Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1998, Blaðsíða 20
LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1998 I IV
20 ‘fréttaljós
"★ ★
Næsti varaformaður Sjálfstæðisflokks:
Geir óskakand ídatar
Vinstri flokkarnir hafa sakað
Sjálfstæðisflokkinn um að sinna illa
jafhrétti í eigin ranni og benda því
til staðfestingar á rýran hlut
kvenna í trúnaðarstöðum í flokkn-
um og á hans vegum. Sjálfstæðis-
menn hafa ekki látið þessa umræðu
raska ró sinni að marki. Þó fer um-
ræöa um málin innan flokksins nú
nokkuð vaxandi, ekki síst í kjölfar
þess að kona hefur nú í fyrsta sinn
boðið sig fram i fyrsta sæti í próf-
kjöri flokksins f Reykjaneskjör-
dæmi. Þá lýsti nýlegur fulltrúaráðs-
fundur Landssambands sjálfstæð-
iskvenna því yfir að sambandið
vildi sjá Sólveigu Pétursdóttur al-
þingismann í Reykjavík kjörinn
næsta varaformann flokksins á
landsfundi í mars á næsta ári. „Það
eru ýmsar ástæður fyrir því að
þessi áskorun kom fram á fúlltrúa-
ráðsfúndi Landssambands sjálfstæð-
iskvenna um að kona gæfi kost á
sér í embætti varaformanns," segir
Ellen Ingvadóttir, formaður lands-
sambandsins, í samtali við DV. „í
fyrsta lagi leikur enginn vafi á því
að innan vébanda Sjálfstæðisflokks-
ins er stór hópur kvenna sem við
vildum gjaman sjá í framvarðar-
sveit, bæði á þingi, í sveitarstjóm-
um og síðast en ekki síst í framvarð-
arsveit flokksins. Hlutdeild kvenna
í henni hefur farið batnandi á und-
anfomum áram. En þegar við hug-
um nánar að málinu og útfærum
hugtakið framvarðarsveit sjáum við
að t.d. á Alþingi er hlutfall kvenna
Björn Bjarnason.
allt of lágt og einungis ein kona á
sæti í ríkisstjóm.
Þetta era meginástæður þess að
við hjá Landssambandi sjálfstæð-
iskvenna leggjum ríka áherslu á
það aö konur gefi ekki einungis kost
á sér til trúnaðarstarfa, heldur sýni
samfylkingu og styðji við framboð
kvenna. í því sambandi vil ég nota
tækifærið til að benda á að í Reykja-
neskjördæmi býður kona sig fram i
fýrsta sæti í prófkjöri flokksins í
fýrsta sinn, Sigríður Anna Þórðar-
dóttir, formaður þingflokksins. Mér
finnst mjög við hæfi að konur og að
sjálfsögðu karlar einnig fýlki sér að
baki henni. Sama er að segja um
það ef Sólveig Pétursdóttir gefúr
Handfrjáls búnaður fyrir GSM síma
JABRA
Hljóðnemi og hátalari í einu
Báðar hendur á stýri
Einstök hljóðgæði
Púðin situr þéttur
í eyranu og engin
hætta á að hann
særi hörundið.
Vertu frjáls!
Heildverslun
Bildshofti 18 • Sími 587 6670 • Fax 587 6671
Hátækni - Radíómiðun - Símabær
Umboðsmenn um land allt
Geir H. Haarde.
það áherslu i kosningabaráttunni í
fyrir prófkjör flokksins í Reykjanes-
kjördæmi sem fram fer í dag, að
þetta sé í fyrsta sinn sem kona býð-
ur sig fram í fyrsta sæti í Reykja-
neskjördæmi á vegum flokksins.
Sjálfstæðismenn era ekki á eitt sátt-
ir um hversu sögulegan atburð sé
um að ræða. Það sem mestu skipti
sé að sé kona kjörin til æðstu met-
orða þá sé hún sá skörungur að rísa
undir ábyrgðinni og þeirri byröi
sem vegtyllan er. Þá verði þær kon-
ur sem sækjast eftir vegtyllum að
skilja sjáifar sinn vitjunartíma.
Björn eða Geir
Maður sem hefúr gegnt og gegnir
enn trúnaðarstöðum innan Sjálf-
stæðisflokksins og á vegum hans
segir að raunveruleg umræða um
arftaka Friðriks Sophussonar í
varaformannssæti flokksins snúist
á þessari stundu um einungis tvo
menn; þá Geir H. Haarde og Bjöm
Bjamason. Björa hefúr sagt viö DV
að hann telji ekki tímabært, meðan
jafn langt er í landsfúnd og raunin
er, að gefa yfirlýsingar um vilja
sinn til stöðunnar.
Flestir sjálfstæðismenn sem eru
framarlega í flokknum eru þeirrar
skoðunar að sá sem tekur við þessu
embætti þarf að vera við því búinn,
sem og þeir sem kjósa hann í emb-
ættið, aö varaformaðurinn geti
hvenær sem er þurft að taka við for-
ystu flokksins. Þetta hefur sett að
mönnum þær hugsanir að í raun og
veru er verið að kjósa formann, en
ekki einhvers konar millileik eða
táknmynd um takmarkaðan tíma og
með takmörkuðu valdsviði, - mann
sem getur axlað ábyrgð formennsku
í stærsta stjómmálaflokki landsins
hverfi núverandi formaður á braut.
Að sjálfsögðu verði því að vera
um að ræða mann, karlkyns eða
kvenkyns, sem sýnt hefúr af sér
hæfileika og dug til að geta tekið við
flokknum á ögurstundu. „Það er
ekki verið að velta því fyrir sér
hvort kandídatinn sé karl eða kona,
örvhentur eða rétthentur, heldur er
verið að kjósa ákveðna hæfileika og
ákveðna sögu. Sá sem verður kos-
inn verður að hafa sýnt þaö að hann
hefúr burði til þess að taka við for-
ystu ef á þarf að halda. Þá geta
menn spurt sjáifa sig. Hver eða
hverjir hafa sýnt sýnt þá burði?
Þetta viðhorf kristallast í raun í
dæmisögu sem landsfundarfulltrúi
nokkur sagði á landsfundi fyrir
nokkrum árum þegar rætt var um
kynjakvóta. Hún var á þá leið að í
Bandarikjunum í eina tíð þótti þaö
mikið gæfumerki ef fiölskyldu tókst
að næla sér í heimilislækni sem var
gyðingur. Ástæðan var sú að menn
vissu það að gyðingur sem var orð-
inn læknir hafði þurft að berjast i
gegn um skólakerfið og leggja meira
á sig en aðrir og það var því nokk-
uð víst að hann væri góður læknir.
Nú þegar búið er að tryggja ýms-
um þjóðfélagshópum í Bandaríkjun-
um kvótabundin rétt-
indi til þess að ná í
hitt og þetta er hætta
orðin á að einhver
sem er orðinn læknir
hafi sloppið í gegnum
námið vegna þess að
sá þjóðfélagshópur
sem hann tilheyrir
hafði átt rétt á að svo
og svo margir úr hon-
um kæmust i gegnum
nálaraugað. Sama er
að segja um kynbund-
inn kvóta. Hann sé
ávísun á það sem er al-
mennt viðhorf í þess-
um hópi, að atgervis-
gengið fellur. Kröfur
um fæmi og hæfni eru
ekki lengur þær sömu
og þegar menn urðu
að berjast á sínum eig-
in persónulegu for-
sendum, hvort sem
þeir eru karlar, konur,
að norðan eða sunnan,
svartir eða hvítir.
Sólveig Pétursdóttir.
kost á sér í embætti varaformanns:
Mér fyndist mjög eðlilegt að konur
sem vilja auka hlutdeild sína, styðji
það framtak. Ég vil einnig benda á
það að jöfnun hlutdeildar kynjanna
í ákvarðanaferlinu er ekki einungis
mál kvenna. Það er mál beggja
kynja. Þess vegna finnst mér eðli-
legt að höfða til beggja kynja þegar
við óskum eftir stuðningi við konur
til trúnaðarstarfa."
Engan kvóta
„Kona verður ekki varaformaður
Sjálfstæðisflokksins fyrr en í fyrsta
lagi árið 2005. Stundin til þess er
einfaldlega ekki runnin upp. Sjálf-
stæðismenn hafa aldrei verið til við-
ræðu um það að sefia á einhvers
konar kynjakvóta í trúnaðarstöður í
og á vegum flokksins. Þeir velja fólk
í þær á grundvelli veröleika þeirra,
atorku og hæfni, en ekki eftir því
hvort þeir búi yfir ákveðnum líf-
fræðilegum eiginleikum, svo sem að
þeir séu dökkhærðir, ljóshærði, örv-
hentir eða karlkyns eða kvenkyns,"
segir karlkyns frammámaður í
flokknum. „Við þurf-
um einhver ár í við-
bót til að tileinka
okkur þessa kynja-
kvótahugsun og fýrr
verður kona varla
varaformaður eða
formaður út á það
fýrst og fremst að
vera kona. Ég efast
þó um að sú hugsun
verði nokkru sinni
almenn innan
flokksins þvi að hún
gengur beinlínis
gegn þeim hugsjón-
um hans að fólk
njóti ávaxta dugnað-
ar og eljusemi. En
þaö eru tískusveiflur
í hugmyndum ekki
síður en öðru,“ sagði
þessi sami maður.
Skörungar
komast áfram
Annar sjálfstæöis-
maður tók í sama
streng og sagði að
það sem skipti höf-
uðmáli sé að konur
sem sækjast eftir
áhrifum verði að
vera skörungar.
Hann sagði að vand-
inn væri einfaldlega
sá að flokkurinn
heföi engum skörungum í kvenna-
sveitinni á að skipa um þessar
mundir sem á annað borð gefa kost
á sér til trúnaðarstarfa. Fyrirsjáan-
legt sé að enn verði nokkurra ára
bið eftir að konur úr hinu rétta efni
komi fram á sjónarsviðið þótt efni-
viðurinn sé vissulega fyrir hendi.
Sigríður Anna Þórðardóttir og
stuðningsmenn hennar hafa lagt á
Möguleikar
Sólveigar
í þessu ljósi eru
möguleikar Sólveigar
Pétursdóttur ekki sér-
lega miklir á þessari
stundu. Þess ber þó að
minnast að enn eru
rúmir þrír mánuðir til landsfundar.
Sólveig á töluvert fylgi í Reykjavík
en minna utan Reykjavíkurkjör-
dæmis. Hún hefur hlotið þokkalega
kosningu til þeirra trúnaðarstarfa
sem henni hafa verið falin. En það
vinnur gegn henni að hún hefúr
veriö afar lítið áberandi á yfirstand-
andi kjörtímabili, mun minna en á
því síðasta.