Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1998, Qupperneq 51
■ 3"\T LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1998
Hefðbundin kvenímynd: Marilyn Monroe í Bus Stop.
1 Gildu besta dæmið um leikkonuna
sem kynferðislegt sjónarspil. Karla-
Qöldi hópast umhverfis hana og nýt-
ur hverrar mínútu rétt eins og áhorf-
endur. Sjálf sagði Hayworth að
mennirnir í lífi hennar (þ.á m. Orson
Welles) hefðu fallið fyrir Gildu en
ekki henni sjálfri og samböndin því
endað með ósköpum. Segir það
margt um áhrif slíkrar ímyndasköp-
unar.
Nýstárlegar
kvenhetjur
Ef marka má
sumar nýju kven-
hetjumar í
Hollywood er ljóst
að kvennabaráttan
hefur haft einhver
áhrif á þá miklu
karlastofnun. Per-
sónan Ripley (Sigo-
umey Weaver) í
Alien (1979) er að
mörgu leyti tímans
tákn. Sterk kona
sem fer fyrir öðrum
í „hefðbundinni"
hasarmynd þótt hún
birtist vissulega
einnig fáklædd í
myndinni. Sumir ef-
ast þó um gildi slikr-
ar kvenhetju og sjá
hana miklu frekar
sem karl í grímu-
búningi því hún
hafi tapað hinum
„kvenlegu gildum".
Kvenhetja myndarinnar The Long
Kiss Goodnight, Caine/Charly (Geena
Davis), sameinar aftur á móti á end-
anum bæði hina hefðbundnu konu og
ofúrhetjuna. Það má því vera ljóst að
heilmikil vinnsla á sér stað með
ímynd og eðh hinnar nýju konu í
Hollywood. Stóra spumingin er hvort
Holiywood lagar sig að henni eða sé
hreinlega að skapa hana.
-bæn
Kvenhetjumy ndir
Alien-serían (1979-97)
Ein almagnaðasta kvik-
myndaröð allra tíma. Ekki síst
merkileg fyrir þá ástæðu að ólíkir
leikstjórar (Ridley Scott, James
Cameron, David Fincher, Jean-Pi-
erre Jeunet) leikstýrðu hverri
mynd fyrir sig og má greina per-
sónulegt handbragð þeima á
myndunum. Er það ekki síst því
að þakka að seríunni hefur tekist
að viðhalda þokka sínum og
krafti. Sameiginlegar eru þó
myndunum geimskrímslin hans
H.R. Gigers og baráttukvendið
Ripley (Sigoumey Weaver) sem
virðast tengjast sterkari böndum
Sigourney Weaver í Alien Resur-
rection. Hún hefur leikið í öllum
Alien-myndunum.
með hverri mynd. Alien Resur-
rection vinnur t.d. af mikilli með-
vitund með tengsl kvenleika og
firringu (alienation), kvenímyndir,
móðm'eðlið og konuna sem
frik/dulbúning/geimveru.
La Femme Nikita (1990)
★★★ Glæpakvendið Nikita fær
uppgjöf saka, en er í staðinn þjálf-
uð tii að gegna stöðu launmorð-
ingja. Hún er látin skilja við sitt
eldra lif og sína upprunalegu per-
sónu. Þess í stað er sköpuð nær
ný manneskja með nýjum per-
sónueinkennum. Myndin lýsir því
að mörgu leyti ólíkum kvennaí-
myndum og þróun þeirra. Hún er
að vissu leyti leit að „konunni".
Árið 1993 var gerð bandarísk út-
gáfa myndarinnar með Bridget
Fonda í aðalhlutverki.
Thelma and Louise
(1991)
★★* Stöllurnar, er titill mynd-
arinnar vísar til, fá nóg af hvers-
dagslifmu (ekki síst körlunum sín-
um) og ákveða að segja skilið við
þaö. Þær drífa sig upp í bíl og
keyra út í óvissuna (líkt og ófáir
karlmenn hafa gert í gegnum tíð-
ina). Heldur sígur á ógæfuhliðina
þegar Louise drepur mann sem
reynir að nauðga Thelmu. Þær
leggja á flótta en lögreglan er
sjaldnast langt undan. Líkt og
ljóst má vera af umfjöllunarefni
myndarinnar er það ekki af
ástæðulausu að myndir Ridleys
Scotts hafa orðið miðlægar í
femískum kvikmyndafræðum.
Árið 1997 bættist svo G.I.Jane í
hóp kvennastúdía hans.
The Lonp Kiss
Goodnight (1996)
★★★★ Samantha Caine (Geena
Davis) er hin „fullkomna" banda-
ríska húsmóðir viö upphaf mynd-
arinnar. En smátt og smátt ryöst
fortíð hennar upp á yfirboröið,
fortíð miskunnarlauss morðingja.
í myndinni er síðan unnið jafnt
og þétt að því að sætta þessar and-
stæðu kvenímyndir. Samantha
þarf hvað eftir annað að bjarga
lífi karlhetju (Samuel L. Jackson)
myndarinnar, og er það til marks
um þann kynjaviðsnúning er
myndin býr yfir. Geena Davis fer
einnig með stórt hlutverk í mynd-
inni A League of their Own (1992)
sem vinnur sömuleiðis markvisst
með femínisk viðfangsefni.
-bæn
myndbönd e*
Myndbandalisti vikunnar
SÆTI ,FYRRI J VIKA j iVIKUR ; jÁ LISTA J ) J TITILL ; ÚTGEF. ) j TEG. j
1 ‘ 2 i L ! 2 ! Deep Impact j CIC Myndbond j Spenna
2 j i 1 i ! 4 ! j m The Wedding Singer ) ) Myndform ) • ) j Gaman ..)
3 ! 3 ) 3 1 j á J Sphere J WamerMyndir j Spenna
4 j j 9 j 3 j J 1 2 1 U-Tum J ■; 1 Skífan ) ) j Spenna
5 j i 6 J 9 J j 2 j Hoodlum ) i WamerMyndir J j Spenna
6 ) ! 4 i vmm ) 3 1 OutToSea i j Skífan i J Gaman
7 1 5 J J ) 4 J Scream2 J Skífan J Spenna
8 ! NÝ t ) 1 1 i ‘ j 1 J j J The Patiiot ! Myndform ) ! Spenna )
9 ! 8 ! 3 ! Gingerbread Man ! Háskólabíó J Spenna
10 ) { 7 j ! 4 ! i j Flubber ) ) Sam Myndbönd l. ) ,) Gaman 7
11 ! NÝ j i J j 1 j Martha, MáÉgKynna.... Háskólabíó J Gaman
12 j U B? j : 7 i Fallen ) J WamerMyndir ) J Spenna
13 I NÝ ! i ! Mimic ) Skrfan J ) Spenna
14 i ii i j ! 6 ! The Big Lebowski J ; - Háskólabíó J J Gaman
15 I 10 J J i 6 J Hard Rain J Skrfan J Spenna
16 ) J 13 ;j J 7 1 e i j i The Man In The Iron Mask ) j WamerMyndir :-.-J ,'W’, ' : ! Spenna )
17 ! 14 ! * ; The Rainmaker J CIC Myndbönd ; Spenna
18 j ! 17 ! 7 i i j Mouse Hunt 1 ‘ CIC Myndbönd ) ) Gaman j
19 ! 16 ! ii ! AsGoodAsltGets J Skrfan ! Gaman
20 j 15 i j ! 5 ! MadCity ) WamerMyndir Jg :é | ; j Spenna
Myndband vikunnar
Armageddon
★★★
Rússinn bjargar öllu
Af einhverjum ástæðum gerist
það aftur og aftur að Hollywood
sendir frá sér tvær myndir um
sama efni á stuttum tíma, svo
sem tvær myndir um Hróa hött,
tvær Kólumbusarmyndir, tvær
eldgosamyndir og nú tvær loft-
steinamyndir. Armageddon er
nú komin út á myndbandi, rétt á
eftir Deep Impact. Við slik tæki-
færi er hefðbundið fyrir gagn-
rýnendur að bera seinni mynd-
ina saman við þá fyrri og ég ætla
ekki að gera neina undantekn-
ingu á því.
Alveg eins og I Deep Impact
ógnar risastór loftsteinn öllu lífi
á jörðu. Armageddongrjótið er
öllu stærra og ekki hægt að fela
sig neðanjarðar í nokkur ár eins
og þeir ætluðu að gera í Deep
Impact. Hér eru alvöru ragnarök
í gangi og ekki einu sinni bakt-
eríur myndu lifa þau af, sam-
kvæmt sérfræðiáliti yfirmanns
NASA í myndinni. Alveg eins og
í Deep Impact er hópur geimfara
sendur til að lenda á hnullungnum,
bora á hann gat og sprengja í sund-
ur með öflugri kjamorkusprengju.
Deep Impact sendir alvöm geimfara
meðan Armageddon hífir nokkra
bláflibba af borpalli á þeim forsend-
um að þeir þurfi bestu bormennina
sem til er.
Munur myndanna felst einmitt í
því að Deep Impact snobbar fyrir
menntaða fólkinu meðan Arma-
geddon snobbar fyrir því ómennt-
aða. Deep Impact reynir að vera
gáfuleg og alvarlega þenkjandi með-
an Armageddon reynir fyrst og
fremst að skemmta fólki og mistekst
ætlunarverk sitt ekki jafhherfilega
og Deep Impact.
sem sendur
lagi skrýt-
inn eftir 18
mánaða ein-
Bruce Willis leikur leiðtoga olíuleitarmanna :
er út í geiminn til bjargar jörðinni.
. Si.
Reyndar byrjar Armageddon ekk-
ert aÚtof vel. Hún teygir lopann alltof
mikið og sinnir ekki gríninu og
hasarnum nógu vel. Löng peninga-
brennsluatriði, þar sem smáir loft-
steinar rústa fólki, farartækjum og
fasteignum, eru ftott í smátíma en
verða fljótt þreytandi. Góðir leikarar
túlka persónur í teiknimyndasagna-
stíl, nógu áhugaverðar til að halda
áhorfandanum inni í myndinni en
ekki alveg nógu áhugaverðar til að
söguþráðurinn gleymist (sem er eigin-
lega nauðsynlegt í jafii heimskulegri
mynd sem þessari). Langlanglangbest-
ur eru rússneski geimfarinn Lev An-
dropov (Peter Stormare) sem þjáist af
mikilmennskubrjálæði og er í meira
veru 1 gerni-
stöðinni
Mir. Hann
bjargar amerísku hetjunum hvað eftir
annað og í raun myndinni sjálfri og
gerir hana þess virði að sjá, nánast’
upp á eigin spýtur.
Útgefandi: Sam myndbönd. Leik-
stjóri: Michael Bay. Aðalhlutverk:
Bruce Willis, Ben Affleck, Billy Bob
Thornton, Liv Tyler, Will Patton,
Peter Stormare, Steve Buscemi og
William Fichtner. Bandarísk, 1998.
Lengd: 151 mín. Bönnuð innan 12
ára.
Pétur Jónasson