Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1999, Blaðsíða 26
LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1999 DV
26 fölgt fÓlk
Fólk velur sér mismunandi starfsvettvang. Ekki hefði ég áhuga á að sitja inni á skrifstofu og pikka á tölvu allan daginn. Ég gæti það ekki. Ég myndi hlaupa
grenjandi heim fyrsta daginn.
DV-myndir E.ÓI
Við álkatlana.
Fyrst þegar ég kom inn í
kerskálann hugsaöi ég hvern
fjandann ég œtti aö gera hér.
Þaö er allt svo stórt. Þetta er ólíkt
öllu ööru.
Einhvern veginn fmnst manni að
álver sé vinnustaður karla. Jafnvel
þótt því sé stjómað af konu losnar
maður ekki við þessa meinloku. í
kerskálanum í álverinu í Straums-
vík vinna níu konur og níutiu og
einn karl.
Ein af þessum níu konum er Sig-
ríður Theodóra Eiríksdóttir sem er
24 ára og hefur unniö í álverinu í
tæp fimm ár og er með lengsta
starfsaldur þeirra kvenna sem nú
vinna í kerskála álversins.
í álverinu? I alvöru?
Frændi Sigríðar benti henni á að
sækja um vinnu í álverinu vorið
1994 þegar hún var í atvinnuleit.
Hún sótti um og fékk starfiö. Hún
vann það sumar og valdi það sem
sumarstarf árið eftir. Hún hætti
hins vegar ekki um haustið heldur
hélt áfram og er þar enn.
„Þegar ég byrjaði fannst körlun-
um að það væri ekki hægt fyrir kon-
ur að vinna héma. Svo hrúgaðist
inn kvenfólk árið 1995 og þá hættu
þeir að tala um þetta.
Það er auðvitað fullt af konum og
körlum sem kemur inn i skálann og
hugsar með sér: „Nei, hér vinn ég
ekki!“ En það er bara eins og með
aðra vinnustaði."
Fólk bregst undrandi við þegar
Sigríður segir hvar hún vinnur: „í
álverinu? 1 alvöru? I mötuneytinu?"
Þetta er ekki alveg það sem fólk
býst við.
„Þetta er ekki pirrandi, ég er orð-
in svo vön þessu. Þegar ég er spurð
hvað ég sé að gera í álverinu, spyr
ég: „Viltu virkilega vita það?“ Starf-
ið er svo fjölþætt að fólk er engu
nær þótt ég lýsi því.“
Að vinna á lyftara -
ekkert mál
Sigríður hefur m.a. unnið við að
saga ál, merkja það og vinna á lyft-
ara.
„Ég er búin að sanna það sem
Grýlumar sögðu.“
Þegar Sigríður byrjaði að vinna í
álverinu var Rannveig Rist steypu-
skálastjóri og yfirmaður hennar.
Síðan er hún, eins og allir vita, orð-
in hæstráðandi í fyrirtækinu.
Skyldi eitthvað hafa breyst varð-
andi konumar í fyrirtækinu eftir að
I hita leiksins.
Rannveig varð forstjóri?
„Nei, það held ég ekki. Hún hefur
þá stefnu að fjölga konum, án þess
að það verði þó óréttlátt. Konunum
er, líkt og körlunum, sagt upp ef
þær standa sig ekki. Þetta er ekki
verndaður vinnustaður kvenna."
Eru konumar í álverinu meiri
karlmenn í sér en aðrar konur?
„Nei. Þetta er bara eins og meö
önnur störf. Fólk velur sér mismun-
andi starfsvettvang. Ekki hefði ég
áhuga á að sitja inni á skrifstofu og
pikka á tölyu allan daginn. Ég gæti
það ekki. Ég myndi hlaupa grenj-
andi heim fyrsta daginn.“
... í prófíl
Vilhjálmur H. Vil-
hjálmsson, laga-
nemi og pólitíkus
Fullt nafn: Vilhjálmur H. Vil-
hjálmsson.
Fæðingardagur og ár: 20. októ-
ber 1971.
Maki: Það mál er í nefnd.
Böm: Ég er hluthafi í litilli Láru.
Starf: Laganemi.
Skemmtilegast: Það sem mér
finnst ekki leiðinlegt.
Leiðinlegast: Fundir sem drag-
ast úr hófi þvi þeim hefði ytirleitt
verið hægt að ljúka á mun styttri
tíma með sama árangri.
Uppáhaldsmatur: Ora-saxbauti i
dós, borinn fram með grænum
Ora-baunum úr dós og rauðkáli í
dós.
Uppáhaldsdrykkur: Bloody
Mary.
Fallegasta manneskjan (fyrir
utan maka): Saumaklúbburinn.
Fallegasta röddin: Hún tilheyrir
Brynhildi Þórarins á Þjóðbraut-
inni.
Uppáhaldslíkamshluti: Pass.
Hlynntur eða andvlgur ríkis-
stjóminni: ANDVÍGUR.
Með hvaða teiknimyndaper-
sónu myndir þú vilja eyða
nótt? Ég myndi glaður blanda
mér í baráttu Andrésar og Há-
bems um hylli Andrésínu.
Uppáhaldsleikari: Gummi Ben.
Uppáhaldstónlistarmaður: Meg-
as.
Sætasti stjórnmálamaðurinn:
Össur Skarphéöinsson.
Uppáhaldssjónvarpsþáttur: Fót-
bolti.
Leiðinlegasta auglýsingin: Sel-
ect-samlokuauglýsingar.
Leiðinlegasta kvikmyndin: Am-
erískar stórslysamyndir.
Sætasti sjónvarpsmaðurinn: Sú
sem speglast i skjánum hveiju
sinni.
Uppáhaldsskemmtistaður: Allir
sem enda á bar: Mímisbar, Kaffi-
bar, Skuggabar og Leið-angur-
bar.
Besta „pikköpp“-llnan: Hér er
tíkall, hringdu í mömmu þina og
láttu vita að þú sofir ekki heima i
nótt.
Hver hefur haft mest áhrif á
lff þitt? Ég.
Hvað
ætiar þú að
verða þegar þú verður stór?
Sumir hafa sagt viö mig að ég
verði aldrei stór en ég er engu að
síður 10 cm stærri en Kristján
Guy Burgess þannig að ég er full-
komlega sáttur.
Eitthvað að lokum? Lifi Þróttur.