Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1999, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1999, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1999 27 Að taka Ijóðið niður úr efstu hillunni Anton Helgi Jónsson og Linda Vilhjálmsdóttir eru Ijóðskáld en hafa nú samið leikverkið Hótel Hekla sem frumsýnt verður í Kaffileikhúsinu annað kvöld. Þar gera þau tilraun til að tengja saman þessi tvö listform. DV-mynd ÞÖK þau fulltingis annarra skálda, svo sem Braga Ólafssonar, Diddu, Geir- laugs Magnússonar og Steinunnar Sigurðardóttur. En um hvað fjallar verkið? „Það fjallar um flugfreyju sem þarf að kljást við farþega á leið til útlanda. Strax þegar við fórum að leggja drög að verkinu fannst okkur áhugavert að láta fólk mætast á ferðalagi, af því að þá kynnist það á allt annan hátt en venjulega. Flug- freyjur eru líka ansi formfastar og stífar, að minnsta kosti utan frá séð, og það var ögrandi fyrir okkur að brjótast inn í þann hugarheim. í verkinu kemur líka fyrir tiltölulega stífur bissnessmaður á viðskipta- ferðalagi og þetta par er kannski ekki það fyrsta sem maður tengir við ljóðaflutning. Það er absúrd að hugsa sér flugfreyju sem fer með ljóð fyrir farþega." Linda segir að leikurinn sé gam- anleikur og það gangi svo langt að í uppsetningunni sé notað nef með gleraugum og skeggi. Verkið hafi líka að sumu leyti verið orðið mjög absúrd þegar ljóðin voru komin inn í það. „Eftir sýningarnar í Norræna húsinu kom mörgum á óvart að það gæti verið svo gaman að ljóðalestri. Sumir greindu heldur ekki í sundur texta og ljóð vegna þess að það vannst enginn tími til þess að setja sig í þær upphöfnu stellingar sem menn eru vanalega í þegar þeir lesa Ijóð. Ljóðin eru sett í hversdagslegt samhengi, ekki ósvipað því sem Þórey gerir í Ljóði vikunnar í Sjón- varpinu." Linda og Anton eru sammála um að KafFileikhúsið sé góður staður til þess að sýna verk af þessu tagi, þar sem eiginlega væri ómögulegt að fLytja það í stórum sal á stóru sviði. Óskastaðurinn fyrir utan Kafíileik- húsið væri ef til vill Flugleiðavél. Sýningin gæti þá orðið farandsýn- ing. Er þetta ef til vill framtíð ljóðs- ins? „Framtíð ljóðsins er að vera hvar sem er og hvenær sem er,“ segir Anton Helgi. „Það sem hefur verið að gerast undanfarin ár er að ljóð- skáld og aðrir hafa verið að reyna að setja ljóðið fram á nýstárlegan hátt. Ná því ofan úr efstu hillunni þar sem það hefur verið svo lengi,“ segir Linda. Það er seinagangi menntakerfisins að kenna. Þegar ég var í skóla var Steinn Steinarr það nýjasta í skólaljóðunum. Það er sem betur fer að breytast núna og við erum að leggja okkar lóð á vogar- skálarnar.“ -þhs Linda Vilhjálmsdóttir og Anton Helgi Jónsson eru betur þekkt sem ljóðskáld en á morgun verður frum- sýnt í KaffOeikhúsinu leikverkið Hót- el Hekla sem þau sömdu í sameiningu. Hótel Hekla var áður sýnt á sænsku í Norræna húsinu sumarið 1997. „Þórey Sigþórsdóttir leikkona hefur bryddað upp á mörgu nýju í ljóðaflutningi, eins og landinn hefur fengið að sjá í Ljóði vikunnar í Sjón- varpinu í vetur,“ segir Anton. „Hún fékk styrk úr norræna menningar- sjóðnum, þar sem hún hafði ráðgert að setja upp ljóðadagskrá fyrir er- lenda ferðamenn. Hún bað okkur að hjálpa sér að velja ljóð og siðan vatt þetta upp á sig en ég held að Þórey hafi alltaf verið með það í huga að tengja saman leik og ljóð.“ Linda og Anton voru saman í höf- undarsmiðjunni í Borgarleikhúsinu þar sem Hlín Agnarsdóttir leik- stýrði verki þeirra. Þau segja Hótel Heklu mjög eðlilegt framhald af því sem þau voru að gera þar. „Við erum öll þrjú á þeirri línu að það sé gaman að vinna út frá spuna með leikurum. Fá hugmynd, kalla saman leikara sem spinna út frá henni og skrifa svo út frá því. Eina reglan í höfundarsmiðjunni var sú að allt væri leyfilegt og allan tímEinn vorum við því að gera ná- kvæmlega það sem okkur langaði til að gera,“ segir Anton Helgi. „Við erum bæði ljóðskáld. Hótel Hekla er þó fyrst og fremst leikverk og ljóðin eru þama til þess að styðja við leiktextann. Auðvitað standa þau fyrir sínu en þetta er fyrst og fremst leikrit. Við ætluðum fyrst að velja ljóðin og búa til leikritið í kringum þau á eftir en komumst fljótlega að því að það var ekki hægt. Á endanum var leikritið til- búið en vissum ekki hvemig í dauð- anum við áttum að koma ljóðunum inn í það líka. Það endaði með því að við ákváðum að hafa verkið eins og söngleik og völdum ljóðin með hliðsjón af söguþræðinum eða í beinu framhaldi af honum," segir Linda. Ljóðin í verkinu era ekki einung- is eftir Lindu og Anton heldur njóta Þórey Sigþórsdóttir og Hinrik Ólafsson sem flugfreyja og farþegi í Hótel Heklu. VERSLUNIN HÆTTIR 2 SIÐUSTU DAGARNIR Iþróttabuxur 2 stk. Puma skór Snjóbrettaúlpur Snjóbuxur Verð áður 3^8tT Verð áður Verð áður Verð áður 4*990 * Verð nú 2.490 Verð nú 3.990 Verð nú 6.990 Verð nú 990 SPORTHUS REYKJAVÍKUR Laugavegi 44 Laugardag opið 10-17 Sunnudag opið 12-18
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.