Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1998, Side 12
12
LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1998
Qrir 15 árum
Clarence E. Glad guðfræðingur:
Má ekki vera að því að verða prestur
Fyrir fimmtán árum var Clarence
E. Glad í fréttum DV vegna þess að
hann hafði lokið embættisprófi í
guðfræði og BA-prófi í heimspeki
með fomgrísku sem aukagrein á að-
eins fjórum árum. Óneitanlega
glæsilegur árangur og í ofanálag
greindi Clarence frá því að hann
ætti sér áhugamál, svo sem þau að
leika á píanó og spila körfubolta.
Okkur lék forvitni á að vita hvernig
Clarence hefur reitt af, og hvert leið
hans lá að loknu prófinu.
„Það átti sér vitaskuld eðlilegar
skýringar að ég var svo fljótur með
námið,“ segir Clarence. „Ég var
með BA-próf í guðfræði frá erlend-
um háskóla þegar ég hóf nám við
guðfræðideildina og fékk hluta af
því námi metinn. Ég hafði líka áður
farið til Jerúsalem til þess að læra
hebresku og þaö flýtfi fyrir mér.
En síðan tók ég einar ljörutíu ein-
ingar á hverju ári og ætli megi ekki
segja að mig hafi gripið almenn
vinnugleði og því hafi mér gengið
svo vel.“
Clarence lærði latínu og almenn
málvísindi í Háskólanum veturinn
1983-1984 og fór síðan í framhalds-
nám í Nýjatestamentisfræðum til
Bandaríkjanna um haustið. Hann
nam við Brown-háskólann í Rhode
Island-ríki i Bandaríkjunum og út-
skrifaðist með doktorspróf 1992.
Þá lá leiðin til íslands á ný
og Clarence hefur frá þeim
tíma sinnt rannsóknum
sem aðallega hafa verið
styrktar af Rannsóknar-
ráði íslands. „Fyrstu árin
nýtti ég styrkina til þess
að endurskoða doktorsrit-
gerðina mína en hún kom
síðan út árið 1995 hjá
fræðibókaforlagi í Leiden
í Hollandi sem heitir E. J.
Brill. Bókin heitir upp á
enska tungu Paul and
Philodemus. Hún fjallar
meðal annars um Pál post-
ula og heimspeking sem
hét Fílódemos og var
Epíkúringur, fæddur á
fyrstu öld fyrir Krists
burð, en Páll postuli var
sem kunnugt er fæddur á
fyrstu öld eftir Krist.“ Clarence
hélt áfram að grúska á svipuðum
Clarence E. Glad guðfræðingur.
„BESTA MEÐALIÐ AÐ
SPILA Á PÍANÓIД
—teglr Cl*r«nc* E, 6i»d, úl*krff«Aí*t fiuuwt 6r Hátkóta íslawb
embaettitpróf í juöfmií og BA*próf ( bein»f*ki eftir a*«ítn fjötorr* ínttúm
fimm breytingar
slóðum og fyrr á þessu ári gaf
hann út, í samstarfi við aðra fræði-
menn, bók-
ina
Philodemus,
On Frank Criticism.
Fleiri rannsóknum
hefur hann sinnt í
samstarfi við alþjóð-
lega fræði-
menn og hef-
ur verið tíður
þátttakandi á
erlendum
ráðstefnum,
bæði 1 Banda-
ríkjunum á
vegum hins
bandaríska
biblíufræðifé-
lags og annars stað-
ar. Hann var gisti-
lektor við Kaup-
mannahafnarháskóla
1997-1998 og kennir
nú áfanga í
Nýjatestamentisfræðum og grísku
við guðfræðideild Háskóla íslands
þar sem hann er stundakennari
núna.
Þegar DV tók hús á Clarence fyr-
DV-mynd E.ÓI.
ir fimmtán árum var hann í Fíla-
delfíusöfnuðinum, en skráði sig í
þjóðkirkjuna skömmu síðar og í
henni er hann í dag. Hann hefur
enn ekki tek-
ið vígslu til
prests, þó að
hann hafi
embættis-
gengi eins
og það er
kallað, og
hann segir
enn óráðið
hvort hann verði ein-
hvern tíma prestur. „Það lá bein-
ast við að fræðistörfín sætu fyrir
og það má eiginlega segja að ég sé
ekki orðinn prestur vegna þess að
ég hef bara ekki mátt vera að því,“
segir Clarence. „Ef til vill er þó
ekki loku fyrir það skotið að á sjö-
tugsaldri fari ég að hugsa mér til
hreyfings í þeim efnum. Hver
veit?“
-þhs
Myndimar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur er
að gáð kemur í ljós að á mynd-
inni til hægri hefur fimm atrið-
um veriö breytt. Finnir þú þessi
fimm atriði skaltu merkja við
þau með krossi á myndinni til
hægri og senda okkur hana
ásamt nafni þínu og heimilis-
fangi. Að tveimur vikum liðnum
birtum við nöfn sigurvegaranna.
1. verðlann:
Akai-útvarpstæki með
segulbandi og vekjara frá
Sjónvarpsmiðstööinni,
Síðumúla 2,
að verðmæti kr. 3.990.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur að verðmæti
kr. 1570, Sekur eftir Scott Turow
og Kólibrísúpan eftir David Parry
og Patrick Withrow.
Vinningarnir verða sendir heim.
Merkið umslagiö með lausninni:
Finnur þú fimm
breytingar? 489
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík
Finnur þú fimm breytingar? 489
áður. Auðvitað þarftu að fara úr fötunum!
Nafn:
Heimili:
Vinningshafar fyrir getraun
númer 487 eru:
1. verðlaun: 2. verðlaun:
Ingibjörg I
Grytubakk
J Erlendsdóttir,
Grýtubakka 16,
109 Reykjavík.
Sunneva D. Jónsdóttlr,
Sandbakka 10,
780 Höfn.
METSÖLUBÆKUR
BRETLAND
SKÁLDSÖGUR - KIUUR:
1. Louls de Bernléres: Captains Corelli's
Mandolin.
2. Danlelle Steel: Ghost.
3. Kathy Relchs: Déjá Dead.
4. Andy McNab: Remote Control.
5. Bernard Cornwell: Excalibur.
6. Bernard Comwell: Excalibur.
7. Helen Fleldlng: Bridget Jones's Diary.
8. Nlcholas Evans: The Horse Whisperer.
9. lan McEwan: Enduring Love.
10. Jackie Collins: Thríll!
RIT ALM. EÐLIS - KIUUR:
1. Frank Mulr: A Kentish Lad.
2. Bill Bryson: A Walk in the Woods.
3. Frank Mccourt: Angela's Ashes.
4. Dlckie Blrd: My Autobiography.
5. Paul Wilson: The Little Book of Calm.
6. John Gray: Men Are from Mars, Women
Are from Venus.
7. Dava Sorbel: Longitude.
8. Lllian Too: The Little Book of Feng
Shui.
9. Bill Bryson: Notes from a Small Island.
10. Griff Rhys Jones: The Nation's
Favourite Comic Poems.
INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR:
1. Patrlcla D. Cornwell: Point of Origin.
2. Maeve Blnchy: Tara Road.
3. lan McEwan: Amsterdam.
4. Tom Clancy: Rainbow Six.
5. Dick Francls: Field of Thirteen.
6. Robert Harrls: Archangel.
INNBUNDIN RIT ALM. EÐLIS:
1. David Attenborough: The Life of Birds.
2. Lenny McLean: The Guv’nor.
3. Rlchard Branson: Losing My Virginity.
4. Francis Gay: The Friendship Book
1999.
5. Tony Adams & lan Rldley: Addicted.
6. Jeremy Paxman: The English.
(Byggt á The Sunday Times)
BANDARÍKIN
SKÁLDSÖGUR - KIUUR:
1. Chris Bohjalin: Midwives.
2. Tom Clancy & Martln Greenberg: Tom
Clancy's Power Plays: Ruthless.com.
3. Tonl Morrlson: Beloved.
4. Rebecca Wells: Divine Secrets of the
Ya-Ya Sisterhood.
5. James Patterson: Cat and Mouse.
6. Pearl Cleage: What Looks Like Crazy
on an Ordinary Day.
7. Nora Roberts: The MacGregor Grooms.
8. Charles Frazler: Cold Mountain.
9. Anna Quindlen: One True Thing.
10. Nlcholas Sparks: The Notebook.
RIT ALM. EÐLIS - KIUUR:
1. Robert C. Atklns: Dr. Atkins’ New Diet
Revolution.
2. Gary Zukav: The Seat of the Soul.
3. Jack Canfield o.fl.: Chicken Soup for
the Teenage Soul II.
4. Rlchard Carison: Don't Sweat the
Small Stuff...
5. Michael R. & Mary Dan Eaden: Protein
Power.
6. lyanla Vanzant: One Day My Soul Just
Opened.
7. Jack Canfleld o.fl.: A Second Chicken
Soup for the Woman's Soul.
8. Jon Krakauer: Into Thin Air.
9. Sebastlan Junger: The Perfect Storm.
10. Browne & May: Adventures of a
Psychic.
INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR:
1. Robert Jordan: Path of Daggers.
2. Anne Rlce: The Vampire Armand.
3. James Patterson: When the Wind
Blows.
4. Mary Higgins Clark: All Through the
Night.
5. Ken Follett: Hammer of Eden.
6. Barbara Kingsolver: The Poisonwood
Bibie.
INNBUNDIN RIT ALM. EÐUS:
1. Mlchael Jordan: For the Love of the
Game: My Story.
2. lyanla Vanzant: In the Meantime.
3. Mltch Albom: Tuesdays with Morrie.
4. Sarah Ban Breathnach: Something
More.
5. Suze Orman: The Nine Steps to
Financial Freedom.
6. Cherle Carter-Scott: If Life Is a Game,
These Are the Rules.
(Byggt á The Washington Post).