Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1998, Page 6
6
LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1998 JLÞ'\r
Stjórnarkreppa yfirvofandi í Noregi:
Bondevik á valdi
andstæðinganna
DV, Ósló:
„Ég trúi ekki að flokkarnir til
hægri svíki okkur. Það væri til þess
að færa Verkamannaflokknum völd-
in á silfurfati," segir séra Kjell
Magne Bondevik, forsætisráðherra
Noregs, og viðurkennir þar með fús-
lega að það eru menn eins og Carl I.
Hagen sem ákveða hvort og hve
lengi hann situr að völdum. Án
stuðnings Hagens verða engin fjár-
lög samþykkt og stjómin verður að
hrökklast frá.
Tilraunir séra Kjefls Magne til að
-afla fjárlagafrumvarpi sínu stuðn-
ings hafa enga árangur borið síðustu
vikur. Flokkarnir til hægri við
stjórnina segja að skattar og aðrar
álögur hækki of mikið. Flokkarnir
til vinstri geta ekki samþykkt þá ný-
breytni að foreldrar fái greitt beint
heim til að gæta barna sinna. Þetta
ákvæði varð til þess að Verka-
mannaflokkurinn neitaði séra Kjell
Magne um stuöning í fyrradag.
Þar með situr allt fast og stjórnar-
kreppa vofir yfir í Noregi. Séra Kjell
Magne á aðeins vísan stuðning íjórð-
ungs þingmanna og getur ekki setið
áfram við völd ef fjárlagafrumvarpið
verður fellt. Staðan i norsku stjórn-
málunum versnar svo enn við að
samkvæmt stjórnarskránni er ekki
heimilt að rjúfa þing. Því er enginn
möguleiki á að mynda nýja stjórn
eins og skiptingin milli flokkanna á
þingi er nú. í gærkvöld gaf séra Kjell
Magne í skyn að eina lausnin væri
að breyta fjárlagafrumvarpinu
þannig að þingmenn á hægri vængn-
um gætu samþykkt það. -GK
Karl Bretaprins er fimmtugur í dag. í Sheffield var prinsinum gefin þessi blaðra í gær en þar heimsótti hann meðal
annars athvarf fíkniefnaneytenda áður en hann hélt til Buckinghamhallar. Elísabet Englandsdrottning hélt honum
veislu í höllinni og bauð 850 gestum til kampavínsdrykkju. í kvöld heldur ástkona Karls, Camilla Parker Bowles,
veislu fyrir hann í Highgrovekastala. Er fjölmörgu kóngafólki í Evrópu boðið til veislunnar í kastalanum.
Símamynd Reuter
Bandaríkin telja ekki nauðsynlegt að Annan fari til íraks:
Engin þörf á málamiðlun
(útlönd
stuttar fréttir
Petersen burt
Félagar Fólkaflokksins í ríkis-
stjórn Færeyja þrýsta nú mjög á
lögmann aö víkja John Petersen
sjávarútvegsráðherra úr emb-
ætti, að því er færeyska blaðið
Dimmalætting segir. Peter, sem
hefur verið ákærður fyrir að
nauðga 17 ára stúlku fyrir þrem-
ur árum, er í leyfi þar til dæmt
verður i málinu.
Vöruðu Arafat við
j Bandariska leyniþjónustan
J CIA greindi Yasser Arafat, leið-
toga Palestínu,
frá ráðabruggi
hryðjuverka-
mannsins
Abus Nidals
um að myrða
hann á átt-
unda áratugn-
um. Þá var
Arafat sjálfur
Iopinberlega stimplaður sem
hryðjuverkamaður í Bandaríkj-
unum. Bandarisk yfirvöld
sömdu við Frelsissamtök Palest-
ínu, PLO, 1974 um að fram-
kvæma ekki hryðjuverk utan
ísraels. í staðinn mótmæltu
Bandaríkin ekki þátttöku
Arafats á Allsherjarþingi SÞ það
sama ár.
Skotið á mótmælendur
Fjórir námsmenn létu lífið
þeg-ar lögregla skaut með
gúmmíkúlum, táragasi og vatns-
þrýstibyssum á þúsundir mót-
mælenda í Jakarta í Indónesíu í
gær. Mótmælendur krefjast þess
að efnt verði til kosninga á ný.
Gefa öllum tölvu
Sveitarfélagið Farum í Dan-
| mörku hefur ákveðið að gefa öll-
um opinberum starfsmönnum
: heimilistölvu með aðgangi að
Netinu og litaprentara. Starfs-
mennimir þurfa aðeins að
j greiða sem svarar 7.500 íslenskra
■; króna.
; Skjót lausn nauðsynleg
Viðskiptaráðherrar 18 APEC-
ríkja lýstu í gær yfir nauðsyn
þess að vinna hið fyrsta bug á
:; efnahagskreppunni í Asíu.
I PKK-leiðtogi handtekinn
I ítalska lögreglan handtók á
i fimmtudagskvöld Abdullah
Öcalan, leið-
toga Kúrdiska
verkamanna-
flokksins,
PKK, á Fiucim-
ino-flugvellin-
um í Róm.
Flokkurinn er
bannaður í
Tyrklandi og er Öcalan eftirlýst-
ur af tyrkneskum yfirvöldum.
Öcalan, sem var að koma frá
Moskvu, var með falsaö vega-
bréf.
Skipt á gíslum
Tveir Serbar voru látnir lausir
í Kosovo í gær gegn frelsi sjö
Kosovoalbana. Serbamir og Ál-
banamir voru óbreyttir borgar-
ar.
Danskt landnám í Mexíkó:
Danfoss í víking
Danska fyrirtækið Danfoss hefur
nýlega opnað verksmiðju í Mexíkó.
í verksmiðjunni verða framleiddir
varmastÚlar fyrir kæli- og frysti-
skápa og frystikistur.
Verksmiðjan er viðbót við starf-
semi fyrirtækisins og liður í áform-
um um að gera fyrirtækið að al-
þjóðafyrirtæki á sviði varmastilla,
að því er talsmaður fyrirtækisins
segir við Jyllands-Posten.
Nýja verksmiðjan er í Monterrey
þar sem Danfoss rekur fyrir verk-
smiðju sem framleiðir pressur í
kælivélar. Þessa stundina starfa 30
manns í nýju verksmiðjunni. Ætl-
unin er að auka framleiðsluna jafnt
og þétt og í árslok 1999 verði starfs-
menn orðnir 100 talsins og fram-
leiði um þrjár mifljónir varmastilla
á ári. -SÁ
Bandarísk yfirvöld lýstu því yfir í
gær að þau sæju enga þörf á að Kofi
Annan, framkvæmdastjóri Samein-
uðu þjóðanna, færi til íraks til að
reyna að miðla málum eins og Rúss-
ar hafa mælst til. ífebrúar síðast-
liðnum tókst Annan að ná sam-
komulagi við Saddam Hussein
íraksforseta á síðustu stundu og
koma þannig í veg fyrir loftárásir
Bandaríkjanna.
Talsmaður Hvíta hússins í Wash-
ington, Joe Lockhart, sagði í gær að
Bandaríkin teldu að skilaboðin til
Saddams væru þegar ljós. Tæki
hann ekki upp samvinnu við vopna-
eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna
á ný ætti hann á hættu hernaðarað-
gerðir gegn írak.
Lockhart tjáði fréttamönnum að
Bandaríkin óskuðu enn eftir frið-
samlegri lausn á deilunni.
Rússnesk yfirvöld kváðust í gær
vera á móti því að hemaðaraðgerð-
um yrði beitt gegn írak. Rússar vör-
uðu hins vegar íraka við þvi að
hættan á árásum væri yfirvofandi
fyndist ekki skjót lausn á deflunni
um vopnaeftirlit.
Sérstakur sendimaður Rússlands
í Miðausturlöndum, Viktor Posu-
valjuk, sagði í gær að Rússar
myndu styðja nýja ferð Annans til
Bagdads. írakar yrðu þá að tryggja
að slík ferð yrði árangursrík.
Kennari Viktor-
íu meintur
barnaníðingur
Bandaríska alríkislögreglan
hefur fundiö hundruð
barnaklámmynda á heimili virts
prófessors við
Yale-háskólann
í Bandaríkjun-
um. Viktoría
Svíaprinsessa
Ivar nemandi:
prófessorsins,
Antonios
Lasaga, á jarð-
fræðinámskeiði
síðastliðið vor.
Lögreglan hefur lagt hald á
tvær tölvur sem notaðar voru til
| að geyma klámmyndir og prenta
þær út. Prófessorinn hefur nú
látið af störfum við háskólann.
:• Lögreglan hefur ekki fundið
; neitt sem bendir til að hann hafi
: tengst alþjóðabarnaklámhringn-
um Wonderland.
Týndi breski
drengurinn
ekki fundinn
s Fyrir sjö árum hvarf 21 mán-
í aðar gamall breskur drengur,
Ben Needham, á grísku eyjunni
1 Kos þar sem fjölskylda hans var
í sumarleyfi. Nú kveðst breskur
i ferðalangur hafa séð ijóshærðan
| dreng á eyjunni Rhodos sem
t svipar til lýsingarinnar á Ben.
ÍFerðalangurinn tók myndir af
drengnum upp á myndband og
tókst að ná lokki úr hári hans
sem breska lögreglan hugðist
gera á DNA-próf.
Gríska lögreglan tilkynnti í
gær að ljóshærði drengurinn
væri ekki Ben eins og öll breska
þjóðin var farin að vona. í yfir-
lýsingu grísku lögreglunnar
sagði að foreldrar drengsins
5 hefðu getað staðfest hver hann
í væri og það hefði læknirinn,
j sem tók á móti honum í heim-
inn, einnig gert. Fjölskylda
Bens hefur oft orðið vonbrigð-
um eftir að vonir hennar um að
j drengurmn væri kominn í leit-
; irnar hafa brugðist.
Ástsjúkir
þorskar trufla
kafbáta
Norski sjóherinn á við
* óvenjulegt vandamál að glíma.
j Ástsjúkir þorskar trufla hljóð-
mælingar kafbátanna í sjónum.
i Torfur af tilfinningaheitum
þorskum gefa svo mikil hljóð frá
j sér að sónarkerfi kafbátanna
j geta ekki numið önnur hljóð.
Eiga kafbátarnir því erfitt með
;; að sigla um Noregshaf. Þetta
kemur fram í skýrslu rannsókn-
arstofnunar norska hersms.
Þorskamir gefa frá sér hljóð-
in með jöfhu miflibili til þess að
j laða að sér félaga af hinu kyn-
inu.
Borgarstjóri
stefnir byssu-
framleiðendum
Borgarstjórmn í Chicago, Ric-
hai’d Daley, krefst sem svarar 35
milljörðum íslenskra króna í
j bætur frá framleiðendum og
, seljendum skotvopna. Segir
■ borgarstjórnm þá bera ábyrgð á
I ofbeldinu í þjóðfélaginu.
ILögreglan leggur hald á þús-
undir óleyfilegra skotvopna á
hverjum degi. Þess vegna telja
yfirvöld að vopnasalar fylgist
ekki nógu vel með því að vopn-
I in komist ekki í hendur glæpa-
; manna. Vopnasalamir vísa
I ásökunum á bug og segja
•• ákvöröun borgarstjórans vera
j áróður fyrir borgarstjórnar-
j kosnmgamar á næsta ári. Yfir-
j völd í fleiri borgum íhuga máls-
| höfðun gegn vopnaframleiðend-
i um.
Kauphallir og vöruverð erlendis
New York
London
Frartkfurt
4639
Tokyo
160 150 4.4268,21
140
iOU 120^ i /, ■ ■ NiKkel mBm
i í S 0 N |
Hong Kong
20000 gg
15000
10000 j
5000
9997,89
■■■
Benstn 95 okt. EB Bensín 98 okt.
HangSong
Á S 0 N
Hráolia