Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1998, Qupperneq 31
LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1998
Þriggja sæta sófi
verð kr. 158.516,-
Verð miðast við
mjög vandað
ullaráklæði.
Fjöldi áklæða og
lita í boði.
Þriggja ára ábyrgð
á vinnu og grind.
Einnig fáanlegur
sem tveggja
sæta sófi, stóll
og hornsófi.
a. ra
epol
Skeifunni 6
568*7733
HONNUÐUR FRIÐLEIFUR KRISTJANSSON
ISLENSK FRAMLEIÐSLA FRA
Útivist boðar til ferða á aðventu og um áramót:
Sífellt meiri ásókn í vetrarferðir
Svikahrappar í Mexíkó
Utanríkisráðuneytið í Mexikó
sá sig á dögunum knúið til að
vara ferðamenn við nýjustu brellu
óprúttinna glæpamanna þar í
borg. Ferðamenn hafa alltaf þurft
að vara sig á vasaþjófum og
svindlurum í Mexíkó og í fyrra
bárust sögur af mönnum sem
rændu ferðamönnum og óku þeim
í næsta banka þar sem viðkom-
andi ferðamaður var neyddur til
að taka út hámarksúttekt á kortið
sitt. Nýjasta brellan er öllu alvar-
legri en hún felst í þvi að svindiar-
amir stöðva fólk á flugvöllum og
biðja það að taka þátt í könnun.
Meöal þess sem er spurt um er
símanúmer nánustu ættingja
heima fyrir. Þegar ferðamaðurinn
er úr augsýn er rokið í simann og
ættingjunum heima tjáö að ferða-
manninum hafi verið rænt og
verði ekki sleppt nema fyrir álit-
lega upphæð.
Flugmenn varaðir
viðViagra
Flugmenn
eru nú
varaðir við
undralyfinu
Viagra.
Ástæðan er
sú að Viagra
getur valdið
litblindu um
stundarsak-
ir og menn
átt erfitt
með að
greina græna og bláa liti í sundur.
Blár og grænn eru nefnilega höf-
uðlitir þegar kemur að tækjabún-
aði flugstjómarklefans og sömu
litir era notaðir á flugbrautum.
Það getur því beinlínis verið stór-
hættulegt fyrir flugmenn að sinna
starfi sínu ef þeir em enn undir
áhrifum lyfsins. Að sögn lækna
verða að liða að minnsta kosti sex
stundir frá inntöku undralyfsins
þar til flugmenn geta mætt í vinn-
una.
Vlagra
(sMenaö atrate) ubHs
tengslum við ára-
mótaferðina. Við
hugsum þessa ferð
til þess að uppfylla
þarfir þeirra sem
kjósa erfiða vetrar-
ferð. Það kemst eng-
inn með nema með
samþykki farar-
stjórans enda getur
ferðin reynt nokkuð
á menn. Það verður
gist á miðri leið en
við eigum ágætis
skála á hálsinum.
Ef allt gengur að
óskum þá koma
skíðamenn í Bása
um kaffileytið á
gamlársdag og geta
tekið þátt í hátíðar-
höldunum með
hópnum,“ segir
Guðfinnur.
Þótt skíðamenn
ætli að erfiða fyrstu
tvo dagana þá þarf
fólk ekki að liggja í
leti í Básum því
boðið verður upp á
dagsferðir alla dag-
ana. „Það verða
fjórir fararstjórar á
svæðinu og við
verðum með allt frá
erfiðum fjallgöngum niður í léttar
gönguferðir á láglendinu. Það er svo
undir hverjum og einum komið
hvernig hann vill eyða dögunum.“
Ferð fyrir börnin
Önnur ferð hefur mikið sótt á hjá
Útivist, er það aðventuferð í Bása
sem farin er helgina 27. til 29. nóv-
ember. Þetta er fjölskylduferð þar
sem auk hefðbundinnar útivistar er
Ferðafélag íslands og Útivist bjóða upp á ferðir í
Þórsmörk um áramótin. Hér skartar Álfakirkjan vetr-
arskrúða.
sérstök dagskrá fyrir yngstu kyn-
slóðina. Jólaföndrið verður tekið
með og um kvöldið gæða menn sér
á jólaglöggi og piparkökum. „Það
eru margar fiölskyldur sem hafa
komið aftur og aftur í þessa ferð og
hún er farin að marka upphaf jóla-
undirbúningsins á mörgum heimil-
um,“ segir Guðfinnur og minnir á
svipaða ferð sem Jeppadeildin ætlar
að fara i helgina 5. til 6. desember.
-aþ
Þrátt fyrir að helgarferðir til út-
landa hafi sjaldan eða aldrei notið
jafnmikilla vinsælda og í vetur þá
virðast fjallaferðir innanlands
einnig njóta mikilla vinsælda. Hjá
Útivist fengust þær upplýsingar að
vetrarferðir væru sífellt að sækja á
og æ fleiri sem uppgötvuðu að nátt-
úruskoðun að vetri er skemmtileg-
ur kostur.
Vinsælasta ferð vetararins hjá
Útivist er jafnan áramótaferðin og
nú þegar hefur um helmingur gisti-
rýma verið seldur. „Við tökum
aldrei fleiri en 75 í þessa ferð þvi
við viljum að það fari vel um fólk í
skálunum okkar. Sú nýlunda var
tekin upp í haust að hætta fyrir-
frambókunum og nú verða menn að
koma og greiða fyrir miðann sinn.
Við vorum gjarna að vandræðast
með nokkur hundruð bókanir,
stundum með ársfyrirvara, án þess
að fólki væri full alvara,“ segir Guð-
finnur Pálsson hjá Útivist.
Áramótaferð Útivistar er, eins og
fyrri ár, heitið í Þórsmörk og er gist
í Básum. Lagt verður upp miðviku-
daginn 30. desember og komið heim
2. janúar.
Erfið vetrarferð
Fyrir ævintýragjama skíðagarpa
verður sérstök skíðagönguferð sam-
hliða hinni hefðbundnu áraótaferð.
í stað þess að fara með hópnum
beinustu leið í Bása verður skíða-
mönnum ekið að Skógum þar sem
þeir leggja upp í ferð sína yfir
Fimmvörðuháls. „Við höfum farið
nokkrum sinnum á skíðum yfir
Fimmvörðuháls en þetta er í fyrsta
skipti sem við bjóðum slíka ferð í
Bættar samgöngur með tilkomu Hvalfjarðaganga:
Aukin umferð á
Snæfellsnesið
DV, Vesturlandi:
Umferð um Útnesveg á Snæfells-
nesi að Amarstapa jókst mjög mikið
síðastliðið sumar ef miðað er við
sumarið 1997 og er greinilegt að fólk
er farið að sýna Snæfellsnesinu og
þeim nátt-
úruperlum
sem þar er að
sjá meiri
áhuga.
Með til-
komu Hval-
fjarðarganga
hafa samgöng-
ur við svæðið
batnað mikið
og vissulega
hefur það sitt
að segja. Sam-
kvæmt tölum
frá Vegagerð-
inni fóm 7.138
bílar um Út-
nesveg í júní
1998 eða að
meðaltali 238
bílar á dag en
í júní 1997
fóru 5.670 bíl-
ar um veginn eða að meðaltali 189
bílar á dag. í júlí 1998 fóru 10.766 bíl-
ar um veginn eða 347 bílar á dag og
þar sést best að Hvalfjaröargöng eru
farin að segja til sín en mest var um-
ferðin tvo síðustu daga sem gjaldfrítt
var í göngunum eða 712 bílar annan
daginn og 617 bílar hinn daginn. í
júli 1997 fór 7.801 bíll um veginn eða
251 bíll að meðaltali á dag. í ágúst
1998 fóru 6.817 um veginn eða að
meðaltali 220 bílar á dag, á sama
tíma árið 1997 fóru 6.498 um veginn
eða að meðaltali 209 bílar á dag.
Þessar tölur hljóta að vera fagnað-
arefni fyrir ferðaþjónustuaðila á
Snæfellsnesi sem hafa unnið að því
að kynna Snæ-
fellsnesið á
undanförnum
árum og mán-
uðum og geta
nú glaðst yfir
árangrinum.
„Þessar tölur
eru mjög
ánægjulegar
fyrir okkur hér
í Snæfellsbæ og
sýna að ferða-
þjónustuaðilar
á svæðinu era
nú að uppskera
árangur sinn
eftir mikla
vinnu við að
kynna svæðið.
Ég er mjög
bjartsýnn á
næsta ár og á
von á enn fleiri
ferðamönnum á Snæfellsnesið þar
sem tilkoma Hvaifiarðarganga hefúr
stytt leiðina frá höfuöborgarsvæðinu
verulega og nú tekur ekki nema
u.þ.b. tvo tíma að koma til okkar,“
sagði Kristinn Jónasson, bæjarstjóri
í Snæfellsbæ, sem er greinilega mjög
ánægður með þessa þróun.
-DVÓ
Gestum á Arnarstapa á Snæfellsnesi hef-
ur fjölgað tii muna eftir að Hvalfjarðar-
göngin voru opnuð síðastliðið sumar.