Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1998, Page 26
26
LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1998
\%igt fólk
lúðar
Stefán Freyr Einarsson, formaður
Félags líffræðinema, er spurður að
því hvort ímynd líffræðinemans
hafi ekki breyst töluvert eftir að ís-
lensk erfðagreining var stofnuð.
Áður hafi hann verið lúðinn sem
hljóp um allt í stígvélum og rann-
sakaði kynfæri krabbadýra en nú sé
hann vel launaður í flottum slopp.
„Þetta hefur áreiðanlega breyst
mikið síðan ÍE kom,“ segir Stefán.
„Þar er sópað saman vel menntuðu
fólki, frá útlöndum og íslandi, sem
annars hefði ekki getað unnið hér
launanna vegna. Nú hafa líffræðing-
ar möguleika á því að verða há-
launastétt."
En höfðu fréttir af velgengni ís-
lenskrar erfðagreiningar einhver
áhrif á þá ákvörðun Stefáns að fara
í líffræði?
„Ef til vill að einhverju leyti, þó
að ég hafi aldrei ætlað mér að starfa
við líftækni. Ég veit líka um fólk
sem hefur áhuga á líftækni og hefði
fyrir daga íslenskrar erfðagreining-
ar endað í láglaunastörfum inni á
ríkisspítölunum. Starfið er mun
meira spennandi þegar það er kom-
ið inn í einkageirann og fleiri tæki-
færi sem bíða fólks.“
En gagnagrunnsfrumvarpið?
„Ég veit ekki hversu mikið ég á
að tjá mig um það. Ég hef blendnar
tilfinningar í garð þess en tel mig
kannski ekki hafa nægilega mikið
vit á málinu til þess að taka ákvörð-
un um hvorum megin ég eigi að
standa. Aðra stundina heyrir maður
allt jákvætt og hina stundina er allt
fundið því til foráttu. Ég fagna ís-
lenskri erfðagreiningu og erfða-
rannsóknum sem þar fara fram og
að einhver skuli hafa vit á því að
nýta menntun íslendinga. Þó að ég
geri það er ég ekki endilega að
hrópa húrra fyrir gagnagrunninum.
Ég tel að það sé brýnt að aðskilja
gagnagrunnsfrumvarpið frá um-
ræðu um erfðarannsóknir," segir
hann.
Stefán Freyr Einarsson líffræðinemi hefur þungar áhyggjur af stóriðjustefnu
íslenskra stjórnvalda. Hann segir líka að vel sé hægt að auka ferðamanna-
þjónustu án þess að láta fólkið hlaupa eftirlitslaust eins og rollur út um allt
hálendi.
DV-mynd ÞÖK.
Haldið upp á tilvist
kræklingsins
Stefán segir að starf formanns
félags liffræðinema sé í raun ekk-
ert frábrugðið annarra í stjórn. Fé-
lagið heitir Hagsmunafélag lif-
fræðinema og eins og nafnið gefur
til kynna er hlutverk þess að gæta
hagsmuna líffræðinema, bæði í
leik og starfi. „Það sem er efst í
huga okkar þessa dagana er að-
stöðuleysi nemenda. Húsnæðið er
af skomum skammti og tölvuað-
staðan afspyrnu léleg. Þessa dag-
ana stendur þó yfir tölvuátak Stúd-
entaráðs og Hollvinasamtaka Há-
skólans sem við bindum miklar
vonir við. Stór hluti starfseminnar
er einnig að skipuleggja félagslíf
nemenda, svo sem visindaferðir,
árshátið og fleira. Fyrir stuttu
héldum við til dæmis kræklinga-
kvöld sem er árlegur viðburður,"
segir Stefán. „Líffræðinemar hitt-
ast, fara upp í Hvalfjörö og tína
krækling. Um kvöldið er hann svo
eldaður og borðaður. Við erum að
halda upp á tilvist kræklingsins.
Það fer lítið fyrir rannsóknum á
honum þó að ekki sé loku fyrir það
skotið að einhverjir geri það á
meðan þeir borða,“ segir Stefán.
Stefán segir að það hafi verið
erfið ákvörðun að fara í líffræði og
kannski meiri tilviljun að svo fór.
„Ég hef áhuga á náttúruvísindum,
líffræðin er opið fag og það er
margt sem hægt er að fara í eftir
að hafa stundað nám í henni, en
það sem ég hef mestan áhuga á
núna eru umhverfismál."
Ekki bara gæsir sem
verða hraktar á brott
En af hverju hefur Stefán helst
áhyggjur í umhverfismálunum?
„í fyrsta lagi stóriðjustefnu og
virkjanaframkvæmdum sem á að
fara að ráðast í. Þar tel ég að mikil
skammsýni sé á ferð hjá stjómvöld-
um. Að sökkva friðlöndum og ómet-
anlegum náttúruperlum er ákvörð-
un sem bitnar á komandi kynslóð-
um og skref sem verður ekki stigið
til baka,“ segir Stefán. „Ég held líka
að við áttum okkur ekki á hvað við
erum með í höndunum. Norðmenn
eiga annað stærsta ósnortna víðerni
í Evrópu og i ferðaþjónustu gera
þeir .sérstaklega út á það að vera
númer tvö. íslendingar eru í fyrsta
sæti og við gætum gert langtum
meira við það heldur en við gerum.
Það er hægt að auka ferðamanna-
þjónustu án þess að láta ferðamenn-
ina hlaupa eins og rollur út um allt
eða byggja heilu hótelkeðjumar á
hálendinu. Stóriðjuframkvæmdir
munu einnig skaða ímynd fslands
út á við.“
Stefán segir að í Noregi sé ná-
kvæmlega skipulagt hvar ferða-
menn megi fara. Fólk sé ekki í
bandi í einhverri hcdarófu en svæð-
in séu skýrt afmörkuð. Ef við lítum
í kringum okkur þá eru nágrannar
okkar í Evrópu oft mun meðvitaðri
um umhverfi sitt en við íslendingar
þó að við séum með mun meira i
höndunum.
„Það er ekki hægt að byggja
vemd hálendisins eingöngu á því að
þar séu blóm sem munu fara í kaf
og gæsir sem munu hrekjast burt.
Það verður að sýna fram á að hægt
er að hagnast á hálendinu án þess
að drekkja því. íslendingar verða að
fara að líta á umhverfið sem hluta
af okkar daglega lífi en ekki eitt-
hvað aðskilið. Ég gæti því hugsað
mér að starfa að umhverfismálum
að loknu námi og jafnvel leggja
stund á umhverfisstjómun sem er
að hluta til hagfræði. Það er mikil-
vægt að við íslendingar verðum
meðvitaðri um það sem er að gerast
í umhverfi okkar og brýnt að koma
fólki í skilning um að telja eigi nátt-
úraperlur til verðmæta," segir Stef-
án Freyr að lokum.
-þhs
... í prófíl
Sara í Lhooq
Fullt nafn: Sara Guðmunds-
dóttir.
Fæðingardagur og ár: 1.
september 1978.
Maki: Christian Potter.
Böm: Hvar?
Starf: Starfsmaður í Hafnar-
fjarðarleikhúsinu og söng-
kona í hljómsveitinni Lhooq.
Skemmtilegast: Að keyra
bílinn minn, fara út að dansa
og mér finnst líka mjög gam-
an að borða.
Leiðinlegast: Hraðahindran-
ir, troðningur og hnífapör -
þau flækjast bara fyrir mér.
Uppáhaldsmatur: Humar,
lambakjöt, lasagna, sushi og
bara allt.
Uppáhaldsdrykkur: Malt og
appelsín (ekki jólaöl).
Fallegasta manneskjan
(fyrir utan maka): Mér er
alveg sama hvað allir segja:
Leonardo er ástin
mín!
Fallegasta röddin: Erykah
Badu.
Uppáhaldslíkamshluti:
Hálsinn.
Hlynnt(ur) eða andvíg(ur)
ríkisstjórninni: Ég er mjög
víghlynnt ríkisstjóminni.
Með hvaða teiknimynda-
persónu myndir þú vilja
eyða nótt: Jay Sherman -
The Critic.
Uppáhaldsleikari: Woody
Allen.
Uppáhaldstónlistarmaður:
Erykah Badu.
Sætasti stjóramálamaður-
inn: Hann er ekki til.
Uppáhaldssjónvarpsþáttur:
Friends.
Leiðinlegasta auglýsingin:
Sobakawa pillow - Sjónvarps-
markaðsauglýsingin.
Hún er ógeð.
Leiðinlegasta
kvikmyndin: Girl 6.
Sætasti sjónvarpsmaður-
inn: Darri Gunnarsson í Kol- j
krabbanum.
Uppáhaldsskemmtistaður:
Kaffi Thomsen.
Besta „pikköpp“-línan:
„Come sit on my knee and
we’ll talk about the first
thing that pops up“.
Hvað ætlar þú að verða
þegar þú verður stór: Alveg
eins og pabbi minn.
Eitthvað að lokum? Smá
kaffi væri fint.