Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1999, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1999, Blaðsíða 6
■iútlönd PPPj ffATTfrffRV ‘A CTTjrhÉflft/WÍfcT LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1999 JLÞ \T . Jórdanska þjóð- in harmi slegin stuttar fréttir Vara viö vatnsskorti Hætta er á að 1 milljaröur manns búi við vatnsskort árið 2025 verði ekki gerðar ráðstaf- anir, að því er segir í viðvörun frá Sameinuðu þjóðunum. Castro gegn vændi Fidel Castro Kúbuforseti er nú kominn í herferð gegn vændi. Segir hann að þeir sem hagnist á þjónustu vændiskvenna eigi á hættu allt að 20 ára fangelsi. Vændiskonur vill Kúbuforseti senda í endur- hæfingu. I fyrra greip lögreglan nær 7 þúsund vændiskonur. Eldur í skýjakljúf 400 manns var bjargað er eld- ur kom upp i 28 hæða skýjakljúf í Baltimore i gær. Braust eldur- inn út á 14. hæð. Fleiri fórnarlömb 17 létu lífið og 100 særðust þegar tveimur flugskeytum var skotið af misgáningi á íbúða- svæði í írak fyrir tveimur vik- um, að því er kemur fram í skýrslu Sameinuðu þjóðanna. írakar sögðu 11 hafa farist og 59 særst. Síðasta stefnuræðan Nelson Mandela, forseti S-Afr- íku, sem er orðinn 80 ára, flutti í gær siðustu stefnuræðu sína. Stefnt er að því að halda kosn- ingar í maí. Mandela ætlar ekki að bjóða sig fram. Vill fresta sjálfstæði Carlos Belo, biskup og friðar- verðlaunahafi, varar við þjóðar- atkvæðagreiðslu um sjáifstæði A-Timor. Belo vill 10 ára aðlög- unartíma til að tryggja sættir milli stríðandi fylkinga. Fær ekki einkaleyfi Minningarsjóðurinn um Díönu prinsessu fær ekki einka- leyfi á myndum af henni. Sjóður- inn reyndi að vernda 52 af vin- sælustu mynd- unum þar sem menn vildu ekki sjá þær á eldhús- áhöldum og jóla- skrauti. Tónlist- armenn og íþróttastjömur, sem vildu fá myndir af sér flokkaðar sem vörumerki, fylgdust grannt með umsókn sjóðsins. Sprunga í Etnu Vísindamenn hafa uppgötvað sprungu í suðausturhluta eld- fjallsins Etnu sem í gær spúði hrauni annan daginn í röð. Er talið að sprungan bendi til þess að eldfjallið sé að breyta um lögun. Bakslag í bankakaup Eftir að það spurðist út á fimmtu- dag að Deutsche Bank AG fjármagn- aði byggingu útrýmingcU'búða nas- ista í Auschwitz í síðari heimsstyrj- öldinni kom bakslag í fyrirhuguð kaup þýska bankans á bandaríska fjármálafyrirtækinu Bankers Trust fyrir 10,1 milljarð dollara. Um það bil 1,5 milljónir manna, flestir þeirra gyðingar, létu lífíð í Auschwitz. Fréttaskýrendur telja að af kaupunum verði. Þau muni þó tefjast um nokkra mánuði. Búist er við að fulltrúar Deutsche Bank, fómarlamba helfarar nasista gegn gyðingum og þýskra stjórnvalda muni hittast innan skamms til að ræða skaðabótakröfur. í frétt frá Reuter er greint frá því að fulltrúar bankans sæki það fast að ganga frá kaupunum og í þeim tilgangi vilji þeir upplýsa fortíö bankans og ganga endanlega frá hugsanlegum kröfum vegna helfararinnar hiö fyrsta. -SÁ Háttsettir jórdanskir stjórnmála- menn og yfirmenn öryggismála komu saman í Amman í Jórdaníu í gær til að undirbúa útfór Husseins konungs og gera auknar öryggisráð- stafanir. Ammanbúar söfnuðust saman við sjúkrahúsið, sem hann var fluttur á eftir komuna frá Bandaríkjunum í gærmorgun, og báðu fyrir dauðvona konungi sín- um. Samtímis ræddi fjölskylda kon- ungs um það hvenær taka ætti önd- unarvélina, sem hann var í, úr sam- bandi. Jórdanska þjóðin var harmi slegin vegna veikinda konungs. Þeg- ar DV fór í prentun í gær var ekki búið að tilkynna um andlát hans. Við brottfaU Husseins Jórdaníu- konungs verður fyrsta verk nýút- nefnds ríkisarfa, Abdullahs prins, sem er 37 ára, að bera smyrsl á sárin innan konungsfjölskyldunnar sem mynduðust þegar konungur svipti Hassan bróður sinn krónprinstitlin- um í síðustu viku. Við blasa einnig efnahagsleg og pólítísk vandamál. Abdullah þarf auk þess að kljást við slæga valdhafa í nágrannalöndunum, Sádi-Arabíu, Sýrlandi og írak. Ýmsir óttast að vegna reynsluleysis síns geti Abduilah orðið auðveld bráð Saddams Husseins í írak og Hafez Assad í Sýrlandi. Abullah hafði ekki áhuga á að verða konungur. Það eru ekki nema tveir mánuðir síðan Abdullah, sem er vel mennt- aður herforingi, lýsti því yfir að hann hefði ekki áhuga á að verða konungur. Hann var reyndar krón- prins um skeið í bernsku en vegna óróleika í Miðausturlöndum taldi Hussein Jórdaníukonungur það skynsamlegra að útnefna Hassan bróður sinn krónprins. Það var fyr- ir 34 árum. En konungurinn var ósáttur við framferði bróðurins að undanfomu. Fullyrt er að Hassan hafi verið far- inn að haga sér eins og konungur- inn myndi ekki snúa aftur frá Bandaríkjunum þar sem hann hafði verið í meðferð vegna krabbameins. Hassan var sagður hafa útnefnt eig- in menn í lykilstöður í hemum og vikið mönnum konungs úr mikil- vægum sendihemastöðum. Orðróm- ur var á kreiki um að eiginkona Serbneska lögreglan kom í gær í veg fyrir að fimm manna sendi- nefnd Frelsishers Kosovo, KLA, kæmist til flugvallarins í Pristina til að fljúga þaðan til friðarviðræðn- anna í Frakklandi. Sagði lögreglan að fulltrúar frelsishersins hefðu ekki gild vegabréf. Hinir fulltrúam- ir ellefu frá Kosovo, sem safnast höfðu saman á flugvellinum til að fljúga með Herkúlesvélinni sem Hassans, Sarvath prinsessa, hafi verið farin að hegða sér eins og drottning og breyta innréttingum í konungshöllinni. Sjáffir hafa Jórdanir, einkum þeir sem eru af palestínskum uppnrna, verið hrifnari af Ali prins, syni Husseins konungs og þriðju eigin- konu hans, Aliu, sem er palestínsk- ur múslími, heldur en Abdullah. Abdullah er sonur annarrar eigin- konu konungs, Toni Gardener, sem er ensk. Reyndar er Abdullah kvæntur palestínskri konu. Að undanfömu hafði konungur- inn virst vera að undirbúa Hamza prins, sem er 18 ára og elsti sonur Qórðu eiginkonunnar, Noor drottn- ingar, undir konungsembættið. Embættismenn segja hins vegar að konungi hafi þótt of áhættusamt að láta óreyndan ungling taka við. frönsk yfirvöld höfðu sent eftir þeim, sögðu að þeir myndu ekki fara án fulltrúa frelsishersins. Var ákveðið að fresta brottfórinni þar til í dag. Friðarviðræðurnar um Kosovo eiga að hefjast í Rambouillet i Frakklandi í dag. Sérlegur sendimaður Bandaríkj- anna í Kosovo, Chris Hill, sagði á fundi með fréttamönnum í gær að það væri mjög mikilvægt að sendi- Hussein konungur, sem fæddist árið 1935, var sjálfur aðeins 17 ára þegar hann tók við konungs-emb- ættinu af foður sínum sem var geð- veikur. Hussein lagði alltaf mikla áherslu á að vera í góðu sambandi við þjóð sína til að tryggja stöðugleika. Hann hefur einnig verið ákaflega vinsæll af þjóðinni en meirihluti hennar er af palestínskum uppruna. ísraelsk yfirvöld hafa haft nán- ara samband við Jórdaníu en nokk- urt annað arabaland. Hafa ísraelsk yfirvöld litið á stöðugleikann í Jórdaníu sem tryggingu fyrir því að friöarferliö í Miðausturlöndum haldi áfram. Hussein konungur hef- ur einnig lengi verið milliliður íraka og annarra arabaþjóða. Fjöldi þjóðarleiðtoga lofaði i gær friðar- starf Jórdaníukonungs. nefnd Frelsishers Kosovo tæki þátt. Mennimir gætu lagt af stað þegar einn fulltrúa frelsishersins, Jakup Krasniqi, hafði áður lýst því yfir að ekki væri áhugavert að ræða annað en fullt sjálfstæði Kosovo á friðar- fundinum i Frakklandi. Hann var vantrúaður á að hægt væri að semja um slíkt. Hann kvaðst ekki heldur trúa að unnt væri að binda enda á stríðið. !! Gjaldeyrisforði Rússlands geymdur á Jersey Fimmtíu milljarðar dollara, allur gjaldeyrisforði Rússlands, var lagður inn á reikning á eyj- unni Jersey í Ermarsundi á ár- unum 1993 til 1998. Fyrrverandi ríkissaksóknari Rússlands, Juríj Skuratov, greindi frá j þessu í bréfi 1. febrúar síðast- liðinn. Daginn eftir neyddi Bor- Íís Jeltsin Rússlandsforseti Skuratov til að segja af sér. i Samtímis því sem komið hef- j ur veriö upp um Seðlabanka Rússlands fylgjast Rússar nú | spenntir með því hvað gert Sí verður við stjóm flugfélagsins Aeroflot. Á fimmtudaginn gerðu lögreglumenn skyndileit í fjölmörgum dótturfyrirtækj- um flugfélagsins. Er flugfélagið grunað um að hafa geymt hundruð milljóna dollara er- lendis. Líklegt þykir að fjár- málafurstinn Borís Berezovskíj tengist málinu. Forstjóri Aero- flots, Valeríj Okulov, er tengda- sonur Jeltsíns Rússlandsfor- seta. Tilfmningarnar í garð Clintons blendnar Monica Lewinsky, fyrrver- andi lærlingur í Hvíta húsinu, sagði við yfirheyrslumar á hót- elinu í Was- hington í vik- unni að til- fmningar sín- ar í garð Bills Clintons Bandaríkja- forseta væm blendnar. Þetta kom fram á myndbands- upptökunni sem Bandaríkja- þing gerði opinbera í gær. Monica neitaði að tjá sig um hvort hún teldi að Clinton hefði logið þegar hann neitaði að hafa snert hana á kynferðisleg- an hátt. Hún kvaðst ekki muna hvort forsetinn hefði sagt henni að skila gjöfunum sem hún hafði fengið. Clinton hafði sjálf- ur sagt eiðsvarinn i vitnastúku að hann hefði tjáð henni að hún kynni að þurfa að skila gjöfun- um hefðu þau þurft að bera vitni í máli Paulu Jones. Hlé var á réttarhöldunum yfir Clinton í gær. ínæstu viku verða greidd atkvæði um hvort Clinton veröi vikið úr embætti. Svíþjóð: Jesús með hommum á þinginu Myndir af Jesúm, umkringd- um hommum í hlutverki læri- sveinanna og Jesúm sem al- næmissjúklingi verða sýndar í sænska þinginu. Ákvörðunin hefur vakið harðar deilur með- al sænskra stjómmálamanna. Ecce Homo, sýning Elisabeth ar Ohlson, hefur verið mjög umdeild frá því að hún var fyrst sett upp í Svíþjóð í fyrra- sumar í dómkirkjunni í Uppsöl- um. Sprengjuhótanir hafa borist sölum þar sem sýningin hefur verið. Forseti sænska þingsins, Birgitta Dahl, ákvað að myndimar skyldu sýndar í þinghúsinu. Sýningin er sett upp í þinginu til að stjómmála- mennimir geti sjálfir myndað sér skoðun um hana. Kristileg- ir demókratar og Hægriflokkur- inn era andvígir sýningunni. Carl Bildt, leiðtogi Hægri- | flokksins, segir þingið ekki op- inberan sýningarsal. Mona ; Sahlin í Jafnaöarmannaflokkn- f um segir að Bildt og fleiri eigi s að skammast sín. „Þingið er hús lýðræðisins," segir hún meðal annars. Kauphallir og vöruverð erlendis New York 400 219 Lorulon 6000 :: 5500 \ A 5000 Vf FT-SE 1( 4000 ' 5939,9 Frankfurt 6000 5077,85 4000 DAX-40 2000 5 0 N D 170 160 150 140 130 120 g íio 100 $/t s 133 160; 150 " 140 130 120 14086,85 NihKol 0 Bensín 95 okt. 'H9 Bcnsin 98 okt. Hong Kong 9438,65 20000:;' 15000 I 10000“ 5000 Hang Seng S 0 N D Hríiolia 25 20 15 10 5 0 $/ tunnaS 10,82 D Sendinefnd KLA stöðvuð Hussein Jórdaníukonungur og Noor drottning á góðri stundu. Símamynd Reuter
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.