Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1998, Blaðsíða 39
JjV LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1998
47
trúarbrögð
*★ *
köldu landi
“Hamingja er þaö að vera ánœgð-
ur og þarfnast einskis. Sumir
byggja hamingju sína á hlutum og
þurfa að eignast þetta og hitt. En
hamingjan kemur að innan og aó-
eins þaðan. “
Áhugi á fjarlægum trúarbrögðum
hefur aukist mjög á íslandi og hefur
þessi áhugi einna helst beinst að
búddatrú. Þessa dagana eru enskir
búddistar staddir hér á landi og
munu þeir halda fyrirlestra hjá
Guðspekifélaginu 8., 11., 15. og 18.
nóvember.
Þau hétu einu sinni David og
Colette en heita nú Kelsang Lodro
og Kelsang Thogme. Þau búa bæði í
Brighton. Hún var háskólanemi
þegar hún kynntist trúnni og hann
hafði unnið í spilavíti í 10 ár. En
hvemig kynntust þau búddatrúnni?
„Fyrir löngu hitti ég mann á krá
og fór að ræða við hann. Hann bjó í
búddísku samfélagi og bauð mér
þangað. Ég fór og varð undir eins
hugfanginn af samfélaginu og bjó
þar í fimm ár,“ segir Kelsang Lodro.
„Ég var í háskóla og tveir vinir
mínir lögðu stund á trúarbragða-
fræði,“ segir Kelsang Thogme. „Þeir
sóttu fyrirlestra Kelscmgs Lodro og
voru alltaf að þrýsta á mig að koma
með en ég vildi það ekki. Eftir að
þeir höfðu sótt fyrirlestra og hug-
leiðslu reglulega í hálft ár sá ég hve
góð áhrif það hafði á líf þeirra og
skellti mér þvi lika.“
Hamingjan fyrir mestu
„Trúin hefur gefið mér allt.
Stærsta gjöfin er að ég get hjálpað
ööram í gegnum kennslu mína og
hugleiðslu," segir Kelsang Lodro.
Hann saknar ekki þess lifs sem
hann lifði áður en hann kynntist
búddatrúnni. „Þegar maður vinnur
í spilavíti sér maður best að ekki er
RÆSTINGAR
FYRIRTÆKJA
RÆSTINGAR
STOFNANA
RÆSTINGAR
HEIMILA
A
JUk Arnarberg ehf.
Fossháls 27 • Draghálsmegin
Símí 567 7557 • Fax 567 7559
Kelsang Thogme og Kelsang Lodro eru stödd hér á landi til að kynna íslend-
ingum búddatrú og munu halda fjóra fyrirlestra á næstu vikum.
DV-mynd Pjetur
hægt að kaupa hamingju. Þar er
mikið af ríku og vansælu fólki."
Foreldrar hans voru í fyrstu ekki
ánægð með ákvarðanir hans, vildu
að hann fengi sér almennilega
vinnu. Vinnan í spilavítinu hafði þó
ekki verið almennileg heldur.
„En allir foreldrar vilja að bömin
þeirra séu hamingjusöm og foreldr-
ar mínir hafa séð hve góð áhrif trú-
in hefúr haft í lífi mínu og sætta sig
því við það.“
Þeim líkar vel við ísland, finnst
það hreint, yndislegt og hljóðlátt.
„En ég hef ekki farið út um helgi,“
segir Kelsang Lodro. „Ég þyrfti að
rannsaka það nánar.“ -sm
lyftibotnar
sængur
heilsukoddar
rúmfatnaður
Ertu búinn að
skipta um loftsíu?
Komdu í skoðun
Nýbýlavegi 4-8
S. 563 4400
TOYOTA
gerið reyfarakaup í
svefnherbergisvörum
Grensásvegi 3 108 Reykjavík
Sími 568 1144 Fax 588 8144
Heimasíða atiantis.mmedia.is/ingvaroggylfi
4
Opið laugardag kl. 10-18, sunnudag kl. 12-16