Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1999, Blaðsíða 55

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1999, Blaðsíða 55
LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1999 63 &mæli Guðjón Bjamason Guðjón Bjamason, arkitekt og myndlistarmaður, Klapparstíg 26, Reykjavík, er fertugur í dag. Guðjón fæddist í Hafnarfirði en ólst upp við Ægisíðuna í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1979, las lögfræði við HÍ 1979-81, stundaði nám í þýsku í Svartaskógi í Þýskalandi, lauk B.FA-prófi í byggingarlist og myndlist við Rhode Island School of Design, Providence 1983 og B. ARCH-prófl við sama skóla 1984, lauk MA-prófl í myndlist og skúlptúr frá School of Visual Arts í New York 1987, stund- aði nám við Columbia University í New York og lauk þaðan M.Sc. II- prófum í byggingarlist og hönnun 1989 með hæstu einkunn skólans. í námshléum vann Guðjón hjá Flugleiðum, Arnarflugi og Jordani- an Airlines við pílagrímsflug í Afr- íku og Asturlöndum nær. Hann var aðstoðarkennari í flar- víddarteikningu við Rhode Island School of Design 1982-84, var kenn- ari í byggingarlist við USA Insti- tute í Verona á Italíu og gestakenn- ari við Pratt University I Brooklyn í Bandaríkjunum 1991 og gestapró- fessor við New Jersey Institute of Technology i Newark í Bandaríkj- unum 1992. Guðjón starfaði á Teiknistofu Magnúsar Skúlasonar og Sigurðar Harðarsonar 1989. Hann stofnaði teiknistofuna Hugsmíð 1990 sem m.a. hefur hannað Kaffl List, Græn- an Kost og verslun Sævars Karls í Bankastræti. Guðjón sat í undirbúningsnefnd og stjórn ÍSAKK, íslenska arki- tektaskólans, 1993-96, var annar framkvæmdastjóra skólans 1994-96 og hefur frá upphafi verið kennari á sumarnámskeiðutr, skólans. Hann hefur unnið fyrir Listskreytinga- sjóð ríkisins, hefur setið í ritstjórn AVS frá 1992 og hefur ritað flöl- margar greinar um byggingarlist og listir í íslensk og er- lend tímarit og dagblöð. Samhliða störfum í arkitektúr hefur Guð- jón haldið yflr flörutíu sýningar, hér á landi og erlendis, á sviði mynd- listar, þ. á m. einkasýn- ingar á Kjarvalsstöðum, 1990, og í Hafnarborg, 1993 og 1995, auk alþjóð- legra samsýninga í Bandaríkjunum, Bret- landi, Noregi, Frakk- landi, Spáni og í Brasil- íu. Guðjón Bjarnason. stöðum á Verk Guðjóns voru valin til sýn- ingarinnar Hið forboðna landslag, af Henie Onstad-safninu í Ósló. Hann var valinn sumarlistamaður Norræna hússins í Reykjavík 1997 og fulltrúi Reykjavíkur 1997 á sýn- ingu menningarborganna 2000 í Avignon í Frakklandi. Guðjón sat í dómnefnd DV fyrir byggingarlist 1993 og var tilnefnd- ur til Mennningarverðlauna DV í byggingarlist 1994. Hann hefur unnið til nokkurra verðlauna og viðurkenninga í samkeppnum auk þess sem hann hefur hlotið um fimmtán opinbera og alþjóðlega styrki fyrir störf sín. Verk Guðjóns eru að öllu jöfnu til sýninga í Central Fine Arts Gallery og Hvgo de Pagona Gallery í New York en Guðjón vinnur nú að sýningarhaldi í Kaupmanna- höfn, Peking og New York á þessu ári. Fjölskylda Dóttir Guðjóns er Gígja Isis Guð- jónsdóttir, f. 11.6. 1990, en móðir hennar er Guðrún Helga Svansdótt- ir, f. 30.8. 1962, heilsufræðingur. Systkini Guðjóns eru Gróa Reyk- dal Bjarnadóttir, f. 11.8.1947, hjúkr- unarfræðingur í Reykjavík; Guð- rún Valgerður Bjarnadóttir, f. 29.8. 1949, flugfreyja í Reykjavík; Jón Þorvaldur Bjarnason, f. 13.2. 1957, bifvélavirki og sölu- maður í Reykjavík. Foreldrar Guðjóns eru Bjarni Guðjónsson, f. 17.8. 1927, fram- reiðslumaður í Reykja- vík, og Diljá Esther Þor- valdsdóttir, f. 17.10. 1929, verslunarmaður og húsmóðir. Bjarni er sonur Guð- jóns, útvegsb. á Bjarna- Grímsstaðaholti, Bjarna- sonar, b. á Grímsstaðaholtinu, bróður Jóns í Heiðabæ, langafa Ólafs Ragnars Grímssonar forseta. Annar bróðir Bjarna var Eiríkur, langafi Kristjóns, föður Braga bók- sala og Jóhönnu blaðamanns, móð- ur Illuga og Hrafns Jökulssona. Systir Bjarna var Katrín, amma Ar- inbjarnar Kolbeinssonar læknis. Bjarni var sonur Gríms, b. og skyttu á Nesjavöllum, bróður Ey- dísar, langömmu Guðrúnar, ömmu Guttorms Þorvarðssonar, fyrrv. yf- irverkfræðings Reykjavikurborgar. Grímur var sonur Þorleifs, ættfóð- ur Nesjavallaættarinnar, Guð- mundssonar, b. í Norðurkoti í Grímsnesi, Brandssonar, b. á Krossi Eysteinssonar, bróður Jóns, fóður Guðna, ættfoður Reykjakots- ættarinnar, langafa Halldórs, afa Halldórs Laxness. Guðni var einnig langafi Guðna, langafa Vigdísar Finnbogadóttur. Móðir Guðjóns var Þorbjörg Guðrún Jónsdóttir, pr. á Ólafsvöllum, Þorleifssonar, pr. í Hvammi i Hvammssveit, Jónsson- ar. Móðir Jóns var Þorbjörg Hálf- dánardóttir, pr. að Mosfelli í Gríms- nesi, Oddssonar. Móðir Þorbjargar Guðrúnar var Ingunn Ámadóttir, b. að Núpi í Fljótshlíð, Vigfússonar. Móðir Bjama var Guðrún Val- gerður, hálfsystir Áslaugar, móður Guðjóns Oddssonar, fyrrv. for- manns Kaupmannasamtakanna. Hálfbróðir Guðrúnar Valgerðar var Sigurgestur, faðir Harðar, forstjóra Eimskips. Guðrún Valgerður var dóttir Guðjóns, verkamanns í Reykjavík, Jónssonar, b. í Hafliða- koti, Jónssonar, b. á Ormsvelli í Hvolhreppi, Erlendssonar, bróður Valgerðar, langömmu Gretars Fells rithöfundar. Móðir Erlends var Halldóra Halldórsdóttir, b. á Rauð- nefsstöðum, Bjamasonar Halldórs- sonar, ættföður Víkingslækjarættar þeirra Davíðs forsætisráðherra, Ingólfs Jónssonar landbúnaðarráð- herra og Guðlaugs Tryggva Karls- sonar hagfræðings. Móðir Guðjóns var Hólmfríður Sveinsdóttir sem reri tólf vertíðir frá Landeyjasandi. Móðir Guðrúnar Valgerðar var Katrín Sveinbjörnsdóttir frá Kluft- um. Diljá Esther er dóttir Þorvalds, skipstjóra á Grand í Ytri-Njarðvík, Jóhannessonar, vinnumanns í Þjórsárdal, Eggertssonar. Móðir Jó- hannesar var Kristín, systir Guð- ríðar, langömmu Guðmundar, foð- ur Leós Löve lögfræðings. Kristín var dóttir Þorvalds, b. á Vilmundar- stöðum, bróður Jóns, langafa Jóns Björnssonar, fóður Selmu, fyrrv. forstjóra Listasafns íslands, og Hall- dórs, arkitekts og stjómarfor- manns, Jónssonar, fóður Garðars, arkitekts og húsameistara ríkisins. Þorvaldur var sonur Jóns, ættföður Deildartunguættar, Þorvaldssonar. Móðir Kristínar var Guðrún Finns- dóttir, hreppstjóra í Miðvogi, Narfa- sonar. Móðir Finns var Guðlaug Sigurðardóttir. Móðir Guðlaugar var Guðríður, systir Snorra Björns- sonar á Húsafelli. Móðir Þorvalds skipstjóra var Margrét Jónsdóttir, b. á Álfstöðum á Skeiðum, Magnús- sonar og Margrétar Einarsdóttur. Móðir Diljár er Stefanía Guðmundsdóttir, b. í Ánanaustum, Guðmundssonar og Stefaníu Reykdal Stefánssonar. Guðjón er í New York. Vinum er vilja óska honum heilla er bent á aðsetur hans þar, sími: 001-212-366- 0319, fax: 001-212-627-6142. tiikynningar Fríkirkjan í Reykjavík Fundur í Bræðrafélaginu kl. 12 laugardaginn 6. febr. í Safnaðar- heimilinu. Ræðumaður verður Þór- ir S. Guðbergsson, rithöfundur og fyrrv. ellimálafulltrúi Reykjavíkur- borgar. Umflöllunarefni Hvernig bætum við lífi við árin?“ Umræður og léttur hádegisverður. Félagar eru hvattir til að taka með sér gesti. Slysavarnadeild kvenna í Reykjavík Aðalfundur Slysavarnadeildar kvenna í Reykjavík verður 11. febr- úar kl. 19.30 í Höllubúð. Þorramat- ur. Mætum vel. Lionsklúbburinn Ýr, Kópavogi Við verðum með sölubás í Kolaport- inu laugardaginn 6. febrúar. Margt góðra muna á boðstólum. Öllum ágóða er varið til líknarmála. Kvenfélag Grensássóknar Kvenfélag Grensássóknar heldur að- alfund mánudaginn 8. febrúar kl. 19.30 í safnaðarheimilinu. Fundurinn hefst með kvöldverði. Venjuleg aðal- fundastörf. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til Kristínar í síma 568-7596 eða Brynhildar í síma 553-7057. Ball fyrir fatlaða Furðufataball verður haldið í Árseli laugardagskvöldið 6. febrúar kl. 20-23. Þeir sem mæta í furðufótum borga 300 kf. hinir borga 400 kr. Aldurstakmark 16 ára. Sjáumst hress og kát í Árseli. Jiu-Jitsufélögin á íslandi kynna Sensei Allan Campell national coach of United kingdom verður á íslandi dagana 6. og 7. mars. Nám- skeiðið er opið öllum unnendum góðrar sjálfsvarnarlistar. Þátttaka tilkynnist fyrir 20. febr., mán. og þri. milli 18 og 21 í síma 565-3453, og mid. og fid. milli 18 og 21 í síma 5655199. Húnvetningafélagið Félagsvist í Húnabúð, Skeifunni 11, laugardag kl. 13. Allir velkomnir. Athugið breyttan tíma. andlát Guðmundur Pálsson frá Höskulds- ey, Varmahlíð 2, Hveragerði, lést á Sjúkrahúsi Suðurlands að morgni fimmtudagsins 4. febrúar. Valborg Jónasdóttir, Miklubraut 62, Reykjavík, lést á Landspítalan- um 28. janúar. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Þórhalla Kristbjörg Sigurðar- dóttir, Iðavöllum 10, Húsavík, and- aðist á Sjúkrahúsi Þingeyinga, Húsavík, að kvöldi fimmtudagsins 4. febrúar. Gunnlaugur Eyjólfsson lést á heimili sínu Lindargötu 22A, fimmtudaginn 4. febrúar. Valgerður Árnadóttir, Lönguhlið 3, áður Ásgarði 29, lést i Sjúkrahúsi Reykjavíkur aðfaranótt fimmtu- dagsins 4. febrúar. jarðarfarír Sigurjón Vídalín Guðmundsson, Vestmannabraut 53, Vestmannaeyj- um, verður jarðsunginn frá Landa- kirkju laugardaginn 6. febrúar kl. 14.00. Jóhann Benediktsson, Melhaga 7, Reykjavík, sem lést í Landakotsspít- ala sunnudaginn 31. janúar, verður jarðsunginn frá Neskirkju mánu- daginn 8. febrúar kl. 15.00. Hjörvar Vestdal Jóhannsson Hofi, Lýtingsstaðahreppi, sem lést af slys- foram miðvikudaginn 27. janúar, Þorrakaffi Söngsveitin Drangey heldur sitt árlega þorrakaffi í félagsheimilinu Drang- ey, Stakkahlíð 7, sunnudaginn 7. febrúar. Húsið verður opnað kl. 14.30. Eins og alltaf áður verður veisluhlaðborð að skagfirskum sið og að sjálfsögðu mun söngsveitin taka lagið undir stjórn Snæbjargar Snæbjarnardóttur. Söngsveitin Drangey vonar að sem flestir geti komið að hlýða á sönginn og fá sér af veisluborðinu í leiðinni. verður jarðsunginn frá Goðdala- kirkju laugardaginri 6. febrúar kl. 14.00. Einar Hannessson, Brekku, Vest- mannaeyjum, verður jarðsunginn frá Landakirkju laugardaginn 6. febrúar kl. 10.30. Ágústa Jónsdóttir frá Þuríðarstöð- um i Fljótsdal, sem lést í Landspítal- anum 31. janúar, verður jarðsungin frá Valþjófsstaðarkirkju laguardag- inn 6. febrúar kl. 14.00. Gestur Jónsson, Hrafnistu, Reykja- vík, verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju mánudaginn 8. febrúar kl. 13.30. Ægir Breiðfjörð Friðleifsson, Tjarnarlundi, Stokkseyri, verður jarðsunginn frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn 6. febrúar kl. 13.00. Til hamingju með afmæ ið 7. febrúar 85 ára Sigurlaug Siggeirsdóttir, Eyjaseli 5, Stokkseyri. 75 ára Guðbjörg Sigurgeirsdóttir, Austurbyggð 17, Akureyri. Guðrún Jónasdóttir, Gerði, Akureyri. Stefán Þormóðsson, Reykjabyggð 35, Mosfellsbæ. 70 ára Bjöm E. Pétursson, Byggðarenda 11, Reykjavík. 60 ára Björn Jónsson, Ránargötu 1A, Reykjavík. Bjöm Magnús Egilsson, Fjarðarstræti 57, ísafirði. Gunnar Þór Gunnarsson, Austurgötu 21, Hafnarflrði. Ingibjörg Sigurðardóttir, Staðarbakka 22, Reykjavík. Sigrún Elíasdóttir, Barmahlíð, Reykhólum. 50 ára Finnur Eiríksson prentsmiður, Vesturbergi 15, Reykjavik. Eiginkona hans er Gunnhildur Hrólfsdóttir rithöfundur Þau verða að heiman. Haukur Margeirsson verkfræðingur, Þinghólsbraut 7, Kópavogi. Valur Margeirsson verkstjóri, Sólvallagötu 20, Keflavík. Bjarki Árnason, Vallartröð 7, Akureyri. Hjalti Hjaltason, Huldulandi 9, Reykjavík. Mignon Hazelie Lára Davenp, Öldugötu 54, Reykjavík. Sigriður Ágústsdóttir, Hringbraut 48, Hafnarfirði. Sverrir Jensson, Kötlufelli 7, Reykjavík. 40 ára Anna Ólafía Sigurðardóttir, Brautarlandi 12, Reykjavík. Ásbjörn Jónsson, Bollagöröum 97, Seltjarnarnesi. Emil Emilsson, Kirkjulundi 8, Garðabæ. Guðfinnur Jón Birgisson, Norðurvör 11, Grindavík. Lovísa Sigurðardóttir, Egilsgötu 26, Reykjavik. Margrét Jósepsdóttir, Amarsíðu 8A, Akureyri. Páll Gunnar Guðmundsson, Hólagötu 5, Njarðyík. Sigurður Pálmi Ásbergsson, Lokastíg 28A, Reykjavík. Snorri Þórisson, Vesturholti 7, Hafnarfirði. 1 Þjónustusími 55D 5DDD w w wv NÝR HEIMUR Á isi NETINU írJs
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.