Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1999, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1999, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1999 fréttir Fjórir í gæsluvaröhaldi í Jagúar-málinu: Bensíngjöfin fest og sjálfskiptingin í „drive“ - viðvaningar, segir vaktmaður hjá NATO Jagúarinn er framlágur eftir meðferðina. Bíllinn er leðurklæddur og búinn öllum hugsanlegum búnaði - bíll sem kostar 2-3 milljónir. DV-mynd GVA „Ég var að drekka morgunkaffið mitt þegar ég sá Jagúarinn koma á hægri ferð og staðnæmast við af- leggjarann út að NATO-bryggjunni. Stuttu síðar kom Toyota og saman var bilunum ekið út á bryggjuna," segir vaktmaður hjá olíubirgða- geymslu NATO í Hvalfirði. Vaktmaðurinn hélt áfram að drekka kaffið sitt og hélt áfram að fylgjast með bílunum tveimur sem höfðu staðnæmst við grjótgarð þar sem ekið er út á sjálfa NATO-bryggj- una. Klukkuna vantaði Fimmtán mínútur i átta og enn var dimmt þennan síðasta fimmtudag í janúar. Fjögur ljós sem skinið höfðu í myrkri voru nú allt í einu orðin tvö og þá stökk vaktmaðurinn á fætur: „Ég skildi ekkert i því hvað oröið hefði að öðrum bílnum og hljóp nið- ur að sjó. Þar gekk ég fram á tvo unga menn og spurði þá hvemig djöf... þeir væru að gera þama. Það var eins og þeir hefðu séð draug - stukku upp í Toyotuna og brunuðu á braut,“ segir vaktmaðurinn. Þá gekk hann fram á grjótgarðinn og sá dökkan Jagúar, brotinn og beyglaðan í flæðcumálinu. Það var lágsjávað og sjórinn gældi við vélar- hlífma, en annars stóð bíllinn upp úr sjó í 45 gráðu halla eins og grjót- gcirðurinn sjálfur. Það var búið aö brjóta hliðarrúður í bílnum og brjóta upp kveikjuna og tengja fram hjá, til þess að þetta liti út fyrir aö vera bUþjófnaður. Að framan var Jagúarinn klesstur og illa farinn. Mennimir tveir höfðu fest bensín- gjöfina í botni og skellt sjáifskipt- ingunni í „drive". Þannig var bíll- inn látinn rjúka fram af grjótgarðin- um. Við nánari skoðun kom í ljós að þama var um að ræða 1990 árgerð af dökkum Jagúar, leðurklæddum að innan og búnum öllum þægind- um - bíl sem kostar 2-3 milljónir á góðum degi. Á honum hvíldu veð- bönd upp á eina milljón króna vegna bílaláns. „Ég skil ekkert í mönnunum að reyna þetta. Hér er vakt allan sólar- hringinn og við fylgjumst með eign- um hersins eins og þær væru okkar. Ég sá mennina ekki greinilega í myrkrinu en þetta hljóta að vera viðvaningar," segir vaktmaðurinn í Hvalfirði. „Það er ekki hægt að komast út á NATO-bryggjuna sjálfa því þar er stálhlið fyrir þannig að þeir létu sér grjótgarðinn nægja með þessum árangri. Ætli dýpið hafi ekki verið í mitt læri.“ Vaktmaðurinn segist vera vanur þvi að fólk sem eigi leið um Hval- fjörð aki niður að NATO-bryggjunni og þá helst til að kasta af sér vatni. En ekki heilu bílimum! Jagúarinn var kaskó-tryggður og leikur grun- ur á að um tryggingasvik sé að ræða og rannsakar lögreglan málið á þeim forsendum. Skrásettur eig- andi bílsins er búsettur í Reykjavík og hann var ekki staddur í Hvalfirði umræddan morgun. Hann hefur verið úrskurðaður i gæsluvarðhald, svo og mennimir tveir sem voru að verki í Hvalfirði. Fjórði maðurinn var svo í yfirheyrslum hjá lögregl- unni í gær og var krafist gæsluvarð- halds yfir honum í gærkvöldi. “Málið er í rannsókn," segir Ómar Smári Ármannsson aðstoðar- yfirlögregluþjónn. -EIR Jökull hf. á Raufarhöfn sendir pólskum hjónum „útburöarbréf‘: Eiginmaðurinn handar- brotnaði og var rekinn - fékk „útburöarbréf ‘ og má ekki heimsækja eiginkonu sína í verbúðirnar Útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæk- iö Jökull hf. á Raufarhöfn hefur sent pólskum hjónum, sem búa í verbúð fyrirtækisins, „útburðar- bréf ‘ og er þeim gert að vera farin úr verbúðinni fyrir 15. febrúar. Þetta var gert þótt konan starfi hjá fyrirtækinu og að í samningi henn- ar og Jökuls sé skýrt tekið fram að Jökli beri að sjá henni fyrir endur- gjaldslausu húsnæði. „Þetta er bara enn eitt málið hjá þessu fyrirtæki en konan er með samning sem gildir fram í maí, þeg- ar atvinnuleyfi hennar rennur út, en þá eiga hún og eiginmaður henn- ar kost á að fá opið atvinnuleyfi hér á landi og geta ráðið sig i vinnu hvar sem er. Vilji fyrirtækið losna við hana þá, þarf að segja henni upp störfum," segir Kristján Snædal, formaður verkalýðsfélagsins á Rauf- arhöfh. Hann segir upphaf málsins hafa verið það að maðurinn handar- brotnaði i desember og þá hafi hon- um verið sagt upp, þrátt fyrir að í nóvember hafi verið skrifað undir framlengingu á atvinnuleyfi manns- ins. Hann réði sig síðan í vinnu hjá SR-mjöli um síðustu mánaðmót og í kjölfar þess kom „útburðarbréfið“. Kristján vildi ekki fullyrða að ein- hver tengsl væru þar á milli, en litl- ir kærleikar munu milli Jökuls- Nýtt bréf á leiðinni Kristján segir að á ýmsu hafi gengið í sam- skiptum við Jökul og framkoma fyrirtækisins við starfsmenn hafi ekki alltaf veriðtil fyrirmynd- ar. Samningar hafi ekki verið virtir, t.d. ekki lof- orð um 10 klst. vinnu á hverjum degi og einhverja helgarvinnu. „Ég er marg- búinn að reyna að tala við forráðamenn fyrirtækis- ins en maður fær bara skítkast til baka,“ segir Kristján. Verbúðin sem fólkið hefur búið í er langt frá því að vera fullmönnuð að sögn Kristjáns og segir hann skort á húsnæði ekki ástæðu þess að hjón- unum hafi veriö gert að flytja út. „Ég hef að vísu heyrt að fyrirtækið hygg- ist sækja um atvinnuleyfi fyrir 4-5 útlendinga, en það verður ekki samþykkt nema fyrirtækið gjörbreyti stefnu sinni hvað varðar málefni útlendinganna," segir Krist- ján. Hann segir „útburðarbréfið“ fá- VBtxifiwbdiMðl þið iem jskuil ht i ofi hefcf Wyfl eflendu veriuíóllri. rtðnu hji IðkH hf, ifi dveiji I endurijildiUusl «eUJstl*ðtil fltmriðwbúieui. Ná hefift þifi hjdnk dnUit I búeue* Jðk-uU h£ eodurijildiUuii I þrþl *r. >iðb«fléní þua fcoel *fi fl opifi itvinnuleyfl *em gefcr Jiftun rtu í vW »8ri borgw» þe»« lendi lil vlnnu og telioni vlð þvl *kl lengur •ðlilejl tð vifi «áum ykkur lyrir húm»>fii. >v lem uppiðfin Jinuar btfur nd lekið (ildi Of hus koœiim I viiuu mnuuUöw cr oú (onnlec* bcnt í mi búmsði þ»ð mot bmn tafcr dvilið I er.durxjildtUu* eiðjetu þrjá árji er iðeini «1*3 iterfifólkl JðtaJi ht Ykkur tr þvi |«0n trwtnr tfl 15. febrttr 1999 dl þeti *fi rýmt hfitnsfilfi. Ilo homini (hti JðkuU bf. bu illowtd it’i forri*n employeti louttui tnnporuy lodginfi for &«• ii not iOToded u »p«n«nenl hcmc. You b»v» nnw been in Jðkal’i honee for thns ycm wilhout cherjc. Younowhlve íie optíon ol tn opon work p«mltf*reen twT) which fiiv»« you eqoil righu to oiher crtixeni oí thu country to work. W* therefor do oot conrider it ippcopriele lo mpply you with lodginfi. Y*« aow kin »»tll Che 15* of Febr«»ry 1» tmpty yvu room nd flad othw ránlegt, fyrirtækið geti auðvitað ekki sent neitt sem heitir útburðar- bréf, það þurfi yfirvöld til slíks verknaðar. Þá segist hann í gær hafa heyrt af nýju bréfi sem væri væntanlegt frá Jökli, en í því væri konunni heimilað að dvelja áfram í verbúðinni, en eiginmanninum harðbannað að heimsækja hana. „Þeir geta ekki gert sig að fiflum með því að ætla að banna mannin- um að heimsækja konuna sína,“ segir formaður verkalýðsfélagsins. Persónuleg vandamál Jóhann M. Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Jökuls hf., segir að manninum hafi verið sagt upp vegna persónulegrá vandamála sem hann hafi ekki viljað taka á. Síðan hafi það gerst að annað fólk í ver- búðinni hafi orðið fyrir áreiti af hálfu mannsins og það hafi ekki verið hægt að una við. „Maðurinn fékk uppsögn eftir tvær aðvaranir og þar sem hann hefur áreitt fólk sem starfar hjá okkur og býr í ver- búðinni var ekki um neitt annað að ræða en fá hann þaðan út. Við gerð- um þau mistök að gera konu hans einnig að yfirgefa verbúðina, en þau mistök hafa verið leiðrétt," segir Jó- hann. En er það rétt að maöurinn megi ekki heimsækja eiginkonu sína í verbúðinni? „Já það er rétt. Annað heimilis- fólk þama hefur orðið fyrir áreiti af hálfu mannsins og ég ber hagsmuni þess fólks meira fyrir brjósti en aöra hagsmuni í þessu máli,“ segir Jóhann. -gk DV, Akureyri: manna og SR-manna eftir að SR féll frá sameiningu fyrirtækjanna á dögunum. Rj.Ierhðfn 01. ftbrtir 1999 Bréfið sem pólsku hjónin fengu frá Jökli hf. stuttar fréttir Námsgagnastofnun Menntamálaráðherra hefur skipað Árna Sigfússon framkvæmda- stjóra stjórn- arformann Námsgagna- stofnunar í stað Guðna Níelsar Aðal- steinssonar sem lætur af for- mennsku. Vísir greindi frá Risplástur bannaður Lyfjaeftirlit rikisins hefur lagt bann við kynningum á ris- plástrinum svokallaða sem apó- tekari í Reykjavík ætlaði að hefja sölu á. RÚV greindi frá. Bráðabirgöaleyfi Læknir sem sýknaður var í Hæstarétti af ákæru um mis- neytingu eftir að hann hafði samfarir við sjúkling, hefur nú fengið lækningaleyfi til bráða- birgða. Heilbrigðisráðherra svipti hann lækningaleyfi í mars sl. Bylgjan greindi frá. Broddi bestur Broddi Kristjánsson, badmint- onmaður og landshðsþjálfari í greininni, var í dag útnefnd- ur íþrótta- maður Reykjavikur fyrir árið 1998. Þetta er í annað sinn sem Broddi hlýtur þennan eftirsótta titil. Broddi, sem er 38 ára, hefur spil- að og æft badminton með TBR frá 7 ára aldri og hefur á glæsilegum ferli unnið samtals 37 íslands- meistaratitla. Engir vísindastyrkir íslendingar eru nú úti í kuld- anum í fimmtu rammaáætlun Evrópusambandsins um vísindi- og tæknirannsóknir sem tók gildi í lok síðasta mánaðar. Þetta kom fram í kvöldfréttum Rikisút- varpsins. Þróunarsjóðsdeilan svokallaða veldur því að Spán- verjar tefja ákvarðanir á Evr- ópska efnahagssvæðinu og koma í veg fyrir að ísland geti orðið að- ili að áætluninni. Formaður Samtaka hugbúnað- arframleiðenda segir brýnt aö máliö leysist sem allra fyrst enda milljarðar króna í rannsóknar- og þróunarfé í húfi. Páli er saklaus Páll Axel Vilbergsson, körfu- knattleiksmaður úr Grindavík, var í gær lýstur saklaus af neyslu ólög- legra lyfja. Hann mældist fyrr í vetur með ótrúlega hátt hlutfall af karlhormóninu testósteróni í lík- amanum og þaö gat bent til lyfja- neyslu. Rannsókn leiddi hins veg- ar í ljós að svo var ekki, Páli Axeli er bara eðlilegt að hafa hátt hlut- fall efnisins í likama sínum. Fýlkir aftur með Fylkismenn, sem hættu í 1. deild karla í körfuknattleik síðasta mánudag, eru komnir í deildina á ný. Körfuknattleikssambandið hef- ur lánað Fylki landsliðsþjálfarann, Jón Kr. Gíslason, sem stýrir þeim í fyrsta skipti gegn ÍS á morgun kl. 14 í Fylkishöll. Arnar með í dag? Arnar Gunnlaugsson knatt- spymumaður gekk í gær frá samningi við enska A-deildarlið- ið Leicester og skrifaði hann undir þriggja og hálfs árs samning við fé- lagið. Hann verður því í leikmannahópi Leicester sem mætir Sheffi- eld Wednesday í dag og búist er viö því að hann verði í fremstu víglínu með Tony Cottee. -VS/ÍBK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.