Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1998, Qupperneq 2
LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1998
* *
★
ÍK
\fréttir
43 ára Reykvíkingur sakfelldur fyrir „illa fengnar“ 30 milljónir króna:
20 mánaða fangelsi
fyrir að svíkja ekkju
Héraðsdómur Reykjavíkur
dæmdi í gær Sigurð Kárason, 43 ára
Reykvíking, í 20 mánaða fangelsi
fyrir misneytingu með því að not-
færa sér bágindi aldraðrar ekkju til
að hafa af henni á fjórða tug millj-
óna króna og fá hana til að breyta
erfðaskrá til að tryggja eigin hags-
muni. Hann var einnig dæmdur til
að greiða fjárhaldsmanni konunnar
rúmar 30 miiljónir króna.
Stærsti ákæruliðurinn fólst í því
að Sigurður fékk ekkjuna 19 sinnum
til að taka út af sparireikningum
hennar í Búnaðarbanka íslands,
samtals 28,4 milljónir króna. Fénu
ráðstafaði hann í eigin þágu. Dóm-
urinn taldi einnig sannað að ákærði
hefði notfært sér bágindi konunnar,
sem þjáðist af alzheimer-heilarým-
un, til að afhenda lánardrottni Sig-
urðar 2,4 milljóna króna skuldabréf
upp í skuld hans. í þriðja lagi var
Sigurður sakfelldur fyrir að hafa
fengið hina öldruðu konu, sem hef-
ur verið svipt fjárræði að eigin ósk,
til að breyta erfðaskrá sinni. Það
var gert á þá leið að ef Sigurður
skuldaði henni peninga við lát
hennar myndi skuidin falla niður.
Ákærði fullyrti alltaf að greiðsl-
urnar hefðu verið lán sem konan
veitti honum með fullri vitund á ár-
unum 1995-’97. Hann hefði alltaf
ætlað að endurgreiða henni. Um
þetta segir dómurinn:
„Er ljóst að ákærði hafði enga
fjárhagslega burði til að endur-
greiða konunni nema óverulegan
hluta þess fjár sem hann veitti mót-
töku. Einnig verður í þessu sam-
bandi að hafa í huga aldur hennar
og það að hann hafði ekki endur-
greitt mikið fé frá árinu 1987.
Dómurinn taldi að Sigurði hefðu
mátt vera ljós bágindi konunnar
vegna ellihrörnunar hennar og ein-
feldni - kona sem ekki hafði þurft
að hugsa um íjármál á langri ævi.
Einnig var litið til þess að Sigurður
hafði annast konuna og þess að hún
hefði verið honum háð um ýmsa
hluti. Með þessu taldist sönnun
fram komin um að ákærði hefði
nýtt sér bágindi hennar þar sem
„gífurlegir fjármunir” voru annars
vegar.
Hjördís Hákonardóttir héraðs-
dómari kvað upp dóminn i gær.
-Ótt
Jakob með
mest fylgi
Jakob Björnsson, fyrrverandi
bæjarstjóri á Akureyri, sem keppir
að fyrsta sæti Framsóknarflokksins
við alþingiskosningarnar í vor, hef-
ur 55% fylgi samkvæmt skoðana-
könnun sem Háskólinn á Akureyri
vann fyrir dagblaðið Dag. Valgerður
Sverrisdóttir, þingmaður flokksins,
hefur 35% fylgi samkvæmt sömu
könnun. Svæðisútvarpið á Akureyri
sagði frá.
FBA-bréfin afar
eftirsótt
Margfóld eftirspum var eftir bréf-
um í Fjárfestingarbanka atvinnulífs-
ins miðað við framboð. Um 11 þúsund
manns gerðu tilboð í bréfin. Það þýð-
ir að hæsti hlutur sem seldur verður
er 360 þúsund krónur að nafnverði.
Kristinn formaður
Kristinn Guðnason, stórbóndi á
Skarði í Landsveit, var óvænt kos-
inn formaður Félags hrossabænda.
Fyrri formaður, Bergur Pálsson,
hætti við framboð þegar fyrir lá
„hallarbylting” Kristins og stuðn-
ingsmanna hans.
Ríkisútvarpið sagði frá.
Eldur kviknaði í bflhræjum á palli flutningabfls sem var á ferð á Reykjanesbrautinni, á móts við völl Hauka í Hafnar-
firði, í gær. Slökkvilið var kvatt út og réð það fljótlega niðurlögum eldsins.
DV-mynd E.ÓI.
Nesjavellir:
Vélarnar stóðust prófið
„Þetta var ansi snarpur skjálfti,
næstum fimm stig á Richter, sem
reið hér yflr og menn voru auðvitað
svolítið skelfdir vegna nýju jarð-
gufuvirkjunarinnar, en það var
ástæðulaus ótti. Hún er svo vel gerð.
að það fannst varla fyrir kippnum
sem var þó einn sá mesti sem hefur
fundist um áratuga skeið,“ sagði Jó-
hann Kristinsson hjá Hitaveitu
Reykjavíkur þegar hann var spurð-
ur hvernig virkjuninni hefði reitt af
í jarðskjálfta morgunsins.
„Ég er auðvitað himinlifandi og
liggur við að menn hér hjá Heklu
taki tappa úr kampavínsflösku,”
sagði Sigfús Sigfússon hjá Heklu
sem er með umboð fyrir Mitsubis-
hi-verksmiðjumar í Japan, fram-
leiöanda vélanna í nýju virkjun-
inni. „Við sögðum að vélamar
myndu þola sterkan jarðskjálfta
og prófið kom svo að segja á
fyrstu dögum virkjunarinnar. Það
er því komin frábær reynsla á
þær.“
Skólabörn f Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi hafa drukkið lýsi alla þessa
viku til að safna fé fyrir Neistann, styrktarfélag hjartveikra barna. í tilefni 60
ára afmælis Lýsis, gaf fyrirtækið lýsi í þessa sérstöku söfnun og hét að gefa
15 krónur í söfnunina fyrir hvern millflítra sem drukkinn var. Alls runnu 30
þúsund ml ofan í börnin, eða 30 lítrar. Söfnuðust þannig 450 þúsund krónur
sem afhentar voru Neistanum í gær. Lýsi heitir á fleiri að safna fé á þennan
hátt til góðgerðarmála og býðst af því tilefni til að gefa hinn heilnæma vökva.
Fjárskaðar í Þistilfirði og á Vopnafirði:
Féð hefur sligast
undan snjónum í
krapahríð og drepist
DV, Akureyri:
„Það er því miður ekki hægt að
reikna með öðra en að aðeins örfáar
af þeim kindum sem enn vantar séu
lifandi, þetta er afar erfitt viðureignar
og það er allt annað en skemmtilegt
að standa í þessu,“ segir Marinó Jó-
hannsson, bóndi í Tunguseli í Þistil-
firði, en hann hefur orðið fyrir mikl-
um fjárskaða að undanfórnu. Sömu
sögu er að segja af fleiri bændum,
bæði í Þistilfirði og Vopnafirði, en þó
er greinilegt að tjón Marinós er mest.
Snögg veðrabrigði í upphafi vetrar
komu mönnum í opna skjöldu, snjó
kyngdi skyndilega niður áður en tek-
ist hafði að fara í þriðju leitir og vet-
ur skall á eftir afar slakt sumar.
Nokkuð var því enn af fé upp til
heiða, sérstaklega í Tunguselsheiði,
og er ljóst að stór hluti þess hefur
drepist. En með geysilegri vinnu hef-
ur engu að síður tekist að bjarga tals-
verðum íjölda fjár og koma því til
byggða þrátt fyrir að mikil ótíð hafi
gert mönnum erfitt um vik.
„Það vantar enn hjá mér um 70
kindur, sennilega eru þar af rúmlega
20 ær en hitt era lömb og því miður sé
ég ekki að við finnum nema sáralítinn
hluta þeirra lifandi úr þessu. Við höf-
um farið nánast alla daga fram til
heiða þegar viðrað hefur og hefur tek-
ist að bjarga 40-50 kindum frá þremur
bæjum. Einu farartækin sem hægt
hefur verið að koma við eru vélsleðar
og með heimasmíðaða „plastbáta”
undir féð aftan í þeim hefur tekist að
bjarga því sem bjargað hefur verið,“
segir Marinó.
Hann segir líklegt að krapahríð
hafi leitt til þess að blautur snjórinn
hafi hlaðist á kindumar, þær margar
hverjar sligast undan honum og drep-
ist. Linnulaus ótíð hefur svo orðið til
þess að mjög erfitt hefur verið að
komast upp á heiðar til að bjarga
þeim kindum sem bjarga hefði mátt.
Bændur í Vopnafirði hafa einnig
orðið fyrir fjárskaða og segir Karl
Steingrímsson bóndi á Hróarsstöðum
að þar á bæ vanti enn um 30 fjár sem
að mestu leyti er í eigu bróður hans
sem býr einnig á jörðinni. „Við höfum
þó verið að finna talsvert af fé lifandi,
það hefur þá verið illa á sig komið og
í svelti en við höfum náð að koma því
til byggða. Þetta er ansi erfitt ástand
og ég reikna ekki með að við eigum
eftir að finna meira fé lifandi,” segir
Karl. -gk
stuttar fréttir
Nýr samningur
Ríkisútvarpið greindi frá því
að gerður hefði verið nýr nor-
rænn samningur um sameigin-
legan norrænan vinnumarkað
fyrir starfsfólk í heilbrigðis-
þjónustu og á dýraspítölum.
Læknar og hjúkrunarfræðingar
hafa helst nýtt sér samninga
um sameiginlegan norrænan
vinnumarkað og hafa flestir far-
ið til starfa í Noregi.
Laxinn rannsakaður
Sjónvarpið greinir frá því að
Össur Skarphéðinsson (JA) vilji
að landbúnað-
arráðuneytið
hrindi í fram-
kvæmd rann-
sóknum á sjáv-
arvist laxa. í
þingsáiyktun-
artillögu, sem
Össur flytur______________
ásamt Gísla S. Einarssyni, segir
að rannsóknin eigi að miða að
því að kanna tengsl milli um-
hverfisaðstæðna í hafi og vaxtar
og endurheimta.
Samþykkti tillögu
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins hefur samþykkt tillögu að
tilskipun um skyldu vinnuveitenda
til að hafa samráð við starfsmenn
og upplýsa þá um breytingar á
rekstri. RÚV greindi frá.
Fyrirgefning syndanna
Fyrirgefning syndanna eftir
Ölaf Jóhann
Ólafsson er nú
komin út í
nýrri innbund-
inni útgáfu í
Þýskalandi hjá
Steidl Verlag.
Bókin kom
fyrst út þar í
landi árið 1995 hjá sama forlagi
og hlaut lofsamlega dóma.
Oiíu- og gasrannsóknir
Starfshópur sem iðnaðarráð-
herra skipaði haustið 1997 tfi að
meta hvort rétt sé að heja rann-
sóknir á því hvort olía eða gas
fmnist á landgrunni íslands telur
nokkrar likur á því að finna olíu-
myndandi berg í setlögum á
Norðurlandi.
Fiugfélag áfrýjar
Forsvarsmenn Flugfélags ís-
| lands eru að íhuga að áfrýja til
! dómstóla skilyrði samkeppnisyf-
irvalda um að félagið þurfi að
láta Samkeppnisstofnun vita ef
það ætlar að gera breytingar á
flugáætlun innanlands.
Bylgjan sagði frá.
Nýr meirihluti
Nýr bæjarstjórnanneirihluti
Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks
í Austur-Héraði hefur veriö
myndaður og er nú verið að
kynna hann á blaðamannafúndi
á Egilsstöðum.
Tveir préfastar
Karl Sigurbjömsson, biskup ís-
lands, mun næstkomandi sunnu-
dag, 15. nóvem-
ber setja tvo
prófasta í emb-
ætti. Þetta eru
þau sr. Hall-
dóra Þórðar-
dóttir í Rangár-
vallaprófasts-
dæmi og sr.
Haraldur M. Kristjánsson í
Skaftafellsprófastsdæmi.
Enn eitt fikniefnamáliö
Lögreglan á Akureyri handtók
karlmann sl. mánudag og reyndist
hann hafa í fórum sínum 5 grömm
af hassi og 10 grömm af am-
fetamíni. Maöurinn var vistaður í
fangahúsi og handtekinn í frarn-
haldinu annar maður sem viður-
kenndi að eiga helming efnisins.
Við frekari rannsókn málsins kom
í ljós að mennimir höfðu fengið
efnin send frá Reykjavík.
-gk/SJ/BOE