Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1999, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1999, Blaðsíða 11
DV LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1999 11 4- ' > Loksins er farið að rofa til í póli- tíkinni, sem hefur verið fremur leiðinleg og bragðdauf síðustu misseri og mánuði. Sá vandræða- gangur sem einkennt hefur sam- einingarferli vinstri manna, a.m.k. þeirra sem vilja sitja saman við borð, virðist að mestu að baki. Mikil þátttaka í prófkjöri Samfylk- ingarinnar í Reykjavík og glæsi- legur sigur Jóhönnu Sigurðardótt- ur getur orðið upphafstónn harðr- ar kosningabaráttu. Að visu setti Guðný Guðbjörnsdóttir strik í reikninginn með hringlandahætti og ístöðuleysi stjórnmálamanns sem ekki getur tekið ákvörðun. Hún er hætt við að hætta, enda „fjölmargir" hvatt hana til að halda áfram. Ég hef alltaf undrast stjórnmála- menn, sem þurfa að réttlæta ákvarðanir með því að benda á aðra - yfirleitt andlitslausan hóp, sem enginn þekkir. Guðný er ekk- ert einsdæmi. Að sögn, hafa marg- ir skorað á Sturlu Böðvarsson og Sigríði Önnu Þórðardóttur, að bjóða sig fram til embættis vara- formanns Sjálfstæðisflokksins. Það er alltaf til fólk sem heitir á aðra í tíma og ótíma að gefa kost á sér í hitt og þetta, en fráleitt er fyr- ir stjórnmálamenn að byggja fram- tíð sína á slíkum áskorunum. „En fólkið hefur tekið völdin" Eitt af því sem einkennir stjóm- málaumræður hér á landi eru inn- antóm slagorð og yflrlýsingar, sem lítið sem ekkert er á bak við. Slíkt hentar oft ágætlega i yflrborðsleg- um umræðum fjölmiðlanna. Jó- hanna Sigurðardóttir, ókrýndur leiðtogi Samfylkingarinnar, dettur oftar en margir aðrir í pytt slag- orðanna. Eftir að úrslit prófkjörs- ins lágu fyrir, byrjaði Jóhanna að tala um að fólkið hefði fellt sinn dóm. í sigurvímu stóð Jóhanna í miðjum slagaorðapyttinum og í yf- irheyrslu hér í DV liðinn þriðju- dag voru svörin einfóld: „En fólkið hefur tekið völd- in.“ Hér er Jóhanna auðvitað að vísa til þess hve góð þátt- takan var í próf- kjörinu - fór raunar fram úr björtustu von- um. En getur ókrýndur leið- togi stjórnmála- hreyfmgar gripið til fullyrðinga af þessu tagi - fullyrð- inga sem minna frem- ur á upphrópanir gamalla byltingarmanna? í þessu sambandi er áhugavert að skoða nokkrar stað- reyndir og setja þær í samhengi. í siðustu al- þingiskosningum árið 1995 fengu samfylkingar- flokkarnir, (Al- þýðuflokkur, A 1 þ ý ð u - bandalag, Kvenna- listi og Þjóð- vaki), samtals liðlega 27 þúsund at- kvæði og níu þingmenn í Reykja- vík. Aðeins munaði rúmum fjögur hundruð atkvæðum á þeim og Sjálfstæðisflokknum. í prófkjöri Samfylkingarinnar um síðustu helgi greiddu nær 11.300 atkvæði eða 41,3% af samanlögðum at- kvæðafjölda 1995. Ef miðað er við kjörskrá fyrir sveitarstjómarkosn- ingar á liðnu ári tóku liðlega 14% kjósenda þátt í prófkjörinu. Eng- inn getur haldið öðru fram en þetta sé góður árangur nýrrar hreyfingar. En þátttakan er ekkert einsdæmi. í prófkjöri sjálfstæðismanna á Reykjanesi síðasta haust, kusu rúmlega 12.200 eða 74% sé miðað við fjölda atkvæða Sjálfstæðis- flokksins í alþingiskosningunum 1995. Flokkurinn fékk þá rúm 16.400 atkvæði og fimm menn kjöma. Sé miðað við kjörskrá í liðnum sveitarstjórnarkosningum tóku nær 24% at- kvæðisbærra Reyknesinga þátt i prófkjörinu. Laugardagspistill Óli Bjöm Kárason ritstjóri Reyknesing- ar sáttari? Nú kemur aftur að fullyrðingu Jó- hönnu um fólkið og völdin. Mikla þátttöku í próf- kjöri Samfylking- arinnar segir hún sýna að almenn- ingur krefjist meiri jöfnunar og réttlætis: „Þetta er gamla fólkið, ör- yrkjar, einstæðar mæður og líka unga fólkið. Þetta eru hópar sem hafa verið skildir eftir og ég held að þeir séu að refsa ríkisstjórninni m e ð Kosningar 1995 - fylgi í % 37,7 37,1 Atkvæði á þingmann 1995 2.708 Samfylking Samfylking * Sjálfstæðis- flokkurinn Samfylkingin í Reykjavík Samfylkingin fékk liðlega 27 þúsund atkvæöi I alþingiskosningum 1995. 1 prófkjörinu um síðustu helgi greiddu nær 11.300 atkvæði eöa 41,3% af kjörfylgi í síðustu kosningum. Miðað við kjörfýlgi á Reykjanesi ættu liðlega sjö þúsund aö mæta á kjörstað nú um helgina. Miðað við þátttöku í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Reykjanesi á liðnu ári ættu hins vegar 12 þúsund að koma á kjörstaði Samfylkingarinnar. „gamla fólkið, öryrkjar, einstæðar mæður og líka unga fólkið“ sé sátt við sinn hlut. Möguleikarnir fyrir hendi Eitt virðist hins vegar ljóst. Ekki er hægt að draga aðra álykt- un af prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík, en að sóknarfærin séu til staðar. Hvort það tekst að nýta þau tækifæri á eftir að koma í ljós. Vísbending um það gæti komið um þessa helgi í prófkjörinu á Reykjanesi. Hlutfallslega þyrftu liðlega sjö þúsund manns að taka þátt í þvi til að jafna árangurinn í Reykjavík eða fimm þúsund færri en í prófkjöri sjálfstæðismanna fyrir áramót. Raunar má halda því fram að sjö þúsund manns sé ekki sérstak- ur árangur þegar haft er i huga að i síðasta próf- kjöri Alþýðu- flokksins, þegar Guð- mundur Árni Stefánsson og Rannveig Guðmunds- dóttir börðust um fyrsta sæti, greiddu um 8.800 at- kvæði. Mun færri fylgdu krötum að máli í alþing- iskosningum 1995 og sam- anlagt fylgi Alþýðuflokks og Þjóðvaka var litlu meira. Þátt- taka í próf- kjöri er því ekki ávísun, að öðru óbreyttu, á g o t t brautargengi i kosningum. Þetta vita sjálfstæðismenn í Reykjavík af biturri reynslu, en 1979 héldu þeir glæsilegt prófkjör þar sem lið- lega 11.600 greiddu atkvæði eða 21% atkvæðisbærra manna. Leift- ursókn Sjálfstæðisflokksins beið hins vegar skipbrot í kosningum sama ár. 23 gegn 25 2.447 Sjálfstæöis- flokkurinn * Frá kosningum hafa þrír þingmenn yfirgefiö Alþýðubandalagið. I síðustu alþingiskosningum fengu vinstri flokkarnir fjórir sem að Samfylkingunni standa, 37,7% fylgi eða yfir 62 þúsund atkvæði. Fylgi þeirra var nokkru meira en Sjálfstæðisflokksins, sem fékk 37,1% eða rúm 61 þúsund atkvæði. Það sem er merkilegt i þessu sam- bandi er að Samfylkingin er að- eins með 23 þingmenn á móti 25 þingmönnum Sjáifstæðisflokksins. Með öðrum orðum; hver þingmað- ur Sjálfstæðisflokksins er með töluvert færri atkvæði á bak við sig en þingmaður Samfylkingar- innar. Samfylkingin virðist hins vegar eiga nokkuð í land að ná því fylgi sem flokkarnir höfðu í síðustu kosningum. Nýjasta skoðanakönn- unin sýnir að jafnvel prófkjörið í Reykjavik hreyfði lítið við kjós- endum. Það yrði gífurlegt áfall fyr- ir vinstri menn ef Samfylkingin fengi ekki a.m.k. þriðjung atkvæða i maí komandi, þegar gengið verð- ur að kjörborði. Þá er tekið tillit til þess að græningaframboð Stein- gríms J„ Hjörleifs og Ögmundar fái 5-8%. Það er alltaf varasamt að vera með mikla spádóma um þróun í stjómmálum, en leiða má sterk rök að því að Samfylkingin liðist í sundur eftir kosningar ef niður- staðan verður ekki sú, sem að er stefnt. Viðhorf Svavars Gestssonar eins og það birtist fyrir prófkjörið, rennir nokkrum stöðum undir þessa fullyrðingu. í vefriti sínu, Hugmynd, hafði hann áhyggjur af þvi að Samfylkingin yrði ekki í jafnvægi þar sem hætta væri á að kratar yrðu í efstu sætunum í þremur stærstu kjördæmunum. „Þess vegna er mikilvægt - frá sjónarhóli sam- fylkingarinnar - að Alþýðubanda- lagið vinni próf- kjörið í Reykja- vík. Það hefur þýð- ingu fyrir þróun sam- fylkingarinnar í bráð og sérstaklega þó í lengd,“ sagði Svavar. Allir vita hver niðurstaðan varð. því að fylkja sér um Samfylking- una i Reykjavík," segir Jóhanna í áðurnefndri yfirheyrslu hér i DV. Það kann vel að vera að Jó- hanna hafi rétt fyrir sér um ástæð- ur mikillar þátttöku í prófkjörinu, en hún hefur ekkert fyrir sér í þeim efnum. En ef staðhæfingin er rétt vaknar sú spuming hvemig túlka eigi prófkjör sjálfstæðis- manna á Reykjanesi. Rökhyggja Jóhönnu leiðir ekki að annarri niðurstöðu en að „fólkið" á k Reykjanesi hafi verið að K lýsa ánægju sinni með * Wk störf og stefnu Sjálf- Hk stæðisflokksins í rík- SSí jtftfi isstjórn að Tók fólkið völdin?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.