCKSHOP
DEFINITIVE BODY WRAPPING
KRINGLUNNI 4-1 2, SÍMI 553 70I0
Ragnar Björnsson
Dalshraun 6, Hafnarfirði • Sími 555 0397
á RB-rúmi
Gæðarúm
á góðu verði
Svíf bú inn í svefnimL.