Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1998, Side 52
LAUGARDAGUR 14. NÓVEMBER 1998
>6» kvikmyndir
ALVORU BIO! ODDolby
STAFRÆNT »«««»«■■»»«
HIJÓÐKERFII I l_| y
ÖLLUM SOLUM!
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. B.i. 16
Sýnd kl. 5,7, 9 og 11.
SIMI
551
httpi/vkwWSSM^Si/ífíornublo/
Arið 1983
var það “Flashdance"
Árið 1987
var það "Dirty dancirit)"
í ár er það
“Dance With Me”
„Þú munt ganga inri i
kvikmyndasalinn,
en þú átt eftir að korna ni
dansandi."
Bonnie Churchill/Nalinii.il
News Syndicate.
'•lóðheit og seiðandi
loinahtÍBk dansmvild
-.<iiiiltiiii.il /i fráhami Salsa
lónlist. Með VíiiUiSMti
Williams (“Eraser”).;
I.<ak-.tjori: llamla llaineii!
(“Clnlrlren ol a Lesser God“)
Sýnd kl. 4.30, 6.45,9 og 11.25.
★ ★★ VESALINGARNIR ★ ★★
H.L. M.bl. 'M H áá m Á.Þ.
★ ★★ m «v w m ★ ★★
O.H.T. Rós 2 IjiS Mísi'k/ÍÍTES G.E. D.V.
Sýnd kl. 4.35, 6.55 og 9.15. B.i. 14 ára.
CMO
Simi 551
Cameron Diaz att Dillon Ben Stiller
There’S
S MeIFÍING Abo’T
M/4RY
★ ★★ 1/2
Bylgjan
★
Kvikmyndir.i
Frá leikstjórum Dumb
Dum og King in
gamanmynd ársins.
Sýndkl. 3, 5,6.45,9 og 11.20.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11. Sýnd Id. Id. 3, 5, 7, 9 og
11. B.i. 16 ara.
Rush Hour verður sýnd á jólunum:
Annatími hjá Jackie Chan
Ein af jólamyndum í ár
verður nýjasta kvikmynd
Hong Kong-leikarans
Jackie Chan, Rush Hour,
sem sló heldur betur í gegn
í Bandaríkjunum og hefur
verið meðal vinsælustu
kvikmynda þar í margar
vikur. Þar með hefur
Jackie Chan stungið af
helstu keppinauta sina á
hvíta tjaldinu, Steven
Seagal og Jean-Claude van
Damme sem báðir eru á
niðurleið í bransanum. Það
sem Jackie Chan hefur
- fram yfir keppinauta sína
er fyrst og fremst húmor,
sem hina virðist alveg
vanta og það sem hefur
gert Rush Hour jafn vin-
sæla og raun ber vitni er
einmitt húmorinn og í
þeim efnum fær Jackie
Chan góða aðstoð frá gam-
anleikaranum Chris
Tucker sem er mótleikari
hans.
Jackie Chan leikur Lee,
stjömuna í lögregluliði
Hong Kong. Þegar ellefu
ára dóttur kínverska kon-
súlsins í Los Angelels er
rænt þá er hann sendur til
að bjarga málum því ekkert
'hefur gengið hjá lögreglu
borgarinnar að hafa uppi á
telpunni sem Lee þekkir
persónulega. Lögreglan í
Los Angeles er ekkert alltof hrifinn af því
að fá kínverskan hjálparkokk og lætur
honum í té vandræðagemlinginn James
Carter sem hingað til hefur verið martröð
yflrmanns sins. Carter, sem hefur mikinn
hug á að komast í alríkislögregluna FBI,
sér þama opið tækifæri fyrir sig og ákveö-
ur að losa sig sem fyrst við kínverska gest-
inn svo hann geti einn baðað sig í frægðar-
Ijómanum þegar hann hefur fundið
stelpuna. Eins og vænta má vanmetur
, Carter Lee og verður fljótlega að sætta sig
við það að vera eingöngu Lee til aðstoðar í
miklum hremmingum sem þeir félagar
lenda í við að bjarga litlu telpunni.
Leikstjóri Rush Hour er Brett Radner og
Gamanleikarinn Chris Tucker setur
sinn svip á Rush Hour og ná þeir vel
' saman, hann og Jackie Chan.
Sem fyrr skiptir litlu
máli hversu margir
þeir eru sem ráðast að
Jackie Chan, hann
hefur alltaf betur.
Charlie Sheen. Rush
Hour verður sýnd
í Laugarásbíói og
Stjörnubíói. -HK
er þetta
önnur
kvik-
myndin
sem hann
leikstýrir, í
fyrra gerði
hann Money
Talks sem
Chris Tucker
lék einnig í
ásamt
Mjög slæmir hlutir
Cameron Diaz hefur heldur
betur slegið í gegn i
Hollywood eftir frammistöðu
sína í There’s Something
about Mary sem sýnd er í
höfuðborginni við miklar
vinsældir. í næstu viku
verður frumsýnd Very
Bad Things sem hún
leikur aðalhlutverkið i
ásamt Christian Slater. Um er að
ræða svarta kómediu sem segir frá pipar-
sveinapartíi sem verður endasleppt þegar vændis-
kona sem fengin var i samkvæmið deyr á slysalegan
hátt meðan verið er aö gamna sér með henni. Þessi
atburður verður til þess að vinir snúast gegn vinum
og allt fer í háaloft. Diaz leikur tilvonandi brúður
sem ætlar ekki að láta neitt koma í veg fyrir að brúð-
kaupið verði haldið á réttum tíma. Slater leikur sölu-
mann sem þykist kimna ráð við öllu. Leikstjóri er
Peter Berg, einn leikaranna í sjónvarpsþáttaseríunni
Chicago Hope.
Ástfanginn Shakespeare
Það hafa verið gerðar margar kvikmyndir eftir
leikritum WUliam Shakespeare og verður gert um
ókomna framtíð. Þar sem ekki
er mikið vitaö nákvæmlega
um þennan meistara leikbók-
menntanna þá hefur lítið
veriö gert í að kvikmynda
ævi hans.Shakespeare in
Love sem fnunsýnd verð-
ur vestanhafs í byrjun
desember fjaUar um at-
vik í lífi Shakespeares
en er ekki byggð á
traustum grunni sagn-
fræðUega séð. Segir af
ungrnn Shakespeare sem lendir i
krísu með eitt leikrita sinna, verður ást-
fanginn af Violu, ungri leikkonu sem klæöist karl-
mannsfótum tU að fá hlutverk. Út úr þessum kynn-
um veröur Romeo og Julia tU. Joseph Fiennes (bróð-
ir Ralph) leikur Shakespeare og Gwyneth Paltrow
leikur Violu. Handritið skrifaði leikskáldið kunna,
Tom Stoppard. Aöriri leikarar í myndinni eru Colin
Firth, Ben Afíleck og Judi Dench.
Stjörnufans í Dansinum
Ein af jólamyndunum í Bandarikjunum er
Dancing about Architecture
og eru væntingar miklar hjá
aöstandendum hennar og er
treyst á að sá aragrúi
þekktra leikara sem leikur
í myndinni komi tU með
að draga athyglina áð
myndinni. Ekki er mikið
vitað um innihaldið ann-
aö en að sagðar eru
nokkrar ástarsögur og
er mikið talað um ást-
ina í henni. Það þykir
fréttnæmt þegar haft er
i huga stjömufansið í myndinni,
að leikstjórinn WiUard CarroU er að stíga
sín fyrstu skref á þeim vettvangi, hefur hingað tU
framleitt teiknimyndir. Meðal leikara eru Sean
Connery, GUlian Anderson, Madeleine Stowe, Gena
Rowlands, Dennis Quaid, EUen Burstyn, Anthony
Edwards, Ryan PhUippe og Angelina Jolie.