Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1998, Page 29
DV LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1998
Gefur út sólóplötu
ellefu ára gamall
Ragnar Sólberg Rafnsson hélt á fimmtudagskvöldið útgáfutón-
leika í íslensku óperunni þegar hann hitaði upp fyrir hljomsveit-
ina Nýdönsk. Ragnar er ellefu ára og er sonur Rafn Jónssonar
tónlistarmanns. Platan sem Ragnar er nýbúinn að gefa út heitir
Upplifun og eru á henni 8 lög sem öll eru frumsamin auk þess
sem hann semur textana Ifka. Platan er tekin upp heima hjá
Rafni Jónssyni og spilar Egill, bróðir Ragnars, a trommur á
plötunni. DV-mynd Teitur
Fálki á gæsaveiðum
Vakið hefur athygli skotveiði-
manna í næsta nágrenni Blönduóss
fálki sem virðist hafa mestan áhuga
á að veiða gæsir sér til matar. Þessi
fálki hefur sést uppi á Grímstungu-
heiði og við Blönduvirkjun í sömu
erindagjörðum, að veiða sér gæsir til
matar.
„Ég er búinn að sjá hann tvisvar
sinnum og hann hefur mestan áhuga
á gæsunum, en ekki rjúpunum eins
og maður skyldi ætla,“ sagði Sig-
hvatur Steindórsson og bætti við:
„Það voru rjúpur við Blönduvirkjun
en fálkinn elti fjórar gæsir þegar ég
sá hann en lét rjúpuna vera meðan
ég var þama,“ sagði Sighvatur enn
fremur.
Fálkinn er kannski búinn að sjá
að gæsin er matarmeiri en rjúpan.
Það hefúr sést óvenjumikið af fálka
á þessum slóðum síðustu vikiunar.
Áhrif Silfurlax minnka:
„Þetta er allt annað"
— segir Sigurður G. Steinþórsson
„Þetta var ailt annað i sumar hjá
okkur, við fengum laxa í Laxá og í lok-
in var mikið af flski eftir í ánni. Við
veiddum 121 lax núna í sumar en 46 í
fyrra,“ sagði Sigurður G. Steinþórsson,
einn af leigutökum Laxár á Skógar-
strönd í samtali við DV. En betri tíð
virðist vera í vændum í Dölunum eftir
frekar mögur ár í laxveiðiánum. Ailar
laxveiðiámar á svæðinu bæta sig á
milli ára núna nema ein. Áhrif Siifur-
lax minnka með hverju ári enda nást
þar miklu færri laxar. Besta árið gaf
þeim 100 þúsund laxa og laxveiðiámar
í Dölunum áttu um 10% af þeirri veiði,
eða á íslensku, 10 þúsund laxa.
En við skulum líta aðeins á blákald-
ar staðreyndir frá sumrinu og renna
yfír veiðiárnar sem við erum með töl-
ur úr. Laxá á Skógarströnd gaf 121 lax
í sumar en 46 laxa í fyrra. Hörðudalsá
gaf 20 laxa núna en 17 árið áður. Miðá
og Tunguá gáfu 110 laxa en 31 í fyrra.
Haukadalsá bætti sig langmest milli
ára en hún gaf 915 laxa en 331 sumarið
áður. Glæsileg viðbót. Laxá í Dölum
var í fínu formi í sumar og gaf 1400
laxa en 764 árið áður. Viðbótin þar er
mjög góð. Fáskrúð gaf 265 laxa núna en
144 sumarið áður. Flekkudalsá gaf 248
G. Bender
laxa en árið áður 148. Krossá gaf 50
laxa en 28 í fyrra. Búðardalsá gaf 42
laxa en 59 sumarið áður. Hún gaf að-
eins eftir þetta árið. Hvolsá og Staðar-
hólsá gáfu 53 laxa núna í sumar en 25
laxa árið áður.
Þetta þýðir svart á hvítu að veiðiám-
ar gáfu næstum 3300 á móti 1600 árið
áður. Viðbótin á milli ára er næstum
helmingi meiri af stangarveiddum laxi
eða um 1700 laxar. Plús allir laxamir
sem komu í ámar en fengust ekki til að
taka agn veiðimanna.
Þetta sýnir það svart á hvítu að um
leið og veiðin minnkar hjá þeim í Silf-
urlaxi batnar veiðin í laxveiðiánum.
%ríðsljÓS 29
ILeonardo DiCaprio gefur bókasafni
í Los Angeles 2,5 milljónin
Þjóðarbókhlaðan
þarfnast manna
eins og Leonardos
Leon-
ardo
DiCaprio
gæti sagt
upp öllu al-
manna-
Itengsla-
fólkinu
sínu og
reitt sig al-
gjörlega á
móður
sína. Hún fékk hann nefnilega
til þess að gefa almennings-
bókasafni í Los Angeles 2,5
milljónir króna. Leonardo er al-
inn upp á slóðum bókasafnsins
og móðir hans býr enn í hverf-
inu og því skiljanlegt aö Titan-
ic-kúturinn vilji styðja við les-
glaða nágranna sina. Þegar
svona fréttir berast mætti ætla
að Einar Sigurðsson landsbóka-
vörður sé svekktur yflr því að
Leonardo hafi ekki alist upp á
Melunum.
Helmingur þjódarinnar
endurspeglast ekki lýdræðislega á Alþingi
Það sem skilur okkur að
gerir okkur sterkari sem heild.
íslendingar eru heild ólíkra einstaklinga, karla og kvenna,
með fjölbreytta reynslu og viðhorf.
Alþingi íslendinga hefur það höfuðverkefni að standa vörö
um lýðræðið,
- rétt og velferð hvers íslendings.
Lýðræðið felur í sér jafnrétti
- jöfn tækifæri einstaklinga af báðum kynjum, meðal annars
til náms, starfa, launa og ábyrgðar.
Konur eru helmingur þjóðarinnar.
Alþingi íslendinga hefur hingað til ekki náð að endurspegla
það hlutfall.
Sjónarmið beggja kynja hafa ekki náö lýöræöislegu jafnvægi.
Það er þjóðinni I hag að ólíkum sjónarhornum beggja kynja sé gert
jafn hátt undir höfði. Þess vegna er aukin þátttaka kvenna
í stjórnmálum hagur íslensku þjóðarinnar.
Ráöherraskipuð nefnd
til aö auka hlut kvenna í stjórnmálum
HÉR t NÚ / SlA / Ijósm. Kriilján Log,